Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2016 Þúsundir tonna sælgætis á ári Algengt er að fólk kaupi sérbland í poka á laugardög-um, bæði börn og fullorðnir. Sumir gæta hófs en stundum er býsna vel í lagt, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Smávegis mæra lítur sakleys- islega út, en þegar að er gáð kemur í ljós að í 300 grömmum – sem virkar ekki mikið – eru 75 sykurmolar. Í sælgæti í 500 gr poka, sem þykir lít- ið þegar nammibarinn er sóttur heim á laugardögum að sögn þeirra sem til þekkja, eru 125 sykurmolar! Eitur þá en ekki nú? Fjallað er um mikla sykurneyslu Ís- lendinga í fjölmiðlum reglulega; bent á að með einhverjum ráðum verði að draga úr, heilsu þjóðarinn- ar sé stefnt í hættu og bent á sykur- sýki 2, ýmsa hjarta- og æðasjúk- dóma og þar fram eftir götunum. Þar til umræðan fer næst af stað breytist hins vegar sorglega lítið til batnaðar og tonn eftir tonn hverfur áfram ofan í landann. Fyrir nokkrum misserum var frá því greint að heildarframboð sæl- gætis hérlendis árlega væri sex þús- und tonn. Enginn getur fullyrt hve mikið er borðað af því magni, en gera verður ráð fyrir að stærstum hluta sé sporðrennt. Laufey Hrólfsdóttir, sem er í doktorsnámi í næringarfræði í Há- skóla Íslands, bendir á öfgana sem voru áberandi í nýliðinni viku og þeirri næstu þar á undan. „Í síðustu viku var mikið rætt um sykur í mat, hve hann væri mikið eitur og að hann leyndist í matvæl- um út um allt. Mikið var talað um samfélagslega ábyrgð og þulin upp nöfn á tugum heita yfir leyndan syk- ur í mat,“ segir hún í samtali við Sunnudagsblað Morgunblaðsins. Hvað gerist svo? „Viku síðar kemur öskudagurinn, krakkar koma heim með sælgæti í kílóavís og þá er ekkert falið; allt uppi á borðum og allir vita af sæl- gætinu – sem er stútfullt af sykri – enda alls staðar myndir á Facebook og Snapchat! Þá er allt í lagi og bara gaman. Hvaða skilaboð erum við að senda börnunum okkar?“ spyr Lauf- ey. Hún er búsett á Akureyri, sem löngum hefur verið höfuðstaður öskudagsins á Íslandi. Laufey tekur sem dæmi að ef barn á aldrinum 6 til 9 ára fær 2 kg af sælgæti á ösku- daginn dugi sá skammtur í heilt ár, miðað við ráðlagðan skammt! Viltu eyðileggja daginn? Davíð Kristinsson heilsufrömuður býr einnig á Akureyri. Honum blöskraði ástandið í liðinni viku, tjáði sig á Facebook og hlaut bæði hrós og miklar skammir fyrir. Hann fullyrðir að algengt sé að börn hafi um 4 kíló sælgætis upp úr krafsinu og þau duglegustu sem hann veit um komu heim með 8 og hálft kíló. „Ég hef engan áhuga á að leggja niður eða eyðileggja öskudaginn, eins og sumir sökuðu mig um á Fa- cebook, þvert á móti; ég vildi bara benda á vitleysuna sem viðgengst. Er ekki allt í lagi að draga aðeins úr því sem hvert barn fær á hverjum stað eða gefa eitthvað annað en sæl- gæti alls staðar. Ég gaf krökkunum til dæmis harðfisk, það var mjög vinsælt og töluvert meira magn en ég var með í fyrra fór út á mun skemmri tíma vegna þess að þegar það fréttist að hjá mér væri harð- fiskur streymdu liðin hingað.“ Rannsóknir meðal íslenskra barna hafa sýnt að 60-85% þess við- bætta sykurs sem þau neyta koma úr gosi, sælgæti, ís, kökum og kexi; sá sykur sem bætt er við í matvæli við framleiðslu. „Ef við ætlum að minnka sykurinn í fæði barnanna okkar þá eru það þessi matvæli sem skipta langmestu máli,“ segir Lauf- ey, sem ekki er síður hrifin af ösku- deginum en Davíð, en þykir sælgæti sem börnin fá óhóflega mikið. „Búningarnir, söngurinn og smá gotterí er skemmtileg hefð og flest- um krökkum finnst þetta einn skemmtilegasti dagur ársins. Það er á ábyrgð okkar foreldra að gefa þeim hóflega skammta en það er líka á valdi fyrirtækja að taka sam- félagslega ábyrgð og bjóða upp á annað í bland. Þannig gætu krakkar fengið, í bland við smá gotterí, popp, harðfisk, límmiða, blýanta, spil, smádót, jafnvel hnetur eða græn- meti í poka.“ Heilsan mikilvægust Laufey segir flesta hljóta að vera sammála um það að heilsan sé það mikilvægasta í lífinu. „Sykur í hófi er ekki eitur en óhófleg neysla getur svo sannarlega haft áhrif á heilsu barnanna okkar,“ segir hún og hvet- ur foreldra, skólastjórnendur, mat- vælaframleiðendur og verslunareig- endur til að vinna saman að því að minnka sykurneyslu barna – á ösku- deginum sem og aðra daga ársins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Öllum er ljóst að sykur er ekki góður í óhófi fremur en svo margt annað. Dæmi eru um að börn koma heim með mörg kíló af sælgæti í poka eftir söngferð á öskudegi – magn sem ætti miðað við ráðleggingar að duga þeim í heilt ár og jafnvel vel það! Hver Íslendingar lætur ofan í sig 50 kg af viðbættum sykri á ári, að sögn Laufeyjar Hrólfsdóttur næringarfræðings. Hver Íslendingur neytir tæpra 19 kílóa af sælgæti á ári. Er þá miðað við hvern einasta haus en ungbörn eru ekki í þeim hópi sem úða í sig sælgæti og margir innbyrða lítið sem ekki neitt, þannig að ljóst er að margir borða miklum mun meira. Ráðlegt er að viðbættur syk- ur sé undir 10% af heildarorku dagsins. Á heimasíðu Land- læknis má sjá að skv. nýjustu landskönnun fá ungir karlmenn, 18-30 ára, um 12% orkunnar úr viðbættum sykri og konur á sama aldri um 11,3%. „Neysla á sykurríkum vörum, þ.m.t. gosdrykkjum, eykur líkur á þyngdaraukningu og tann- skemmdum. Mikil neysla á sykr- uðum gos- og svaladrykkjum getur auk þess aukið líkur á syk- ursýki af tegund 2,“ segir á heimasíðu embættis Land- læknis. Of mikill viðbættur sykur Rannsýnir sýna að hjá börn- um er viðbættur sykur undir mörkum sem talin eru hæfi- leg en er orðinn allt of mikill hjá unglingum, að sögn Lauf- eyar Hrólfsdóttur. „Hjá ung- lingum er þetta sérstaklega slæmt varðandi gosdrykki og ljóst að grípa þarf inn í miklu fyrr en gert er. Ég held að við þurfum að einbeita okkur að leikskólastiginu.“ Annað slæmt dæmi: „Í landskönnun á sex ára börn- um 2011 kom í ljós að 19% fengu ráðlagðan skammt af ávöxtum og grænmeti sem er hryllilega sorglegt, en 25- 30% af orkunni komu úr nær- ingarsnauðum matvælum; sælgæti, ís, kexi og kökum.“ Trúðar fá mikið sælgæti á ösku- daginn en það er ekkert grín. Morgunblaðið/Skapti „Hryllilega sorglegt“ ’ Fyrir nokkrum árum var ég „leiðinlega foreldrið“ sem mótmælti þegar leikskólinn ætlaði að gefa tveggja ára dótt- ur minni og hinum börnunum sælgæti á öskudaginn! Mér fannst það fáránlegt enda vissi hún ekki hvað það var. Í staðinn fengu þau popp og melónu og allir voru hæstánægðir. Davíð Kristinsson heilsuþjálfari INNLENT SKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.