Morgunblaðið - 13.01.2016, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.01.2016, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2016 www.fr.isSylvía G.Walthersdóttir Löggiltur fasteignasali Salvör Davíðsdóttir Sölufulltrúi María K. Jónsdóttir Sölufulltrúi Brynjólfur Þorkelsson Sölufulltrúi FRÍTT VERÐMAT ENGAR SKULDBINDINGAR HRINGDUNÚNA 770 7770 sylvia@fr.is Sjöfn Ólafsdóttir Skrifstofa Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Samkeppniseftirlitið telur að stjórn- arfrumvarp Bjarna Benediktssonar um fasteignalán til neytenda feli í sér jákvæð skref fyr- ir íbúðalánamark- aðinn. Þetta kem- ur fram í lokaorðum um- sagnar Sam- keppniseftirlits- ins um frumvarpið, en Samkeppniseftir- litið gerir einnig athugasemdir við ákveðin ákvæði í frumvarpinu, svo sem ákvæðið um lánshæfis- og greiðslumat. Upptaka á ESB-tilskipun Samkvæmt skýringum með frum- varpinu felur það fyrst og fremst í sér upptöku á efnisreglum tilskipun- ar Evrópusambandsins um lána- samninga fyrir neytendur í tengslum við íbúðarhúsnæði í íslenskan rétt. Fyrsta grein í frumvarpinu er svo- hljóðandi: „Markmið laga þessara er að tryggja neytendavernd við kynn- ingu, ráðgjöf, veitingu og miðlun fasteignalána til neytenda. Markmið laganna er jafnframt að stuðla að ábyrgum lánveitingum og sporna við óhóflegri skuldsetningu neytenda.“ Lánveitandi meti lánshæfi 20. grein frumvarpsins fjallar um lánshæfis- og greiðslumat. Þar segir m.a.: „ Áður en samningur um fast- eignalán er gerður skal lánveitandi meta lánshæfi og greiðslugetu neyt- anda í samræmi við reglugerð sem ráðherra setur.“ Um 20. greinina segir m.a. í um- sögn Samkeppniseftirlitsins: „Sam- keppniseftirlitinu er kunnugt um sjálfstæð fyrirtæki sem hafa hug á að bjóða upp á greiðslumat. Með hliðsjón af því að í ákvæðinu virðist gengið út frá því að lánveitandi sjálf- ur verði að framkvæma greiðslumat- ið verður vart önnur ályktun dregin en að með þessu ákvæði sé komið í veg fyrir að samkeppni á þessu verk- efnasviði geti farið fram á víðari vett- vangi en hjá lánveitendum sjálfum. Ekki er útilokað að ákveðin hætta geti skapast á því að samkeppni sjálfstæðra aðila á þessu sviði gæti leitt til þess að óeðlilega margir lán- takendur fengju jákvæða niðurstöðu úr greiðslumati slíkra sjálfstæðra aðila. Það væri því mikilvægt að slík- ir sjálfstæðir aðilar lytu viðeigandi eftirliti.“ Verði endurskoðað Samkeppniseftirlitið leggur því til í umsögn sinni, að ákvæði 20. grein- arinnar verði „tekið til endurskoðun- ar með hliðsjón af samkeppnissjón- armiðum“. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær, að Sam- keppniseftirlitið hefði fengið ábend- ingar um sjálfstæð fyrirtæki sem hugsanlega hefðu hug á að bjóða upp á greiðslumat. Fyrirtæki eins og Creditinfo og Kreditskor kynnu t.d. að vera þar á meðal þótt hann gæti ekki staðfest að svo væri. „Meginatriðið er að í frumvarpinu er hugsanlega að vanhugsuðu máli verið að skapa erfiðleika fyrir nýja aðila til þess að komast inn á markað. Það er þess vegna sem við leggjum til að ákvæðið um greiðslumat verði endurskoðað,“ sagði Páll Gunnar. Komið í veg fyrir samkeppni  Vill endurskoðun ákvæðisins Páll Gunnar Pálsson Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þetta getur verið dæmi um kald- lynt afskiptaleysi gagnvart náung- anum en þarf ekki að vera eina túlk- unin. Skýringarnar geta verið mjög margar,“ segir Helgi Gunn- laugsson, af- brotafræðingur og prófessor í fé- lagsfræði við Há- skóla Íslands, um þá þróun sem Neyðarlínan og lögreglan merkja hér á landi; að sí- fellt fleiri aðhaf- ist ekki á vett- vangi slysa og óhappa og láti einungis duga að tilkynna slysið og halda síðan för sinni áfram. Helgi segir þetta mjög áhugavert viðfangsefni innan félagsfræðinnar og hafi verið margrannsakað, hve- nær mannfólkið veitir öðrum hjálp- arhönd og hvenær ekki. Rannsóknir sýni almennt að fólk hafi ekki mikil afskipti af samborgurum sínum. Þegar einhver lendi í neyð sé það ekki sjálfgefið að viðkomandi fái strax nauðsynlega aðstoð. Stóra spurningin sé hvenær fólk ákveði að skerast í leikinn. „Rannsóknir sýna að eftir því sem fleiri eru á vettvangi slyssins þá eru minni líkur á að þú hafir afskipti, þá finnst þér jafnvel alveg nóg að til- kynna atburðinn. Ef þetta er mjög nálægt þínu umhverfi eða þú jafnvel bara einn til staðar aukast líkurnar á einhverjum afskiptum,“ segir Helgi. Óttast að grípa inn í Hann bendir á að reglulega komi upp atvik þar sem ekið er framhjá vegfarendum í vanda. Þessi atvik hreyfi við umræðunni og margir grípi það á lofti að þetta sé dæmi um hve á Íslandi sé orðið kaldrifjað borgarsamfélag. „Við búum vissulega í borgarsam- félagi en við búum líka í samfélagi sérhæfingar þar sem mjög öflugir aðilar eru kallaðir út til að veita fólki neyðaraðstoð. Fólk sem verður vitni að einhverju upplifir kannski van- mátt og vanþekkingu og treystir sér ekki til að grípa inn í af ótta við að gera eitthvað rangt. Hvaða afleið- ingar munu mín afskipti hafa? Þess- ar og margar fleiri spurningar koma upp í huga fólks í svona aðstæðum. Með því að hringja í Neyðarlínuna og láta þar við sitja þá telur fólk sig þannig vera búið að rækja sínar borgaralegu skyldur og koma mál- inu í hendur sérhæfðra aðila. Hérna áður voru farsímar ekki til staðar og þá gastu kannski ekki komist upp með annað en að veita fyrstu hjálp,“ segir Helgi jafnframt. Hann segir nauðsynlegt að ræða þessi mál og þekking í skyndihjálp sé góð leið til að draga úr afskipta- leysinu. Fyrstu viðbrögð skipti lyk- ilmáli og allir geti lent í þeim að- stæðum að þurfa að koma náunganum til hjálpar. Erum við kaldlynt borgarsamfélag?  Ekki sjálfgefið að fólk komi náunganum til hjálpar, segir prófessor í félagsfræði  Áhugavert við- fangsefni  Ótti getur komið upp um að gera eitthvað rangt  Þekking í skyndihjálp getur bætt úr Morgunblaðið/RAX Umferðarslys Vegfarendur á Hellisheiði á vettvangi umferðaróhapps. Dæmin sýna að ekki er sjálfgefið að vegfarendur komi fólki til hjálpar. Helgi Gunnlaugsson Rauði kross Íslands, RKÍ, fær árlega 5-7 þúsund manns til sín á skyndi- hjálparnámskeið og eru þá ótaldir þeir sem fá fræðslu í skyndihjálp á vinnustöðum, í skólum, hjá björg- unarsveitum o.fl. Nýleg könnun fyr- ir RKÍ sýnir að um 84% þjóðarinnar hafa einhvern tímann á ævi sinni sótt námskeið í skyndihjálp, þar af 33% á sl. þremur árum, tæp 16% sögðust aldrei hafa sótt námskeið. „Það hefur sýnt sig að fólk sem búið er að taka námskeið er frekar tilbúið en aðrir til að veita aðstoð á vettvangi slyss. Við ræðum þetta sérstaklega á námskeiðunum, segj- um fólki að taka afstöðu og hugsa um hvernig það myndi bregðast við,“ segir Gunnhildur Sveinsdóttir, verkefnisstjóri hjá RKÍ. Hún segir það vissulega áhyggju- efni ef tilvikum sé að fjölga þar sem fólk aðhafist ekki á vettvangi slysa og láti einungis viðbragðsaðila vita af þeim. Viðbrögðin geti verið mjög einstaklingsbundin og skýrist af ýmsum ástæðum. Með því að hafa sótt skyndihjálparnámskeið aukist þó líkurnar á að viðkomandi bregð- ist við og veiti fyrstu hjálp. Gunnhildur segir þetta meira vandamál í Evr- ópu en hér, það heyri hún hjá sínu erlenda samstarfsfólki innan Rauða krossins. Þannig sýnir könnun á Írlandi að þar í landi myndu 95% ekki stíga fram og veita aðstoð. Einnig hafa sláandi tölur komið frá Hollandi. Sambærileg könnun hér á landi sýnir mun betri niðurstöðu. Capa- cent Gallup gerði síðast könnun í lok árs 2014 fyrir RKÍ. Niðurstöður hennar sýna m.a. að á heimili eða vinnustað eru meiri líkur á að fólk veiti fyrstu hjálp en við ókunnar að- stæður. Um 70% svarenda myndu veita fjölskyldumeðlim, vini eða vinnu- félaga skyndihjálp en hlutfallið fer niður í 60% ef um ókunnugan væri að ræða. Hafi fólk farið nýlega á námskeið þá hækka þessi hlutföll. Tæp 23% myndu ekki treysta sér til að koma einstaklingi í neyð til að- stoðar. Það hlutfall lækkar verulega hjá þeim sem hafa sótt námskeið. Þekking á skyndihjálp eykur líkur á að fyrsta hjálp sé veitt 5-7 ÞÚSUND MANNS ÁRLEGA Á NÁMSKEIÐ RKÍ Í SKYNDIHJÁLP Gunnhildur Sveinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.