Morgunblaðið - 17.12.2015, Page 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015
Kaupauki
Gjafapoki fylgirvið kaup á tveimur
bollum
Björt, litaglöð lína fyrir kaffielskendur
ESPRESSO bollalínan
• Postulínsbollar 100 ml
• Uppþvottavéla- og
örbylgjuvænir
• Einfaldir og þægilegir
Fæst í stærri Hagkaups verslunum, Byko og ELKO www.danco.is
Heildsöludreifing
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Frambjóðendur í forkosningum
repúblikana vegna forsetakosning-
anna í Bandaríkjunum á næsta ári
þrefuðu um það hver þeirra væri
best til þess fallinn að tryggja öryggi
landsins og sigrast á Ríki íslams,
samtökum íslamista, í sjónvarps-
kappræðum sem fram fóru í Las
Vegas í fyrrakvöld.
Þetta voru síðustu sjónvarpskapp-
ræður frambjóðendanna á árinu og
þær fyrstu frá árásunum í París og
borginni San Bernardino í Kaliforn-
íu sem urðu til þess að auðkýfingur-
inn Donald Trump lýsti því yfir að
banna þyrfti múslímum að koma til
Bandaríkjanna til að hindra fleiri
hryðjuverk. Nýjustu skoðanakann-
anir benda til þess að fylgi Trumps
hafi aukist eftir þessa yfirlýsingu og
forskot hans á keppinautana hafi
aldrei verið meira. Nýleg könnun
The Washington Post og ABC-sjón-
varpsins bendir til þess að allt að
59% repúblikana séu hlynnt tillögu
Trumps um bann við komu múslíma
til landsins.
Fylgi Cruz eykst
Í könnun sem The Washington
Post birti í fyrradag sögðust 38%
stuðningsmanna repúblikana styðja
Donald Trump, sex prósentustigum
fleiri en í október og nóvember. Ted
Cruz, öldungadeildarþingmaður frá
Texas, er nú í öðru sæti með 15% og
fylgi hans hefur nær tvöfaldast á ein-
um mánuði. Næstir koma Marco
Rubio, öldungadeildarþingmaður frá
Flórída, og Ben Carson, fyrrverandi
taugaskurðlæknir, og þeir eru báðir
með um 12% fylgi. Stuðningurinn við
Carson hefur minnkað um helming á
einum mánuði.
Jeb Bush, sem er aðeins með um
5% stiga fylgi, reyndi að blása lífi í
kosningabaráttu sína með því að
gagnrýna Trump hart í sjónvarps-
kappræðunum. Ted Cruz var hins
vegar varfærnari í gagnrýni sinni á
auðkýfinginn og beindi frekar spjót-
um sínum að Marco Rubio sem er
álitinn einn helsti keppinautur hans í
baráttunni um atkvæði íhaldssamra
kjósenda. Þeir deildu einkum um
þjóðaröryggismál, hvaða hlutverki
bandaríski herinn ætti að gegna í því
að binda enda á stríðið í Sýrlandi, um
hvort auka ætti eftirlit öryggisstofn-
ana til að koma í veg fyrir hryðju-
verk og hvort veita ætti óskráðum
innflytjendum frá Rómönsku Amer-
íku ríkisborgararétt.
Cruz og Rubio eru báðir komnir af
innflytjendum frá Kúbu, báðir á 45.
aldursári og sækjast eftir sömu at-
kvæðunum í flokki repúblikana.
Marco Rubio lýsti Ted Cruz sem
einangrunarsinna í utanríkismálum,
gagnrýndi hann fyrir að hafa greitt
atkvæði gegn auknum fjárframlög-
um til hersins og stutt það að eftir-
litsheimildir Þjóðaröryggisstofnun-
ar Bandaríkjanna (NSA) yrðu
skertar. „Ef hryðjuverkamenn gera
aðra árás … verður fyrsta spurning-
in: hvers vegna vissum við ekki um
þetta og hvers vegna komum við
ekki í veg fyrir það?“ sagði Rubio og
beindi orðum sínum að Cruz. Sá síð-
arnefndi svaraði að yrði hann kjör-
inn næsti forseti Bandaríkjanna yrði
hann öflugasti andstæðingur Ríkis
íslams og annarra hryðjuverkasam-
taka.
Cruz og Rubio takast á
um atkvæði íhaldsmanna
Þjóðaröryggismál í brennidepli í sjónvarpskappræðum repúblikana
AFP
Enn í sókn Donald Trump í sjónvarpskappræðum frambjóðenda í forkosningum repúblikana í fyrrakvöld. Fylgi
Trumps jókst eftir að hann lagði til að múslímum yrði bannað að koma til Bandaríkjanna, ef marka má kannanir.
„Ég er repúblikani“
» Donald Trump gaf til kynna í
sjónvarpskappræðunum í
fyrrakvöld að hann hygðist
ekki bjóða sig fram til forseta
sem óháður frambjóðandi, eins
og hann hafði hótað, biði hann
ósigur í forkosningum repú-
blikana.
» Trump hét flokknum holl-
ustu, kvaðst vera repúblikani
og hafa „öðlast mikla virðingu“
fyrir forystu flokksins.
Byssumenn rændu að minnsta kosti
27 Katörum sem voru að veiðum í
eyðimörk í Írak, skammt frá landa-
mærunum að Sádi-Arabíu.
Árásarmennirnir fóru á um 50
fjórhjóladrifnum bílum inn í búðir
veiðimannanna til að ræna þeim, að
því er fram kemur á fréttavef BBC.
Umfangsmikil leit var hafin að
mönnunum.
Fréttaveitan Reuters segir að
veiðimenn frá ríkjum við Persaflóa
fari oft á þessar slóðir til að veiða
dýr sem eru ekki til í löndum
þeirra.
Hópi veiðimanna
frá Katar rænt
ÍRAK
Íbúar borgarinnar Barnaul í Rúss-
landi hafa fengið sig fullsadda á
spilltum embættismönnum og
margir þeirra vilja að kötturinn
Barsík verði gerður að borgar-
stjóra. Um 90% af 5.400 þátttak-
endum í könnun á vinsælum sam-
félagsmiðli í borginni sögðust ætla
að kjósa Barsík.
„Fólk veit ekki lengur hverjum
hægt er að treysta,“ sagði einn íbúa
borgarinnar þegar fréttamaður
AFP leitaði eftir skýringu á vin-
sældum kattarins. „Fólkið hefur
komist að þeirri niðurstöðu að það
sé ekki lengur hægt að treysta yfir-
völdunum.“
Óánægan er einkum rakin til af-
sagnar borgarstjórans Ígors Sa-
víntsevs sem lét af embætti vegna
ásakana um stórfellda spillingu.
Sonur hans hefur einnig verið
ákærður fyrir fjársvik eftir að hafa
flúið til Taílands. Yfirvöld í Barna-
ul, sem er með 700.000 íbúa, ætla að
skipa nýjan borgarstjóra í næstu
viku.
Vilja að kötturinn
verði borgarstjóri
RÚSSLAND
Óspilltur Barsík er flekklaus gæðakisi.
Sýrlendingar flýja hér bæ í Ghouta-
héraði, austan við Damaskus, eftir
að her einræðisstjórnarinnar í Sýr-
landi hóf nýja sókn gegn upp-
reisnarmönnum með aðstoð rúss-
neskra herflugvéla. Harðir
bardagar hafa geisað í Ghouta og
nálægum héruðum og fregnir
herma að a.m.k. 39 óbreyttir borg-
arar hafi beðið bana í loftárásum
Rússa í fyrradag. Óttast er að loft-
hernaðurinn verði til þess að stríðið
í Sýrlandi dragist á langinn og enn
fleiri Sýrlendingar flýi heimkynni
sín. Um 4,4 milljónir sýrlenskra
flóttamanna hafa verið skráðar í
grannríkjunum, m.a. Tyrklandi.
Mannréttindasamtökin Amnesty
International sökuðu í gær tyrk-
nesk yfirvöld um að hafa brotið al-
þjóðasáttmála með því að handtaka
tugi flóttamanna frá Sýrlandi og
Írak frá því í september og neyða
þá til að fara aftur til heimkynna
sinna á átakasvæðunum. Stjórnvöld
í Tyrklandi neituðu þessari ásökun.
Meðferð tyrkneskra yfirvalda á flóttafólki gagnrýnd
AFP
Sögð neyða fólkið til að
fara á átakasvæðin