Morgunblaðið - 17.12.2015, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 17.12.2015, Qupperneq 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015 ✝ Sigríður Kjart-ansdóttir fæddist í Bolung- arvík 5. júní 1950. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 9. desem- ber 2015. Foreldrar henn- ar voru Kjartan Tómas Guðjónsson, f. 29.3. 1907, d. 7.12. 1998, og Hall- dóra Friðgerður Maríasdóttir, f. 30.5. 1919, d. 30.10. 1970. Sigríður ólst upp í stórum systkinahópi í Bolungarvík. Systkini hennar eru Jónína Rannveig, f. 29.9. 1940, d. 23.11. 2015, Vilborg Guðný, f. 19.9. 1942, Kjartan Halldór, f. 5.9. 1944, d. 5.2. 1968, Gunnar Kjartan Tómas, Salóme Töru og Runólf Reyr og Guðmundur átti fyrir þau Eyþór Inga og Önnu Sigríði. 2) Kjartan Hall- dór, f. 6.9. 1968. Maki hans er Eydís Gréta Guðbrandsdóttir. Kjartan átti fyrir þá Ársæl Pál og Gunnar Pál og Eydís Gréta átti fyrir þau Arnar, Tinnu Rán og Breka. 3) Borgar Antonsson, f. 12.1. 1970. Maki hans er Helga Guðlaug Vignisdóttir og eiga þau saman þau Ragnhildi Lind, Brynju Rut, Vigdísi Mar- íu, Aron Frey og Vigni Snæ. 4) Óskar Sigurþór, f. 6.3. 1991. Unnusta hans er Agne Cicins- kaité. Sigríður og Anton skildu árið 1996 og síðar kynnist hún Arnþóri Sigurðssyni og bjó með honum til ársins 2013. Sig- ríður starfaði lengst af við fisk- vinnslu á Bolungarvík en við verslunarstörf eftir að hún flutti til Reykjavíkur árið 1986. Útför Sigríðar fer fram frá Guðríðarkirkju í dag, 17. des- ember 2015, og hefst athöfnin klukkan 13. Páll, f. 14.4. 1946, Hlíðar, f. 19.8. 1948, Bergmundur Bæring Ólafur, f. 21.11. 1951, d. 24.9. 1985, Jón- mundur, f. 12.7. 1955, María Sveinsína, f. 11.1. 1957, d. 23.3. 1978, og Reimar Haf- steinn, f. 24.11. 1958. Sigga giftist árið 1967 Ant- oni Tryggva Óskarssyni frá Hellishólum og eignuðust þau fjögur börn. Þau eru: 1) Guð- rún Halldóra Antonsdóttir, f. 10.9. 1967. Maki hennar er Guðmundur Jón Friðriksson og eiga þau saman einn son, Anton Friðrik. Guðrún átti fyrir þau Elsku mamma. Þá er komið að stóra ferðalag- inu, til borgar hinna látnu. Í þetta skiptið ertu ein á ferð. Þær eru þó nokkrar ferðirnar sem við höfum farið saman í á síð- astliðnum árum, sú síðasta í maí til Flórída með góðum vinkonum okkar. Þú talaðir oft um það eftir að þú greindist með krabbamein- ið að þér hefði verið ætlað að fara í þá ferð. Ég var heppin að fá að hafa þig í lífi mínu síðastliðin 48 ár. Þú varst ekki orðin tvítug þegar þú varst búin að eiga mig, Kjartan og Bogga, svo bættist Óskar við þegar við hin vorum orðin full- orðin og sjálf foreldrar. Það tók á að sjá þig kveljast svona mikið síðustu mánuðina og hver dagur með þér var svo dýr- mætur. Ég er svo þakklát fyrir það hvað við urðum góðar vin- konur, töluðumst við oft á dag og ég kom mikið til þín. Ég elskaði þig eins og þú varst en ekki eins og að ég vildi að þú værir. Þegar þú svo greindist var tvennt sem olli þér áhyggjum, hvort þú myndir lifa nógu lengi til að sjá tvíburana sem voru væntanlegir í janúar 2016, og hvað yrði um Óskar? Við hugsum um Óskar fyrir þig, engar áhyggjur, og tvíburarnir fæddust 21. nóvember, á afmælisdegi Munda heitins. Þú varðst svo glöð að ná að sjá þau. Á þessum fjórum mánuðum síðan þú greindist hélstu bæði upp á 65 ára og 50 ára afmælið þitt, einnig héldum við partí með öllum vinkonum þínum úr Þjórs- árdalnum, þetta voru þín kveð- jupartí, elsku mamma mín. Þú kvaddir á þinn hátt, í gleði. Og vá, hvað það var gaman að vera með í öllu þessu. Þú hafðir svo gaman að mörgu í lífinu, fædd með bunka af hæfi- leikum – saumaðir, prjónaðir, eldaðir, bakaðir, smíðaðir, veidd- ir og fleira. Já, þú gast allt sem þú ætlaðir þér. Að ógleymdum Íslands- og Evrópumeistaratitl- um á sjóstöng. Hrefna, sem þú kallaðir meist- arann þinn, sá um þá viðkvæmu stund þegar þú misstir síða hárið þitt. Hún hjálpaði þér í gegnum það erfiða ferli og þér fannst að þú værir ekkert veik þegar þú leist svona vel út og fannst ekk- ert til. Þú hafðir alltaf meiri áhyggjur af öllum hinum sem voru einnig veikir og hafðir þú áhyggjur af þeim öllum. Þú hringdir í Siggu Stínu, sem gaf þér styrk með allri sinni jákvæðni í sinni baráttu. Einnig spurðir þú alltaf hvort það væri eitthvað nýtt að frétta af Rögnu í Svíþjóð, fylgdist vel með gangi mála hjá Finnbirni, svo kynntist þú Mæju, en mestu áhyggjurnar varstu þó með af Jónu systur þinni og Hlíðari bróður þínum, sem einnig voru veik á sama tíma. Svo dó Jóna þann 23. nóvember síðastliðinn. Jarðarförin hennar var þér og systkinum þínum og okkur öllum erfið og í dag, tveimur vikum seinna, erum við að fylgja þér síð- ustu sporin. Ég mun ævinlega vera þakklát fyrir að hafa verið til staðar fyrir þig með öllum bræðrum mínum þegar þú kvaddir þennan heim. Þú varst svo hrædd við að fara og þetta var svo erfitt, en svo dýr- mæt stund. Mig dreymdi 2013 að þú myndir deyja 65 ára, og því mið- ur rættist sá draumur. Blessuð sé minning þín, elsku hjartans mamma. Þín dóttir, Guðrún Halldóra Antonsdóttir. Þá er hún mamma búin að kveðja þennan heim og farin til systkina sinna og laus við verk- ina. Ef ég ætti að lýsa mömmu í einu orði væri það harðjaxl því svo sannarlega var hún hörð af sér í gegnum lífið, sem ekki var alltaf auðvelt. Hún þurfti t.d. að ala okkur þrjú systkinin upp en bara ég var örugglega meira en nóg þar sem ég bjó til nógar áhyggjur fyrir hana og hef ég oft haft á orði eftir að ég stofnaði fjölskyldu sjálfur að ég hefði ekki viljað ala mig upp. Einnig missti hún þrjú systkini sem öll voru á besta aldri í slysum og tók það mjög á hana en alltaf reyndi hún að vera sterk fyrir aðra. Mamma vann líka mikið sam- hliða því að ala okkur upp á Bol- ungarvík en samt hafði hún alltaf tíma í það sem þurfti að gera og aldrei man ég eftir að okkur systkinin hafi skort neitt á þess- um tíma. Eftir að þau fluttu til Reykja- víkur fæddist svo yngsti bróðir minn. Fram að því hafði ég verið yngstur í 21 ár og öll vorum við systkinin löngu flutt að heiman en fyrir mömmu var þetta ekkert mál. Þau mamma og pabbi skildu síðan en seinna kynntist mamma Adda og fékk áhuga á sjóstanga- veiði, sem þau stunduðu saman af kappi næstu árin. Eins og með annað var það tekið með trompi þó svo að skrokkurinn væri ekki upp á marga fiska þar sem bakið var farið að hrjá hana. En nokkrum sinnum varð hún Íslandsmeistari ásamt því að verða Belgíumeistari og tvisvar sinnum Evrópumeistari og það kannski lýsir henni vel að á þessu ári endaði hún í öðru sæti á Ís- landi þó svo að heilsan hafi verið orðin mjög léleg. Þar sem við höfum búið á Hornafirði síðan 1998 var sam- gangurinn ekki eins mikill og við hefðum viljað en alltaf heyrðum við reglulega í henni í síma og hittum hana alltaf í borgarferð- unum. Svo kom hún nokkuð oft austur í heimsókn til okkar og einnig til að keppa á sjóstanga- mótum, nú síðast í sumar og sá maður þá að verulega var af henni dregið. Hún greindist svo með skæðan lungnakrabba í ágúst svo að hún hefur verið búin að vera með hann í einhvern tíma áður en það kom í ljós. Nokkrar ferðirnar erum við fjölskyldan búin að fara til að vera með mömmu síðustu mán- uðina og alltaf var hún svo þakk- lát þegar við komum en þessi tími var mjög dýrmætur fyrir okkur. Svo var það alltaf á planinu hjá mömmu að koma austur til okkar og lét hún verða af því. Fyrir okkur voru það ómetanlegir dag- ar á meðan hún var enn hress en það reyndist svo verða hennar síðasta ferðalag þar sem hún veiktist svo mikið að við fórum með sjúkraflugi til baka þar sem hún kvaddi svo þann sama dag. Við systkinin vorum öll hjá henni og vissi hún af okkur öllum, svo að hún var ekki ein eins og hún var búin að óttast að gæti gerst, og var það gott fyrir okkur öll. Það er oft sagt að maður velji sér vini en ekki ættingja en þegar ég horfi til baka tel ég mig hafa verið mjög heppinn með mömmu. Ég hefði ekki getað fengið neina betri þó að ég hefði fengið að velja úr öllum mömmum og mun ég sakna hennar mikið. Elsku mamma, takk fyrir að hafa verið mamma mín og amma barnanna minna. Hvíldu í friði. Borgar Antonsson. Elsku mamma mín, hér sit ég og minnist þín en hef til þess ekki nema 3.000 stafabil hér, sem mér finnst ekki gerlegt því þú varst svo miklu meira en það. En það er allt í lagi því minning mín um þig hefur ótæmandi rúm í hjarta mínu eins og í hjarta allra þeirra sem þig þekktu. Ég er ekki viss um að guð sé með áskrift að mbl.is en ég veit samt að þú færð þessa kveðju. Margar af fyrstu minningum mínum eru þegar þú vaktir mig oft seint á kvöldin þegar ég var nánast smábarn á Þuríðarbraut- inni í Bolungarvík til að sitja hjá þér um nætur þegar þú varst að sauma jólafötin á okkur systkin- in. Það gerðir þú til að spara sem mest því fjárhagurinn var oft knappur. Pabbi var á sjónum og þú varst svo myrkfælin að þú gast ekki verið ein. Þá fékk ég að drekka kaffi og þú lést nánast allt eftir mér bara til að halda mér vakandi. Mikið var ég oft þreytt- ur og átti erfitt með að vaka en er svo þakklátur fyrir þær stundir í dag. Það er kannski táknrænt en þú gafst mér þessa sömu sauma- vél skömmu eftir að þú veiktist. Ég mun aldrei gleyma þegar þú komst með jólin til okkar Grétu fyrir nokkrum árum. Við höfðum átt erfitt fjárhagslega og þú vissir af því og ætluðum við bara að halda látlaus jól fyrir okkur tvö. En þá komst þú fær- andi hendi skömmu fyrir jól og réttir okkur aura. Við hjónin höf- um svo oft minnst þess með þakklæti eins og þú veist því við vissum sem var að þú hafðir það ekki betra en við. Það varst líka þú sem sagðir mér fréttirnar sem voru svo erf- iðar hér um árið. Ég veit það var erfitt fyrir þig alveg eins og mig en ég get ekki minnst þín án þess að minnast á það þó það sé bara milli okkar tveggja. Fyrir það verð ég svo endalaust þakklátur því það leiddi svo gott af sér að lokum. Ég verð líka alltaf endalaust þakklátur fyrir það hvernig þú tókst henni Grétu minni þegar ég kynnti hana fyrir þér, því er ekki hægt að lýsa í orðum. Vináttan, traustið og væntumþykjan ykkar á milli var fölskvalaus og ber Gréta ekki minni sorg í hjarta en ég. Eins og ég sagði í upphafi, elsku mamma mín, þá þarf ég ekki þessi 3.000 bil til til að minn- ast þín. Þú andaðist aðeins 65 ára sem er enginn aldur í dag. Við ræddum um það þegar þú veikt- ist, kannski okkur til huggunar, skilnings eða réttlætingar til að forðast sársaukann, að einn mannsaldur væri aðeins sek- úndubrot í eilífðinni. En samt finnst mér 65 ár svo miklu minni tími en brot úr sekúndu þegar ég minnist þín. Ég veit þú varst trú- uð og því er ég þess fullviss að við hittumst aftur. Ferðalagið sem þú ert nú farin í munum við öll taka að lokum, það er það eina sem allir eiga sameiginlegt. Við munum hittast aftur þegar ég fer í mitt síðasta ferðalag, þá verður þú með allt klárt og ekkert verð- ur til sparað í því partíi, það veit ég. Elsku mamma mín. Ljósið skín alltaf skærar þeg- ar ég hugsa um þig þó að tilfinn- ingin sé um leið ljúf og sár. Minn- ing þín mun alltaf lifa í ljósinu. Ég elska þig að eilífu. Þinn sonur, Kjartan. Gengin er yfir Gjallarbrú elskuleg tengdamóðir mín Sigríð- ur Kjartansdóttir. Ég kynntist minni elsku tengdamóðir fyrir um 11 árum, fljótlega eftir að við Kjartan son- ur hennar fórum að stinga saman nefjum. Ég mun aldrei gleyma okkar fyrstu kynnum, hvernig hún tók mér og ekki leið á löngu í minni fyrstu heimsókn til hennar þar til mér fannst við hafa verið vinkonur alla ævi. Tæpu ári síðar þegar ég varð formlega tengdadóttir hennar var það að mestu leyti henni að þakka hvernig minn stærsti dag- ur varð að minni bestu minningu. Vinnan, eljan og væntumþykjan sem hún sýndi mér þá til að gera daginn sem stórkostlegastan mun alltaf lifa í mínu hjarta. Hún var einhver duglegasta kona sem ég hef kynnst og gafst aldrei upp. Hún var alltaf létt í skapi, bráðfyndin og kallaði ekki allt ömmu sína. Hrein og bein var hún í öllum samskiptum. Hún var bráðmyndarleg og vakti athygli hvert sem hún fór. Hún tók ríkan þátt í félagsmálum og virtist endalaust geta bætt við sig verk- efnum þeim tengdum þrátt fyrir að hafa margt annað á sinni könnu. Sérstaklega starfaði hún að málefnum sjóstangaveiðifólks (EFSA). Hún var einstaklega verklagin og mikil hannyrða- kona. Hjálpsemi við lítilmagnann var rík hjá Siggu, hún mátti ekk- ert aumt sjá og reyndi að hjálpa þótt það væri með hennar síðustu krónu. Virðing og þakklæti er mér efst í huga þegar ég minnist hennar. Hún gekk á vissan hátt í slóð postulanna og sýndi og sann- aði að hún var fiskimaður mikill. Hefur hún því til vitnis hampað fyrstu verðlaunum oftar en einu sinni og nælt sér í Evróputitla í sjóstangaveiði, sem er langt í frá á allra færi. Tengdamamma mín mun búa í hjarta mínu að eilífu. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fær ekki breytt. Kjark til að breyta því sem ég get breytt, og vit til að greina þar á milli. Þín tengdadóttir að eilífu, Gréta. Nú er elsku tengdamamma mín til 28 ára farin svo margs er að minnast. Sigga greindist með krabbamein í ágúst á þessu ári. Margt var það sem hún ætlaði að gera áður en hún færi og eitt af því var að koma til okkar á Hornafjörð og það gerði hún. Hún þurfti að kenna okkur ým- islegt. Við bökuðum t.d „Siggu- ömmuköku“ (lagtertu). Lagtert- an hennar Siggu var partur af jólunum, hún bakaði hana og sendi okkur og alltaf var mikil gleði að smakka. Uppskriftina, sem var frá mömmu Siggu, vildi Sigga skilja eftir í fjölskyldunni. Já það var margt sem hún vildi gera og allt þurfti að gerast strax. Við fórum nokkrar ferðir suður til hennar eftir að hún veiktist, þá beið listi sem þurfti að klára. Þessi tími var dýrmæt- ur eins og tíminn sem við áttum með henni hér heima og nú get- um við verið endalaust þakklát fyrir þennan tíma þó svo að við hefðum viljað hafa hann miklu, miklu lengri . Ég trúi því að Sigga sé komin á góðan stað þar sem sólin skín alla daga. Ég er líka viss um að nú er hún með sjóstöng að veiða, en hún elskaði veiðarnar og félagsskapinn í kringum þær. Sigga á marga verðlaunagripi og titla frá sjóst- angveiðimótum sem hún var stolt af. Sigga var líka einstaklega handlagin og allt sem hún tók sér fyrir hendur gerði hún vel og var þá sama hvort það var sauma- skapur, prjónaskapur, útskurður eða bara eitthvað allt annað. Við eigum marga fallega hluti eftir hana. Sigga vildi alltaf vera fín og var henni mjög erfitt að missa fallega hárið sitt en hún gerði það besta úr því og með hjálp góðrar vinkonu varð hún fín og falleg með nýtt hár. Sigga var vina- mörg og voru vinkonur hennar duglegar að hringja í hana og koma til að stytta henni stund- irnar. Fyrir það var hún þakklát og við fjölskyldan líka. Ég veit að margir hafa tekið vel á móti henni og nú líður henni vel. Elsku Sigga mín, takk fyrir allt. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér. Þín tengdadóttir, Helga. Elsku besta Sigga amma mín, þú kvaddir okkur svo skyndilega og langt fyrir aldur fram.Tíminn frá því að þú greindist með lungnakrabbameinið var mér mjög dýrmætur og þær minning- ar sem ég á frá þessum tíma eru mér kærar. Ég er þakklát fyrir að hafa verið í fæðingarorlofi á þessum tíma og þess vegna getað heimsótt þig mun oftar en ég hefði annars getað. Mér finnst magnað hvað þú varst sterk í veikindunum og ég er alveg viss um að þú varst besti sjúklingur- inn. Þú varst svo ánægð með fólkið sem sinnti þér, þjónustuna sem þú fékkst og svo þakklát fyr- ir allt sem fólkið í kringum þig Sigríður Kjartansdóttir Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma, langalangamma og systir, BJARNFRÍÐUR G. VALDIMARSDÓTTIR MEHAN, fædd 17. desember 1923, lést á heimili sínu í Hannastown í Pennsylvaníufylki í Bandaríkjunum þann 10. maí 2015. Jarðsett var þann 14. maí 2015 frá First Evangelical Lutheran Church í Greensburg. Minningarathöfn fer fram í Fossvogskapellu í dag, 17. desember, klukkan 15. . Sigurlína Jóhannesdóttir, Donald Ingólfsson, Mary Ann Wilson, Augusta Block, Rosemarie Campbell, Christine Mehan, barnabörn, barnabarnabörn, barnabarnabarnabörn, Ingveldur Valdimarsdóttir og Gróa Valdimarsdóttir. Elskulegur sonur minn og bróðir, SVERRIR ÞÓR HALLDÓRSSON matreiðslumeistari, lést á lungnadeild Landspítalans föstudaginn 11. desember. Útför hans fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 21. desember klukkan 11. . Kolbrún Þorláksdóttir, Einar Þór Rafnsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐJÓN E. JÓNSSON, fv. kennari, Álfaskeiði 55, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugardaginn 12. desember. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 21. desember klukkan 11. . Alrún Klausen, Hallveig Guðjónsdóttir, Jón Þór Guðjónsson, Helga Kristjánsdóttir, Selma Guðjónsdóttir, Valdimar Eiríksson, Inga Dís Guðjónsdóttir, Steinar Steinarsson, Jónatan Már Guðjónsson, Guðjón Rúnar Guðjónsson, Þórey Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.