Víkurfréttir - 29.05.1986, Síða 25
VÍKUR-fréttir
Firqmtudagur 29. maí 1986 25
Skúli Þ. Skúlason:
Vopn gegn vímuefnum
Jæja, skyldi lausnin nú
vera komin, hugsar þú ef-
laust, ágæti lesandi. Svo er
nú reyndar ekki. Mig langar
þó sem frambjóðanda til
sveitarstjórnar að benda á
„vopn“ sem að mínu áliti
kæmu að góðum notum í
baráttu okkar allra við
vímulaust samfélag.
Fjölskyldan
í fyrirrúmi
Sú stefna okkar Fram-
sóknarmanna í umhverfis-
og útivistarmálum að skipa
fjölskylduna í öndvegi, á an
nokkurs vafa eftir að skila
sér í betra bæjarfélagi. Við
viljum geta litið framtíðina
björtum augum, og með
batnandi efnahagsástandi á
fjölskyldan eftir að geta
notið frekari frístunda en
undanfarin ár. Þess vegna er
nauðsynlegt við skipulagn-
ingu útivistarsvæða að öll
fjölskyldan sé höfð að leið-
arljósi. Að hið ytra um-
hverfi sé svo vel úr garði
gert að fjölskyldan sem ein-
ing geti nýtt sér hana sem
beinir þátttakendur.
Til pess að þú haldir nú
ekki að hér sé eingöngu um
línulausa loftfimleika að
ræða, vil ég geta þess að i
okkar hópi er mikill áhugi
fyrir þvi að skipuleggja
Grjótnámuna norðan
Heiðarbyggðar sem vist-
legt útivistarsvæði fyrir alla
fjölskylduna. Þetta er svæði
sem mætti vera upplýst,
malbikað að hluta og tyrft
að hluta, þarna mætti setja
körfuspjöld, mörk fyrir
handbolta eða fótbolta og
jafnvel tennisvöll (fyrsta
sinnar tegundar á Suður-
nesjum). Þarna mætti vera
aðstaða til að ^rilla og á vet-
urna mætti útbúa skauta-
svell. Þama er nefnilega
ágætis skjól. Heldur þú,
ágæti lesandi, að þetta
gæti verið „vopn gegn
vímuefnum“?
íþrótta-
og leikjaskóli
í Keflavík er rekið öflugt
æskulýðs- og íþróttastarf.
Við höfum öfluga íþrótta-
hreyfingu og fjölda frjálsra
félaga sem vinna fómfúst
starf. Við höfum einnig
æskulýðsráð sem samræm-
ir starfsemina. Við Fram-
sóknarmenn teljum nú
samt að hægt sé að efla
þessa viðamiklu starfsemi.
Staðreyndin er sú að yfir
sumarmánuðina er æsku-
lýðsstarfið mun minna en
yfir vetrarmánuðina. Þess
vegna viljum við að í stað
leikjanámskeiðs sem
íþróttabandalagið hefur
starfrækt undanfarin ár
með miklum ágætum verði
komið á fót öflugum í-
þrótta- og leikjaskóla.
Hugmyndir okkar eru þær
að þessi skóli verði fyrir þá
krakka sem eru of gömul á
leikskólana en of ung í
bæjarvinnuna. Þetta yrði
skóli sem starfræktur yrði
alla sumarmánuðina, og
krökkum yrði leiðbeint í
boltaíþróttum, frjálsum,
sundi, hestamennsku, golfi
og fleiri leikjum. Það er
engin hætta á því að leið-
beinendur vanti, því alla tíð
höfum við getað státað af
frambærilegu fólki í íþrótt-
um sem einnig hefur reynslu
af leiðbeiningarstörfum.
Nú, þegar íþróttaaðstaðan
er fyrir hendi, jafnvel glæsi-
leg sundmiðstöð væntan-
le^. Heldur þú, lesandi
goður, að þetta gæti verið
„vopn“ gegn vímuefn-
um“?
Vinnuskóli
Við Framsóknarmenn
höfum einnig einsett okkur
það að efla til muna bæjar-
Ingólfur auglýsir fyrir Framsókn
Þegar menn sjá mynd þessa skilja þeir loks hvers vegna
svona lítið heyrist í Ingólfi Bárðarsyni nú fyrir kosningarn-
ar. Hann er orðinn framsóknarmaður, eða svo hlýtur að vera
fyrst hann auglýsir X-B ofan á iðnaðarhúsi sínu í Njarðvík.
Að vísu skal það játast að svo er ekki heldur lítur þetta svona
út frá því sjónarhorni sem mynd þessi var tekin. -epj.
vinnuna. Gera þá vinnu
meira aðlaðandi og eftir-
sóknarverðari fyrir ungl-
inga. Setja þarf á stofn öfl-
ugan vinnuskóla sem sam-
einar vinnu og tómstunda-
starf. Slíkur skóli yrði fyrir
krakka sem væru 12 til 16
ára, vinnutíma og verkefn-
um yrði stýrt eftir aldri.
Þetta þyrfti að gera að
venjulegu fyrirtæki á veg-
um bæjarins, fyrirtæki sem
tæki að sér verkefni fyrir
einstaklinga, fyrirtæki,
blokkareigendur og fleiri,
gegn vægu gjaldi. Vinnu-
skólinn þyrfti lika að tengj-
ast ferðalögum, uppákom-
um og íþróttaviðburðum.
Heldur þú, lesandi góð-
ur, að vinnuskólinn gæti
verið „vopn gegn vímu-
efnum“?
Ég vil í lok þessarar
greinar hvetja alla bæjarbúa
til að sameinast um það
mikilvæga starf sem þegar
er hafið við að finna lausn á
þeim vanda sem neysla
vímuefna er. Allt forvarn-
arstarf er fyrirbyggjandi.
VIKUR-fréttir vikulega
Hestaþing
Mána
Hestaþing Mána og úrtak fyrir landsmót
verður á Mánagrund dagana 7. og 8. júní
n.k. - Þátttaka tilkynnist í síma 2029.
Síðasti skráningardagur er mánudagur-
inn 2. júní.
Stjómin
Auglýsing
frá kjörstjóm Miðneshrepps
Kjörfundur vegna hreppsnefndar- og sýslu-
nefndarkosninga, laugardaginn 31. maí 1986,
hefst kl. 10 f.h. og lýkur kl. 23.
Kosið verður í grunnskólanum í Sandgerði.
Kjörstjóm
— Garðbúar —
Munið rabbfund H-listans í Samkomuhúsinu í
kvöld, fimmtudag, kl. 20.30.
Veitingar - Skemmtiatriði
X-H
Frambjóðendur
X-H
NJARÐVÍK
Bæjarstjórnar-
kosningar
í Njarðvíkurbæ laugardaginn 31. maí 1986
fara fram í Félagsheimilinu Stapa, litla sal.
Kjörfundur hefst kl. 9.00 og lýkur honum kl.
23.00.
Njarðvík, 26. maí 1986.
Kjörstjóm Njarðvíkurbæjar.
Jón Ásgeirsson
Guðmundur Gunnlaugsson
Jenný Lárusdóttir