Morgunblaðið - 05.12.2015, Blaðsíða 55
MENNING 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@gmail.com
Howl er sólóplata Kristínar Önnu, og
er hún Valtýsdóttir. Platan var tekin
upp í Kaliforníueyðimörkinni, hljóð
koma frá Hlýrri golu en Kría Brekk-
an tók upp og nýtti sér bjúgverpil og
epli til þess atarna (samkvæmt upp-
lýsingum í „nærbuxum“ vínylplöt-
unnar). Ljósmyndir og ímyndarvinna
var í höndum El-
ísabetar Ólafs-
dóttur, Sara Riel
aðstoðaði við upp-
setningu og hönn-
un en Kristín
Anna fram-
kvæmdastýrði.
Verkbeiðni kom frá Women Works
Recording en Bel-Air Glamour Re-
cords gefur út í samvinnu við Vinyl
Factory.
Við kynntumst Kristínu Önnu Val-
týsdóttur fyrst um aldamótin þegar
hún var hluti af múm-kvartettinum
ásamt systur sinni Gyðu og þeim Örv-
ari Smárasyni og Gunnari Tynes.
Þær systur voru þá kornungar en
lögðu gjörva hönd á plóg í listsköpun
þeirrar framúrskarandi sveitar og á
þeim tíma var það aðeins Sigur Rós
sem kallaði eftir fleiri forvitnum eyr-
um að utan. Listfengi hennar var þá á
pari við Mosfellssveitina og múm hik-
laust ein besta hljómsveit sem Ísland
hefur alið.
Kristín hefur sinnt tónlistinni síðan
á margvíslega vegu, m.a. undir lista-
mannsnafninu Kría Brekkan. Hald-
bærar útgáfur hafa þó verið illfáan-
legar og sjötommum á lítt þekktum
neðanjarðarmerkjum og brenndir
geisladiskar einkenna hana.
Að hún sé að gefa út tónlist undir
eigin nafni núna virðist marka nýtt
upphaf. Ragnar Kjartansson, sem
hún hefur unnið þónokkuð með und-
anfarin ár stendur að útgáfunni
ásamt Ingibjörgu Sigurjónsdóttur
(Bel-Air Glamour Records) og það er
líkt og Kristín og sköpun hennar sé
komin í nokkurs konar örugga heima-
höfn. Ég mun aldrei gleyma því er ég
tók einu sinni viðtal við hana og hún
settist við píanó í því miðju og spilaði
fyrir mig. „Þetta er geðveikt,“ hugs-
aði ég, „en á líklega aldrei eftir að
komast almennilega út“. Nú er þetta
hins vegar breytt og við eigum öll eft-
ir að verða ríkari fyrir vikið. Og, eitt
fréttaskot áður en ég vind mér í sund-
urgreiningu á þessu tiltekna verki, þá
er von á annarri plötu í vor þar sem
hún leikur á píanó og syngur.
Howl er hins vegar ansi langt frá
slíkum hefðum. Um tvöfalda vín-
ylplötu er að ræða, alls um áttatíu
mínútur af tónlist. Rödd Kristínar er
sett í hljóðlykkjur og svo streymir
hún fram, yfir og undir draugalegri
hljóðmottu, á naumhyggjulegan hátt.
Rís og fellur leiðslubundið og takt-
visst og í raun er eins og um eitt langt
verk sé að ræða þó að reglulega séu
viss tilbrigði við stef. Platan öll minn-
ir mig stundum á martraðarkenndu
stemmurnar á plötu Aphex Twin, Sel-
ected Ambient Works II. Platan er
sögð hafa tekin upp á sýrutrippi í Mo-
jave-eyðimörkinni og er lýst í frétta-
tilkynningu sem „satanískri, fem-
inískri sveimtónlist“. Og nær sú
lýsing innihaldinu ágætlega.
Áhrifin af þessu eru tilfinnanleg. Ef
lengi er hlustað er maður sjálfur kom-
inn í hálfgerða leiðslu eða trans. Það
er nefnilega eitthvað í gangi á þessari
plötu sem erfitt er að orða, einhver
kynngikraftur sem læsir sig um hljóð-
rásirnar. Þetta tilkomumikla verk fel-
ur þá í sér sterka, listræna yfirlýs-
ingu. Ekki er sleginn þumlungur af;
áttatíu mínútur af nánast sama töfr-
um slegna stefinu eða ekki neitt! Sjálf
tónlistin er þá hluti af stærra lista-
verki. Vínylútgáfan (sem er eina út-
gáfan á verkinu) er í þykku, opn-
anlegu umslagi og er skreytt
dularfullum ljósmyndum af Kristínu,
hvar hún er nakin uppi í klettum og í
myrku skógarkjarri. Þetta magnar
upplifunina; löngunarfull, barnsleg
rödd Kristínar, sem virðist koma að
handan, tekur á sig mynd og allt verð-
ur enn dularfyllra einhvern veginn.
Howl er eitt það allra besta sem ég
hef heyrt (og séð) frá íslenskum tón-
listarmanni þetta árið, Kristín Anna
er hiklaust ein af okkar fremstu og
forvitnilegustu listamönnum og það
verður mjög spennandi að fylgjast
með henni næstu misserin. Ef heima-
höfnin sem ég minntist á heldur er
bókstaflega allt hægt. Fylgist með frá
byrjun!
List án málamiðlana
Plata Kristínar Önnu Valtýsdóttur var hljóðrituð í eyði-
mörk í Kaliforníu Var áður hluti af múm-kvartettinum
Morgunblaðið/Golli
Dularfull „Kristín Anna er hiklaust ein af okkar fremstu og forvitnilegustu
listamönnum og það verður mjög spennandi að fylgjast með henni…“
» Það er nefnilega eitt-hvað í gangi á þessari
plötu sem erfitt er að
orða, einhver kynngi-
kraftur sem læsir sig
um hljóðrásirnar.
„Opnum okkur!“ nefnist dagskrá
um málefni flóttamanna sem fram
fer í Borgarleikhúsinu í dag, laug-
ardag, kl. 13. „Fjórir flóttamenn
segja sína sögu á stóra sviði Borg-
arleikhússins ásamt þremur fyr-
irlesurum frá Rauða krossinum, og
sjálfboðaliðum. Halldóra Geir-
harðsdóttir og Bergur Þór Ingólfs-
son halda utan um dagskrána,“ seg-
ir í tilkynningu.
Þar kemur fram að dagskráin sé
fyrst og fremst hugsuð sem einlæg
samverustund. „Leikhús gegna
mikilvægu hlutverki sem ein helsta
rannsóknarefnið. Ekkert er leik-
húsinu óviðkomandi. Það er must-
eri skemmtunar og gleði en um leið
musteri mannúðar og mannskiln-
ings. Hlutverk þess er meðal annars
að varpa ljósi á málefni líðandi
stundar, rýna í samtímann bæði
með leiksýningum og einnig með
öðrum hætti með því að halda á lofti
vitsmunalegri umræðu um þjóðfé-
lagið, stjórnmálin, menningu og
listir. Það sem brennur á fólki um
allan heim þessi misserin er hinn
stórbrotni flóttamannastraumur.“
Aðgangur er ókeypis .
Fjallað um fólk á flótta í Borgarleikhúsinu
Bergur Þór
Ingólfsson
Halldóra
Geirharðsdóttir
og elsta menningarstofnun mann-
kyns. Það er rannsóknarstöð þar
sem maðurinn og samfélag hans er
Heimildamynd
Jingle Bell Rocks
verður sýnd í Bíó
Paradís í kvöld
kl. 20. Í myndinni
er „heimur öðru-
vísi jólalaga
skoðaður. Talað
er við plötusafn-
ara sem safna að-
eins þannig tón-
list og rætt við hina ýmsu
áhugamenn eins og The Flaming
Lips, Run DMC og John Waters,“
segir í tilkynningu.
Heimildamynd um
öðruvísi jólalög
John Waters
65 20151950
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
DAVID FARR
H
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Lau 5/12 kl. 19:30 31.sýn Mið 30/12 kl. 19:30 38.sýn Sun 24/1 kl. 19:30 43.sýn
Sun 6/12 kl. 19:30 32.sýn Lau 2/1 kl. 15:00 39.sýn Fös 29/1 kl. 19:30 44.sýn
Fös 11/12 kl. 19:30 35.sýn Lau 2/1 kl. 19:30 40.sýn Lau 30/1 kl. 19:30 45.sýn
Lau 12/12 kl. 19:30 36.sýn Sun 10/1 kl. 19:30 41.sýn Fös 5/2 kl. 19:30 46.sýn
Mið 30/12 kl. 15:00 37.sýn Fim 14/1 kl. 19:30 42.sýn Fös 12/2 kl. 19:30 47.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Móðurharðindin (Kassinn)
Lau 5/12 kl. 19:30 32.sýn Sun 6/12 kl. 19:30
Lokasýning
Síðustu sýningar - Nýtt verk eftir Björn Hlyn Haraldsson.
Heimkoman (Stóra sviðið)
Sun 13/12 kl. 19:30
Lokasýning
Síðustu sýningar á meistaraverki Nóbelsskáldsins Pinters.
Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið)
Mið 9/12 kl. 19:30 10.sýn Fim 7/1 kl. 19:30 12. sýn
Fim 10/12 kl. 19:30 11.sýn Fös 15/1 kl. 22:30 13.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 5/12 kl. 11:00 Lau 12/12 kl. 11:00 Lau 19/12 kl. 11:00
Lau 5/12 kl. 13:00 Lau 12/12 kl. 13:00 Lau 19/12 kl. 13:00
Lau 5/12 kl. 14:30 Lau 12/12 kl. 14:30 Lau 19/12 kl. 14:30
Sun 6/12 kl. 11:00 Sun 13/12 kl. 11:00 Sun 20/12 kl. 11:00
Sun 6/12 kl. 13:00 Sun 13/12 kl. 13:00 Sun 20/12 kl. 13:00
Sun 6/12 kl. 14:30 Sun 13/12 kl. 14:30 Sun 20/12 kl. 14:30
Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu 11 leikárið í röð.
Sporvagninn Girnd (Stóra sviðið)
Lau 26/12 kl. 19:30
Frumsýning
Fös 8/1 kl. 19:30 4.sýn Sun 17/1 kl. 19:30 7.sýn
Sun 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 9/1 kl. 19:30 5.sýn
Sun 3/1 kl. 19:30 3.sýn Lau 16/1 kl. 19:30 6.sýn
Eitt af meistaraverkum 20. aldarinnar
Um það bil (Kassinn)
Þri 29/12 kl. 19:30 Frums. Lau 9/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 22/1 kl. 19:30 8.sýn
Sun 3/1 kl. 19:30 2.sýn Fös 15/1 kl. 19:30 5.sýn
Fös 8/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 17/1 kl. 19:30 6.sýn
Glænýtt verk eftir þekktasta samtímaleikskáld Svía, bráðfyndið og harkalegt í se
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Sun 10/1 kl. 14:00 21.sýn Sun 17/1 kl. 14:00 23.sýn
Sun 10/1 kl. 16:00 22.sýn Sun 17/1 kl. 16:00 24.sýn
Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu
Umhverfis jörðina á 80 dögum (Stóra sviðið)
Lau 23/1 kl. 13:00 Frums. Sun 31/1 kl. 13:00 3.sýn Lau 6/2 kl. 16:00 5.sýn
Lau 23/1 kl. 16:00 2.sýn Lau 6/2 kl. 13:00 4.sýn
Eldfjörug barnasýning eftir Sigga Sigurjóns og Karl Ágúst!
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fös 11/12 kl. 19:00 Lau 26/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 19:00
Lau 12/12 kl. 19:00 Sun 27/12 kl. 19:00
Lau 19/12 kl. 19:00 Fös 8/1 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - sýningum lýkur í janúar
Njála (Stóra sviðið)
Mið 30/12 kl. 20:00 Frums. Sun 10/1 kl. 20:00 6.k Fim 21/1 kl. 20:00 11.k
Lau 2/1 kl. 20:00 2.k Mið 13/1 kl. 20:00 7.k Sun 24/1 kl. 20:00
Sun 3/1 kl. 20:00 3.k Fim 14/1 kl. 20:00 8.k Fim 28/1 kl. 20:00 12.k
Mið 6/1 kl. 20:00 4.k Sun 17/1 kl. 20:00 9.k Sun 31/1 kl. 20:00
Fim 7/1 kl. 20:00 5.k Mið 20/1 kl. 20:00 10.k
Blóðheitar konur, hugrakkar hetjur og brennuvargar
Hver er hræddur við Virginíu Woolf? (Nýja sviðið)
Fös 15/1 kl. 20:00 Frums. Sun 24/1 kl. 20:00 6.k Fös 5/2 kl. 20:00 11.k
Lau 16/1 kl. 20:00 2.k Fim 28/1 kl. 20:00 7.k Lau 6/2 kl. 20:00 12.k
Sun 17/1 kl. 20:00 3.k Fös 29/1 kl. 20:00 8.k Sun 7/2 kl. 20:00 aukas.
Fim 21/1 kl. 20:00 4.k Lau 30/1 kl. 20:00 aukas. Fim 11/2 kl. 20:00 13.k
Fös 22/1 kl. 20:00 aukas. Sun 31/1 kl. 20:00 9.k
Lau 23/1 kl. 20:00 5.k Fim 4/2 kl. 20:00 10.k
Margverðlaunað meistarastykki
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 6/12 kl. 13:00 Sun 27/12 kl. 13:00 Sun 10/1 kl. 13:00
Sun 13/12 kl. 13:00 Sun 3/1 kl. 13:00
Sýningum lýkur í janúar
Sókrates (Litla sviðið)
Lau 12/12 kl. 20:00 Lau 19/12 kl. 20:00
Sun 13/12 kl. 20:00 Sun 27/12 kl. 20:00
Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina
Vegbúar (Litla sviðið)
Sun 6/12 kl. 20:00 Fim 17/12 kl. 20:00 Mið 30/12 kl. 21:00
Fim 10/12 kl. 20:00 Þri 29/12 kl. 20:00
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 5/12 kl. 20:00 Fös 18/12 kl. 20:00 Lau 23/1 kl. 20:00
Fös 11/12 kl. 20:00 Fös 8/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 20:00
Kenneth Máni stelur senunni
Mávurinn (Stóra sviðið)
Sun 6/12 kl. 20:00 Fim 10/12 kl. 20:00 Sun 13/12 kl. 20:00
Takmarkaður sýningartími
Og himinninn kristallast (Stóra sviðið)
Lau 5/12 kl. 20:00
Inniflugeldasýning frá Dansflokknum
TJARNARGÖTU 12, 101 REYKJAVÍK SÍMI 527 2100 TJARNARBIO.IS
Láttu bara eins og ég sé ekki hérna (Ýmis rými baksviðs önnur
en salur)
Mið 9/12 kl. 18:00 Fim 10/12 kl. 18:00 Sun 13/12 kl. 17:00
Mið 9/12 kl. 19:00 Fim 10/12 kl. 19:00 Sun 13/12 kl. 18:00
Mið 9/12 kl. 20:00 Fim 10/12 kl. 20:00 Sun 13/12 kl. 19:00
The Valley (Salur)
Lau 19/12 kl. 20:30
KATE (Salur)
Lau 5/12 kl. 20:00 Sun 6/12 kl. 20:00
Ævintýrið um Augastein (Salur)
Sun 6/12 kl. 13:00 Sun 13/12 kl. 13:00 Sun 20/12 kl. 13:00
Sun 6/12 kl. 15:00 Sun 13/12 kl. 15:00 Sun 20/12 kl. 15:00