Morgunblaðið - 05.12.2015, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015
Erlingur B. Thorodd-
sen, hótelstjóri Hótels
Norðurljósa á Raufar-
höfn, lést aðfaranótt 3.
desember sl. á Land-
spítalanum á Hring-
braut, 67 ára að aldri,
eftir snarpa baráttu við
krabbamein.
Erlingur fæddist 15.
júlí 1948 á Patreksfirði
og ólst þar upp, sonur
Braga Ó. Thoroddsen,
rekstrarstjóra Vega-
gerðarinnar í Barða-
strandarsýslu, og Þórdísar Haralds-
dóttur Thoroddsen húsmóður, sem
bæði eru látin. Þau eignuðust sex
börn og lifa þau öll bróður sinn.
Eftirlifandi eiginkona Erlings er
Ágústa Valdís Svansdóttir snyrti-
fræðingur og saman eignuðust þau
dótturina Rakel Fríðu. Fyrir átti Er-
lingur synina Arnar Erlingsson og
Þórgný Thoroddsen og kjörsoninn
Elías. Ágústa á tvö börn af fyrra
hjónabandi; Michael Frank Rúnar
Chiodo og Kareninu Kristínu
Chiodo.
Erlingur lauk landsprófi á Núpi á
Dýrafirði og fór þaðan í Samvinnu-
skólann á Bifröst og síðan í fram-
haldsnám í Edinborg.
Heim kominn hóf hann störf hjá
Eimskip og vann síðar bókhaldsstörf
hjá Þvottahúsinu Fönn, Olís og
Sundi. Eftir það fór Erlingur í eigin
atvinnurekstur, ann-
aðist leiðsögn ferða-
fólks og rak um árabil
gistiheimili í Reykjavík
ásamt þáverandi eigin-
konu sinni. Í Reykjavík
sinnti hann ýmsum
félagsstörfum, m.a.
fyrir Björgunarsveit-
ina Ingólf.
Árið 1996 flutti Er-
lingur til Raufarhafnar
ásamt Ágústu eigin-
konu sinni til að reka
Hótel Norðurljós. Síð-
an þá hafa þau verið rekstraraðilar
hótelsins, sem er í eigu Norðurþings.
Meðfram hótelstörfum sinnti hann
bókhaldsvinnu og framtalsgerð og
tók þátt í margvíslegum félags-
málum innan sveitar og í héraði.
Erlingur var áhugamaður um
stjórnmál og ötull stuðningsmaður
Sjálfstæðisflokksins, gegndi trún-
aðarstörfum fyrir flokkinn og sat
marga landsfundi hans. Hann átti
sæti í menningarnefnd Raufarhafn-
arhrepps, var mikill áhugamaður um
fugla og ljósmyndun og hafði yndi af
fjallgöngu og útivist.
Hann átti frumkvæðið að Heim-
skautsgerðinu á Raufarhöfn, The
Arctic Henge, sem frá árinu 2008
hefur laðað til sín fjölda ferðamanna.
Þá var Erlingur fréttaritari og ljós-
myndari Morgunblaðsins á Raufar-
höfn um árabil.
Andlát
Erlingur B. Thoroddsen
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Verslunin Vísir við Laugaveg 1 í
Reykjavík er 100 ára í dag, 5. des-
ember, og í tilefni afmælisins verð-
ur boðið upp á veglegar hnallþórur
og nýlagað kaffi, en gleðin hefst
klukkan 13 og stendur hún til
klukkan 17.
Sigurður Guðmundsson, sem
einnig rekur minjagripaverslun í
sama húsi, hefur rekið verslunina
frá árinu 2011. Hann boðar nú
verulegar breytingar á rekstri Vís-
is.
„Ég vildi leyfa þessu fyrirtæki
að verða 100 ára, en við erum á út-
leið og reksturinn á leið í pásu,“
segir Sigurður í samtali við Morg-
unblaðið og bendir á að rekstur
Vísis hafi lengi verið „í járnum“.
Aðspurður segir Sigurður ekki
ljóst á þessari stundu hvenær
verslunin lokar dyrum sínum en
það mun þó verða á næstu mán-
uðum. „Hér á landi eru ekki mörg
fyrirtæki sem náð hafa þessum
aldri og mun þetta fyrirtæki koma
til með að lifa áfram, en í hvaða
mynd það verður á enn eftir að
koma í ljós,“ segir hann.
Sérstök stemning í búðinni
Sigurbjörg Árnadóttir, versl-
unarstjóri Vísis, segir að nálægðin
við viðskiptavini hafa komið sér
mest á óvart í starfi. „Það ríkir
hér oft eins konar þorpsstemning.
Maður kynnist fljótt okkar fasta-
kúnnum, sem margir hverjir vinna
í verslunum og öðrum fyrirtækjum
í nágrenninu, og er nálægðin við
viðskiptavininn því mjög mikil,“
segir Sigurbjörg sem hvetur jafn-
framt fólk til þess að fjölmenna í
verslunina í dag í tilefni afmæl-
isins.
Guðmundur Sigurðsson,
rekstrarstjóri Vísis, segir veður
leika stórt hlutverk í rekstrinum.
„Það gekk ágætlega í sumar en
þar áður komu tvö erfið rign-
ingasumur. Íslendingar, sem eru
stærsti kúnnahópur okkar, sjást
ekki ef eitthvað er að veðri,“ segir
Guðmundur.
Sagan hófst árið 1915
Stofnendur verslunarinnar
voru þeir Sigurbjörn Þorkelsson
og Guðmundur Ásbjörnsson, en
haustið 1943 urðu eigendaskipti og
við rekstrinum tók Sigurbjörn
Björnsson fyrir hönd hlutafélags
sem einnig rak nokkur útibú frá
versluninni. Lauk þeim rekstri
1950 er Sigurbjörn varð eigandi
verslunarinnar og seldi öll útibúin.
Hann lést árið 1957 og tóku þá
ekkja hans, Vigdís Guðjónsdóttir,
og börn þeirra við rekstrinum. Var
versluninni fljótlega breytt í kjör-
búð og áhersla lögð á sölu nýrra
ávaxta. Þórir Sigurbjörnsson
keypti verslunina 1974 og rak hana
þar til núverandi eigandi tók við
rekstinum í mars 2011.
Vísir fagnar 100 ár-
um í skugga lokunar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á förum Verslunin Vísir hefur verið í sama húsnæði við Laugaveg 1 í
Reykjavík frá upphafi en er nú að hætta. Óvíst er hvað tekur við í kjölfarið.
Reksturinn er á leið í pásu, segir eigandi verslunarinnar
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
FINN SKENKUR 160 cm kr. 138.700 / FINN BORÐSOFUBORÐ 90X150/190 kr. 115.700 / FINN STÓLL kr. 17.900
Fram eftir ári var nokkuð stöðugt
verð á leigu á aflaheimildum í báð-
um kerfum. Verðið á aflamarki í
þorski var í kringum 250 krónur á
kíló en litlu lægra í krókaaflamarki.
Í lok september tók verð að lækka
lítillega og er nú 215 kr í aflamarks-
kerfinu en hefur verið rúmlega 200
kr í krókaaflamarkskerfinu, að því
er fram kemur á heimasíðu Fiski-
stofu.
Af verðþróuninni að dæma má
ljóst vera að verðfallið sem varð á
haustmánuðunum 2012, sem má
rekja til aukins framboðs á þorski á
erlendum mörkuðum, hefur ekki
gengið til baka nema að litlu leyti en
verðið í aflamarkskerfinu fór hæst í
upphafi árs 2012 upp í 330 kr.
Stöplaritið sýnir magn sem leigt
er á milli skipa óskyldra aðila í báð-
um kerfum frá árinu 2002 til 20.
nóvember í ár. Árið 2002 voru
41.535 tonn leigð á milli skipa í báð-
um kerfum. Magnið jókst nokkuð til
ársins 2005 þegar magnið var rúml.
53 þúsund tonn en dróst þá veru-
lega saman til ársins 2010 þegar
magnið fór niður í 18.769 tonn en
hefur þá aukist jafnt og þétt og er
það sem af er ári orðið 25.661 tonn
sem er rúmlega 36% meira magn en
2010 þegar rúmur mánuður var eft-
ir af árinu.
Veiðigjald hefur áhrif
Á vef Landssambands smábáta-
sjómanna segir að lækkun verðs á
aflaheimildum það sem af er fisk-
veiðiárinu sé í kringum 14%.
Nokkrar ástæður eru fyrir verð-
lækkuninni. Þar má nefna að veiði-
gjald er nú innheimt af þeim sem
veiðir en áður greiddu þeir sem
fengu heimildirnar úthlutaðar. Þá
hefur 10,6% aukning á leyfilegum
heildarafla að jafngildi 23 þúsund
tonna nokkuð að segja um þróun
leiguverðs, segir á smabatar.is
aij@mbl.is
Verðþróun í aflamarki og krókaaflamarki í þorski
Magn sem leigt er milli skipa (í eigu óskyldra aðila)
frá 2. janúar 2007
2007-2015 (til 20. nóvember)
Magn í tonnum
Heimild: Fiskistofa
2. jan.07 2. jan.´08
2002 2004 2006 2008 2010 2012 20142003 2005 2007 2009 2011 2013 2015
2. jan.´10 2. jan.´12 2. jan.´142. jan.´09 2. jan.´11 2. jan.´13 2. jan.´15
400
350
300
250
200
150
100
50
0
60.000
50.000
40.000
30.000
20.000
10.000
0
Aflamark Krókaaflamark
Lægra leiguverð fyrir
aflaheimildir í haust