Morgunblaðið - 05.12.2015, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.12.2015, Blaðsíða 6
Morgunblaðið/Árni Sæberg Bjarni Benediktsson, fjármálaráð- herra, kynnti í gærmorgun frum- varp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands. Fjármálaráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að frum- varpið fjallaði um það að komið yrði á fót félagi, stofnuðu af Seðlabanka Íslands, sem fengi samkvæmt samn- ingi við fjármálaráðuneytið það verkefni að koma eignum vegna stöðugleikaframlags slitabúa fölln- um bankanna í verð. „Þetta frumvarp hefur ekkert að gera með stóra frumvarpið um Seðlabankann, sem er í vinnslu,“ sagði Bjarni, „en vissulega var nauð- synlegt að koma fram með þetta frumvarp, þannig að þegar þessar eignir koma til ríkissjóðs, verði ákveðið ferli hjá þessu félagi, sem þær fari í gegnum.“ agnes@mbl.is Ráðstöfun stöðugleika- framlags  Lögum um SÍ verður breytt Morgunblaðið/Árni Sæberg Í skinni Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis er á uppboði og til sýnis hjá Gallerí Fold í fremur sérstakri út- gáfu. Uppboðinu lýkur eftir 8 daga. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Skýrsla rannsóknarnefndar Alþing- is um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008 fæst nú á uppboði í eins konar viðhafnarút- gáfu. Er skýrslan bundin í þrjár bækur, bókbandið úr íslensku sauð- skinni, og fylgir henni vegleg askja sem einnig er klædd sauðskinni og skreytt með bæði íslenskum seðlum og mynt. „Þetta er í raun hálfgert lista- verk,“ segir Ragnar Gylfi Einars- son bókbandsmeistari en hann sá um handverkið. Hefur hann einnig gefið viðhafnarútgáfunni nýtt heiti, þ.e. Gleðisögur Mammons. „Mér fannst upplagt að binda þessa skýrslu inn í sauðskinn og skreyta með íslenskum krónum enda hef ég litla trú á innihaldinu,“ segir hann og bætir við að skinnið hafi sérstaklega verið valið þar sem það „passar vel við Alþingi“. Að sögn hans tók mörg hundruð klukkustundir að klára verkið, en það er nú boðið upp á uppboðsvef Gallerís Foldar. Höfðu í gær borist 39 tilboð, það hæsta upp á 140.000 krónur, en verðmatið er 250.000. Ari Gísli Bragason, fornbókasali hjá Bók, segist eiga von á því að skýrslan seljist á verðmati. „Hún gæti jafnvel selst hærra enda finnst mörgum þetta áhuga- vert,“ segir hann. Skýrsla Alþingis boðin upp hjá Fold  Bundin inn í íslenskt sauðskinn  Alls höfðu borist 39 tilboð í gær 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Verkefnastaðan hjá byggingarfyrir- tækjum er misjöfn. Rólegt er hjá jarðvinnufyrirtækjum og hjá ráð- gjafarverkfræðingum hefur staðan oft verið betri. Takmarkað framboð er á verkefnum fyrir stærri verk- taka. Margir bjóða því í verk. Gísli Steinar Gíslason, fram- kvæmdastjóri Landstólpa þróunar- félags, segir nokkra stóra verktaka hafa áhuga á að byggja á reitnum Austurbakka 2 við Reykjavíkurhöfn. Það er eitt stærsta einstaka bygg- ingarverkefni næstu ára í borginni. Hann segir áformað að hefja upp- steypu á reitnum í janúar. Fyrst þurfi að flytja grjót úr hafnargarði á reitnum til varðveislu á lóð Faxaflóa- hafna. Það verkefni sé þegar hafið. Vegna skyndifriðunar Minjastofn- unar Íslands á hafnargarðinum tefst uppsteypa um hér um bil hálft ár. Byggðir verða 30 þúsund fermetr- ar af íbúðar-, skrifstofu- og versl- unarhúsnæði á reitnum. Hagstætt að byggja núna Gísli Steinar segir reitinn verða byggðan upp í einum áfanga, alls sjö byggingar ofan bílakjallara. Hann bindur vonir við að byggingarfulltrúi í Reykjavík samþykki áformin á næsta fundi á þriðjudaginn. Ætlunin er að reiturinn verði tilbúinn innan þriggja ára. Reginn fær verslunarhúsnæði á jarðhæðum til afhendingar nokkru áður og hefst þá vinna við að innrétta verslanir. Gísli Steinar segir viðræður við öfluga verktaka hafnar. „Það eru nokkrir stórir verktakar á markaðnum enn þá. Við metum stöðuna þannig að það séu ágætis aðstæður til að bjóða þetta út núna. Verktakar sýna því mikinn áhuga að taka þetta að sér. Það er sennilega meiri þensla í litlum og meðalstórum verkefnum. Ég held að það sé ágæt- lega hagstætt að bjóða út stærri verk núna.“ Árni Jóhannsson, forstöðumaður bygginga- og mannvirkjasviðs hjá Samtökum iðnaðarins, segir verk- efnastöðuna misjafna í byggingar- geiranum. „Það er góður gangur í al- mennri byggingastarfsemi. Hins vegar eru fjárfestingar í innviðum takmarkaðar, eða nánast engar. Ólíkt almennri byggingastarfsemi hafa ekki orðið nein umskipti í jarð- vinnu. Það eimir enn af athafnaleysi. Síðan birtist þetta okkur líka í lé- legri verkefnastöðu hjá ráðgjafar- verkfræðingum. Ráðgjafarverk- fræðingar koma í takmörkuðum mæli að léttari verkefnum eins og hótelbyggingum eða íbúðarhúsnæði. Þeirra verkefni eru í stóriðju og orku og útflutningi. Markaðurinn hefur tekið betur við sér hjá arki- tektum. Það er ekki þensla í bygg- ingargreininni sem slíkri. Heilt yfir er hún að nálgast jafnvægi.“ Flytja inn starfsfólk Árni segir aðspurður að innflutn- ingur á starfsfólki í byggingargeir- ann muni halda áfram. „Auknum umsvifum verður ekki mætt öðru- vísi. Það er alltaf fyrsti valkostur að nota heimamenn, en ef þeir eru ekki til er flutt inn vinnuafl,“ segir Árni. Hér fyrir ofan er sýnt á grafi hvernig skráningar hjá starfs- mannaleigum og á útsendum starfs- mönnum frá ríkjum EES-svæðisins eru þegar orðnar ríflega fjórfalt fleiri en allt árið í fyrra. Garðar Þorbjörnsson, eigandi fyrirtækisins Urð og grjót, hefur unnið við jarðvinnu í tæp 40 ár. Hann segir verkefnastöðuna vera undir meðaltali síðustu 40 ára. Gatnagerð hjá sveitarfélögum sé nær engin og ekki útlit fyrir að það breytist næsta ár. „Uppgangurinn er meira í orði en á borði. Þetta er á snigilshraða á uppleið. Bent er á byggingarkrana og sagt að allt sé komið af stað. Það er alls ekki réttur skilningur.“ Garðar tók að sér verkefni á Grænlandi árin eftir hrunið. Vegna dræmrar verkefnastöðu á Íslandi er Garðar að þreifa fyrir sér með verk- efni á Grænlandi. Hann segir lítið að gerast hjá sveitarfélögum á Græn- landi. Þá séu margvíslegar fram- kvæmdir í biðstöðu. Kristinn Andersen, formaður Verkfræðingafélags Íslands, segist heyra að það sé nokkuð um smærri verkefni til skemmri tíma. „Það er hins vegar rætt um að það vanti stærri verkefni. Það hefur oft verið meira í pípunum en núna. Það vantar svolítið umfangsmeiri verk- efni til lengri tíma.“ Misjöfn staða byggingargeirans  Framkvæmdastjóri Landstólpa þróunarfélags segir marga verktaka vilja byggja á Austurbakka  Hagstætt að byggja nú  Eigandi jarðvinnufyrirtækis segir framkvæmdir undir 40 ára meðaltali Morgunblaðið/RAX Við Reykjavíkurhöfn Efri reiturinn á myndinni heitir Austurbakki II. Þar verður 30.000 fermetra byggð. Teikning/PK arkitektar/Birt með leyfi Austurbakki II Hér má sjá drög að útlínum fyrirhugaðra húsa á reitnum. Fjöldi skráninga hjá Vinnumálastofnun Staðan til og með þriðja desember 2015 *Með útsendum starfsmönnum er átt við fólk frá ríkjum EES-svæðisins sem er sent tímabundið hingað til lands í tengslum við veitingu þjónustu erlends þjónustufyrirtækis og fær laun sín greidd í heimaríkinu. Heimild: Vinnumálastofnun. 2013 2014 2015 Útsendir starfsmenn* 50 82 339 Starfsmenn hjá starfsm.leigum 10 28 130 Alls 60 110 469 Sigling frá Pétursborg til Moskvu Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Sp ör eh f. Fararstjóri: Pétur Óli Pétursson Kynningarfundur 8. desember kl. 20:00 hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð. Allir velkomnir! Spennandi ferð til Rússlands þar sem okkur gefst tækifæri til að skoða það helsta sem þetta stórbrotna land hefur upp á að bjóða. Saga Rússlands er heill heimur ævintýra og um leið og við skoðum landið fáum við að skyggnast inn í þá veröld. 27. ágúst - 6. september
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.