Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.12.1988, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 21.12.1988, Blaðsíða 6
6 Miðvikudagur 21. desember 1988 Vorum að taka upp mikið af nýjum vörum VERSLUNIN TRAFFIC HAFNARGÖTU32 EKKI GLEYMA! ... því, að hjá okkur færðu jóla- matinn og jólaölið á betra verði en þig grunar. Opið alla daga til kl. 22. Opið á aðfangadag til kl. 14. HRINGBRAUT 99 - KEFLAVÍK - SÍMI 1-45-53 Gleðileg jól FLUGELDAR í MIKLU ÚRVALI INNIBOMBUR KÖKUR Eigum til stjórnmálagrímurnar Sölustaðir: ■ íþróttavallarhúsi Njarðvík ■ Söluskúr við Hitaveitu Suðum. ■ Hjálparsveitarhúsinu Holtsgötu 51, Njarðvík. Hjálparsveit skáta, v Njarðvík. \>iKur< jtOiU Hluti þeirra formanna er raðstefnuna sótti. Fremstur a myndinni er Kristján Ingibergsson frá Vísi á Suðurnesjum. Ljósm.: hbb. Formannaráð- stefna FFSÍ haldin í Keflavík í síðustu viku var haldin for- mannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands Is- lands. Að þessu sinni var hún haldin í Keflavík, nánar tiltek- ið á Flughóteli. Stóð ráðstefna þessi yfír í nokkra daga en formenn allra aðildarfélaga FFSÍ áttu kost á að sitja hana. Lífeyrissjóður Suðurnesja: Nafnabreyting hjá L.V.F.S. Á fulltrúafundi Lífeyris- sjóðs verkalýðsfélaga á Suður- nesjum, sem haldinn varí nóv- ember sl. var samþykkt tillaga frá stjórn um að breyta nafni sjóðsins í Lífeyrissjóð Suður- nesja.Tekurbreytingingildi 1. janúar n.k. Á fundinum voru lagðir fram ársreikningar sjóðsins fyrir árið 1987 ásamt skýrslu stjórnar og kom þar m.a. fram að hrein eign sjóðsins til greiðslu lífeyris var í árslok rúmlega einn miiljarður króna. Iðgjöld á árinu námu 133,0 m.kr. og lífeyrisgreiðsl- ur 57,5 m.kr., þar af greiddi Umsjónarnefnd eftirlauna 21,4 m.kr. Um 4500 manns greiddu iðgjöld til sjóðsins á árinu 1987. Mikið hefur dregið úr eftir- spurn sjóðfélaga í lán hjá sjóðnum en á árinu voru af- greidd 81 lán samtals að upp- hæð 19,1 m.kr.Til samanburð- ar voru afgreidd 170 lán á ár- inu 1986 samtals að upphæð 39,4 m.kr. Skuldabréfakaup af Hús- næðisstofnun ríkisins vegna ársins 1987 námu lll.Om.kr. eða 55% af ráðstöfunarfé sjóðsins. Stjórn sjóðsins skipa Mar- geir Jónsson formaður og Jón Ægir Ólafsson frá vinnuveit- endum og Halldór Pálsson og Björn Jóhannsson frá stéttar- félögunum. Aðildarfélög sjóðsins eru Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágr., Verka- kvennafélag Keflavíkur og Njarðvíkur, verkalýðs- og sjó- mannafélag Gerðahrepps, Verkalýðs- og sjómannafélag Miðneshrepps, Iðnsveinafélag Suðurnesja, vélstjórafélag . Suðurnesja og Bifreiðastjóra- : félagið Keilir.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.