Morgunblaðið - 05.12.2015, Síða 42

Morgunblaðið - 05.12.2015, Síða 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015 Elsku amma mín Fríða er dáin. Á fal- legum degi í vetrar- sólinni kvaddi hún eftir langa og góða ævi. Sem pínulítil stelpa fylgdi ég ömmu Fríðu hvert fótmál og var mjög hænd að henni. Þannig var það alla tíð, ég sótti í félagsskap hennar og nærveru og við vorum miklar vinkonur. Amma Fríða var einstaklega skemmtileg kona og gaf mikið af sér. Það var gaman að vera í kringum hana, hún var glaðvær, mikill húmoristi og oft stutt í glensið þar sem amma greip gjarnan í hnyttna frasa, vísur, lag- stúfa eða revíubrot sem hún kunni reiðinnar býsn af. Hún vissi líka sem var að hver er sinnar eigin gæfu smiður. Það var mikill kraft- ur í ömmu Fríðu, hún var töffari – snögg í tilsvörum, hispurslaus og hreinskiptin og lá ekki á skoðun- um sínum. Amma vílaði ekki fyrir sér hlutina heldur gekk áræðin til verks, dugleg og ósérhlífin. Með árunum áttaði ég mig á því hvað amma var módern, bæði í fasi og smekk, en ekki síður í hugsun og lífsskoðunum. Enda var núið tími ömmu sem var áhugasöm um samtímann og sam- ferðafólkið, nýjungagjörn og framsýn. Ég sé ömmu fyrir mér í ljósum hálfsíðum rykfrakka, með gráa leðurhanska og klút yfir hárinu sem var sveipað fjólubláum blæ. Hún var algjör borgarmær, upp- alin í miðbænum, þar sem hún bar út blöð frá unga aldri. Þær voru ófáar bæjarferðirnar okkar enda amma svo smart og praktísk að alltaf var betra að fá hennar skoð- un við kaupin. Amma Fríða gaf sig alla í að Fríða Sveinsdóttir ✝ Fríða Sveins-dóttir fæddist 25. janúar 1922. Hún lést 19. nóv- ember 2015. Útför Fríðu fór fram 4. desember 2015. fylgjast með fólkinu sínu, styðja það og hvetja. Hún sýndi mér óþrjótandi áhuga og spurði mig spjörunum úr á sinn góða hátt – „Voru einhverjir sætir á ballinu?“ „Við hvern dansaðirðu?“ Amma Fríða og afi Bragi sinntu fjöl- skyldunni af mikilli alúð sem hefur örugglega stuðlað að þeim miklu tengslum og sam- gangi sem er hjá okkur afkom- endum þeirra. Minningarnar úr Hjálmholti eru óteljandi. Sam- verustundir fjölskyldunnar yfir sunnudagslærinu og á stórhátíð- um, amma að spila undir dansi kringum jólatréð, eftirmiðdags- hressing eftir skóla og málin rædd undir notalegum niði frá útvarp- inu eða fallegri tónlist frá grammófóninum. Gjarnan var maður sendur í sófann í hvíld – en ekki of lengi! Amma og afi fóru alla tíð mikið í sund í Vesturbæjarlaugina og gjarnan öll hersingin saman um helgar. Tónleikar, ballettsýningar og hvaðeina sem við krakkarnir tókum þátt í, alltaf voru amma og afi mætt. Amma og afi voru að mörgu leyti ólík en mjög samstiga hjón. Án þess að farið væri um það mörgum orðum báru þau greini- lega mikla virðingu hvort fyrir öðru. Þau voru mér góðar fyrir- myndir. Þær eru líka góðar minning- arnar frá Grund þar sem við ræddum daginn og veginn. Þótt aldurinn færðist yfir var ótrúlegt hvað amma var ern, hún varð ein- hvern veginn aldrei gömul kona. Hún var næm og góð og mér leið alltaf vel eftir heimsókn á Grund. Okkur Sindra og þá ófæddum syni, sýndi hún takmarkalausa umhyggju og áhuga. Það er með trega og söknuði sem ég kveð yndislega ömmu, en líka full þakklætis fyrir allar sam- verustundirnar. Allt það sem hún gaf mér mun fylgja mér alla tíð. Blessuð sé minning ömmu Fríðu. Fríða Sigríður Jóhannsdóttir. Fríða frænka er dáin. Nú eru þær allar dánar systurnar þrjár, sem ólust upp á Bárugötu 14, hús- inu sem afi og amma byggðu, Sveinn, eldsmiðurinn hagmælti og Halldóra, hannyrðakonan sem kenndi þýsku og orgelleik. Syst- urnar ólust upp í kreppunni og stundum var naumt í búi, afi var þá kominn niður á höfn sem dag- launamaður og oft var enga vinnu að fá. Amma stóð þá fyrir því að nokkrar húsmæður í Vesturbæn- um keyptu þvottavél og stofnuðu samvinnufélag um þvotta. Eldri dæturnar báru út dagblöð áður en þær fóru í skólann. Móðurbróðir þeirra, Ívar, bjó hjá þeim, hann dró nýtísku bókmenntir inn á heimilið og las upphátt það sem Halldór Laxness skrifaði og fleira sem var á döfinni í henni Reykja- vík. Amma var metnaðargjörn fyrir hönd dætra sinna; hún vakti um nætur til að sauma á þær ballkjóla upp úr útlenskum tísku- blöðum þegar þær urðu fulltíða. Svo fóru þær til Kaldals ljós- myndara í kjólunum og sátu fyrir. Við afkomendurnir dáumst enn að glæsileika þeirra sem sjá má á myndunum. Þær voru skapmikl- ar, frjóar og fyndnar. Þær mörk- uðu spor, hver þeirra á sinn hátt; Auður var hannyrðakona, Ásdís, mamma mín, var silfursmiður og Fríða, sú yngsta, var músíkölsk. Þær lifðu tíma umbreytinga og voru í hópi módernista og báru mikla virðingu fyrir handverki. Fallegir munir, haganleg smíð, frjó hugsun, þetta kom fram í metnaðarfullri híbýlaprýði hjá þeim öllum þremur. Auja og Fríða unnu á röntgen- deildinni áður en þær giftust og Fríða fór svo aftur á Landspítal- ann til vinnu eftir að börnin voru farin að heiman. Bragi Þorsteins- son verkfræðingur varð hennar maður. Oft heyrði ég Fríðu hrósa þekkingu og viti Braga og það var hlýtt hrós. Fríða hafði tvær sér- gáfur, önnur var sú hvað hún var mannglögg og fær að rekja ættir fólks en þar er ég blind og því þótti mér gott að geta leitað til hennar ef ég á þurfti að halda. Hin gáfan var skopskynið, hún sagði hlutina á þann hátt að ég reyndi að leggja á minnið, hún tók svo skemmtilega til orða. En þar fyrir utan hafði hún mikinn mannskiln- ing og þau hjón saman, það var gott að heimsækja þau í hádeginu og spjalla við þau eftir að þau urðu eldri og voru heima við. Fríða hafði margar hliðar, skoppandi fyndin, ómstríð, ör en líka ró- semdin sjálf inn á milli. Eins og mitt móðurfólk. Ásdís Thoroddsen. Nú er Fríða Sveins, vinkona mín, horfin á braut 93 ára gömul. Vinátta okkar hófst þegar við, 13 og 14 ára gamlar, fórum að sækja tíma í Tónlistarskólanum sem var þá til húsa í Hljómskálanum við Tjörnina. Við áttum okkur þann draum að læra á píanó og vorum svo lánsamar að foreldrar okkar gátu látið hann rætast og lærðum við báðar að spila hjá Árna Krist- jánssyni píanóleikara. Árni var frábær kennari í alla staði. Hann talaði mjög fallegt mál sem auð- veldaði okkur að skynja innra eðli tónlistarinnar. Hann lagði líka ríka áherslu á að maður ætti að njóta tónlistarinnar sem við og gerðum. Tíminn leið og þrátt fyrir að samvera okkar Fríðu yrði stop- ul þegar vinna og barnauppeldi tók við hélst þó vinátta okkar alla tíð. Fyrir tæplega fjórum árum lágu leiðir okkar svo saman á ný hér á Litlu Grund og rifjuðum við þá oft upp okkar gömlu glöðu daga, frá fjórhenta samspilinu okkar á píanóið og margt fleira. Vorum við innilega sammála um að tónlistarnámið hjá Árna hefði verið eitt okkar besta veganesti á lífsleiðinni. Síðustu mánuðina dvaldi Fríða svo á Stóru Grund hjá Braga sínum, og þar heimsótti ég þau síðustu vikurnar. Tveimur dögum fyrir andlát hennar sat ég hjá henni. Fríða horfði lengi í augu mín og sagði: „ Mikið ertu lík henni Önnu Siggu.“ Ég stóð upp, kyssti hana á ennið og þakkaði henni allar okkar ánægjustundir. Anna Sigríður Björnsdóttir. ✝ Íris Magn-úsdóttir fædd- ist í Reykjavík 22. október 1963. Hún lést í París 6. nóv- ember 2015. Íris var dóttir hjónanna Magn- úsar Jónssonar frá Bolungavík, f. 22. júlí 1929, d. 17. júní 2013, og Guðlaugar Runólfsdóttur frá Strönd í Meðallandi, f. 7. apríl 1929. Eldri bróðir Írisar er Loft- ur Óli, f. 12. nóvember 1959, ókvæntur og barnlaus. Árið 1965 fluttist Íris með foreldrum sínum að Kópavogs- braut 70 þar sem hún ólst upp. Hún lauk verslunarprófi frá Verslunarskóla Íslands og síðar stúdentsprófi frá sama skóla. Starfaði á hótel Esju og hjá Flugleiðum áður en hún flutti sig um set til utanrík- isráðuneytisins, þar sem hún hóf störf sem stjórnarráðs- fulltrúi árið 1997. Hún var fyrstu tvö árin við störf í ráðuneytinu en fór þá til starfa við fastanefndina í Strassborg þar sem hún starfaði til ársins 2002. Þá fluttist hún til sendiráðsins í Brussel og starfaði þar til 2006. Frá þeim tíma var hún við störf á alþjóða- og öryggissviði þar til hún fór utan til starfa í París ár- ið 2010. Íris fékk diplómatíska starfstitilinn sendiráðsfulltrúi 1. febrúar 2013. Útför Írisar fór fram í kyrr- þey. Stórt skarð er höggvið í vinkvennahópinn sem haldið hef- ur saman frá því á menntaskóla- árunum. Okkur finnst sárt að þurfa að skrifa minningargrein um Írisi. Þegar fólk fellur frá langt fyrir aldur fram og svo óvænt er fátt um skynsamleg svör. Hugur okkar leitar til baka og huggun er að fá í góðum minningum og skemmtilegum uppátækjum frá því að við fórum á fölsuðum skil- ríkjum á Borgina og rúntuðum á appelsínugula og hvíta Scoutin- um sem Íris keyrði eins og her- foringi. Það var örugglega eng- inn annar sem gat keyrt bíl, naglalakkað sig og reykt á sama tíma og gert allt jafn vel. Íris undi sér hvergi betur en á ferðalagi í fjarlægum löndum þaðan sem hún sendi okkur kort og bréf. Hún var heimsborgari og ekki var nú dóttir einnar okk- ar gömul er hún hafði orð á því að Íris væri Parísardama. Það var nú reyndar löngu áður en Ír- is varð Parísarbúi. Heimili hennar var samt hér, hún kom alltaf til baka tíma- bundið, annað hvort í heimsókn eða til að vinna um tíma. Þær stundir voru vel nýttar því fáir eða engir voru jafn ræktarsamir við vini sína og Íris. Það var líka alltaf eins og við hefðum hist í gær þegar við komum saman eða heyrðumst í síma. Sem betur fer er örstutt á milli fólks í dag, sími gerir allar fjarlægðir stutt- ar og var sá samskiptamáti óspart notaður þegar Íris bjó er- lendis. Við söknum þess að geta ekki tekið upp símann og hringt í vinkonu okkar, spjallað um heima og geima, tuðað yfir hinu og þessu og lagt á ráðin um næstu ferðalög, matarboð og heimsóknir. Íris var fagurkeri, glæsileg og falleg að utan sem innan. Hún fór sínar eigin leiðir, var sjálf- stæð, góður vinur vina sinna, stoð og stytta fjölskyldu sinnar, góður ferðafélagi, frábær kokk- ur og gestgjafi auk þess sem hún var skemmtileg og hafði einstak- lega góða nærveru. Þessi listi gæti reyndar verið mun lengri. Það er óendanlega dýrmætt að hafa fengið að kynnast Írisi og við erum þakklátar fyrir þann tíma sem við áttum saman. Hver stund er dýrmæt og tíminn kem- ur ekki til baka. Því er minn- ingin um fimmtugs- afmælisferðina okkar allra til Frankfurt okkur mjög kær. Með þessum fátæklegu orðum kveðjum við kæra vinkonu og vottum fjölskyldu hennar okkar innilegustu samúð. Ásta K. Pálmadóttir, Berglind Sigurðardóttir, Bergþóra Bergsdóttir. Mér er minnisstæður fyrsti fundur minn með Írisi Magnús- dóttur þegar hún sótti um starf í utanríkisþjónustunni árið 1997. Á þessum tíma fór ég með starfsmannamálin og fann ég strax á þessum fyrstu kynnum að Íris var viðkunnanleg, ákveð- in og vissi hvað hún vildi. Hún bjó þegar yfir mikilli starfs- reynslu og tungumálakunnáttu enda fór það svo að henni var boðið starf sem hún þáði. Strax frá byrjun kom í ljós að þar var um starfskraft að ræða sem gekk til starfa sinna af elju og samviskusemi. Hún var ekki kona margra orða en ákaflega þægilegur samstarfsfélagi, vel liðin af samstarfsfólki sínu og fáguð í allri framkomu. Á starfs- ferli sínum í utanríkisþjónust- unni kom hún víða við. Hún starfaði í utanríkisráðuneytinu frá 1997-1999 og aftur frá 2006 til ársins 2010 er hún fór til starfa við sendiráðið í París. Hún starfaði jafnframt við fasta- nefndina í Strassborg frá 1999- 2002 og sendiráðið í Brussel frá 2002-2006. Íris varð sendiráðsfulltrúi árið 2013 og var hún verðugur fulltrúi Íslands erlendis. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að vera samferða henni í sendiráði okkar í Brussel um nokkurra missera skeið og kynntist þar hæfileikum Írisar og atorku hennar í rekstri okkar stærsta sendiráðs. Það var mikið umleikis í utanumhaldi og sinnti hún sínum verkefnum óaðfinnanlega. Það var okkur samstarfsfólki Írisar mikið áfall er við fréttum af fráfalli hennar langt fyrir ald- ur fram. Skarð er höggvið í okk- ar litlu utanríkisþjónustu. Henn- ar er sárt saknað af vinnufélögum og vinum í utan- ríkisþjónustunni. Við kveðjum Írisi full þakklætis fyrir sam- ferðina og vottum móður henn- ar, bróður, vinkonum og fjöl- skyldu okkar innilegustu samúð. F.h. utanríkisráðherra og samstarfsfólks í utanríkisþjón- ustunni, Stefán Haukur Jóhannesson ráðuneytisstjóri. Íris Magnúsdóttir Pabbi og mamma voru tvö af heiðarlegustu Ís- lendingum sem uppi hafa verið. Mamma átti ættir að rekja til bænda og biskupa og pabbi var kominn af sjómönnum og skip- stjórum frá Vestfjörðum. Þau ólu okkur bræðurna þrjá upp á góð- um og hollum mat og tóku okkur með sér upp á mörg fjöll í steina- leit. Það var oft erfitt en það byggði upp hjá okkur góða beina- og vöðvabyggingu og erum við allir hraustir menn í dag. Mamma lærði í húsmæðraskólanum á Laugalandi og kenndi okkur að elda og að geta séð um okkur sjálfir. Það kom sér vel þegar við tókum að okkur að kokka á ýms- um fiskiskipum. Pabbi kenndi okkur snemma að gera við leik- föngin og reiðhjólin okkar og hann útskýrði fyrir okkur þegar hann var að gera við bílinn. Hann var góður smiður og hafði líka lært mikið í vélsmiðjunni á Þing- eyri og í stýrimannaskólanum. Við lærðum líka mikið af þeim í að gera lagfæringar á húsum og að byggja nýtt hús. Þau fóru vel með sína hluti og þeir entust þeim líka vel. Ég man einu sinni eftir að nokkrir unglingar gengu framhjá húsinu okkar og ein stelpan sagði „ógeðslega er þetta ríkt pakk“ og horfði á bílana okkar. Þarna var Range Roverinn hans pabba, sennilega 10 ára, BMWinn minn, 16 ára og Bensinn sem mamma átti þá, um það bil 8 ára. Þetta var ekki verðmikill floti, en nógu góð- ur fyrir okkur. Foreldrar okkar unnu mikið Sigrún Sigurlaug Sigfúsdóttir og Sigurður Pálsson ✝ Sigrún Sig-urlaug Sigfús- dóttir, fæddist 23. ágúst 1932. Hún lést 15.8. 2015. Sigurður Pálsson fæddist 14. sept- ember 1930. Hann lést 14. mars 2008. og kveinkuðu sér aldrei, enda var það ekki siður þar sem þau ólust upp. Það sást vel á þeim því mamma var ekki alltaf heilsu- hraust en hélt samt áfram að vinna. Pabbi lenti í mjög slæmu slysi þar sem 80% af beinunum í efri hluta líkama hans brotnuðu og annað lungað var mikið marið og mörg önnur líffæri líka. Hon- um var haldið í svæfingu í 5 vikur og var ekki búist við að hann mundi lifa þetta af. Þetta var um haustið 1990. Af því að hann var svo hraustur og viljastyrkur fyrir slysið og var ekki reykingamaður þá jafnaði hann sig fyrr en búist var við. Við vorum í ferða- mennsku og það var búið að bóka ferðir sumarsins. Ég ákvað að keyra rútuna fyrir hann um vorið og hann kom með okkur með aðra höndina í fatla og míkrafón í hinni. Bræður mínir hjálpuðu líka. Flestir hefðu gefist upp í hans sporum en foreldrar okkar trúðu á að gefast aldrei upp. Þau fengu bæði Alzheimer- sjúkdóminn en dóu bæði af völd- um annarra sjúkdóma sem tóku þau á mjög stuttum tíma. Pabbi dó áður en ég náði að koma til landsins til þess að kveðja hann, en ég náði að vera með mömmu í nokkra daga áður en hún dó. Eitt af því síðasta sem hún sagði við okkur var „Ég er svo heppin“. Við bræðurnir vorum heppnir að eiga þau sem foreldra. Sævar Sigurðsson www.uth.is -uth@uth.is Stapahrauni 5, Hfj. - Sími 565 9775 Frímann s: 897 2468 Hálfdán s: 898 5765 Ólöf s: 898 3075 ÚTFARARÞJÓNUSTA HAFNAFJARÐAR FRÍMANN & HÁLFDÁN ÚTFARARÞJÓNUSTA Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.