Morgunblaðið - 05.12.2015, Síða 25

Morgunblaðið - 05.12.2015, Síða 25
FRÉTTIR 25Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015 Öryrkjabandalag Íslands veitti Hvatningarverðlaun sín í níunda sinn, fimmtudaginn 3. desember, á alþjóðadegi fatlaðra. Að þessu sinni hlutu eftirtaldir verðlaunin: Í flokki einstaklinga: Brynjar Karl Birgisson, fyrir Lego-verkefnið „Titanic“ og sög- una „Minn einhverfi stórhugur“. Í flokki fyrirtækja/stofnana: Sjónarhóll, fyrir ráðgjöf og dyggan stuðning við réttindabar- áttu foreldra barna með sérþarfir. Í flokki umfjöllunar/kynningar: Snædís Rán Hjartardóttir, fyrir baráttu sína við stjórnvöld vegna synjunar á túlkaþjónustu. Verndari verðlaunanna er Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. Hönnuður verðlaunanna er Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður. Öryrkjabandalagið var stofnað 1961 og er hagsmuna- og mannrétt- indasamtök fatlaðs fólks. Alls á 41 félag aðild að bandalaginu. Hlutu hvatningar- verðlaun ÖBÍ Ljósmynd/Silja Rut Hvatningarverðlaun Hópurinn sem tilnefndur var til verðlaunanna ásamt forseta Íslands og forsvarmönnum ÖBÍ. Jóladagatal Hönn- unarsafns Ís- lands verður opnað á hverjum degi í desember fram að jól- um. Í anddyri safnsins, sem er að Garða- torgi 1 í Garðabæ, er einum glugga breytt í jóladagatal og sýndur einn hlutur úr safneigninni á dag. Í til- efni af 100 ára afmæli kosninga- réttar kvenna verður jóladagatalið tileinkað konum í ár. Þeir sem missa af því að skoða hlutinn í glugganum geta fundið hann og upplýsingar um hann á heimasíðu eða Facebook-síðu safnsins. Ljósin á jólatrénu í Garðabæ verða tendruð í dag og verður ókeypis í Hönnunarsafn Íslands frá kl. 12-17. Hönnunardagatal opnað daglega Listaverk Teketill í Hönnunarsafni Íslands. Vænta má þess að skíðasvæðið í Blá- fjöllum verði opnað um miðja næstu viku. Þar er nú kominn talsverður snjór og enn bætir í. Þegar hvessir dregur í skafla og þá myndast fljótt kjörskilyrði til skíðaiðkunar. „Þegar kominn er snjór sem dugar tekur það okkur um þrjá sólarhringa að gera allt klárt. Það er freistandi að segja að hér verði opnað næsta fimmtudag,“ segir Einar Bjarnason, rekstrarstjóri í Bláfjöllum, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Í Bláfjöll er nú aðeins fær leiðin af Suðurlandsvegi á Sandskeiði. Leið úr hrauninu sunnan við Hafnarfjörð og þaðan til fjalla hefur ekki verið með vetrarþjónustu frá 2009. sbs@mbl.is Bláfjöll brátt opnuð Morgunblaðið/Eggert Vetur Það er skemmtilegt á skíðum. Jólakort Félags eldri borgara í Reykjavík eru komin út og hafa verið send fé- lagsmönnum. Þau eru einnig til sölu hjá félaginu. Jólakortin eru með ólíkum myndum frá ári til árs og eru 6 kort og merkimiðar í pakka sem kostar 1500 krónur. Hönnuður kortanna í ár er mynd- listarkonan Jónína Magnúsdóttir, Ninný. Jólakortasala hefur verið ein helsta fjáröflunarleið félagsins til þessa. Félag eldri borgara selur jólakort Jólakort Félags eldri borgara Almond Gjafabox Pivoine Flora Gjafakassi Verbena Gjafakassi Sturtusápusett 3.990 kr. 3.300 kr. 7.490 kr.5.990 kr. Almond Gjafabox - 3.990 kr.: Almond Handkrem 30ml, Almond Sturtuolía 75ml, Almond Líkamskrem 50ml; Sturtusápusett - 3.300 kr.: Cherry Blossom Sturtugel 75ml, Pivoine Flora Sturtugel 75 ml, Almond Sturtuolía 75ml, Rose Sturtugel 75ml; Pivoine Flora Gjafakassi - 5.990 kr.: Pivoine Flora ilmsápa 75g, Pivoine Flora Sturtugel 250ml, Pivoine Flora Húðmjólk 250ml, Pivoine Flora Handkrem 30ml; Verbena Gjafakassi - 7.490 kr.: Verbena Sturtugel 250ml, Verbena Húðmjólk 250ml, Verbena Laufsápa 75g, Verbena ilmpoki 35g, Verbena Handkrem 30ml. Kringlan 4-12 | s. 577-7040 • loccitane.com L’Occitane en Provence - Ísland

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.