Morgunblaðið - 05.12.2015, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 05.12.2015, Qupperneq 29
FRÉTTIR 29Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015 Lögreglumenn í Frakklandi og Belgíu leita nú að tveimur mönnum sem eru grunaðar um að hafa að- stoðað Salah Abdeslam við hryðju- verkaárásirnar í París 13. nóv- ember, að sögn ríkissaksóknara Belgíu í gær. Mennirnir tveir eru sagðir vopnaðir og hættulegir. Þeir eru taldir hafa hjálpað Abdeslam að ferðast til Ungverjalands í sept- ember, að sögn fréttavefjar breska ríkisútvarpsins. Alls biðu 130 manns bana í árásunum í París og meira en 350 særðust. Tveggja hættulegra manna leitað AFP Opnað á ný Blóm og kerti til minningar um fórnarlömb árásanna í París við veitingastað þar sem ein þeirra var gerð. Hann var opnaður á ný í gær. Kennari við grunnskólann í Troll- hättan í Svíþjóð lést í fyrrakvöld af sárum sem hann fékk í sveðjuárás í skólanum í október. Maðurinn, 42 ára stærðfræði- kennari, særðist eftir að hafa mætt árásarmanninum Anton Lundin Petterson, 21 árs gömlum þjóðernis- öfgamanni, sem réðst grímuklæddur til atlögu við fólk í skólanum 22 októ- ber. Árásarmaðurinn hafði látið í ljós aðdáun á Hitler, þýskum nasistum og Svíþjóðardemókrötum, flokki sænskra þjóðernissinna, að sögn sænskra fjölmiðla. Aðstoðarkennarinn Lavin Esk- andar, sem var 20 ára, og Ahmed Hassan, 15 ára nemandi, létu lífið í árásinni. Annar nemandi særðist, auk kennarans sem dó síðar af sár- um sínum. Lundin Pettersson valdi fórnar- lömb sín eftir litarhætti þeirra, að sögn sænsku lögreglunnar. Tveir lögregluþjónar skutu hann til bana skömmu eftir árásina. Þriðja fórnarlamb sænsks rasista látið  Kennari lést af sárum sínum Kona sem er grunuð um að hafa tekið þátt í skotárás í borg- inni San Bern- ardino í Kali- forníu á miðviku- daginn var hét hollustu við leið- toga Ríkis íslams (IS), samtaka ísl- amista, í face- book-hóp fyrir árásina, að sögn bandarískra fjölmiðla í gær. Í frétt New York Times er haft eftir ónafngreindum embættismanni að ekkert bendi til þess að liðsmenn Ríkis íslams hafi fyrirskipað árásina. Syed Farook, 28 ára múslími sem fæddist í Bandaríkjunum, og 27 ára eiginkona hans, Tashfeen Malik, létu lífið í skotbardaga við lögreglu eftir að hafa skotið fjórtán til bana og sært 21 í skotárásinni. Þau voru bæði vopnuð árásarrifflum, skamm- byssum og sprengjum. „Við teljum núna að þau hafi aðeins verið undir áhrifum frá hópnum frekar en að Ríki íslams hafi fyrirskipað árás- irnar,“ hafði New York Times eftir heimildarmanninum. Árásin líklega skipulögð Fyrrnefnd færsla á Facebook hef- ur nú verið fjarlægð. Síðustu dagana fyrir árásina eyddu hjónin rafræn- um upplýsingum um sig, að sögn lögreglunnar, sem segir það benda til þess að árásin hafi verið skipu- lögð. Malik fæddist í Pakistan en bjó um skeið í Sádi-Arabíu og talið er að hún hafi kynnst Farook þegar hann var staddur þar, að sögn New York Times. Hann fæddist í Illinois-ríki en foreldrar hans voru frá Pakistan. Fox-sjónvarpið hafði eftir rannsókn- armönnum að miklar líkur væru taldar á því að Farook, sem var borgarstarfsmaður í San Bernard- ino, hefði snúist til íslamskrar öfga- hyggju eftir að hann kynntist Malik. Hét leið- toga IS hollustu Syed Farook  Grunuð um hafa stutt Ríki íslams AFP Sorg Minningarathöfn um fórnar- lömb árásarinnar í San Bernardino. 444 9911 - hjalp@taeknisveitin.is - www.taeknisveitin.is Leyfðu okkur að aðstoða! Við komum til þín, veitum ráðgjöf, setjum tækin upp, gerum við, leggjum lagnir, tengjum tækin saman við önnur og fáum allt til að virka. Svo færðu kennslu líka ef þörf er á því. Viltu taka þátt í sjónvarpsbyltingunni?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.