Morgunblaðið - 04.12.2015, Page 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2015
Á uppboðinu verður gott úrval verka
samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra
verka gömlu meistaranna.
sunnudaginn 6. desember, kl. 16 og mánudaginn 7. desember, kl. 18
Jólauppboð
í Gallerí Fold
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Forsýning á verkunum alla helgina
föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17, sunnudag kl. 12–17,
mánudag kl. 10–17 (þau verk sem boðin eru upp á mánudag)
Muggur
Ásgrímur Jónsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Dagurinn í dag hentar mjög vel til að
skemmta sér, daðra og grínast. Allt á sér sinn
stað og sína stund svo haltu þér til hlés. En
þó er óþarfi að fella allar varnir niður.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú átt erfitt með að standast löngun
þína til að kaupa eitthvað í dag. Vertu svo
sáttur við ákvörðunina.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Samræður við vini og maka taka
óvænta stefnu í dag. En stundum er betra að
segja af eða á en láta hlutina dankast.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér finnst þú eiga eitthvað erfitt með
að einbeita þér og þá sé sama hvað þú tekur
þér fyrir hendur. Leggðu þitt af mörkum svo
öðrum geti liðið jafnvel og þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú vilt vita hvernig hlutirnir virka og
þess vegna átt þú ýmsu ólokið. Hún er í nógu
góðu jafnvægi til þess að meðtaka það sem
öðrum þykir mikilvægt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ræðst í áskoranir og drauma. Hug-
leiddu með einbeitingu og þú verður hissa,
hversu auðveldur eftirleikurinn reynist. Gott
næði í sveitinni eða kyrrlátu umhverfi gerði
þér gott.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú gefur mikið af sjálfri þér og lætur
skoðanir þínar sterklega í ljós. En ástæðan er
að tunglið er fullt og það hefur áhrif á alla.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hugsar mikið um sameig-
inlegar eigur og hvernig hægt er að deila með
öðrum í dag. Snúðu við blaðinu áður en þú
eyðileggur líf þitt með neikvæðninni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert á öndverðum meiði gagn-
vart ættingja og þarft að hafa hemil á skapi
þínu ef þú vilt ekki að allt fari úr böndunum.
Láttu það ekki herða á þér, því flas er ekki til
fagnaðar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú gætir fengið góðar hugmyndir
að breytingum á heimilinu eða innan fjöl-
skyldunnar. Vertu í samhljómi við alla í kring-
um þig, líka fólk sem þú þekkir ekki.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Orðum þarf að fylgja einhver at-
höfn því annars missa þau marks. Stattu því
keikur þótt á móti blási og farðu yfir stöðuna
og þá muntu fyrr en síðar standa uppi sem
sigurvegari.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Afbrýðisemi gæti blossað upp í dag
og er best að doka við og sjá hver staðan
verður á morgun. Ef vinir þínir eru þér inn-
blástur, er líklegt að þú sért þeim það líka.
Ég hitti karlinn á Laugaveginumþar sem hann stikaði upp
Skólavörðustíginn; hann staldraði
við andartak, hallaði höfðinu eilítið
til vinstri og upp og sagði:
Með lífið mjög ánægður er ég
og aldrei sem núna, – það sver ég:
Með slatta í flösku
í slitinni tösku
í slotið á Holtinu fer ég.
Hrólfur Sveinsson orti um „skáld-
araunir“:
Vort streð við að stuðla og ríma
er stærsta böl allra tíma.
Sjálft skáldið úr Vör
hefur veitt þau svör
og vegna rímsins í síma.
Ólafur Stefánsson yrkir um hinn
„hvíta fjanda“:
Lausasnjór liggur á jörðu
lævís og bíður færis.
Misgott hefur í hyggju
hann í upphafi vetrar.
Í sakleysi fjöldinn fagnar,
fer sem börnunum ungu.
Vá getur valdið ýtum
vinglaður snjórinn hvíti.
Sigmundur Benediktsson orti um
„útsýn dagsins“ á Leirnum í gær:
Lækja rómur lækka fer,
ljúfur dómur frostrós er,
sumarblóm og sultarber
sveipar dróma fönnin hér.
Sólarglýja sýnist mér
sveipa skýin litaher,
óðar nýja ásýnd ber,
andans hlýju ljósið ver.
Í vetrartíð verður Friðrik Stein-
grímssyni hugsað til Fíu á Sandi:
Nöpur hvíar norðan spýja,
nætur ský og úfinn sjór,
inn’í hlýju er nú Fía
enn á ný að þamba bjór.
Eftir formúlunni á botninn að
koma fyrst, – eins og hér. Dag-
bjartur Dagbjartsson segir á Boðn-
armiði: „Seinni parturinn kom orð-
réttur hjá einum þulnum í morgun“:
Jólin með sitt skjall og skrum
skylt er Guði að þakka.
„Allt að loknum örstuttum
auglýsingapakka.“
Stundum kvikna vísur á augna-
blikinu. Gunnar Kr. Sigurjónsson
skrifar: „séð út um gluggann“:
Esjan hvítri skartar skikkju,
skín á hana sólargeisli.
Gamall karl að grárri bykkju
gengur, er með hnakk og beisli.
Þennan dag árið 1861 fæddist
Hannes Hafstein. Í Skáldu velur Jó-
hannes úr Kötlum þessa vísu:
Ef kaldur stormur um karlmann fer
og kinnar bítur og reynir fót,
þá finnur ‘ann hitann í sjálfum sér
og sjálfs sín kraft til að standa á mót.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Slotið á Holtinu, veðrið og jólin
Í klípu
„HVERNIG MYNDIR ÞÚ SKILGREINA
ÁHÆTTUSÆKNI ÞÍNA?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG GET EKKI ÚTSKÝRT ÞAÐ NÚNA, EN
EKKI FARA ÚR JAKKANUM Í VINNUNNI.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að syngja fyrir
góðan málstað.
ÉG ELSKA
MAT!
OG HVAÐ SEM
ÞETTA VAR
HÆTTU AÐ LIGGJA Á HLERI!…OG ÞÁ SAGÐI
HRÓLFUR…
...„hvískur, hvísl, psst,
hóst, stuna!“
FJÁRMÁLA-
RÁÐGJÖF
HJÁLPUM BÖRNUNUM
Víkverji hefur ekki verið á vígvelliog forðast átakasvæði eins og
heitan eldinn. En ekki er á allt kosið
og Reykjavík er sennilega einn
hættulegasti staður veraldar um
þessar mundir.
x x x
Á dögunum glumdu í viðtækjunumviðvaranir fólks sem á að hafa
vit á hlutunum. Þetta fólk, þar á
meðal veðurfræðingar, hvatti íbúa til
þess að vera innandyra og hætta sér
helst ekki út vegna veðurs.
x x x
Svo virtist sem ekki hefði fariðeins illa undanfarna daga og
gert var ráð fyrir og varð það til þess
að hinum vísu var blótað í sand og
ösku. Víkverji heldur að þar hafi far-
ið fremst svonefnt gott fólk, sem
meðal annars lætur í það vaka að það
vilji hvergi illt sjá, en Víkverji tekur
upp hanskann fyrir sérfræðingana.
x x x
Tilfellið er að í Reykjavík er ekkihundi út sigandi um þessar
mundir, ekki frekar en áður, þegar
snjóað hefur á undanförnum árum.
Ástæðan er í stuttu máli sú að borg-
in hefur ekki staðið sig í hreinsun-
inni, hvorki á gangstígum né húsa-
götum, enda stungu allir forsvars-
menn hennar af til Parísar.
x x x
Í tilkynningu frá borginni í vikunnier fólk beðið um að „moka frá
sorpílátum og greiða aðgengi að
þeim með því að moka leið fyrir
sorphirðufólkið“. Með öðrum orðum
vísar borgin ábyrgðinni á íbúana.
x x x
Ekki er öllum fært að vera úti viðsnjómokstur og á meðan borgin
sinnir ekki hlutverki sínu á fólk sem
vogar sér út af heimilum sínum í
Reykjavík á hættu að detta á snjó-
þungum og ísilögðum gangstígum,
brjóta sig og bramla. Þar sem það
liggur ósjálfbjarga í snjónum og
horfir upp í þakskeggin sér það ekk-
ert nema grýlukerti. Víkverji hefur
sem betur fer ekki lent í þessari lífs-
reynslu enda ungur og sprækur,
fimur og hraustur, en hann hefur
áhyggjur af gamla fólkinu í þessu
hættuástandi. víkverji@mbl.is
Víkverji
En það er hið eilífa líf að þekkja þig,
hinn eina sanna Guð, og þann sem þú
sendir, Jesú Krist. Jóh. 17:3