Morgunblaðið - 04.12.2015, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 04.12.2015, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2015 Í gamni segist ég stundum vera dæmigerð miðaldra sófakartafla íúthverfinu. Lífið er í jafnvægi, fjölskyldan dafnar og ég er í starfisem mér líkar vel. Er hægt að biðja um eitthvað meira?“ segir Borgar Guðjónsson sem er fertugur í dag. Hann er Eyjamaður að upp- runa en flutti til Reykjavíkur liðlega tvítugur. Hefur lengst af verið sölumaður hjá matvælafyrirtækjum, nú síðustu árin hjá Mjólku. Segist líka vel í því starfi, það er að vera á ferðinni og í samskiptum við fólk. Borgar segist litlar sem engar fyrirætlanir hafa um afmælisgleði. Ef til vill geri fjölskyldan sér einhvern dagamun með kökum og kakói eða fari út að borða um helgina. „En kannski er konan mín búin að planleggja eitthvað í laumi. Hver veit?“ segir Borgar sem er giftur Berglindi Salvöru Hreiðarsdóttur. Þau búa í Laugardalnum í Reykjavík og eiga tvö börn; Sigríði Erlu sem er níu ára og Högna Steinþór sem er fjögurra ára gamall. „Þetta daglega líf utan vinnunnar snýst mikið um fjölskylduna og velferð hennar. En auðvitað eru áhugamálin fjölmörg, til dæmis tón- listin. Það er alltaf gaman að setja eitthvað gamalt og gott undir geisl- ann, dæmigert nostalgíupopp fyrir menn á mínum aldri. Svo heillar körfuboltinn mig alltaf, bæði að fylgjast með spennandi leikum í sjón- varpinu og svo höfum við nokkrir félagar stundum leigt okkur íþrótta- sal til að leika okkur saman,“ segir Borgar Guðjónsson að síðustu. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Eyjamaður „Kannski er konan að planleggja eitthvað,“ segir Borgar. Er hægt að biðja um eitthvað meira? Borgar Guðjónsson er fertugur í dag B ryndís Brynjólfsdóttir fæddist í Tryggva- skála á Selfossi 4. desember 1945 og ólst þar upp á hót- elinu. „Tryggvi Gunnarsson, brú- arsmiður og alþingismaður, lét byggja skálann 1890 við smíði Ölfusárbrúar og er þetta elsta hús Selfoss sem enn stendur. Fljót- lega hófst greiðasala eins og það var kallað í húsinu og tóku for- eldrar mínir við hótelinu 1942. Ég var jafnframt alin upp við sveita- störf en faðir minn stundaði bú- skap meðfram hótelrekstrinum, var hann með kindur, hesta, svín og hænsni.“ Bryndís lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla verknáms. Eftir nám vann Bryndís við upp- byggingu og rekstur Hótels Bryndís Brynjólfsdóttir, fyrrv. útibússtjóri Sjóvár – 70 ára Í Lindinni Bryndís við afgreiðslustörf í búðinni sem hún rak í 15 ár og dóttir hennar rekur í dag. Stolt af endurbyggingu elsta hússins á Selfossi Hjónin Bryndís og Hafsteinn að fagna 49 ára brúðkaupsafmæli sínu í fyrra. Neskaupstaður Jóhann Karl Guðmundsson fæddist 18. nóvember 2014, kl. 17.45. Hann vó 2.408 g og var 45 cm langur. Foreldrar hans eru Ásdís Ósk Vals- dóttir og Guðmundur Á. Jóhannsson. Nýr borgari Jóhanna Katrín Ottadóttir, Hildur Agla Ottadóttir og Tinna Sigþórsdóttir héldu tombólu til styrktar flóttamönnum og söfnuðu 20.201 kr. sem þær afhentu Rauða krossinum. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Ný vefverslun með rúmföt og heimilisvörur 25% kynningarafsláttur af öllum vörum 4.-10. desember

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.