Morgunblaðið - 05.12.2015, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Þetta er örlítil viðurkenning og
klapp á bakið, sýnir að maður er þá
að standa sig,“ segir Svanur Kristó-
fersson byggingarmeistari, sem býr
í bænum Balestrand við Sognafjord,
lengsta fjörð Noregs. Fyrirtæki
hans komst á lista norska við-
skiptablaðsins Dagens næringsliv
yfir þau fyrirtæki sem hafa meira
en tvöfaldað veltu sína á undan-
förnum fjórum árum. Norðmenn
líkja slíkum fyrirtæjum við gasellur
(n. gasellebedrifter), sem hlaupa
hraðar en margar aðrar skepnur.
Annað fyrirtæki í Balestrand komst
á sama lista og er einnig í eigu Ís-
lendings, Ásdísar Hrundar Ein-
arsdóttur. Hún rekur fyrirtækið
Rekop AS og er með netverslun og
verslun í bænum undir heitinu Abby
botique, auk þess að reka heildsölu
með pitsuofna og fleiri vörur.
Íslendingabær við Sognafjord
Balestrand tilheyrir fylkinu Sogn
og Fjordana. Íbúar eru aðeins um
1.300 talsins og þar búa hátt í 30 Ís-
lendingar. Bærinn er einna þekkt-
astur fyrir Kviknes-hótelið, eftirsótt
og margverðlaunað sveitahótel, en
eiginkona hótelstjórans og eigand-
ans er íslensk, María Ragnarsdóttir.
Ásdís fór einmitt utan til Noregs
til sumarvinnu á Kviknes-hótelinu
árið 1979. Sumarið eftir fór María
utan með Ásdísi og kynntist þar nú-
verandi manni sínum úr fjölskyldu
hóteleigendanna. Á þessum árum
unnu hátt í 20 Íslendingar á hót-
elinu.
Fáum árum síðar flutti Ásdís til
Balestrand og hefur búið þar síðan
ásamt fjölskyldu sinni.
Tengsl Ásdísar og Svans eru
skemmtileg því segja má að hún
beri nokkra ábyrgð á því að hann
kom til Noregs á sínum tíma. Vegna
ættartengsla við konu Svans, Guð-
rúnu Kjartansdóttur, fékk Ásdís
hann til að koma sumarið 1995 og
byggja fyrir þau hús. Þremur árum
síðar fluttu Svanur og Guðrún frá
Reykjavík til Balestrand.
„Það var ekkert krísuástand sem
fékk okkur til að flytja. Mér leist vel
á aðstæður í bænum, sem er svip-
aðrar stærðar og gamli heimabær-
inn minn, Ólafsvík. Okkur langaði
bara að breyta til, ætluðum að prófa
þetta í tvö ár en okkur hefur liðið
svo vel hérna að árin eru að verða
18,“ segir Svanur, sem reiknar ekki
með að snúa heim í bráð. Hann
byrjaði að vinna einn í smíðunum en
með auknum verkefnum hefur hann
smátt og smátt fjölgað við sig
starfsmönnum, sem í dag eru orðnir
átta. Þar af er einn íslenskur smiður
sem flutti til Balestrand sl. vor
ásamt fjölskyldu sinni, kona hans
starfar við hjúkrun.
„Það er allt brjálað að gera
hérna, bæði í nýsmíði og viðhalds-
verkefnum. Við erum núna með
stórt verk fyrir Kviknes-hótelið þar
sem er verið að gera upp alla ganga
í gömlu byggingunni,“ segir Svanur
en hótelið er einn stærsti vinnu-
staður bæjarins. Atvinnusvæðið er
þó stærra við Sognafjord og hefur
Svanur m.a. verið með verkefni í
bænum Kaupanger skammt frá.
Hann segir rekstrarumhverfið
gott í Noregi og þar standi allir í
skilum. „Hér þarf ekki að hringja í
neinn og minna á að borga reikning-
inn,“ segir Svanur en fyrirtæki hans
hefur á undanförnum fjórum árum
aukið veltu sína um 120%.
„Hér eru næg verkefni og Íslend-
ingar eru eftirsóttir starfskraftar.
Nokkur önnur byggingarfyrirtæki
eru hérna en við höfum náð að
vinna okkur markað og fasta
viðskiptavini,“ segir hann. Þau Guð-
rún hafa alið upp fjögur börn og
hann segir þau öll flogin úr hreiðr-
inu og barnabörnin orðin fjögur.
Fyrst þegar þau komu út starfaði
Guðrún sem sjúkraliði en aflaði sér
síðan kennaramenntunar og starfar
í dag sem kennari og lektor í bæn-
um Höyanger, sem er skammt frá
Balestrand.
Henti boðsbréfi blaðsins!
Dagens nærlingsliv bauð bæði
Svani og Ásdísi til athafnar í Berg-
en þar sem fulltrúar „gasellu-
fyrirtækjanna“ komu saman til að
taka við viðurkenningu frá blaðinu.
Þau komust hvorugt og í tilfelli Ás-
dísar var það sjálfgefið, eins og hún
lýsti því svo skemmtilega í samtali
við Morgunblaðið:
„Ég fékk sent bréf frá blaðinu
fyrir nokkrum vikum. Ég leit eitt-
hvað snöggt á þetta, hélt fyrst að
um einhverja auglýsingu væri að
ræða og henti bréfinu í ruslið. Þeg-
ar listinn birtist í blaðinu þá fattaði
ég hvað þetta hafði verið!“
Ásdís hefur stundað eigin at-
vinnurekstur í Noregi frá árinu
1999, en þá hafði hún eignast fimm
börn og það yngsta var aðeins
tveggja ára þegar hún steig sín
fyrstu spor í viðskiptalífinu.
„Þetta byrjaði með því að ég fékk
umboð fyrir Ferrari-pitsuofna og
seldi þá bæði hér í Noregi og á Ís-
landi. Síðan kom eftirlíking á mark-
aðinn og salan datt niður um tíma.
En ég er enn með ofnana í dag og
það gengur mjög vel með þá. Ég sel
einnig margt fleira,“ segir Ásdís,
sem aðallega flytur inn fatnað og
selur áfram, einkum útivistarfatnað
frá Cintanami í Noregi og loðkraga
frá Feldi á Íslandi. Þá selur hún
ýmsar vörur til sælkeraverslana,
m.a. kjötkraftinn fræga frá Oscar.
„Ég byrjaði smátt og síðan hefur
reksturinn verið að aukast jafnt og
þétt. Það er alltaf gaman þegar vel
gengur. Hér við Sognafjord er mikil
ferðaþjónusta og þá er mikið að
gera á sumrin og í tengslum við
ýmsar hátíðir sem haldnar eru,“
segir hún.
Hún tekur undir með Svani að
gott sé að búa í Balestrand, þar sé
nóg við að vera. „Hér voru mjög
margir Íslendingar en þeim fækkaði
um tíma, einhverjir fóru aftur heim
og aðrir fluttu annað innan Noregs.
Síðan hefur þeim verið að fjölga
hérna aftur,“ segir Ásdís Hrund.
Líkt og Svanur segist hún ekkert
vera á heimleið. Hún heldur góðri
tengingu við Ísland með reglulegum
heimsóknum til fjölskyldu og vina,
auk þess sem hún stundar viðskipti
við íslensk fyrirtæki og fjöldi Ís-
lendinga verslar við hana á netinu.
Verðlaunafyrirtæki í Balestrand
Tvö lítil fyrirtæki í eigu Íslendinga í norska smábænum Balestrand verðlaunuð af norska við-
skiptablaðinu Dagens næringsliv Hafa meira en tvöfaldað veltu sína Skemmtileg tenging
Byggingarmeistari Svanur Kristófersson er með átta manns í vinnu í dag
og er hér við smíðar í hinu fræga Kviknes-hóteli í Balastrand.
Verslunareigandi Ásdís Hrund Einarsdóttir að störfum í verslun sinni í
Balestrand, Abby botique, en hún er með samnefnda verslun á netinu.
Balestrand
Bergen
Balestrand í Noregi
Toyota Kauptúni
Kauptúni 6
Sími: 570 5070
info@toyota.is
Opiðmán - fös:
07.45 -18.00
Laugardaga:
12.00 - 16.00
25% afmælisafsláttur
af öllumToyota og Liqui Moly bæti- og
hreinsiefnum fyrir vélar