Morgunblaðið - 04.12.2015, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Snjódýpt í Reykjavík mældist í
fyrradag 42 sentimetrar og er útlit
fyrir frekari snjókomu næstu daga.
Hafa vegna þessa margir viljað festa
kaup á snjóskóflu en gripið í tómt
þegar út í búð var komið. Eru snjó-
skóflur nú uppseldar á flestum stöð-
um í höfuðborginni.
„Það er greinilega mikill snjór
um allt land því á þeim 45 árum sem
ég hef unnið hjá þessu fyrirtæki hafa
aldrei áður verið önnur eins læti í
sölu,“ segir Ólafur R. Jónsson, hjá
heildverslun K. Þorsteinssonar &
Co., sem meðal annars flytur inn
skóflur til landsins. Þegar Morgun-
blaðið náði af honum tali var Ólafur
önnum kafinn við að leggja inn pönt-
un á fleiri skóflum frá Noregi, enda
lagerinn tómur, og ættu þær að ber-
ast hingað til lands fyrir jól.
„Ég hef aldrei átt jafn stóran
lager og fyrir þessi jól en hver ein-
asta skófla hvarf á mettíma. Það
kom meira að segja til mín maður
sem vildi kaupa af mér gamla skóflu
sem ég átti úti í bíl,“ segir hann.
Í versluninni Brynju við Lauga-
veg eru allar snjóskóflur búnar og
menn því í staðinn farnir að kaupa
bæði stungu- og fjósaskóflur. „Ef þú
getur mokað með því – þá selst það í
dag,“ segir sölumaðurinn Hafsteinn
Guðmundsson og bætir því við að í
vikunni hafi um 50 skóflur selst í
verslun hans. „Bráðum verður ekk-
ert eftir nema fægiskóflur.“
Pétur Hallsson, aðstoðarversl-
unarstjóri Byko í Kópavogi, segir að
þar hafi birgðir klárast í fyrradag.
Mjög er farið að sjá á birgðastöðu
Bauhaus og í Húsasmiðjunni, þar
sem vel á annað þúsund skóflur hafa
selst í vikunni. Þó mátti í gær enn
finna nokkrar óseldar snjóskóflur.
Snjóskóflur að verða uppseldar í borginni
Morgunblaðið/Eggert
Á kafi Eva Dís og Díana Dís höfðu í nógu að snúast við að moka snjó af og
frá bíl þegar ljósmyndari gekk fram á þær við Rauðarárstíg í gær.
Ef þú getur mokað með því þá selst það, segir sölumaður
Listaverk Ólafs Elíassonar, Ice Watch, var frum-
sýnt í gær, en það samanstendur af tólf brotum
úr ísjökum sem hefur verið stillt upp í hring á
Panthéon-torginu í París. Verkið er sett upp í til-
efni loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í
París, en með verkinu vonast Ólafur til að vekja
fólk til umhugsunar um hlýnun jarðar og bráðn-
un pólanna með því að varpa einhverju sem áður
var afstæð hugmynd inn í raunveruleika fólks.
Nýjasta listaverk Ólafs Elíassonar frumsýnt í Parísarborg
AFP
Tólf ísjakabrot varpa ljósi á loftslagsbreytingarnar
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Hæstiréttur dæmdi í BK-44 málinu
svonefnda í gær og fengu ákærðu all-
ir vægari refsingu en Héraðsdómur
dæmdi í júní á síðasta ári.
Dómar Birkis Kristinssonar og
Elmars Svavarssonar voru mildaðir
úr fimm árum í fjögur og dómur Jó-
hannesar Baldurssonar mildaður úr
fimm árum í þrjú ár. Magnús Arnar
Arngrímsson hlaut tveggja ára dóm í
stað fjögurra ára dóms. Var ákærðu
einnig gert að greiða málskostnað,
4.340.000 kr. hver.
Í dómi Hæstaréttar segir að hátt-
semi allra ákærðu hafi varðað gríð-
arlegar fjárhæðir og Glitnir hafi orð-
ið fyrir stórfelldu tjóni vegna
háttsemi þeirra. Snerist málið aðal-
lega um lánveitingu bankans til
Birkis. Þáttur þeirra í brotunum hafi
þó verið misjafn og að því virtu verði
ákærðu gerð refsing í samræmi við
hlutdeild þeirra.
Sakfelldir fyrir umboðssvik
og markaðsmisnotkun
Þeir Elmar, Jóhannes og Magn-
ús voru allir sakfelldir fyrir mark-
aðsmisnotkun og umboðssvik.
Birkir var sakfelldur fyrir hlutdeild
í brotunum, en félag í hans eigu tók
við því láni frá Glitni, sem málið
snerist um að mestu leyti. Lánið
var veitt í nóvember árið 2007, svo
að félag Birkis gæti fest kaup á
bréfum í bankanum með veði í þeim
sjálfum.
Á þeim tíma sem brotin voru
framin var Birkir starfsmaður
einkabankaþjónustu Glitnis, en Jó-
hannes gegndi starfi framkvæmda-
stjóra markaðsviðskipta, Elmar var
verðbréfamiðlari og Magnús Arnar
framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs.
Eiga sér engar málsbætur
Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að
við ákvörðun refsingar fjórmenning-
anna hafi verið litið til þess að Jó-
hannes og Magnús hafi verið meðal
æðstu stjórnenda bankans, sem hafði
starfsemi sem stór viðskiptabanki og
jafnframt almenningshlutafélag.
Dómurinn sló því svo föstu að Elmar
hefði verið í aðstöðu til að hrinda lán-
veitingunni í framkvæmd.
Í niðurstöðunni segir einnig að
Birkir hafi í senn verið starfsmaður
Glitnis og eigandi félagsins BK-44 og
verið þannig bæði í persónulegum og
viðskiptalegum samskiptum við þá
sem komu fram fyrir hönd bankans
við viðskiptin. Hafi hann freistað
þess að njóta fjárhagslegs ávinnings
af viðskiptunum líkt og raunin varð.
Fjórir fangelsisdómar féllu
Hæstiréttur felldi dóm í BK-44 málinu í gær Refsingar ákærðu mildaðar
Brotin talin hafa valdið Glitni stórfelldu tjóni Eiga sér engar málsbætur
Magnús Arnar
Arngrímsson
Birkir
Kristinsson
Jóhannes
Baldursson
Elmar
Svavarsson
Ólöf Nordal, inn-
anríkisráðherra,
hefur lagt fram
stjórnarfrumvarp
um breytingu á
lagaumhverfi í
heimilisofbeld-
ismálum. Meðal
þess sem fram
kemur í frum-
varpinu er að sett
verði sérstakt
lagaákvæði um heimilisofbeldi í al-
menn hegningarlög og einnig að
bætt verði við ákvæði um þvingaða
hjúskaparstofnun sem geri það
refsivert að neyða annan mann til að
ganga í hjúskap.
Verði frumvarpið samþykkt skap-
ast skilyrði til að hægt verði að full-
gilda samning Evrópuráðsins um
forvarnir og baráttu gegn ofbeldi
gegn konum og heimilisofbeldi.
jbe@mbl.is
Frumvarp
um heimilis-
ofbeldi
Ólöf
Nordal
Veðurstofan var-
ar við stormi á
landinu síðdegis í
dag, meðalvindi
yfir 20 m/s, og
ofsaveðri með
suðurströndinni.
Þar er spáð með-
alvindi yfir 28
m/s, m.a. við
Öræfajökul, Mýr-
dalsjökul, Eyja-
fjöll og í Vestmannaeyjum. Hviður
geta farið yfir 50 m/s við Öræfajökul
og undir Eyjafjöllum. Óveðrinu veld-
ur djúp lægð sem kemur úr suðri.
Úrkoma við suðurströndina mun
byrja sem snjókoma en breytast í
slyddu með tilheyrandi krapa á veg-
um. Almannavarnadeild ríkislög-
reglustjóra gaf út tilkynningu í gær
og sagði að ekkert ferðaveður yrði
eftir hádegi í dag á svæðinu frá
Markarfljóti að Jökulsárlóni.
„Versta veðrið verður syðst, en
það hvessir einnig annars staðar á
landinu og undir kvöld verður víða
orðið norðaustanhvassviðri eða
stormur (15-23 m/s) með skafrenn-
ingi og síðar snjókomu þegar úr-
komubakkinn færir sig norður yfir
landið,“ skrifaði veðurfræðingur.
Varað
við óveðri
síðdegis
Verst við
suðurströndina
Óveður Ekki
ferðaveður.