Víkurfréttir - 29.05.1986, Side 21
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 29. maí 1986 21
Framsókn í Njarðvík
Grundvöllur þess að
mögulegt sé að byggja upp
þróttmikið bæjarfélag er öfl-
ugt og traust atvinnulíf. Á
hverjum tíma þurfa bæjar-
fulltrúar að vera nægjanlega
kunnugir atvinnulífi síns
sveitarfélags, til þess að þeir
geti með skynsamlegum
hætti metið þarfir þess. Við
skulum vera þess minnug að
beint samband er á milli
framkvæmdagetu sveitarfél-
agsins og afkomu fyrirtækj-
anna. Af þessu tvennu ræðst
einnig atvinnuöryggi íbú-
anna.
Sú þróun sem átt hefur sér
stað í sjávarútvegi í Njarðvík
svo og á Suðumesjum öllum
er á margan hátt ískyggileg. í
stað þess að bátar af lands-
byggðinni komi hingað með
afla sinn er nú verið að selja
hvert fiskiskipið af öðm frá
Suðurnesjum. Upprisa
landsbyggðarinnar virðist að
miklu leyti hafa orðið á
kostnað Suðurnesja. For-
senda þess að hægt sé að end-
urreisa sjávarútveginn er stór
aukið eigið fjármagn því
skuldabyrðin er þegar orðin
of þung.
Suðumes em vaxandi
þjónustusvæði og Njarðvík-
ingar mega ekki verða eftir-
bátar á því sviði. Þjónusta við
ferðamenn mun fara vaxandi
og sú starfsemi sem í kjölfar-
ið fylgir mun verða fjölþætt
og gæti dreifst á margskonar
minni fyrirtæki. Suðumesja-
menn verða að gera sér það
ljóst að Suðumes em ekki
verra ferðamannasvæði en
Hveragerði, Þingvellir eða
Mývatn. Umhverfismálin
eru stórt atriði og sá slóða-
skapur sem ýmsir aðilar hafa
komist upp með í umgengni
er fyrir neðan allar hellur.
Hvað skipulagsmál áhrær-
ir styð ég eindregjð þá hug-
mynd að nýtt fjölbrauta-
skólahús verði reist á bæjar-
mörkum Keflavíkur og
Njarðvíkur. Ennfremur legg
ég áherslu á að flýtt verði
skipulagningu á nýjum bygg-
ingasvæðum s.s. því sem
fékkst við færslu flugvallar-
girðingarinnar og Grænás-
svæðisins.
Eg legg áherslu á að íbúar
Njarðvíkur eigi greiðari að-
gang að bæjarfúlltrúum sín-
um en nú er. Við megum ekki
gleyma því að bæjarfulltrúar
fara með mikilvæg mál í um-
boði kjósenda sinna og þurfa
þess vegna að vera í góðum
tengslum við líf þeirra og
störf í bæjarfélaginu.
Eg tel brýnt að í stöðu
bæjarstjóra í Njarðvík verði
ráðinn maður með víðtæka
menntun og reynslu á sviði
viðskipta og verklegra fram-
kvæmda. Eg tel að rekstur
bæjarskrifstofunnar sé alltof
dýr og mannfrek og stjómun
ekki með þeim hætti sem
teskilegt væri. Samskipti yfir-
stjómar bæjarfélagsins við
einstakar stofnanir s.s.
áhaldahús og íþróttahús
virðast í ólagi.
Grunnskólinn hefur ekki
notið þeirrar athygli sem vert
Auglýsingasíminn er 4717
Steindór Sigurðsson
væri. Ég tel að það hafi verið
mistök að slíta æskulýðs-
starfið frá skólanum. Hús-
naeði skólans er orðið alltof
lítið og huga þarf að stækk-
un strax. Hægt væri að koma
fyrir tveimur stofum og sam-
komusal á lóð skólans og
væri þá félagsmálum nem-
enda borgið. Eg tel óasskOegt
að hafa á sama tíma í sama
skóla 6-8 ára börn og 15-16
ára unglinga.
Taka þarf á vímuefna-
vandanum af alvöru. Aðhald
frá heimilunum þarf að verða
meira. Erfitt er að sjá 12-13
ára börn koma með fullar
töskur af bjór úr sjálfsölum
af Keflavíkurflugvelli. Stuðla
þarf að aukinni ábyrgðartil-
finningu bama og unglinga
og virðingu þeirra fyrir sjálf-
um sér.
Góðir Njarðvíkingar! Að
þessu sinni er lítill vandi að
velja. Við þurfum framsókn í
Njarðvík.
Steindór Sigurðsson
1. maður á lista Framsókn-
arflokksins í Njarðvík.
Reyklaus endurfundur
Veist þú hvað handbolta-
landsliðið, skákmeistarar og
fegurðardrottningar eiga
sameiginlegt?
Já, þeim fjölgar víst óðum
sem taka virkan þátt í barátt-
unni fyrir reyklausu landi. Ef
þú ert ein(n) þeirra sem hefur
hætt reykingum, kannast þú
eflaust við daga sem þér hef-
ur fundist baráttan hálf von-
laus, löngunin jafnvel orðið
viljanum yfirsterkari og
taugarnar famar að segja til
sín. En haltu ótrauð(ur)
áfram, þetta kemur allt með
kalda vaminu.
Einn sterkur leikur í bar-
áttunni gegn reykingum er að
hitta aðra sem eiga í sömu
baráttu. Tala við einhverja
sem hafa farið í gegnum
sömu reynslu og skilja þig
vel. 6. maí sl. var einmitt slík-
ur félagsskapur stofnaður
hér á Suðumesjum. Þá kom
saman hópur einstaklinga
sem allir áttu það sameigin-
legt að hafa sótt 5 daga áform
til að hætta að reykja. Þau
ákváðu að koma saman
mánaðarlega framvegis til
þess að veita hvort öðm
stuðning og eiga skemmti-
lega kvöldstund í góðum
félagsskap.
Fyrsti slíki fúndurinn
verður næstkomandi þriðju-
dag, 3. júní, kl. 20.30 í Safn-
aðarheimili Aðventista að
Blikabraut 2, Keflavík. Á-
formað er síðan að hittast
fyrsta þriðjudag í hverjum
mánuði. Þessar stundir em
opnar öllum sem hafa hætt
að reykja eða vilja hætta
reykingum.
En tilgangur þessa félags-
skapar er einmitt tvíþættur. I
fyrsta lagi að veita fyrrver-
andi reykingamönnum
stuðning í ákvörðun sinni og
í öðru lagi að stuðla að reyk-
leysi annarra.
Á fúndinum 3. júní verður
rætt sérstaklega um leiðir til
þess að losna við aukakílóin
sem komu þegar tóbakinu
var sparkað burt. Svo, fyrr-
verandi reykingamenn og
aðrir sem áhuga hafa, munið
reyklausa endurfúndinn i
Safnaðarheimili Aðventista
Blikabraut 2, Keflavík, á
þriðjudaginn kemur, 3. júní
kl. 20.30.
Þröstur Steinþórsson
Brynjar Halldórsson
P.s. Handboltalandsliðið,
skákmeistarar og fegurðar-
drottningar eiga baráttu
gegn reykingum sameigin-
lega.
Inn í miðjum bæ
.•! \ i u)’lL I tí
Athugull Njarðvíkingur benti nýlega á það að forráða-
menn bæjarstjórnar Njarðvíkur og JC Suðurnes litu ekki á
íbúa Innri-Njarðvíkur sem Njarðvíkinga. Því mitt á milli
hverfanna væri skilti það sem sést á myndinni staðsett. En á
skiltinu eru gestir boðnir velkomnir til Njarðvíkur. -epj.
Þakkarávarp
Sendum eftirtöldum björgunarsveitum okkar
bestu þakkir fyrir aðstoð við leit að syni okkar og
bróður, Þorbirni Einari Friðrikssyni, sem fórst
með Sigurði Þórðarsyni GK 91 í mars sl.:
/Egi, Garði - Stakki, Keflavík - Hjálparsveit skáta,
Njarðvík - Skyggni, Vogum - Fiskakletti, Hafnar-
firði - Hjálparsveitunum í Garðabæ og Kópavogi -
Ingólfi, Reykjavík - Albert, Seltjarnarnesi.
Friðrík Ben Þorbjörnsson
og fjölskylda
UTBOÐ
TÓNLISTASKÓLINN
í KEFLAVÍK
Bæjarsjóður Keflavíkur óskar eftir til-
boðum í annan áfanga viðbyggingar
Tónlistaskólans í Keflavík. Um er að
ræða frágang innanhúss s.s. múrverk,
ofnalögn, trésmíði, málun o.fl. Svo og
breytingar á hluta eldra húsnæðis.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræði-
stofu Suðurnesja frá og með þriðju-
deginum 27. maí 1986 gegn 5000 kr. skila-
tryggingu. Tilboð verða opnuð á sama
stað föstudaginn 6. júní 1986 kl. 11.
Bæjarsjóður Keflavíkur
ORÐSENDING
frá verkalýðsfélög-
um á Suðurnesjum
Eins og undanfarin ár er vinna verkafólks
óheimil frá föstudagskvöldi til mánudags-
morguns, á tímabilinu 1. júní til 1. sept.
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur
og nágrennis
Verkakvennafélag Keflavíkur og Njarðvíkur
Verkalýðs- og sjómannafélag Grðahrepps
Þessi sumarbústaður er til söiu
Vönduð bygging, vel útbúin og er í 100 km
fjarlægð frá Keflavík. Uppl. í síma 92-2317.