Morgunblaðið - 05.12.2015, Side 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015
Söfn • Setur • Sýningar
Sunnudagur 6. desember kl. 14:
Grýla og Leppalúði skemmta ásamt Hafdísi Huld
Sérkenni sveinanna jólasýning á Torgi
Jólaratleikur
Leitin að jólakettinum er stórskemmtileg skemmtun fyrir alla fjölskylduna
Þriðjudagur 8. desember kl. 12: Hádegisfyrirlestur Ragnhildar Bragadóttur sagnfræðings
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Hvað er svona merkilegt við það? Störf kvenna í 100 ár í Bogasal
Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli í Horni
I Ein/Einn-Ljósmyndir Valdimars Thorlaciusar í Myndasal
Blaðamaður með myndavél á Veggnum
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru - Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Listasafn Reykjanesbæjar
Kvennaveldið: Konur og kynvitund
13. nóvember – 24. janúar
Töskur frá Handverki og hönnun
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Þyrping verður að þorpi
Bátasafn Gríms Karlssonar
Opið alla daga 12.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
LISTASAFN ÍSLANDS
NÍNA TRYGGVADÓTTIR - LJÓÐVARP 18.9. 2015 - 3.1. 2016
Sunnudagsleiðsögn 6. desember kl. 14.
Björg Erlingsdóttir, verkefnastjóri fræðsludeildar, leiðir gesti um sýninguna.
NÍNA TRYGGVADÓTTIR Ný bók frá Listasafni Íslands.
NÍNA SÆMUNDSSON - LISTIN Á HVÖRFUM 6.11.2015 - 17.1.2016
Sunnudagsleiðsögn 6. desember kl. 15:30.
Hrafnhildur Schram, sýningarstjóri sýningarinnar, leiðir gesti um sýninguna.
PABLO PICASSO Í SAFNEIGN LISTASAFNS ÍSLANDS;
JACQUELINE MEÐ GULAN BORÐA (1962) 21.7. 2015 - 11.9. 2016
Málþing um framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins 2015:
MOSKAN - Fyrsta Moskan í Feneyjum.
Laugardaginn 5. desember kl. 11:00-14:30
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur.
Aðventudagur í Safnbúð Listasafni Íslands, 6. desember.
Gjafavörur og listaverkabækur á tilboði, tónlistarflutningur og leiðsagnir.
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar,
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is Opið dagl. kl. 11-17, lokað mánud.
Sunnudagur 6. desember:
Tveir f. einn af aðgangseyri og leiðsögn kl. 14 með Markús Þór Andréssyni sýningarstjóra
Gömul jólatré Jólasýning í lestrarsal
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Geirfuglinn, Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist,
plötuumslög, ljósmyndir, landakort og vaxmynd
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Veitingahúsið Kapers Ljúffengt kaffi og kruðerí
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 10-17.
SAFNAHÚSIÐ
Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
GEYMILEGIR HLUTIR
Að safna í söguna
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Hádegisleiðsagnir á föstudögum
fram að jólum
Jóladagatal í anddyri safnsins
Á eintali við tilveruna
Eiríkur Smith
Verk frá 1983 – 2008
Syngjandi jól
Laugardag 5. desember
kl. 9:20–16:00
Fjölmargir kórar Hafnarfjarðar
syngja fyrir gesti
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is - sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Stefán Máni virðist hafakynnt sér vel líf ungsógæfufólks, sem hefuránetjast eiturlyfjum og á
sér ekki viðreisnar von. Fyrri bækur
hans bera þess vitni
og enn rær hann á
sömu mið í bókinni
Nautinu.
Stefið er kunn-
ugt. Annars vegar
er um að ræða inn-
antómt fjölskyldulíf
á til þess að gera af-
skekktum sveitabæ
á Austfjörðum og hins vegar líf klíku
í höfuðborginni, þar sem lífið snýst
um rán, dóp og annað rugl. Þessir að
því er virðist ólíku heimar tengjast
og á því byggist sagan.
Það er alltaf átakanlegt að lesa
um ógæfu fólks. Stefáni Mána tekst
vel að lýsa skuggahliðunum og þeg-
ar kemur að ruglinu er hann í essinu
sínu. Honum fer líka vel að spila
angurværa tónlist, þegar hún á við
og úr verður hrollvekjandi saga full
af viðbjóði en um leið vonleysi, þó að
sumir láti sig dreyma um betra líf.
Sagan er hrá en hröð, rétt eins og
líf einstaklinga, sem lifa fyrst og
fremst fyrir fíknina. Lífið hefur lít-
inn sem engan tilgang, en sumir
reyna að spyrna við fótum af veikum
mætti. Aðrir láta sér fátt um finnast.
Þessar andstæður koma vel fram, en
ekki verður á allt kosið.
Oft virðist sem Stefán Máni sé að
skrifa kvikmyndahandrit frekar en
spennusögu. Svo nákvæmur er hann
í lýsingum á umhverfinu innan sviðs-
myndarinnar. Þetta getur gengið í
lengri sögum en er of mikið af hinu
góða í eins stuttri sögu og Nautinu.
Annars rennur sagan vel og þrátt
fyrir allt er von í vonleysinu og við-
bjóðnum. Til þess að svo megi vera
þarf að bregðast við og það gerir
Stefán Máni svo sannarlega með
kraftmiklum texta.
Nautið er ágætis afþreying, fljót-
lesin spennusaga. Hvort sem það er
tilviljun eða ekki má sjá samsvörun
milli atburða í sögunni og mála, sem
hafa verið ofarlega í umræðunni í
samfélaginu undanfarna mánuði.
Þessi samsvörun styrkir mikilvægi
frásagnarinnar, gerir hana trúverð-
ugri og er þörf áminning.
Stefán Máni á
kunnugum slóðum
Spennusaga
Nautið bbbmn
Eftir Stefán Mána.
Sögur, útgáfa 2015. Innbundin, 234 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Morgunblaðið/Golli
Stefán Máni „Nautið er ágætis afþreying, fljótlesin spennusaga,“ segir rýn-
ir um nýja bók höfundarins. Samsvörun við veruleikann styri mikilvægið.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Kaffiboð Tryggva er yfirskrift sýn-
ingar sex myndlistarmanna sem
verður opnuð í Listhúsi Ófeigs á
Skólavörðustíg 5
klukkan 15 í dag,
laugardag. Lista-
mennirnir eru
þeir Eyjólfur
Einarsson, Hauk-
ur Dór, Sigurður
Þórir, Sigurður
Örlygsson, Sig-
urjón Jóhannsson
og sá sem boðið
er kennt við,
Tryggvi Ólafsson. Þá mun Ólafur
Gunnarsson lesa við opnunina upp
úr nýrri skáldsögu sinni, Synd-
aranum, en hún er framhald síðustu
bókar hans, Málarans.
Í tilkynningu frá listamönnunum
um framkvæmdina segir: „Við erum
6 myndlistarmenn og einn rithöf-
undur sem eigum það allir sameig-
inlegt að hafa umgengist Tryggva
Ólafsson í Kaupmannahöfn fyrir um
hálfri öld. Það var drukkið kaffi og
vissulega ómælt af dönskum bjór.
Við rifumst um myndlistina og póli-
tík eins og listamanna er siður.
Tryggvi flutti heim fyrir nokkrum
árum og kallaði okkur saman í kaffi-
boð sem hann hefur haldið nokkrum
sinnum á ári. Hauki Dór fannst
kominn tími til þess að við sýndum
saman og er nú stundin runnin
upp …“
Gaman að heyra sögurnar
„Já, við erum búnir að þekkjast
lengi, þessi kallar,“ segir Tryggvi
þegar hann er spurður út í sam-
starfið. Hann segir að Hauki Dór
hafi fyrst verið boðið að halda sýn-
ingu en hann hafi sagt: „Ég nenni
ekki að sýna – getum við ekki bara
sýnt allir?“
„Og við leggjum allir í púkk,“ seg-
ir Tryggvi. Hann sýnir þrjár nýjar
litógrafíur. „Ég hef búið til litagrafí-
ur stanslaust í um hálft annað ár og
læt félagana fá þær nýjustu og þeir
hengja þær upp fyrir mig eins og
þeir vilja. Ég er ekkert hörundsár
yfir því hvað hver á margar myndir
og hvar mínar lenda, mér er alveg
sama. Mitt sjónarmið er að mynd-
irnar mínar verða að klára sig eða
ekki. Þegar börnin fara af heimilinu
þá þýðir ekkert að þrasa við þau
lengur. Þau verða að finna sjálf út
úr hlutunum.“
Eins og Tryggvi sagði þá hafa
sexmenningarnir þekkst lengi, mjög
lengi sumir hverjir. „Ég hef til að
mynda þekkt Sigurjón síðan ég var
átján ára gamall. Við vorum eig-
inlega allir samtímis í Kaupmanna-
höfn, og sumir saman í akademí-
unni.“
Og hittust þeir reglulega í Kaup-
mannahöfn og spjölluðu og þrefuðu
um hitt og þetta?
„Ég hef lengi haft það fyrir sið að
bjóða mönnum annaðhvort í mat eða
kaffi,“ svarar Tryggvi og hann hefur
haldið því áfram eftir að hann flutti
heim til Íslands fyrir nokkrum ár-
um. Býður þessum hópi myndlist-
armanna en líka hópi rithöfunda og
skálda. „Það er svo gaman að halda
áfram að tala við fólk. En Kiljan
segir að Íslendingar tali ekkert
saman heldur segi hverjum öðum
sögur. Og það er gaman að heyra
allar sögurnar – þetta er svona kal-
lakjaftæði hjá okkur, gamlar
brennivínssögur og eitt og annað. “
Hann hlær og bætir við: „Nú er búið
að þurrka suma af þessum drengj-
um upp og þá segja þeir sögur frá
sjeneverárunum. Það er nostagía í
þessu …
Þá eigum við sameiginlega kunn-
ingja í Danmörku og ég get sagt frá
þeim því ég er nokkuð duglegur við
að vera í sambandi við kunn-
ingjana.“
Og Tryggvi segir að þótt kunn-
ingsskapurinn sé góður innan hóps-
ins hafi þeir þróast í ólíkar áttir sem
listamenn en sjálfur hafi hann farið
fyrstur þeirra til Kaupmannahafnar
í nám, 1961. Og Ólafur Gunnarsson
rithöfundur hefur mætt á fundi mál-
aranna og hefur nú skrifað tvær
bækur um einn slíkan. „Hann hefur
nefnilega svo gaman af þessum
sýkópötum, málurunum,“ segir
Tryggvi og hlær.
„Og við leggjum
allir í púkk“
Sex listmálarar sýna í kaffiboði
Morgunblaðið/Golli
Fimm af sex Sigurjón Jóhannsson, Sigurður Örlygsson, Haukur Dór, Eyjólfur Einarsson og Sigurður Þórir.
Tryggvi Ólafsson