Morgunblaðið - 04.12.2015, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2015
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Oscar Pistorius á yfir höfði sér lang-
an fangelsisdóm eftir að hæstiréttur
Suður-Afríku fann hann sekan um
morð. Í undirrétti var Pistorius
dæmdur fyrir manndráp af gáleysi
fyrir að hafa orðið kærustu sinni,
Reevu Steenkamp, að bana en mál-
inu var áfrýjað.
Þegar dómur var kveðinn upp í
hæstarétti í gærmorgun sagði
dómarinn að vitnisburður íþrótta-
kappans hefði verið ósannur. Þá for-
dæmdi hann dóm undiréttar.
Pistorius var sleppt í október eftir
að hafa setið inni í ár. Síðan hefur
hann verið í stofufangelsi á heimili
frænda síns í Pretoriu og sinnt sam-
félagsþjónustu samkvæmt úrskurði
undirréttar.
Hann var ekki viðstaddur dóms-
uppkvaðninguna í gær.
Lágmarksrefsing
15 ára fangelsi
Það var á Valentínusardag árið
2013 sem Pistorius varð Steenkamp,
fyrirsætu og laganema, að bana en
við réttarhöld hélt hann því fram að
þegar hann skaut í gegnum baðher-
bergishurðina á heimili sínu hefði
hann staðið í þeirri trú að hann væri
að skjóta á innbrotsþjóf.
Dómarinn Eric Leach sagði að Pi-
storius hefði gerst sekur um morð,
enda hefði hann haft glæpsamlegt
athæfi í huga þegar hann skaut. „Það
er óhugsandi að skynsamur einstak-
lingur hefði talið að hann hefði rétt á
því að skjóta á þessa manneskju með
öflugu skotvopni,“ sagði hann.
Í dómnum er gengið út frá því að
Pistorius hefði mátt gera sér grein
fyrir því að með gerðum sínum
myndi hann verða viðkomandi að
bana. Þá sagði dómarinn að það væri
málinu óviðkomandi hver Pistorius
hefði talið að væri bakvið hurðina.
Hæstiréttur hefur nú vísað málinu
aftur til undirréttar, þar sem ákvörð-
un verður tekin um refsingu. Lág-
marksrefsing fyrir morð er 15 ára
fangelsi, en Pistorius gæti fengið
reynslulausn fyrr.
Ákæruvaldið hefur staðfest að
Pistorius, 29 ára, verði áfram í
stofufangelsi á heimili frænda síns
þar til refsing liggur fyrir. „Ég er
sáttur með allt,“ sagði Barry
Steenkamp, faðir Reevu, en móð-
ir hennar var viðstödd þegar dóm-
ur var kveðinn upp.
Eitt þeirra meginatriða
sem hæstiréttur skoðaði
var túlkun dómarans í
undirrétti, Thokozile Ma-
sipa, á hugtakinu „dolus
eventualis“ þ.e. meðvitund
um líklegar afleiðingar
ákveðinna gjörða. Það var á grund-
velli þeirrar túlkunar sem dómarinn
dæmdi Pistorius fyrir manndráp af
gáleysi.
William Booth, lögmaður í Höfða-
borg, segir að dómur hæstaréttar
hafi ekki komið á óvart; Masipa hafi
einfaldlega komist að rangri niður-
stöðu. „Fjögur skot inn á lítið salerni
þar sem þú veist að það er einhver
hinum megin við hurðina – sá sem
skýtur veit að hann mun hitta hina
manneskjuna,“ sagði hann í samtali
við AFP.
Booth sagðist telja að Pistorius
yrði gert að sæta fangelsi í um 10 ár.
Mál Pistorius, heimsþekktrar
íþróttahetju, vakti gríðarmikla at-
hygli á sínum tíma. Í réttarsal grét
hann og kastaði upp, og sagðist hafa
verið gripinn skelfingu þegar hann
taldi að innbrotsþjófur ógnaði sér og
Steenkamp.
Hann greip byssuna og stökk af
stað án gervilima.
„Áður en ég vissi hafði ég skotið
fjórum skotum að hurðinni,“ sagði
Pistorius og bætti við að
hann hefði síðan
þust aftur að
rúminu í
svefnher-
berginu þar
sem hann
bjóst við að
finna Steen-
kamp.
Mátti vita að bani hlytist af
Pistorius dæmd-
ur sekur um morð
í Suður-Afríku
AFP
Dómsuppkvaðning June Steenkamp (fyrir miðju), móðir Reevu Steenkamp, hlýðir á dómara hæstaréttar S-Afríku.
Önnur áfrýjun?
» Talsmaður Pistorius-
fjölskyldunnar sagði í gær að
lögfræðingar kappans myndu
nú setjast yfir dóm hæsta-
réttar og skoða kosti í stöð-
unni.
» Eitt þeirra úrræða sem Pi-
storius getur gripið til er að
áfrýja málinu til æðsta dóm-
stóls Suður-Afríku, þ.e.
stjórnarskrárdómstólsins, sem
myndi skera úr um hvort málið
hefði fengið réttláta meðferð.
» Lögmenn Pistorius hafa
hins vegar sagt að sjóðir hans
séu uppurnir og því spurning
hvort hann lætur kyrrt liggja ef
hann sér fram á lágmarksdóm
og reynslulausn.
» Hann var á hápunkti ferils
síns þegar hann var saksóttur
og hefur í kjölfarið séð á eftir
íþróttaferlinum, gróðavæn-
legum samningum og stöðu
sinni sem fyrirmynd fatlaðra.
Árin segja sitt1979-2015
Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslu-meistari og kona hans
Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás.
Laugarásvegi 1
104 Reykjavík • laugaas.is
)553 1620
Verið velkominn
Lauga-ás hefur frá 1979
boðið viðskiptavinum
sínum uppá úrval af
réttum þar sem hráefni,
þekking og íslenskar
hefðir hafa verið hafðar
að leiðarljósi.
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
AUDI A6 2.0 TDI
05/2012, ekinn 50 Þ.km, diesel, sjálfskiptur, leður.
Okkar besta verð 6.290.000.
Raðnr.254089
NISSAN QASHQAI SE
06/2011, ekinn 77 Þ.km, bensín, sjálfskiptur, ný
nagladekk. Verð 3.290.000.
Raðnr.254190
AUDI A3 SPORTBACK TFSI
10/2013, ekinn 27 Þ.km, bensín, 7 gíra
sjálfskiptur.Verð 4.250.000.
Raðnr.254355
KIA SPORTAGE LUXURY 4WD
01/2015, ekinn 51 Þ.km, diesel, sjálfskiptur, leður ofl.
Verð 5.690.000. Skipti á ódýrari.
Raðnr.254481
SUZUKI GRAND VITARA PREMIUM+
nýskr. 06/2011, ekinn 90 Þ.km, bensín, sjálfskiptur.
Verð 3.390.000. Skipti á ódýrari.
Raðnr.286654
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
Oscar
Pistorius