Morgunblaðið - 04.12.2015, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.12.2015, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2015 Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is SKÚTAN AF ÖLLUM STÆRÐUM, HVORT SEM ER Í VEISLUSAL OKKAR, Í AÐRA SALI EÐA Í HEIMAHÚSI Veitingar af öllum stærðum, hvort sem er í veislusal okkar, í aðra sali eða í heimahúsi. Nánar á veislulist.is Erfidrykkja Veislusalur okkar er bjartur og fallegur salur á jarðhæð, gott aðgengi. Öll þjónusta, kaffi og gos eru innifalin í verði þegar erfidrykkja er í sal. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Hvað er það í rekstrarumhverfinu sem kallar á þetta heljarstökk? Ég finn ekki neitt. Það hefur verið við- varandi í tvö ár sölutregða og verð- fall á kjöti á erlendum mörkuðum og ekki bjart framundan í því. Það er því ekkert sem kallar á meiri fram- leiðslu,“ segir Jóhann Már Jóhanns- son, sauðfjárbóndi í Keflavík í Skagafirði. Hann er í hópi bænda sem gagnrýna þær hugmyndir að nýjum búvörusamningi í sauð- fjárrækt sem samninganefndir ríkis og bænda eru að vinna með og kynntar hafa verið að undanförnu. Talsverð undiralda er í bænda- stétt vegna samningshugmyndanna, bæði meðal kúabænda og sauð- fjárbænda. Gagnrýni er til dæmis áberandi í umræðum á samfélags- miðlum. Svik við umbjóðendur „Mér líst mjög dapurlega á þetta,“ segir Jóhann Már þegar álits hans er leitað. Hann nefnir í upphafi samtals að samningshugmyndirnar séu bein svik forystu sauðfjárbænda við um- bjóðendur þeirra. Á síðasta aðal- fundi Landssamtaka sauðfjárbænda voru samþykkt samningsmarkmið. Þar var meðal annars kveðið á um að draga úr vægi almennra bein- greiðslna um 10% á samningstím- anum. Í þeim drögum sem kynnt voru á dögunum er gert ráð fyrir að fallið verði alfarið frá greiðslumarki á samningstímanum og greiðslurnar fluttar í gæðastýringu og gripa- greiðslur. Það þýðir að greitt verði út á fjölda gripa og framleiddar af- urðir. Jóhann Már segir ljóst að öllum kröfum sauðfjárbænda hafi verið kastað fyrir róða, áður en gengið hafi verið til viðræðna og forsvars- menn sauðfjárbænda segi að samn- ingsdrögin taki mið af kröfum rík- isins. „Þetta er merkilegt því ég hélt að báðir aðilar ættu að leggja fram sínar kröfur í slíkum samn- ingum.“ Samningur reynst vel Jóhann segir að núgildandi bú- vörusamningur hafi reynst vel í aðal- atriðum og engin ástæða til henda honum út í hafsauga. Margt megi þó laga. Hann rifjar upp þær aðstæður sem uppi voru í sauðfjárræktinni þegar samningurinn var gerður fyrir átta eða níu árum. „Þá var bullandi offramleiðsla og við horfðum upp á stöðugar fréttir um ofbeit. Við vor- um að láta landsmenn éta ársgamalt kjöt. Sáum myndir af bílum sturta kjötskrokkum á haugana. Reynt var að flytja kjötið út og niðurgreiðslur sem áttu að fara til íslenskra neyt- enda fóru jafnt til útlendinga,“ segir Jóhann. Hann segir að samning- urinn sem gerður var hafi náð til- gangi sínum. Stöðugleiki hafi náðst í starfsumhverfi greinarinnar og jafn- vægi á milli framboðs og eft- irspurnar. Einnig hafi náðst friður um umhverfisþáttinn. „Ég tel að mjög góð sátt sé um þennan samning. Hann hefur verið framlengdur tvisvar og síðast með atkvæðum 91% þeirra sem greiddu atkvæði.“ Hvati til aukinnar framleiðslu Jóhann óttast að þær hugmyndir sem nú eru uppi leiði til offram- leiðslu á kindakjöti, verði þær að bú- vörusamningi. Greiðslur út á fjölda gripa og framleitt kjöt séu beinn hvati til aukinnar framleiðslu. „Ef menn fara að fá borgað út á höfða- tölu verður hagstætt að fjölga fénu. Það leiðir til meiri framleiðslu. Þar að auki á að greiða stuðning út á hvert framleitt kíló. Með þessu er verið að taka upp nánast sama kerfið og leiddi okkur út í algerar ógöngur hér um árið. Þegar framleiðslan eykst þá minnkar stuðningurinn á hvert framleitt kíló vegna þess að hann er tekinn úr föstum potti. Þeir sem hafa unnið samkvæmt þessum samningi og komið sér upp bein- greiðslurétti verða fyrir miklu tekju- tapi verði þessar hugmyndir að veru- leika. Ég veit að nokkrir eru búnir að reikna það út,“ segir Jóhann Már. Hann segir að þeir sem hafi verið að framleiða án þess að hafa til þess kvóta fái nú jafnmiklar greiðslur og þeir sem hafi unnið sér fyrir bein- greiðslum. Hann telur að þetta fyr- irkomulag leiði til þess að allir vilji auka framleiðsluna til að fá sem mest til baka en eftir því sem kílóunum fjölgi fái menn minna. „Þetta fer inn í vítahring, vítahring offramleiðslu.“ Krefjast milljarðs í viðbót Jóhann nefnir að niðurgreiðsl- urnar verði á allt kjöt, líka það sem flytja þurfi á erlenda markaði. Með því verði teknar upp útflutnings- bætur á nýjan leik. Þá telur hann hugsanlegt að litið verði á þessar greiðslur sem markaðstruflandi við útflutning kjöts á erlenda markaði, samkvæmt samningum Alþjóða- viðskiptastofnunarinnar (WTO). Samningamálin voru rædd á auka- aðalfundi Landssambands sauð- fjárbænda í síðustu viku. Þar var samningsdrögunum ekki hafnað. Í ályktun sem samþykkt var kemur fram að margir verði fyrir tekju- skerðingu vegna krafna ríkisins um kerfisbreytingu, aflagningu greiðslu- marks. Henni verði að skipta á milli ríkis og bænda. Því verði að gera kröfu um að minnsta kosti 1.000 milljóna króna viðbót í samninginn. Jóhann telur það mikil mistök að samþykkja ekki tillögu um að hafna þessum samningsdrögum. Tillagan sem samþykkt var sé um margt óljós. Til dæmis viti enginn hvort krafan sé um milljarð á ári eða millj- arð á samningstímabilinu. Endanlegir samningar verða lagð- ir fyrir bændur í almennri atkvæða- greiðslu. Spurður um mat á stöð- unni, segir Jóhann: „Sem betur fer tel ég að þeir fái samning sem þenn- an ekki samþykktan. Þegar það verður upplýst að nú eigi að fara að taka aftur upp útflutningsbætur tel ég að menn hrökkvi við. Enginn bóndi vill sitja undir því. Okkur var nóg núið því um nasir á sínum tíma að framleiða kjöt sem ríkið styrkti til útflutnings,“ segir Jóhann Már Jó- hannsson. Förum inn í vítahring offramleiðslu  Óánægja er meðal bænda vegna samningsdraga nýs búvörusamnings  Jóhann Már Jóhannsson sauð- fjárbóndi segist ekki sjá þörf á heljarstökki  Nýr samningur leiði til offramleiðslu og tekjuskerðingar Morgunblaðið/Eggert Réttir Jóhann Már Jóhannsson telur líkur á að kindakjötsframleiðsla aukist stórlega verði kvótakerfið afnumið með nýjum búvörusamningi. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Ræktunarfólk Þórey S. Jónsdóttir og Jóhann Már Jóhannsson hafa ræktað upp jörð sína og fengið landgræðsluverðlaunin fyrir starf sitt. Útboðsgögn vegna nýrrar Vest- mannaeyjaferju verða líklega ekki tilbúin fyrr en í kringum næstu ára- mót, samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu. Ferjan verður 69,38 metra löng og 15,10 metra breið samkvæmt teikn- ingu frá Polarkonsult. Mesta djúp- rista verður 3,0 metrar. Ferjan á að geta flutt allt að 540 farþega að sum- arlagi (Class C) en 390 farþega að vetri (Class B). Rafknúnar skrúfur Gert er ráð fyrir því að ferjan geti flutt allt að 72-73 fólksbíla eða 56 fólksbíla og fimm vöruflutningagáma í sömu ferð, að sögn innanríkisráðu- neytisins. Lyftudekk fyrir fólksbíla verður yfir helmingi bíladekksins. Ferjan verður búin tveimur jafn- vægisuggum sem settir eru út á sigl- ingu og dregnir inn í höfn. Í skipinu verða þrjár dísilvélar sem knýja raf- ala. Tvær rafknúnar skrúfuvélar knýja skipið og verður hægt að breyta stefnu hvorrar skrúfuvélar í heilan hring sem eykur mjög stjórn- hæfni skipsins. Nýja ferjan verður væntanlega fyrsta íslenska skipið með svona skrúfubúnaði. Þá verða tvær rafknúnar hliðarskrúfur fremst á skipinu. gudni@mbl.is Teikning/Polarkonsult Vestmannaeyjaferja Nýja ferjan á að verða ívið styttri og mjórri en Herj- ólfur sem nú siglir milli lands og Eyja. Færri klefar verða í nýja skipinu. Útboðsgögn ekki til fyrr en um áramót  Ný Vestmannaeyjaferja teiknuð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.