Morgunblaðið - 05.12.2015, Blaðsíða 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það reynir á að finna út hvort þú
sért í alvöru tilbúinn eða ekki. Láttu það eft-
ir þér svo framarlega sem þú hefur efni á
því. Hlutirnir ættu því að fara að ganga upp.
20. apríl - 20. maí
Naut Það má ýmislegt læra af stórhuga
persónum sögunnar því þótt aðstæður séu
ólíkar þá er kjarninn sá sami. Ef hún bankar
upp á þá snýrð þú henni upp í skemmtilegt
ævintýri.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Næsti mánuður gæti reynst tími
nýrra kynna. Nýttu þér hráan kraft himin-
tunglanna til þess að miða þér áleiðis, í stað
þess að láta nýjan og yndislegan snertiflöt
villa þig af leið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er ekkert vit í að láta reka á
reiðanum lengur. Sýndu hugmyndaauðgi og
útsjónarsemi þegar þú leitar aðstoðar ann-
arra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú myndir ekki söðla hest án þess að
láta hann vita af þér með örlitlu klappi.
Láttu það ekki á þig fá.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er ekkert að því að verðlauna
sjálfan sig þegar maður hefur staðið sig vel
og veit af því. Taktu frumkvæðið og hafðu
forystu um að leiða verkið til lykta.
23. sept. - 22. okt.
Vog Tilfinningalegar flækjur hvers og eins
eru fallegar. Kannski vill hann bæta færni
sína á skapandi sviði.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gættu þess að sýna ekki öðr-
um yfirgang í dag. Finnist þér sköp-
unarhæfileikar þínir vera bældir skaltu reyna
að finna þeim farveg.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Kannski er allt mjög djúpstætt,
en með því að horfa þannig á hlutina öllum
stundum er hæglega hægt að stöðva
framþróun lífs síns. Fyrrverandi samstarfs-
menn þínir geta hugsanlega hjálpað þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Úrvalsdagur er til að fjárfesta í
listum með langtímafjárfestingu í huga.
Reyndu samt að draga réttar ályktanir og
þá ertu á grænni grein.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Fjárhagsvandræði breiða yfir
önnur vandamál. Taktu því við stjórnartaum-
unum er færi gefst og stýrðu málum í höfn.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur látið mörg smáverkefni
hrúgast upp á borði þínu. Nýttu tækifærið
og reyndu að koma sem mestu í verk á
næstu dögum.
Síðasta gáta var sem endranæreftir Guðmund Arnfinnsson:
Stropblettur á eggi er.
Einatt má á hamri sjá.
Á tening líka lítum vér.
Ljósið jafnframt greina má.
Hér er lausn Hörpu á Hjarð-
arfelli:
Á eggi er auga blettur.
Í augað skaftið fer.
Augum út er settur.
Augu í höfði mér.
Árni Blöndal svarar:
Í setnu eggi, augu myndast fljótt.
Auga hamars, skaftið tolla lætur.
Augu tenings allir þekkja skjótt.
Augun greina birtu dags og nætur.
„Þá er það svarið við gátunni,“
skrifar Helgi R. Einarsson:
Á tening, hamrı́og eggi er.
Í amstri tengt er baugum.
Því tel ég víst að henti hér
að halla sér að augum.
Guðmundur skýrir gátuna svo:
Stropblett egg sem auga ber.
Auga á hamri megum sjá.
Á tening auga eygjum vér.
Auga ljósið greina má.
Og lætur limru fylgja:
Er Sveinungi sveif á Lauga,
ég svei mér þá er ekki að spauga,
nei, fjarri fer því,
þeim fangbrögðum í
tapaðist tönn fyrir auga.
Síðan sendir Guðmundur nýja
gátu:
Nafnið margur maður ber.
Mun á orfi vera.
Skelfilegur skröggur er.
Í skilvindu í hringi fer.
Svör þurfa að berast ekki síðar
en á miðvikudagskvöld og eru ekki
birt nema rétt sé farið með hljóð-
stafi.
Steinunn P. Hafstað skrifaði
skemmtilegan pistil á fésbók 30.
nóvember og lýkur honum með því
að biðja „ykkur um að merkja við
laugardag 19. des. en þá kemur
næsti pistill, sem verður engum lík-
ur frekar en liðinn dagur eða bara
köngulóarvefur á vegi manns.
Köngulóin vef sinn vann,
sem virðist eins og smækkuð flík
af fegurð jarðar, sóma og sann
og sannarlega engri lík.
Munið það, sem ég sagði: Temjið
ykkur að gleðjast yfir litlu, því þá
verður það stórt.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Augu ljúkast upp fyrir
hagyrðingum
Í klípu
EN NIÐURLÆGJANDI, HUGSAÐI HANN.
BARA AÐ ÉG HEFÐI ALDREI UNNIÐ Í
ÞESSU BJÁNALEGA LOTTÓI.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VIÐ GETUM EKKI BÚIÐ HJÁ
FORELDRUM MÍNUM. ÞEIR BÚA ENN
HJÁ FORELDRUM SÍNUM!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að lána henni
gamla tryllitækið þitt á
meðan bíllinn hennar
er í viðgerð.
POPPIÐ ER
TILBÚIÐ!
VIRKAR Í
HVERT SKIPTI
ÞJÓRFÉ MITT RÆÐST
AF FEGURÐ ÞJÓNSINS…
… ÞVÍ FALLEGRI
SEM HÚN ER …
... ÞVÍ MINNA
LEYFIR HELGA MÉR
AÐ BORGA HENNI!
GLEYMDU ÞVÍ. ÉG MYNDI ALDREI FARA Á
STEFNUMÓT MEÐ ÞÉR. EKKI FYRIR MILLJÓN.
Má ég fá að horfa á tvo þætti, einnbarnaþátt og svo Ebbu. Ebba
er svo skemmtileg,“ spurði barnið og
brosti sínu blíðasta. Að sjálfsögðu
varð Víkverji við þessari beiðni,
þrátt fyrir að hafa helst viljað draga
úr sjónvarpsglápinu og setja þau
skilyrði til að byrja með að einn þátt-
ur væri í boði. En það er ekki hægt
að segja nei við Ebbu. Þessi matur,
þetta andlit, þessi hlýja!
x x x
Takk, Ebba, hreinlega fyrir aðvera þú sjálf. Þættirnir sem
sýndir eru á Rúv eru mjög góðir. All-
ir grænmetis- og baunaréttirnir sem
töfraðir eru fram líta út fyrir að vera
dásamlegir og það sem meira er
bragðgóðir og hollir. Víkverji á eftir
að prufa eitthvað af þessu gúmmul-
aði með hjálp litla hjálparkokksins
og verður eflaust eitthvað gott reitt
fram. Að minnsta kosti tilraun til
þess. Lesendur geta fylgst með út-
komunni hér á næstu dögum. Engu
er lofað fyrirfram. Annars dreymdi
Víkverja að hann væri að sjóða
baunir með einhverjum þara eins og
meistarakokkurinn Ebba gerir í
þáttunum til þess að fá betri áferð og
svo baunirnar verði auðmeltari, les-
ist maður prumpar minna. Útkoman
í draumi Víkverja var ekki góð. Von-
andi var þetta ekki fyrirboði.
x x x
Aftur að imbakassanum: „Afhverju segir hún að þetta sé
krakkarúv þegar það er það ekki?
Þetta er fullorðins og á ensku,“ full-
yrti litli sjónvarpsgláparinn hálfa-
fundinn þegar jóladagatalið danska
hóf göngu sína í byrjun mánaðarins.
Tekið skal fram að Víkverji á eftir að
fara yfir tungumálakunnáttuna með
barninu. Óánægjuraddir létu í sér
heyra á samfélagsmiðlum því daga-
talið var ekki einu sinni talsett. Sem
betur fer varð úr að Rúv sýndi annað
jóladagatal. Það er norskt og nefnist
Jól í Snædal. Það er talsett og sú
fimm ára er nokkuð ánægð með það.
Þó skildi Víkverji ekki í þáttunum af
hverju harðgiftur heimilisfaðirinn
fór á fjörur við einu mömmuna og
eiginkonan hans og börn gerðu grín
að því. Hann varð nokkuð skúffaður
þegar hann komst að því að hin
mamman var einnig gift.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er trúfastur í öllum orðum
sínum og miskunnsamur í öllum verk-
um sínum. (Sl. 145:13b)
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16 | Opið mán - fös 8:30 - 17:00 | S: 580 3900
Það á að gefa börnum brauð…
FALLEG HÖNNUN Í ELDHÚSIÐ ÞITT