Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2016
VIÐBURÐA GÆSLA
STAÐBUNDIN GÆSLA
SÉRVERKEFNI
Öryggisverðir okkar eru
vel þjálfaðir og með góða
reynslu af öryggisgæslu
ÖRYGGISVERÐIR
TIL ÞJÓNUSTU REIÐUBÚNIR
Stöndum vaktina allan sólarhringinn
Við erum í
575 7000
Opið 8-17 | vardulfar@vardulfar.is | vardulfar.is
Í PRÓFÍL
MARKAHRÓKURINN Jamie Vardy, miðherji Leicester City, hef-
ur slegið rækilega í gegn í vetur og kemur sterklega til álita sem leik-
maður ársins í Englandi. Vardy, sem varð 29 ára í síðasta mánuði, kom
frá Fleetwood Town sumarið 2012, sem þá var utan deilda. Kaupverð
var ekki gefið upp en talið er að það hafi verið ein milljón sterlings-
punda. Vardy gerði 31 mark í 36 leikjum fyrir Þorskherinn (e. Cod
Army), eins og Fleetwood-liðið er kallað. Það kann að gleðja einhver
gömul hjörtu að Fleetwood Town leikur heimaleiki sína á Highbury.
Vardy náði sér engan veginn á strik fyrsta veturinn hjá Leicester og
gengu sumir stuðningsmenn liðsins svo nærri honum á samfélags-
miðlum að hann íhugaði að leggja skóna á hilluna. Nigel Pearson, þáver-
andi knattspyrnustjóri, taldi honum hughvarf og upp frá því hefur Vardy
vaxið við hverja raun. Sló til að mynda met fyrr í vetur þegar hann skor-
aði í ellefu deildarleikjum í röð.
Vardy er ættarnafn stjúpföður hans en blóðfaðirinn yfirgaf fjölskyld-
una meðan drengurinn var mjög ungur. Breska blaðið Mail on Sunday
hafði uppi á föðurnum í fyrra og þá kom í ljós að hann hafði ekki hug-
mynd um að sonur sinn léki knattspyrnu. Vardy komst í sviðsljósið þegar
hann var staðinn að því fara niðrandi orðum um Japana nokkurn í sum-
arfríi sínu í fyrra. Hann baðst í framhaldinu afsökunar, var sektaður af
Leicester og sendur á námskeið í mannasiðum. Miðherjinn Jamie Vardy hefur farið á
kostum með Leicester City í vetur.
AFP
Kom úr Þorskhernum
LEICESTER CITY, eða „Refirnir“ eins og liðið er kallað, hefur heldur
betur stolið senunni í ensku knattspyrnunni á þessum vetri. Þegar aðeins
þrettán umferðir eru óleiknar hefur þetta litla félag komið sér makindalega
fyrir á toppi úrvalsdeildarinnar, fimm stigum á undan næstu liðum. Hefði
einhver spáð þessu fyrir mótið hefði hann umsvifalaust verið lokaður inni á
stofnun – og lyklinum hent í hafið.
Þetta á ekki að vera hægt. Um það eru allir sammála. Haldi lærisveinar
Claudios Ranieris út og verði enskir meistarar yrði það mesta afrekið í 128
ára sögu ensku knattspyrnunnar. Án nokkurs vafa. Sumir tala um Notting-
ham Forest 1977-78 í þessu sambandi en það er ekki sambærilegt. Gjáin milli
ríkustu liðanna og hinna er margfalt meiri nú en þá. Það sýnir sig best í því
að fjögur auðugustu félögin, Manchester United, Manchester City, Chelsea
og Arsenal, hafa unnið öll mót nema eitt síðan úrvalsdeildin var sett á lagg-
irnar árið 1992. Það var bara Blackburn Rovers sem laumaði sér inn á milli
1995 – en það var í krafti auðs þáverandi eiganda félagsins, Jacks Walkers.
Hann hafði farið mikinn á leikmannamarkaði árin á
undan og meðal annars greitt metfé fyrir marka-
kónginn Alan Shearer.
Slíku hefur ekki verið að heilsa hjá Leicester City.
Fyrir eitt stykki Raheem Sterling, sem Manchester
City keypti frá Liverpool í sumar, má fá 49 Jamie
Vardya og meira en 10 Riyad Mahreza.
Stundum er sagt í gríni að ekkert lið vilji vinna
meistaratitilinn í ár en sannleikurinn er sá að Leic-
ester hefur verið í meistaraformi; til að mynda aðeins
tapað tveimur leikjum af 25. Frábærir útisigrar á
bæði Tottenham Hotspur og Manchester City að und-
anförnu staðfesta ásetning liðsins og um helgina
heimsækir Leicester enn eitt toppbaráttuliðið, Arsen-
al. Vinni þeir þann leik blasir mun léttari dagskrá við,
þar til í lokaumferðunum, og sérfræðingarnir hljóta
að neyðast til að fara að taka liðið alvarlega.
Ekki þarf að taka fram að allir aðrir en stuðnings-
menn Arsenal, Tottenham og Manchester City verða
á bandi Leicester á lokasprettinum enda hefði enska
knattspyrnan einstaklega gott af því að eignast svo
óvæntan meistara. Lögmál yrði brotið. orri@mbl.is
Þetta á ekki
að vera hægt!
Japaninn Shinji Okazaki er einn af útlendingunum í liði Leicester City.
’
Haldi lærisveinar Claud-
ios Ranieris út og
verði enskir meistarar yrði það
mesta afrekið í 128 ára sögu
ensku knattspyrnunnar.
AFP
Kasper Schmeichel er
af traustu dönsku
markvarðakyni.
AFP
FÉLAGIÐ Leicester City var
stofnað árið 1884 og besti árangur
liðsins í efstu deild er annað sæti,
1928-29. Fyrir tveimur árum
komst liðið upp í úrvalsdeildina
eftir tíu ára fjarveru en virtist ætla
beint niður aftur á síðustu leiktíð.
Var aðeins með 19 stig eftir 29
fyrstu leikina. Leicester vann á
hinn bóginn sjö af níu síðustu leikj-
um sínum og endaði í 14. sæti
með 41 stig. Ekkert lið í sögu úr-
valsdeildarinnar hefur bjargað sér
með slíkum tilþrifum frá falli. Eini
bikarinn sem Leicester City hefur
hampað er deildarbikarinn; í þrí-
gang (1964, 1997 og 2000).
Besti árang-
ur 2. sæti
Wes Morgan, landsliðsmaður Jamaíka og franski miðvellingurinn N’Golo
Kanté hafa verið í lykilhlutverkum í liði Leicester City á þessum vetri.
AFP
STJÓRINN Eftir skúla-
skeiðið mikla síðastliðið vor
kom brottrekstur Nigels Pear-
sons úr starfi knattspyrnu-
stjóra Leicester City mörgum
í opna skjöldu. Enn fleiri
hleyptu líklega brúnum þeg-
ar arftakinn var kynntur,
Claudio Ranieri. Ríflega sex-
tugur Ítali sem litlu hafði
skilað á löngum ferli hjá
fimmtán félögum og lands-
liðum. Síðast hafði hann gert
stutt stopp hjá gríska landsliðinu,
þar sem ósigur gegn frændum vor-
um Færeyingum reyndist banabiti
hans síðla árs 2014. Ranieri hefur
aldrei stýrt liði til meistaratignar.
Til að gera langa sögu stutta
hefur allt gengið upp við stjórn
Ranieris á Leicester-liðinu í vetur,
ekki síst snarpar skyndisóknir en
ekkert lið hefur skorað meira í úr-
valsdeildinni.
Gamli refurinn Claudio Ranieri.
AFP
Danny Drinkwater,
Robert Huth og Riyad
Mahrez og fagna marki.
Átti að vera úr
sér genginn