Morgunblaðið - 04.12.2015, Page 5

Morgunblaðið - 04.12.2015, Page 5
Volvo V60 Cross Country sameinar kosti fólksbíls og jeppa. Hann tekur það besta úr báðum heimum. Hann getur tekist á við erfiða vegi, en býr þó enn yfir kvikum aksturseiginleikum fólksbíls. Hann er jafnframt ríkulega búinn staðalbúnaði eins og vélarhitara með tímastilli, tölvustýrðri loftkælingu (ECC), Volvo High Performance hljómtækjum, Bluetooth GSM símkerfi og hinu margverðlaunaða öryggiskerfi Borgaröryggi (City Safety). Á bílnum eru glæsilegir Cross Country þakbogar, sílsalistar, vindkljúfasett og hann kemur á voldugum 18” Neso álfelgum. Volvo leggur mikið upp úr því að bjóða bíla sem hafa sem minnst áhrif á umhverfið, Volvo V60 Cross Country er knúinn sparneytinni en aflmikilli tveggja lítra Drive-E dísilvél sem skilar 190 hestöflum. Eldsneytisnotkun (beinskiptur/sjálfskiptur) í blönduðum akstri er 4,2/4,6 l/100 km og CO2 losun er 111/120 g/km. Fáanlegur fjórhjóladrifinn (AWD). Brimborg og Volvo áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu. NJÓTTU NÚ ANDARTAKSINS. UTANDYRA Volvo V60 Cross Country er konungur vegarins. Sterkbyggður og fágaður. Veghæðin er heilir 20 cm og dekkin eru stór, eða 18 tommu. Steinliggur hvort sem er á hlykkjóttum fjallvegi eða á grófum malarvegi. Einstakur akstur fyrir unnendur hönnunar, náttúru og ævintýra. Verð frá 6.190.000 kr. KOMDU OG SKOÐAÐU NÝJAN VOLVO V60 CROSS COUNTRY Í BRIMBORG MADE BY SWEDEN VOLVO.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.