Morgunblaðið - 04.12.2015, Page 26

Morgunblaðið - 04.12.2015, Page 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2015 ✝ Sigrún Guð-mundsdóttir fæddist í Króki, Ásahreppi, Rang- árvallasýslu, 12. nóvember 1931. Hún lést 20. nóv- ember 2015. Hún var yngst fjórtán barna hjónanna Guðrúnar Gísladóttur, f. 13.12. 1889, d. 6.9. 1935, frá Árbæjarhelli í Holtum og Guðmundar Ólafssonar, f. 21.12. 1888, d. 2.5. 1989, frá Króki, Ásahreppi. Systkini hennar voru: Guðrún Lovísa, f. 1915, d. 2007, Viktoría Guðrún, f. 1916, d. 2002, Guð- bjartur Gísli, f. 1918, d. 1996, Ólafur, f. 1920, d. 2009, Eyrún, f. 1921, d. 2014, Hermann, f. 1922, d. 2014, Kristín, f. 1923, Dag- björt, f. 1925, d. 2011, Sigur- björg, f. 1926, d. 2014, Ingólfur, f. 1927, d. 2006, Valtýr, f. 1928, Ragnheiður, f. 1929, d. 1999, Gísli, f. 1930, d. 1977. Sigrún giftist 25.12. 1958 Ólafi Benediktssyni, f. 6.11. 1927, d. 29.7. 2012, frá Hrauni í Trékyllisvík á Ströndum. tóku þá að mestu við uppeldinu ásamt föður hennar sem hélt þó barnahópnum saman. Sigrún hlaut hefðbundna skólagöngu þessara ára. Á unglingsárum var hún í kaupavinnu á bæj- unum í sveitinni en upp úr tví- tugu flutti hún til Reykjavíkur og vann meðal annars á Prjóna- stofunni Malín. Sigrún fór á Húsmæðraskólann á Laug- arvatni 1956-57. Fyrstu árin í Keflavík sinnti hún dætrunum og heimilinu en síðar fór hún á vinnumarkaðinn. Árið 1972 flutti fjölskyldan til Reykjavíkur og bjó í Fossvog- inum. Hún vann ýmis störf en lengst af sem gangastúlka á Landspítalanum. Sigrún settist á skólabekk 49 ára og tók gagnfræðapróf frá Miðbæjarskólanum í Reykjavík. Þaðan lá leið hennar í undirbún- ingsdeild fyrir sjúkraliðanám og síðan í Sjúkraliðaskóla Íslands, þar sem hún útskrifaðist sem sjúkraliði 1985. Hún starfaði lengst af sem sjúkraliði á A-7 á Borgarspít- alanum. Hún sat í stjórn Eftir- launadeildar sjúkraliða um ára- bil. Hún starfaði í áratug sem sjálfboðaliði í Rauðakrossbúð- inni. Þau hjónin áttu land í Rangárþingi ytra og settu niður sumarhús. Útför Sigrúnar fer fram frá Háteigskirkju í dag, 4. desember 2015, og hefst athöfn- in klukkan 13. Foreldrar hans voru Benedikt Sæ- mundsson, f. 7.5. 1882, d. 28.1. 1956, og Hallfríður Petr- ína Jónsdóttir, f. 20.8. 1887, d. 7.7. 1947. Sigrún og Óli hófu búskap í Keflavík á Hring- braut 104 en þar hafði hann byggt sér hús áður en þau kynntust. Börn Sigrúnar og Ólafs eru: 1) Hallfríður, f. 8.7. 1958. Maki Sigurður Leifsson, f. 1955. Eiga þau þrjár dætur: a) Hildur, f. 1980. Gift Henry Birgi Gunn- arssyni, f. 1977. Börn þeirra eru Ísak Daði, f. 2003, og Ísabella, f. 2005. b) Una Björk, f. 1983, sam- býlismaður hennar er Vincent Franz Wood, f. 1986. c) Sigrún Ýr, f. 1990. 2) Guðrún, f. 3.3. 1963. Maki Ingi Ragnar Pálmarsson, f. 1956. Þau eiga tvo syni, Kára, f. 1992, og Dag, f. 2005. Sigrún ólst upp í Króki, Ása- hreppi. Á fjórða ári missti hún móður sína. Eldri systur hennar Elsku mamma, það er með sorg í hjarta að ég skrifa þessi minningarorð um þig. Ég er samt svo þakklát og finnst ég hafa verið svo lánsöm að hafa alla tíð átt þig að. Þú lést okkur Fríðu líka finna hve glöð þú varst að eiga okkur dætur þínar. Það er okkur dýrmætt. Þú varst mjög traust og hreinskiptin og hlúðir að okkur fjölskyldu þinni alla tíð. Við reyndum að gera slíkt hið sama við þig. Nú er jólafastan en þú varst mikið jólabarn. Þú hélst alltaf í barns- legan spenning yfir jólunum. Þegar við vorum litlar saumaðir þú á okkur systurnar jólaföt og jafnvel náttföt og naust aðstoðar Böggu systur þinnar. Þú útbjóst alltaf frómas og vildir helst fara í kirkju á aðfangadagskvöld. Þegar ég bjó í Kaupmannahöfn voru það ófá bréfin og sending- arnar sem glöddu mig sem ég fékk frá ykkur pabba. Að ógleymdum heimsóknunum. Eftir að unglingaspennu og mæðgnaátökum hafði að mestu lygnt brölluðum við margt sam- an. Hlógum, grínuðumst og gát- um oftast séð gleðina í hinu smáa. Við vorum saman í yoga og einn vetur vorum við einu sinni í viku í hláturyoga. Það var alltaf tilhlökkun fyrir okkur. Við deildum mörgum áhugamálum eins og leikhúsi, bókmenntum, menningu og ræktun og þú kenndir mér að ráða krossgátur núna í seinni tíð. Þú varst hrif- næm, forvitin og áhugasöm um lífið og áhuga þinn var auð- kveiktur. Vini varstu að eignast allt lífið en það þýddi ekki að þeim gömlu væri gleymt. Þér fannst mjög margt spennandi og skemmtilegt og naust þess að fara á kaffihús og niður í bæ hvort sem var á 17. júní eða Menningarnótt. Þú fylgdist vel með í þjóðfélaginu. Minnið brást þér aldrei og þú reiknaðir auð- veldlega í huganum eins og ekk- ert væri. Það kom sér vel þegar þið Dagga unnuð saman í Rauðakrossbúðinni en þar voruð þið sjálfboðaliðar einu sinni í viku í yfir áratug og ótrúlega gaman að koma til ykkar. Alltaf varstu tilbúin að aðstoða okkur og taka til hendinni. Þegar ég átti strákanna mína þá hjálpaðir þú okkur mikið og það var oft grínast með að „au pair“ stúlkan væri mætt þegar þú komst í hús. Í nóvember 2012 fórum við í ógleymanlega vetrarferð í Þórs- mörk með Ferðafélagi barnanna. Gistum í skálanum í Langadal, fórum í gönguferðir og stjörnuskoðun í miklum snjó og frábæru vetrarveðri. Við fór- um mikið í „Austur“ í þitt nota- lega timburhús og stússuðum þar með jarðarber og annan gróður ásamt því að hlúa að fuglunum. Handavinna og bóka- lestur var heldur aldrei langt undan þegar ekki viðraði til úti- veru. Eftir að pabbi dó 2012 og svo Bagga frænka 2014 þá varstu mjög sorgmædd en reyndir samt að finna sorginni farveg. Þú hélst áfram í þínu hláturyoga og sundleikfimi, sem þið systurnar höfðu verið saman í en þú saknaðir þeirra mikið. Síðasta sumar áorkaðir þú miklu. Lést gera upp legstein foreldra þinna, fórst á ættarmót og lést útbúa sængurföt með milliverki hekluðu eftir þig handa yngsta ömmubarninu. En barnabörnin eiga öll sett eftir þig. Ég kveð þig elsku mamma og óska mér þess að þú sért flogin á vit ævintýranna og barnslega gleðin og tilhlökkunin fylgi þér. Þín dóttir, Guðrún. Vertu’ öllum vinur vænn, án þess að leggjast lágt; og reynist vinir verðugir, þá læstu þá fast að hjarta þér með streng úr stáli. (Hamlet eftir W. Shakespeare) Þetta er mjög auðveld minn- ingargrein fyrir mig að skrifa, vegna þess að ég þarf ekki að byrja að útlista, í hinum og þess- um skrauthvörfum, alla hennar bresti og takmarkanir. Hún var einfaldlega yndisleg við mig. Gaf sér alltaf tíma til að lesa fyrir mig, sækja mig á æfingar þegar foreldrar mínir voru í stressi að ná því, og til að hringja í okkur daglega. Mér finnst leiðinlegt að hún hafi þurft að bíða þangað til að ég fullorðnaðist til að ég kynni að meta það af alvöru. Í seinni tíð urðum við mjög góðir vinir, það skapaðist skemmtileg hefð þar sem ég kom til hennar reglulega, oftast um helgi, og svo keyptum við okkur nr. 5 af Thai matstofunni (aldrei annað) og lásum. Við skiptumst alltaf á að borga. Mig minnir að hún hafi borgað síð- ast, svo ég skulda henni einn. Hún nennti að ræða bókmenntir við mig. Hún lá og hvíldi augun á meðan ég las. Og hún tók svo vel eftir! Þó hún lægi bara og hlustaði. Hún mundi smáatriði úr sögunum, töluvert erfiðara þegar maður hlustar en les ekki sjálfur (fyrir mig allavega). Hún gat rökrætt við mig einstaka hluti úr Dýrabæ Orwells eða hlegið með mér að því hvað Svava Jakobsdóttir gat skrifað klikkaða og fyndna texta. Að einhver í fjölskyldunni skyldi deila þessum áhuga var, og er, mér mjög dýrmætt og þær minningar verða auðlind fyrir mig í framtíðinni. Ég á eftir að sakna hennar ferlega. Eflaust þegar ég get ekki boðið henni upp á tælenskan næst þegar ég rekst á bók sem ég held að við hefðum bæði gaman af. Ég vil enda þetta á smá áminningu, vegna þess að það að lifa í 84 ár og gera eins mikið og hún gerði, eignast jafnmarga vini og hún gerði er eitthvað til að fagna að hafi gerst. Ekki eitt- hvað til að syrgja. Hér koma opnunarlínurnar úr bók sem ber þann undurfagra titil (sem hljómar ennþá betur á íslensku en frummálinu), „Að rekja upp regnbogann“ (Unweaving the rainbow). Textinn er þýddur af mér. „Við eigum eftir að deyja, og þess vegna erum við heppin. Flestir eiga ekki eftir að deyja vegna þess að þeir eiga ekki eft- ir að fæðast. Mögulegur fjöldi fólks sem hefði getað verið hér í okkar stað en mun aldrei koma fram í dagsljósið er fjölmennari en það eru sandkorn á Arabíu- skaga. Áreiðanlega eru meðal þessara óbornu drauga leiknari skáld en Keats, vísindamenn snjallari en Newton. Þetta vit- um við vegna þess að samsetn- ingarnar af hugsanlegum mann- eskjum sem erfðaefnið okkar býður upp á eru svo langt um fleiri en fjöldinn af fólki sem er í alvöru til. Frammi fyrir þessum sljóvgandi líkum eru það þú og ég, sem í hversdagsleika okkar, erum hér. Við örfáu í forrétt- indastéttinni, sem unnum í happdrættinu og urðum að veruleika, og það gegn svo vold- ugum líkindum, hvernig vogum við okkur að orga framan í óhjá- kvæmileikann að okkur skuli einn daginn vera skilað aftur í það ástand sem þessi mikli meirihluti mun aldrei rísa úr.“ Kári Ingason. Elsku amma. Ég kveð þig með söknuði og erfitt er að hugsa til þessa að þú sért farin úr jarðnesku lífi, en minning- arnar eru margar og góðar. Amma, þú varst svo hjartahlý og umhugað um aðra. Nærvera þín var svo góð. Það var lítið mál að glettast við þig og ræða hin ýmsu mál. Þú varst vinamörg og félagslynd og það var aðdáun- arvert hvað þú varst dugleg að fara upp á Hæðargarð í selskap. Fyrstu minningarnar eru klárlega allar góðu sundferðirn- ar í Laugardalslaugina með þér, mömmu og Unu systur. Við mæðgurnar fórum ófáar göngu-/ hjólaferðir frá heimili okkar yfir Fossvoginn til þín í kaffi. Ferða- lög og bústaðarferðir með ykkur afa, mömmu og pabba. Okkur Unu systur þótti mjög gott að vera í Gautlandinu hjá ykkur afa, þar mátti gera hvað sem er. Fara í búðarleik með alla skóna ykkar og hengja allt skrautið þitt úr skartgripaskrín- inu þínu á okkur og margt fleira. Við sóttumst oft í að fá að gista hjá ykkur afa, var þá alltaf ís eftir matinn og þú last alltaf góða bók fyrir svefninn, eins og Börnin í Ólátagarði. Þér var umhugað um ætt- ingja þína og varst með bók sem þú skráðir í nýja fjölskyldumeð- limi og afmælisdaga. Þú varst með allt á hreinu. Þó að nærfjöl- skylda okkar sé ekki mjög stór áttir þú þrettán systkini og öll- um ættingjum þeirra fylgdist þú ekki síður vel með. Þú sagðir mér margt um æsku þína og hvernig var að alast upp á Króki í stórum systkinahópi án móður frá þriggja ára aldri. Þú varst þakk- lát fyrir eldri systur þínar sem gengu þér í móðurstað. Þú varst alveg ótrúleg í sum- ar á ættarmótinu og tókst þátt í öllu fjörinu og hafðir gaman af. Það var gaman að fylgjast með þér njóta þín svona mikið. Í seinni tíð hittumst við reglu- lega og áttum stundum helgar saman í sveitinni hjá foreldrum mínum. Takk, elsku amma, fyrir alla ullarsokkana sem þú prjónaðir á mig og mína. Sérstaklega þótti mér vænt um sokkana sem þú prjónaðir á mig í veikindunum og gafst mér í afmælisgjöf í október. Þeir eru mikið notaðir. Það var ekki hægt að hugsa sér betri ömmu. Takk fyrir allt, elsku amma mín. Ég veit að afi hefur tekið vel á mótið þér, þú saknaðir hans mikið. Hildur. Sigrún Guðmundsdóttir var vinkona mín og hún var amma mín. Amma rauða, amma litríka, amma með fallegu hendurnar og möndluaugun, amma sem elsk- aði sund og krem og fór með mér í fjöruferðir og sýndi mér olnbogaskeljar, og amma sem ég mátaði föt með og hafði gaman af útganginum á mér. Amma með langa granna nefið sitt. Hún var amma í Rauða kross- búðinni í vinkonuhópnum mín- um og þar var ég lengi vikulegur fastagestur í kaffi. Í þessum heimsóknum fékk ég að kynnast Döggu, vinkonu hennar, og sam- an ræddum við þrjár heimsins mál milli fataleikja. Þessi tími skiptir mig miklu og lagði grunninn að vináttu okkar, vin- áttu milli tveggja fullorðinna kvenna, önnur ung, hin gömul. Við kleinubakstur gat hún hlegið að því þegar ég sá líkindi milli kleinanna og ónefnds lík- amsparts og amma gat séð spaugilegar hliðar á tilverunni þrátt fyrir að hún væri orðin máttvana og í nálægð við dauð- ann. Þegar ég sat hjá henni á líknardeildinni í vetur sé ég mest eftir því að hafa ekki sung- ið fyrir hana. Í ömmu skynjaði ég hvernig saman runnu fortíð og nútíð. Hún sagði mér frá æskunni, tunglbjörtum göngum á leið í skólann yfir vetrartímann, klædd þæfðum ullarflíkum yst sem innst. Hún kynnti mig fyrir blóðbergstei og alla tíð hændi hún að sér krumma með mat- argjöfum á stóra steininum við Gautlandið. Þannig var amma og í henni fann ég menningar- arfinn og ræturnar í miðri Reykjavík. Hennar hugsun var lituð af réttlætiskennd og mannkærleik. Hún sagði að ljótar hugsanir skemmdu mann að innan og ég held að hún hafi haft rétt fyrir sér. Kannski gerir elskan það að verkum að manneskja verður bjartari á að líta en aðrar og kannski dýpkar elskan sýn manns. Í mínum augum bar hún amma mín með sér fínlega og tæra, bjarta nærveru og ég held að hún amma mín hafi verið reglulega vel innrætt mann- eskja. Henni tókst að varðveita hluta af dýrmætum barnsljóm- anum í sjálfri sér. Ég sakna hennar og söknuð- urinn mun dýpka í hjarta mínu með tímanum því ég finn hana ekki lengur hér. Ég vona inni- lega að ég hitti hana aftur hinu- megin og ég sé hana fyrir mér upp á heiði, því amma var í tengslum við náttúruna og þar vil ég hitta hana aftur með munninn fullann af berjum. Þín, Una. Mín kæra mágkona og elsku- leg vinkona til margra ára er farin frá okkur til betri heima. Vinskapur okkar var langur og góður allt frá því að ég kynntist Gísla bróður Sigrúnar þegar ég fór í sveit eins og títt var um börn og unglinga á stríðsárun- um. Ég lenti í Króki í Holtum og þar var Sigrún yngst fjórtán barna. Guðmundur faðir hennar varð tengdafaðir minn þegar við Gísli giftum okkur. Guðmundur í Króki var einstakur maður. Hann hafði alið upp þennan barnahóp einn, því Guðrún Gísladóttir kona hans féll frá að- eins rúmlega fertug. Þetta var kátur hópur og í árlegum ferða- lögum um landið seinna meir var ávallt glatt á hjalla. Guð- mundur dreif sig yfirleitt með en hann varð rúmlega hundrað ára og einstaklega ern og minn- ugur fram á síðustu stund. Því miður féll Gísli minn frá alltof snemma en við Sigrún systir hans héldum okkar vin- áttu. Seinna erfðum við nokkra hektara lands austur í Holtum og höfum verið duglegar að rækta þar gróður og tré, og vor- um stoltar af. Einnig gerðumst við báðar sjálfboðaliðar hjá Rauða krossinum og unnum saman í verslun Rauða krossins á Laugaveginum í mörg ár. Allt- af var gott að vera nálægt Sig- rúnu. Hún var glaðlynd og for- vitin og hafði áhuga á flestu sem lífið hefur upp á að bjóða. Góðu heilli dró hún mig með sér í alls konar starfsemi í Hæðargarði og sé ég ekki eftir því. Og mörg- um kvöldum eyddum við í að ráða krossgátur gegnum síma og botna gamlar vísur. Dætur hennar og aðrir aðstandendur syrgja nú yndislega móður og góða konu og ég votta þeim mína innilegustu samúð. Dagbjört Sóley Snæbjörnsdóttir. Hún Sigrún, litla systir hans pabba míns, er dáin. Hún var líka ein síðasta fjöruga vinkona mömmu minnar, sem nú situr eftir með Ríkisútvarpið eitt sér til gamans. Hóll, Traðir, Nátthagi, Bjalli, Leynir, Neðri-Leynir, Leynis- klettur, Kotklettur, Teigur, Teiggil, Rásir, Kúabakki, Háskaklettur, Svartibakki, Mýrarvík, Miðklettur, Snös, Réttarbakki, Sauðhóll, Gjáin, Borgin, Eystri-Snasir, Tögl, Krosshóll, Reiðhólar, Flóð, Engjarimi, Lambhagahóll, Hrafnaklettur, Hvammur, Kríu- tangi, Djúpidalur, Lambhaga- mýri, Birgisklettar, Hryggur, Lónsmýri, Ós. Innan um þessi örnefni á bökkum Þjórsár lék Sigrún sér í uppvextinum, þeysti um votar mýrarnar á hestum eða skaut- um, tíndi ber, sótti beljurnar og vann öll þau fjölmörgu störf sem ég kann ekki einu sinni að nefna. Hún var yngst fjórtán systkina sem öll komust þarna til manns undir verndarvæng einstæðs föður. Sigrún var hláturmild og for- vitin um heiminn í kring, tók einstaklega vel eftir okkur öllum og mannlífinu, sótti leikhús og menningu og var alltaf fordóma- laus og til í tuskið. Mig langar að þakka henni samfylgdina og nærgætnina og vona bara að hún busli nú í friði á volgum svörtum söndunum við vaðið á fljótinu mikla, eins og hún gerði á góðum dögum sem barn. Guðrún Snæfríður Gísladóttir. Það var haustið 1956 sem við hittumst 32 stúlkur í Lindinni á Laugarvatni og erindið var að læra eitthvað gagnlegt í sjö mánuði. Í dag erum við að kveðja eina úr hópnum, Sigrúnu Guðmundsdóttur, hún er sú sjö- unda sem kveður. Hún var sú elsta í hópnum, við hinar fæddar á árunum 1935-1940. Sigrún kom úr Ásahreppi, við hinar komum nánast úr öllum lands- hlutum. Þarna myndaðist góður vin- skapur sem haldist hefur í ár- anna rás og saumaklúbburinn okkar fastur í sessi síðan. Við höfum gert margt skemmtilegt í gegnum árin, ógleymanleg ferðalög verið farin innanlands og utan og dansað og sungið. Mér fannst alltaf, þennan vetur okkar á Laugarvatni, hún Sig- rún vera þroskuðust af okkur, hún var yngst af mjög stórum systkinahópi og missti mömmu sína mjög ung. Henni var margt gefið, hún var létt í skapi, alltaf var gott að leita til hennar. Hún fylgdist vel með því sem var að gerast í þjóðfélaginu og það var gott að hlæja með henni. Já- ,maður kom alltaf betri eftir samtal við hana. Sigrún var viljasterk með ákveðnar skoðan- ir og áræðin, t.d. dreif hún sig í skóla á miðjum aldri, byrjaði á gagnfræðaprófinu og lærði svo sjúkraliðann og vann eftir það á Borgarspítalanum í Fossvogi. Það kom sér vel fyrir hana að kunna til verka þegar Óli veikt- ist og sannarlega voru samhent hjón þar á ferð og eins og ekkert væri breyttu þau t.d. mataræði sínu eins og þurfti vegna veik- inda Óla en það getur reynst mörgum erfitt. Sigrún vinkona hennar og skólasystir okkar bjó fyrir norð- an og þegar hún kom til Reykja- víkur bjó hún hjá þeim hjónum og síðustu ferðir hennar suður voru vegna veikinda og studdu þau Sigrún og Óli hana vel í öllu því ferli. Það var fallegt að fylgjast með því og óhætt er að segja að Sigrún hafi kvatt þetta líf með reisn. Hún var svolítið óupplögð þegar síðasti saumaklúbbur var en ekki að hún væri veik, alls ekki. Við Lindarmeyjarnar þökk- um góða samfylgd og vottum af- komendum hennar innilega samúð. Hulda. Sigrún Guðmundsdóttir HINSTA KVEÐJA Takk fyrir allt, elsku amma mín. Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. (Hugrún) Þín Sigrún Ýr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.