Morgunblaðið - 05.12.2015, Page 2

Morgunblaðið - 05.12.2015, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444 Kanarí með Guðna Ágústsyni Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra hefur gengið til liðs við Ferðaskrifstofuna VITA og mun ásamt Margréti Hauksdóttur eiginkonu sinni stýra dagskrá skemmtilegra daga í sólinni á Kanarí. Verð frá 139.900 kr.* og 12.500 Vildarpunktar á mann m.v. 2 í íbúð á Las Camelias 16. janúar í 17 nætur. *Verð án Vildarpunkta 149.900 kr. Ferðir: 4. - 16. jan. 12 nætur/ örfá sæti laus 4. - 26. jan. 22 nætur/ örfá sæti laus 16. jan. - 2. feb. 17 nætur. / aukaferð / laus sæti Baldur Arnarson baldura@mbl.is Útgjöld til 17 eftirlitsstofnana aukast um 725 milljónir milli ára. Eins og hér er sýnt á grafi verða fjárveitingar lækkaðar til tveggja stofnana, Haf- rannsóknastofn- unar og Fiski- stofu. Þar er lækkun um 24 milljónir króna annars vegar og 95 milljónir króna hins vegar. Útgjöld til 15 annarra eftirlits- stofnana aukast hins vegar milli ára. Útgjöldin í rúma 13 milljarða Samtals fá stofnanirnar 17 um 13,134 milljarða á næsta ári, borið saman við 12,409 milljarða í ár. Nemur aukningin 725 milljónum króna. Það er 5,8% hækkun á fram- lögum milli ára. Samgöngustofa fær mesta aukn- ingu, eða 144 milljónir. Næst kemur Matvælastofnun með 136 milljóna viðbótarframlag og í þriðja sæti er Vinnueftirlit ríkisins sem fær 111 milljónum króna meira en í fyrra. Guðlaugur Þór Þórðarson, vara- formaður fjárlaganefndar og þing- maður Sjálfstæðisflokksins, segir ríkisstofnanir sporna við sparnaði með öllum tiltækum ráðum. „Það gengur erfiðlega að spara hjá stofnunum. Kerfið ver sig með öllum ráðum. Það skortir skilning á mikilvægi þess að gæta aðhalds í ríkisfjármálum og hafa í þessu til- felli einfalt og skilvirkt eftirlitskerfi. Þetta er útlagður kostnaður skatt- greiðenda og það er líka í þessu fólginn mikill óbeinn kostnaður fyrir atvinnulífið og fólkið í landinu, eins og allir vita … Fjárlögin eru illskilj- anleg og það er iðulega verið að ræða smærri mál í stað þess að ræða stóru málin,“ segir Guðlaugur Þór. Orðum fylgja ekki efndir Spurður hvort fjárveitingavaldið sé ekki hjá Alþingi segir Guðlaugur Þór að orð og efndir fari ekki alltaf saman. „Ef það á að taka á þessum hlutum verður að vera samspil framkvæmdavalds og þingmeiri- hluta. Það virðist vera svo að þótt menn séu í orði kveðnu tilbúnir í breytingar þá vantar upp á að þeim sé hrint í framkvæmd. Tregðulög- mál eru hrikalega sterk,“ segir Guð- laugur Þór Þórðarson.  Fjárveitingar til 17 eftirlitsstofnana aukast um 725 milljónir kr. milli ára  Samgöngustofa fær 144 milljónum meira en í fyrra  Varaformaður fjárlaganefndar segir kerfið verja sig „með öllum ráðum“ Eftirlitsstofnanir fá meira fé Útgjöld til eftirlitsstofnana í milljónum króna 2014-16, á verðlagi hvers árs Stofnun 2014 2015 2016 Aukning Fjármálaeftirlitið 1.576 1.637 1.711 4,5% Mannvirkjastofnun 472 500 540 8,0% Jafnréttisstofa 110 94 99 5,3% Matvælastofnun 1.293 1.411 1.547 9,6% Fjölmiðlanefnd 37 39 41 5,1% Lyfjastofnun 472 475 511 7,6% Umboðsmaður Alþingis 169 175 203 16,0% Landlæknir 971 1.049 1.099 4,8% Samkeppniseftirlitið 389 384 435 13,3% Póst- og fjarskiptastofnun 356 359 375 4,5% Vinnueftirlit ríkisins 539 555 666 20,0% Umhverfisstofnun 1.008 1.001 1.077 7,6% Ríkisendurskoðun 458 479 548 14,4% Hafrannsóknastofnun 1.497 1.861 1.837 -1,3% Geislavarnir ríkisins 91 89 95 6,7% Fiskistofa 844 988 893 -9,6% Samgöngustofa 1.591 1.313 1.457 11,0% Samtals 11.873 12.409 13.134 5,8% Aukning 4,5% 5,8% Guðlaugur Þór Þórðarson Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Bolvíkingurinn Hjörtur Traustason bar sigur úr býtum í The Voice Ís- land en úrslitaþáttur keppninnar var í beinni útsendingu á Skjá einum í gærkvöldi. Í þættinum söng Hjörtur lögin Stand by me með Ben E. King og Ferðalok sem Óðinn Valdimars- son gerði frægt á sínum tíma. Það voru þau Rebekka Blöndal, Sigvaldi Helgi Gunnarsson og Ellert Heiðar Jóhannsson sem börðust við Hjört um titilinn. Úrslit réðust í símakosn- ingu þar sem áhorfendur greiddu at- kvæði. „Söngvararnir eru frábærir og hafa slípast mikið í þessu ferli. Í raun hafa bæði þeir og þættirnir vaxið með hverri vikunni,“ segir Þórhallur Gunnarsson hjá Saga film, fram- kvæmdastjóri verkefnisins. Hann kveðst ánægður með alla fram- kvæmd Voice Iceland, en allt að 100 manns koma að gerð og útsendingu hvers þáttar. „Í fyrstu þurfti að leggja talsverða vinnu í að finna góða söngvara og hvetja þá til að stíga fram. En þetta tókst allt og þátttak- endur munu setja svip sinn á íslenskt tónlistarlíf á næstu árum,“ segir Þór- hallur. „Við renndum alveg blint í sjóinn þegar við settum þetta verkefni af stað. Viðtökurnar hafa verið betri en við nokkru sinni væntum,“ sagði Pálmi Guðmundsson, forstöðumaður ljósvakamiðla hjá Símanum. Við- tökur áhorfenda segir hann sömu- leiðis hafa verið hvetjandi. Mælingar sýni að eitt föstudagskvöldið fyrir skemmstu hafi 61% áhorfenda undir fimmtugu valið þáttinn umfram ann- að efni. Alls 35% Íslendinga 12-80 ára hafi stillt á þáttinn í styttri eða lengri tíma. „Þetta er náttúrlega afar íslenskt og frábær tilfinning. Heimsmet í hlutfalli!“ segir Pálmi. Þessi góðu við- brögð segir hann hafa ráðið miklu um að ákveðið hafi verið að framleiða aðra þáttaröð af The Voice Ísland sem verði í sjónvarpi næsta haust. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Sigurvegarinn Hjörtur sló í gegn á úrslitakvöldinu með lögunum Stand by me og hinu vinsæla Ferðalokum. Hjörtur Traustason úr Bolungarvík sigraði  Úrslit í The Voice Ísland réðust í símakosningu Guðlaugur Þór Þórðarson sagði í gærkvöldi að fjárlaganefnd myndi í dag leggja fram breyt- ingartillögur fyrir aðra umræðu um fjárlög ársins 2016. Guðlaugur Þór kvaðst vera bundinn trúnaði um niðurstöðu tillagnanna þar til þær yrðu birtar á vef Alþingis. Hann gæti því ekki tjáð sig um hvort út- gjöldin í ríkisrekstrinum myndu aukast á milli ára. Það setur útgjaldaaukn- inguna í töflunni hér til hliðar í samhengi að í nóvember mæld- ist 2% verðbólga. Þess skal þó getið að laun hafa hækkað í kjölfar kjarasamninga. Ekki náðist í Vigdísi Hauks- dóttur, formann fjárlaganefnd- ar, vegna málsins. Verða lögð fram í dag FJÁRLÖG Í 2. UMRÆÐU Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is „Þegar gerðir voru kjarasamningar sl. vor skiptum við út áherslunni á lækkun tryggingagjalds fyrir lækk- un tekjuskatts,“ sagði Bjarni Bene- diktsson fjármálaráðherra í gær þegar Morgunblaðið spurði hann hvernig miðaði í viðræðum við Samtök atvinnulífsins til þess að tryggja líf SALEK-samkomulags- ins. „Þess vegna kemur það dálítið á óvart að nú skuli vera þetta sterk krafa SA strax um lækkun trygg- ingagjaldsins um næstu áramót,“ sagði Bjarni. Hann kveðst hafa talið að þetta væri nokkuð útrætt mál hvað varðar fjárlög næsta árs. Ráðherra segir að það sé ekki svigrúm fyrir jafnmikla lækkun tryggingagjalds og krafa SA hljóðar upp á í ríkisfjármálaáætlun ríkis- sjóðs frá og með næstu áramótum. „Það er lækkun að eiga sér stað um áramótin, sem við höfum áður lögfest, en það var ekki ætlunin að bæta í þá lækkun,“ sagði Bjarni. „Við höfum lýst yfir vilja til þess að ræða við vinnumarkaðinn um breytingar á tryggingagjaldinu á kjarasamningstímanum. Ég er sam- mála því að við eigum að draga úr tryggingagjaldinu og ég hef ávallt talað fyrir því, en við erum búin að forgangsraða hvað varðar árið 2016,“ sagði Bjarni. Fjármálaráðherra leggur á það áherslu að því hafi hvergi verið lof- að að tryggingagjaldið lækkaði frekar um áramótin og því vísaði hann því til föðurhúsanna að rík- isstjórnin væri að ganga á bak orða sinna. Ríkisstjórnin legði höfuð- áherslu á að eiga gott samstarf um SALEK-samkomulagið við aðila vinnumarkaðarins. Krafa SA kemur nokkuð á óvart  Búin að forgangsraða fyrir árið 2016

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.