Morgunblaðið - 04.12.2015, Blaðsíða 11
að kynnast öðrum listamönnum, sem
margir hverjir þekktust úr Mynd-
lista- og handíðaskólanum. Þótt ég
sé í samfélagi listamanna, ef svo má
segja, félagi í FÍM til dæmis, finnst
mér ég ennþá vera einfari á kant-
inum – og er alveg sáttur við það.“
Portrett og landslag
Þegar heim kom beið hann ekki
boðanna heldur tók að mála af krafti
samhliða lausamennskustarfi í aug-
lýsingabransanum. Afraksturinn var
þrjátíu málverk sem hann sýndi í
Hafnarborg tveimur árum síðar.
Síðan hefur hann tekið þátt í sam-
sýningum og haldið margar einka-
sýningar. Sú fimmtánda, Portrett og
landslag, verður opnuð í sýningar-
salnum Gróttu á Eiðistorgi hinn 10.
desember. Níu málverk máluð milli
ferða hans um fjöll og firnindi með
erlenda túrista.
„Gamalkunnugt stef, portrett
og landslag, og klassískt viðfangs-
efni listmálara,“ segir Kristján.
„Sýningin er ekki áreynsluþrungin
tilraun mín til að máta mig við hefð-
ina, heldur hylling gamalla æsku-
hetja og lýsing á ástarsambandi
mínu við landið.“
Kristján tekur fram að engin
löngun blundi í sér að láta taka sig
hátíðlega, enda finnist honum yfir-
þyrmandi merkileg list eiga það til
að vera þreytandi. „En landslag er
aldrei þreytandi,“ segir leiðsögu-
maðurinn. „Mér fannst vel þess virði
að taka slaginn og láta reyna á hvort
ég gæti fest málningu á striga og
komist upp með að kalla það lands-
lag.“
Hann hefur þó ekki tekið slag-
inn við norðurljósin, sem hann stolt-
ur og ævinlega dolfallinn sjálfur sýn-
ir túristunum mörgum sinnum á ári.
„Ekki séns. Ég voga mér ekki að
keppa þannig við náttúruna og
blanda þeim í málverkin mín.“
Abstraktáhrif að sunnan
Þótt litapallettan í verkum
Kristján einkennist meira af heitum
litum en köldum og áhrifin séu að
því leytinu frekar suðræn en íslensk
kveðst hann fá mikinn innblástur af
íslensku landslagi. „Á ferðum mín-
um tek ég mikið af ljósmyndum og
hef þær oft til hliðsjónar þegar ég
mála. Annars hef ég síðustu tíu árin
farið æ meira út í abstrakt og mörg
verkin á sýningunni eru í þeim dúr.
Og yfirleitt í anda eða undir áhrifum
abstrakt listastefnu sem ég hreifst
af í skólanum í Barcelóna og fyrsta
og önnur kynslóð listamanna eftir-
stríðsáranna þróuðu þar suður frá.
Ég nota einnig í bland ýmis tákn,
skrift, skjaldarmerki og skraut að
ógleymdum teiknimyndahetjum
æsku minnar – þær síðarnefndu trú-
lega notaðar í óþökk þeirra og um-
bjóðenda þeirra.“
Draumurinn um paradís
Þótt draumurinn í árdaga list-
málaraferilsins hafi verið að helga
sig alfarið listinni kveðst Kristján
hæstánægður með hlutskipti sitt
sem listmálari og leiðsögumaður.
„Seint á tíunda áratugnum þegar ég
var nánast eingöngu að mála um
tveggja ára skeið komst ég að raun
um að það var ekki sú paradís sem
ég hafði séð fyrir mér. Ég saknaði
þess að vera meira innan um fólk og
tók því fagnandi þegar kunningjar
mínir hjá Ferðamiðstöð Austur-
lands plötuðu mig í farararstjórn, en
þá vantaði spænskumælandi leið-
sögumann.“
Kristján hefur undanfarin ár
starfað sem leiðsögumaður á eigin
vegum. Hann og kona hans, Diljá
Þórhallsdóttir, grafískur hönn-
uður, reka Iceland Discovery. Hún
sér um skrifstofuhaldið og tilfallandi
störf, hann um ferðalangana. Ferða-
lög um landið og listsköpun til skipt-
is á vinnustofu sinni; Kristján segir
hlutskipti listamanns og leiðsögu-
manns vart geta verið gæfulegra.
Sýningin Portrett og landslag
verður opnuð í sýningarsalnum
Gróttu á Eiðistorgi kl. 17 fimmtu-
daginn 10. desember.
Abstrakt landslag Eitt málverkanna á sýningunni í
Gróttu. Tinni Teiknimyndahetjan Tinni er ávallt til prýði.
Í vinnustofunni Kristján er alsæll með að geta bæði sinnt listsköpun sinni og erlendu túristunum til skiptis.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2015
Handverk prjónakvenna í fé-
lagsstarfinu í Borgarbókasafni,
Menningarhúsi í Gerðubergi verður
til sölu á jólamarkaði og sýningu í
dag kl. 14 til 18 í salnum Lágholti á
neðri hæðinni. Á morgun, laugardag,
verður opið milli kl. 13.30 og 15.30 í
A-sal á efri hæð Gerðubergs.
Í tilefni 100 ára kosningaréttar
kvenna hafa prjónakonurnar, sem
koma vikulega saman í Gerðubergi,
prjónað rauða sokka, húfur og fleira,
sem sett hefur verið upp í óróa, sem
getur að líta í Horninu á neðri hæð
Gerðubergs.
Kaffihúsið á efri hæðinni opið til kl.
16.
Órói Konurnar gerðu óróa úr húfum
og sokkum, sem þær prjónuðu.
Rauðsokkar
og húfuskott
Jólamarkaður og sýning í
Gerðubergi
Systkinin og
tónlist-
arfólkið KK
og Ellen
Kristjáns-
dóttir eru á
faraldsfæti
um þessar
mundir. Í kvöld verða þau með jóla-
tónleika kl. 21 til 23 í Bíóhöllinni á
Akranesi.
Jólatónleikar þeirra systkina eru
fastur liður í jólahaldi fjölmargra á Ís-
landi. Þau syngja jólalög í bland við sín
eigin og segja sögur af sér og sínum
sem laða fram gleði og eitt og eitt tár.
Með þeim verður fimm manna úr-
valssveit tónlistarmanna undir stjórn
hljómborðsleikarans góða Jóns Ólafs-
sonar.
Bíóhöllin á Akranesi
Jólatónleikar
KK og Ellenar
KK og Ellen í jólaskapi.
Hvað er það sem rekurbarnlausan mann á fer-tugsaldri til þess aðkaupa jóladagatal frá
Lego handa sjálfum sér? Hvað skyldi
það nú vera sem fær allt of gamlan
mann til þess að horfa aftur og aftur á
eldgamlar bíómyndir eins og þær séu
einhvers konar helgidómur?
Ókei, ég skal alveg viðurkenna það
að ég hef kannski stundum gengið að-
eins of langt í aðdáun minni á
Stjörnustríðsmyndunum. Dagatalið
er ekki einu sinni nema rétt svo topp-
urinn á Stjörnustríðsísjakanum. For-
láta Svarthöfða-hjálmur, Stjörnu-
stríðssokkar, að minnsta kosti tvö
Stjörnustríðsborðspil (eitt fyrir land-
bardaga og eitt fyrir geimbardaga!)
og of margir tölvuleikir til þess
að ég nenni að telja þá. Í hug-
anum reyni ég að sannfæra
sjálfan mig um að ég sé
hreint ekkert svo slæmur,
ég á ekki einu sinni geisla-
sverð og er ekki með
Svarthöfðatattú neins
staðar (ennþá)!
„Að minnsta
kosti á ég ekki 80
cm háu Svart-
höfðadúkkuna
sem við sáum
þarna í búðinni,“
segi ég veikum
Mætti við frúna.
„En þig langaði í
hana, ekki satt?“
svarar hún á móti.
Skák og mát.
Sú litla staðreynd að fyrsta „al-
vöru“ Stjörnustríðsmyndin í 32 ár (ég
tel þessar hinar þarna ekki með)
kemur í bíó eftir bara 12 daga hefur
lítið hjálpað. Það eru tólf dagar þang-
að til jólin mín byrja og ég er farinn
að merkja þá niður á dagatalinu.
Ég er meira að segja búinn að
kaupa miða á tvær forsýn-
ingar!
„En, en,“ gætir þú spurt.
„En hvað ef myndin er lé-
leg?“ Léleg? En Harrison
Ford sjálfur segir að hún sé
góð, jafnvel þó að hann leiki
í henni! Varla færi hann að
segja ósatt? Bara til að
selja miða? Og græða
meiri pening?
Hvað ef myndin
er léleg … Ég
vík hugsuninni
frá mér og set
Svarthöfða-
hjálminn aftur á.
»Í huganum reyni ég aðsannfæra sjálfan mig
um að ég sé hreint ekkert
svo slæmur, ég á ekki einu
sinni geislasverð og er ekki
með Svarthöfðatattú neins
staðar (ennþá)!
Heimur Stefáns Gunnars 20% afsláttur
af hönskum
Sími: 528 8800
drangey.is
Smáralind
Stofnsett 1934
Töskur
Hanskar
Seðlaveski
Ferðatöskur
Tölvutöskur
Belti
Skart og skartgripaskrín
Góðar vörur
Sanngjarnt verð
Persónuleg þjónusta
Kíktu inn á drangey.is
Tilvalin jó
lagjöf
Afsláttur til jóla
Dömu & herra
Mikið úrval
Verð frá 6.900 m. afslætti
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is