Morgunblaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Áhrif verðlækkunar á olíu koma óvíða
jafn skýrt fram og í Stavanger í Nor-
egi. Þar búa fjölmargir Íslendingar
og er búið að segja nokkrum upp
vinnunni. Eru Íslendingarnir jafnvel
að flytja heim á ný.
Norska olíufélagið Statoil hefur
boðið öllum starfsmönnum starfs-
lokasamning en um 30 þúsund manns
vinna hjá fyrirtækinu. Einhverjir Ís-
lendingar vinna fyrir fyrirtækið og
enn fleiri vinna hjá fyrirtækjum sem
þjónusta Statoil. Tilboðið var lagt
fram á þriðjudag og hafa starfsmenn
til 25. janúar til að svara. Með þessu
vonast Statoil að fækka starfsmönn-
um um 1.500. Atvinnuleysi tengt við
olíuiðnað Norðmanna hefur aukist
töluvert á árinu en um 25 þúsund
manns hafa misst vinnuna í olíu-
vinnslu á síðustu 18 mánuðum.
Norska blaðið Stavanger Aftenblad
greindi fyrst frá málinu.
Miðpunktur
olíuframleiðslunnar
Stavanger-svæðið, sem er mið-
punktur olíuframleiðslu Noregs, hef-
ur orðið hvað verst úti vegna lækk-
andi olíuverðs en bærinn er mikið til
byggður upp á olíuiðnaði. Þar er
skyndilega töluvert atvinnuleysi með-
al hátekjufólks með mikla menntun.
Aðrir bæir í Noregi eru sagðir munu
standa þessa niðursveiflu af sér þar
sem þeir hafa fjölbreyttari atvinnu-
starfsemi að styðja sig við.
Í Forus Business Park, sem er í
Stavanger, eru um 2.500 fyrirtæki og
um 40.000 starfsmenn en í Forus eru
meðal annars höfuðstöðvar Statoil.
Ekki er gert ráð fyrir að atvinnu-
leysi verði meðal verkamanna því
samkvæmt frétt Aftonbladet er
áfram gert ráð fyrir miklum fjárfest-
ingum í samgöngum og öðrum inn-
viðum í Noregi á næsta ári, meðal
annars í vegum og járnbrautum.
Flest byggt í kringum olíu
Steinþór Freyr Þorsteinsson, býr í
Stavanger og leikur knattspyrnu með
Viking, félaginu í bænum. Hann hef-
ur orðið var við minnkandi umsvif
tengd olíuiðnaðinum en Steinþór er
verkfræðimenntaður og einn af fáum
atvinnuknattspyrnumönnum þar sem
eru með háskólamenntun.
Ólíkt mörgum knattspyrnumönn-
um hefur hann verið að vinna með
knattspyrnuferlinum. „Olíumark-
aðurinn er allur í molum. Stærstu
fyrirtækin hér í bænum tengjast öll
olíuiðnaðinum og flest er byggt í
kringum þann iðnað.
Ég var sjálfur að vinna hjá fyrir-
tæki sem var að selja pípur og íhluti
til fyrirtækis sem byggði olíuborpalla
og þar hafa 40% misst vinnuna. Hús-
næðisverð hefur verið í hæstu hæð-
um í töluverðan tíma en eftir að olían
hrundi þá hefur markaðurinn verið á
niðurleið.“
Steinþór, sem er þrítugur og á þrjú
börn, segir að skyndilega sé staðan sú
að það sé ekki jafn mikill munur að
vera úti í Noregi og á Íslandi.
„Ég þekki engan sem er að vinna
beint fyrir Statoil en ég þekki nokkra
Íslendinga sem hafa misst vinnuna og
ég veit um fólk hér sem er að fara aft-
ur heim til Íslands. Norska krónan er
mikið tengd olíunni og krónan hefur
verið að falla mikið í verði. Það er
ekki lengur sami munur og var.
Norska krónan jafngilti áður 20 ís-
lenskum en er núna um 14 íslenskum
krónum.“
Steinþór á eitt ár eftir af samningi
sínum við Viking og segir stöðuna af-
ar þunga hjá liðinu. Launaþak hafi
verið sett á og fáir leikmenn verði í
liðinu á næsta tímabili. Það geti farið
svo að hann yfirgefi félagið og jafnvel
komi heim, þó að það sé ólíklegt.
„Veit um fólk sem er að fara aftur heim“
Statoil bauð öllum starfsmönnum sínum starfslokasamning Búið að segja nokkrum Íslendingum
upp og einhverjir á leiðinni aftur heim 25 þúsund manns sem unnu í olíuiðnaði hafa misst vinnuna
Morgunblaðið/Eggert
Landsliðsmaður Steinþór Freyr Þorsteinsson í leik með íslenska landslið-
inu. Hann býr í Stavanger sem hefur farið illa út úr lækkandi olíuverði.
Atvinnuleysið í Stafangri mæld-
ist í byrjun desember um 4,1%,
sem telst ekki mikið í öðrum
löndum, en hefur aukist um rúm
80% á einu ári og er meira en í
öðrum bæjarfélögum í Noregi.
Meginástæðan er lækkun olíu-
verðs en þegar verðið var sem
hæst kostaði fatið um 100 doll-
ara en er nú um 36 dollara. Það
kostaði 45 dollara í upphafi
mánaðarins. Verðlækkunin hef-
ur orðið til þess að fyrirtæki
hafa dregið úr fjárfestingum sín-
um og fækkað starfsmönnum.
Í Stavanger bjuggu rúmlega
52.000 íbúar árið 1960 en þeim
snarfjölgaði árið 1969 þegar
Norðmenn fundu olíulindir í
Norðursjó. Íbúarnir eru nú um
130.000. Samdrátturinn í olíu-
vinnslunni hefur meðal annars
orðið til þess að þremur þjón-
ustuskipum hefur verið lagt og
þau liggja við bryggju í jaðri
borgarinnar og flugfélagið SAS
hefur hætt beinu áætlunarflugi
milli Stavanger og bandarísku
olíuborgarinnar Houston í Tex-
as.
Lækkað verð
kostar störf
MIKIÐ ATVINNULEYSI
Varaoddviti Langanesbyggðar og
þrír fulltrúar til viðbótar sam-
þykktu vantraust á Siggeir Stef-
ánsson, oddvita sveitarstjórnar, á
fundi í fyrrakvöld. Ástæðan var
sögð sú að fulltrúarnir teldu að odd-
vitinn hefði ekki tekið rétt á málum í
aðdraganda fyrirhugaðrar vilja-
yfirlýsingar um stórskipahöfn í
Finnafirði.
Eftir að síðasti meirihlutinn í
Langanesbyggð varð óstarfhæfur
sl. vetur gekk Reynir Atli Jónsson til
liðs við U-listann og myndaði nýjan
meirihluta. Siggeir Stefánsson varð
oddviti og Reynir Atli varaoddviti.
Siggeir hefur lengi haft forystu
fyrir sveitarfélagið í samvinnu við
ýmsa aðila um að byggja upp stór-
skipahöfn í Finnafirði. Til hefur
staðið að gera viljayfirlýsingu um
verkefnið með aðkomu ríkisins. Á
fundinum í fyrrakvöld lágu fyrir
spurningar fulltrúa L-listans, sem
er í minnihluta, um aðdraganda
yfirlýsingarinnar, sem oddvitinn
svaraði ítarlega. Samþykkt var á
fundinum í fyrrakvöld að fresta
undirritun viljayfirlýsingarinnar til
að fulltrúar gætu kynnt sér hana.
Vantraust á oddvita
Að svo búnu lýsti Reynir Atli
varaoddviti því yfir að hann gæti
ekki stutt vinnubrögð oddvita í
þessu máli og teldi meirihluta-
samstarfi sjálfhætt.
Fjórir fulltrúar, N-listi, L-listi og
Reynir Atli, samþykktu vantraust á
Siggeir sem oddvita vegna þess að
hann hefði ekki tekið rétt á málum.
Ákváðu þeir jafnframt að varaodd-
viti tæki þegar við og nýr oddviti
yrði kosinn við fyrsta tækifæri. Full-
trúarnir sem stóðu saman að van-
traustinu munu ekki hafa myndað
nýjan meirihluta enn sem komið er.
Fulltrúar U-listans lýstu yfir von-
brigðum og furðu með vinnubrögð
varaoddvita í málinu. „Við höfnum
því alfarið að ekki hafi verið unnið
að heilindum í Finnafjarðarverkefn-
inu með hag sveitarfélagsins að
leiðarljósi.“
Hvorki náðist í Siggeir né Reyni
Atla við vinnslu fréttarinnar í gær.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Líney
Þórshöfn Kalt en bjart var í Langanesbyggð í gær en kaldir vindar hafa blásið í pólitíkinni síðustu daga.
Oddviti settur af vegna
Finnafjarðarverkefnis
Varaoddviti Langanesbyggðar gat ekki stutt oddvitann
Landsvirkjun ber að endurskoða
hluta matsskýrslu um umhverfis-
áhrif Hvammsvirkjunar, samkvæmt
ákvörðun Skipulagsstofnunar sem
var kynnt forsvarsmönnum Lands-
virkjunar í gær. Skýrslan var sam-
þykkt árið 2003 og byggir hún á um-
hverfismati á árunum 2001 til 2003.
Stjórnvöld færðu í sumar virkj-
unina úr biðflokki í nýtingarflokk og
hefur Landsvirkjun hafið undirbún-
ing að gerð virkjunarinnar.
„Við töldum að fyrirliggjandi mat
á umhverfisáhrifum hafi verið full-
nægjandi þannig að þetta var ekki í
samræmi við það sem við vonuðumst
eftir,“ sagði Hörður Arnarson, for-
stjóri Landsvirkjunar, í samtali við
Morgunblaðið. Hann segir að ekki sé
búið að ákveða hvort ákvörðun
Skipulagsstofnunar verði kærð til
umhverfis- og auðlindamála. „Þetta
mun fresta undirbúningsvinnu og
gangsetningu virkjunarinnar. Við
munum nú meta þá vinnu og rann-
sóknir sem þarf að
fara í vegna þeirra
þátta sem beðið er
um að meta frekar
og hve langan
tíma það ferli mun
taka.“
Ákvörðun
Skipulagsstofn-
unar kveður á um
að endurskoða þurfi tvo þætti
skýrslunnar. Annars vegar áhrif á
landslag og ásýnd, þar sem hægt sé
að meta áhrifin betur með tilkomu
tækni sem ekki var til staðar árið
2003, auk nýrra náttúruverndalaga
þar sem aukin áhersla sé lögð á gildi
landslags frá því sem var árið 2003.
Hins vegar áhrif á ferðamennsku og
útivist, þar sem spár um fjölgun
ferðamanna hafi ekki gengið eftir,
en spáð var komu milljón erlendra
ferðamanna til Íslands árið 2014,
sem er u.þ.b. sá fjöldi sem sótti Ís-
land heim í fyrra.
Landsvirkjun ber að endurskoða að hluta
gildandi umhverfismat Hvammsvirkjunar
Hörður Arnarson
Vöruhús veitingamannsins
allt á einum stað
Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is
Opið virka daga kl. 8.30-16.30