Morgunblaðið - 04.12.2015, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2015
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það er ekki verra að hafa svona fal-
legan snjó til að koma manni í réttu
stemninguna,“ segir Hörður Áskels-
son, organisti í Hallgrímskirkju,
sem stjórnar tónleikum Schola can-
torum í hádeginu í dag og Mót-
ettukór Hallgrímskirkju á þrennum
tónleikum á næstu dögum. Tónleik-
arnir eru hluti af
Jólatónlistarhátíð
kirkjunnar sem
hófst um síðustu
mánaðamót og
stendur út árið.
„Í ár heldur
Mótettukórinn
þrenna tónleika á
aðventunni þar
sem hinn hreini
kórsöngur,
skreyttur orgelleik og málmblæstri,
verður í sviðsljósinu,“ segir Hörður,
en tónleikar kórsins verða á morgun,
laugardag, og sunnudag kl. 17 báða
daga og þriðjudaginn 8. desember
kl. 20. „Líkt og í fyrra erum við ekki
með þekktan einsöngvara heldur
byggjum við einvörðungu á eigin
kröftum. Það er svo margt hæfi-
leikaríkt fólk í kórnum, en kór-
félagar munu láta ljós sitt skína í
ýmsum hlutverkum á tónleikunum,“
segir Hörður og bendir á að frum-
flutt verði nýtt jólalag eftir Halldór
Hauksson, sem jafnframt á heið-
urinn af dagskrárgerð tónleikanna
og einsöngvarar koma úr röðum kór-
félaga, þær Ásta Marý Stefánsdóttir
og Þórgunnur Örnólfsdóttir. Einnig
kemur orgelleikarinn úr röðum kór-
félaga, þ.e. Lenka Matéova.
„Málmblásarakvartett úr Sinfón-
íuhljómsveit Íslands leikur á tónleik-
unum,“ segir Hörður og bendir á að
mikil áhersla sé í ár á fleirkóra-
músík, þ.e. músík fyrir fleiri en einn
kór. „Þannig verða flutt tveggja,
þriggja og fjögurra kóra verk með
blásurum og orgeli,“ segir Hörður
og bendir á að tónlistarfólkið verði
staðsett á víð og dreif um kirkjuna í
anda ítalska tónskáldsins Gabrieli.
Nánar spurður um efnisskrá tón-
leikanna segir Hörður hana tví-
skipta.
„Fyrri hlutinn er helgaður gamalli
tónlist þar sem ofnir eru saman
þýskir barokksálmar eftir Praeto-
rius, Schein, Händel og Eccard, og
sjaldheyrðir enskir jólasöngvar frá
20. öld eftir m.a. Gustav Holst, And-
rew Carter og Harold Darke. En
einnig læðum við inn verkum sem
okkur eru hjartfólgin. Í seinni hlut-
anum hljóma fleiri vinsældarverk á
borð við þekkta jólasálma og nýlegri
verk,“ segir Hörður og tekur fram
að búast megi við mjög hátíðlegri
stund í kirkjunni, sem kórfélagar
hafi lagt mikinn metnað í að skreyta.
Hátíðarhljómar við áramót
Auk framangreindra tónleika
verða árlegir djasstónleikar fimmtu-
daginn 17. desember kl. 20. „Tón-
leikarnir eru haldnir í samvinnu við
þýska sendiráðið, en flytjendur eru
Markus Burger píanóleikari og Jan
von Klewist saxófónleikari sem
skipa þýskt djassdúó sem ferðast
um heiminn sem tónlistarsendiboðar
Þýskalands í tilefni af 500 ára af-
mæli siðaskiptanna árið 2017,“ segir
Hörður og rifjar upp að dúóið hafi
síðast leikið á Jólatónlistarhátíð
Hallgrímskirkju árið 2013 fyrir fullu
húsi og við afbragðsgóðar undir-
tektir. Aðgangur er ókeypis, en tek-
ið er á móti móti frjálsum fram-
lögum til björgunarsveitarinnar
Landsbjargar.
Sunnudaginn 27. desember kl. 17
mun Björn Steinar Sólbergsson org-
anisti flytja eitt frægasta orgelverk
allra tíma, La Nativité du seigneur
eða Fæðing frelsarans, sem er níu
hugleiðingar fyrir orgel eftir Olivier
Messiaën.
Á gamlársdag kl. 17 verða að
vanda hátíðarhljómar við áramót
þar sem trompetleikararnir Ásgeir
H. Steingrímsson, Eiríkur Örn Páls-
son og Einar St. Jónsson, Björn
Steinar Sólbergsson orgelleikari og
Eggert Pálsson pákuleikari flytja
hátíðarverk m.a. eftir Vivaldi, Pur-
cell, Bach og Albinoni.
Hátíðleg stund í skreyttri kirkju
Níu tónleikar framundan á Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju í desember Fyrstu tónleikar
Mótettukórsins eru á morgun kl. 17 Jóladjass hjá þýsku dúói 17. desember til styrktar Landsbjörg
Morgunblaðið/Eggert
Aðventustemning Mótettukór Hallgrímskirkju syngur á þrennum jólatónleikum á næstu dögum.
Hörður
Áskelsson
Miðstöð íslenskra bókmennta hefur
tilkynnt um úthlutun þýðinga-
styrkja á íslensku, seinni úthlutun,
fyrir árið 2015. Að þessu sinni bár-
ust 19 umsóknir um þýðingastyrki
frá 12 aðilum og sótt var um tæp-
lega 12,6 milljónir króna. Úthlutað
var rúmum 7,3 milljónum í 17 styrki
til þýðinga á íslensku úr átta tungu-
málum.
Ólík bókmenntaverk
Eftirtalin verk hlutu þýð-
ingastyrki að þessu sinni: Nada eftir
Carmen Laforet í þýðingu Erlu Er-
lendsdóttur; Soumission eftir Michel
Houellebecq í þýðingu Friðriks
Rafnssonar; Storia del nuovo cog-
nome eftir Elena Ferrante í þýðingu
Brynju Cortes Andrésdóttur;
Treasure Island eftir Robert Louis
Stevenson í þýðingu Árna Ósk-
arssonar; 84 Charing Cross Road
eftir Helene Hanff í þýðingu Jakob
F. Ásgeirssonar; ljóð frá ýmsum
löndum í þýðingum Gyrðis Elíasson-
ar; Was ich dich traumen lasse eftir
Franziska Moll í þýðingu Herdísar
Hübner; George Marvellous Medic-
ine eftir Roald Dahl í þýðingu Sól-
veigar Sifjar Hreiðarsdóttur; The
Uncommon Reader eftir Alan Benn-
ett í þýðingu Þórdísar Bachmann;
Le livre des Baltimore eftir Joel
Dicker í þýðingu Friðriks Rafns-
sonar; Travail Soigné eftir Pierre
Lemaitre í þýðingu Friðriks Rafns-
sonar; The Miniaturist eftir Jesse
Burton í þýðingu Magneu J. Matt-
híasdóttur; The walls around us eft-
ir Nova Ren Suma í þýðingu Höllu
Sverrisdóttur; Historia de antiqui-
tate regum Norvagiensium eftir
Theodoricus Monachus í þýðingu
Guðmundar J. Guðmundssonar; Az
utolsó farkas eftir László Kraszna-
horkai í þýðingu Einars Más Hjart-
arsonar; og Lugu Keegi Eikelleg-
itütre isast eftir Kätlin Kaldmaa í
þýðingu Lemme Lind Óskarsdóttur.
Á árinu barst samtals 41 umsókn
um styrki til þýðinga á íslensku. Út-
hlutað var rúmlega 13,7 milljónum
króna til 33 þýðingaverkefna í
tveimur úthlutunum, fyrst í mars og
aftur í nóvember.
Sautján þýðinga-
styrkjum úthlutað
Franziska
Moll
Michel
Houellebecq
Schola cantorum syngur á hádegis-
tónleikum í Hallgrímskirkju í dag kl.
12 undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Um er að ræða fyrstu hádegistónleik-
ana af þrennum á aðventunni, en
næstu tónleikar verða föstudagana
11. og 18. desember.
„Efnisskráin samanstendur af
þekktri og aðgengilegri jólatónlist,“
segir Hörður og bendir á að tónleik-
arnir séu í og með hugsaðir fyrir er-
lenda ferðamenn sem hingað leggja
leið sína. Spurður hvort tiltekið þema
verði ríkjandi á hverjum tónleikum
svarar Hörður því játandi. „Við færum
okkur frá aðventunni til jóla með við-
komu í Maríusöngvum á miðtónleik-
unum,“ segir Hörður og bendir á að
yfirskriftir tónleikanna beri þess
merki, þ.e. Slá þú hjartans hörpu-
stengi, Nú kemur heimsins hjálparráð
og Hátíð fer að höndum ein.
„Færum okkur frá aðventunni til jóla“
FYRSTU HÁDEGISTÓNLEIKAR SCHOLA CANTORUM AF ÞRENNUM Á AÐVENTUNNI
Einsöngur Rakel Guðmundsdóttir syngur einsöng með Schola Cantorum í laginu
Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns á hádegistónleikunum í Hallgrímskirkju í dag.