Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Qupperneq 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2016 VETTVANGUR Við þingmenn höfum nýttþessa kjördæmaviku til þessað hitta kjósendur. Þessar samverustundir með kjósendum eru ekki ósvipaðar starfsmannaviðtölum í fyrirtækjum þar sem starfsmenn fá álit vinnuveitanda á unnum störf- um, ábendingar um það sem sem betur má fara og hugmyndir um næstu skref. Nokkur eðlismunur er auðvitað til staðar. Vinnuveitandi í fyrirtæki hefur alla jafna góða sýn yfir allan starfsvettvanginn. Kjós- endur hafa fæstir þannig yfirsýn. Starfssvið þingmanns spannar flesta kima þjóðlífsins, því miður. Ábendingar frá kjósendum taka hins vegar oft bara mið af aðstæð- um hans sjálfs, þekkingu hans á við- komandi sviði (sem gjarnan er mjög mikil) og áhuga hans á tilteknu við- fangsefni. Þessi sértæka nálgun kjósandans dregur þó ekki úr mik- ilvægi starfsmannaviðtalsins. Það er jú hlutverk stjórnmálamannsins að púsla sjónarmiðunum saman. Í kjördæmavikunni óskuðu kjós- endur eftir upplýsingum um af- greidd mál á þessu kjörtímabili. Ég rifjaði upp nokkur dæmi. Afnám stimpilgjalds á skuldaskjölum, af- nám vörugjalda og tolla, samninga við slitabúin um stöðugleikaframlag af þeirra hálfu í ríkissjóð, lækkun skulda ríkissjóðs um 10% bara á síðasta ári, lækkun tekjuskatts og almenns virðisaukaskatts. Ég greindi ekkert nema almenna ánægju með þennan árangur þótt vissulega finnist einhverjum ekki nóg að gert. Hvað næstu skref varðar vantar ekki ábendingar frá kjósendum og það er rétt af þingmanni að leggja við hlustir. Nokkur dæmi. Aldraðir segja brýnt að draga úr tekjuteng- ingu bóta almannatrygginga. Eld- hugi í tæknigeiranum leggur til skattaafslátt til handa þeim sem fjárfesta í nýsköpunarfyrirtækjum. Maður sem var hugsanlega að taka húsið sitt í gegn spyr hvort ekki eigi að koma aftur í gagnið átakinu „All- ir vinna“ sem fólst í endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu iðn- aðarmanna við íbúðarhúsnæði. Ungt par vill fá að nýta skattfrjáls- an lífeyrissparnað sinn til íbúðar- kaupa. Allar eiga þessar hugmyndir það sameiginlegt að miða að því að auka ráðstöfunarfé einstaklinga og lögaðila. Gallinn er sá að engin þeirra myndi leiða til þess svo nokkru nemi. Sértækar aðgerðir sem lausn á tilteknum vanda, t.d. skattundanskotum einnar starfs- téttar, getur jafnvel búið til sama vandamál annars staðar þar sem að- gerðarinnar nýtur ekki við. Látum ekki trén skyggja á skóg- inn. Aukum ráðstöfunartekjur allra. Lækkum virðisaukaskatt, afnemum jaðarskattana sem felast í tekju- skattsþrepunum og lækkum trygg- ingargjald fyrirtækja. Gerum fleir- um kleift að standa undir skuldbindingunum sínum, ekki bara öldruðum, ungum og karlkyns iðn- aðarmönnum. Að loknu starfsmannaviðtali ’ Aukum ráðstöfunar- tekjur allra og gerum fleirum kleift að standa undir skuldbindingum sínum. Úr ólíkum áttum Sigríður Ásthildur Andersen sigga@sigridur.is Ábendingar frá kjósendum taka oft mið af aðstæðum þeirra sjálfra, þekkingu á sviðinu og áhuga á tilteknu viðfangsefni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Forval forsetaefnanna í Bandaríkj- unum er löngu farið að rata inn í íslenska netumræðu og þar vekja einkum athygli gífuryrði frambjóð- enda Repúblikanaflokksins. Birta Björnsdóttir, fréttakona á Stöð 2, skrifaði á Twitter í vikunni: „Ég er einhvern veg- inn að drepast úr meðvirkni yfir því hvað fyrsta fjöl- skylduboðið hjá Bush-fjölskyldunni verður vandró eftir að Jeb tap- ar.“ Nýr aðstoðarmaður utanríkis- ráðherra vakti mikla umræðu á samskiptamiðlunum í vikunni þar sem einna helst var þrasað um ungan eða ekki of ungan aldur hins 22 ára rekstrarverkfræði- nema Gauta Geirssonar. Andrés Jónsson almannatengill skrifaði m.a. á Facebook af því tilefni: „Ég er ekki í hópi þeirra sem finnst að Gunnar Bragi Sveinsson hafi gert e-ð rangt með því að ráða sér 22 ára að- stoðarmann í hálft starf. Þó að reynsla skipti máli þá er líka hollt að hlusta á þá sem yngri eru og þá kannski óbundnir af gömlum kreddum eða úreltum pólitískum víglínum. Ef stutt stjórnmálasaga Íslands er skoðuð þá má sjá að það er oft fólk á mjög þröngu aldursbili sem fer með mestöll völd í landinu á hverjum tíma.“ Kínverskur ferðamaður lést í vikunni eftir að hafa farið í sjóinn við Reynisfjöru. Forsetaframbjóð- andinn og rithöfundurinn El- ísabet Kristín Jökulsdóttir skrifaði á Facebook eftir slysið: „Það er eitt sem fólki er aldrei sagt, en náttúran KALLAR á mann, ég veit um níræðan íslensk- an bónda sem kemur ekki nálægt Gullfossi – hann segir að fossinn kalli á hann. Náttúran er seiðandi afl, sum- um finnst maður skrítinn ef mað- ur segir þetta, en fólk fær víðáttu- brjálæði þegar það kemur hingað, samanber konuna sem fór út af slóðinni á vélsleða á Langjökli og þetta kemur ekki bara fyrir út- lendinga heldur líka okkur, náttúr- an hefur þessa sterku rödd og hættulegu.“ Uppistandarinn Halldór Halldórs- son með meiru, jafnan kallaður Dóri DNA skrif- aði á Twitter: „Ég gæti púllað að vera norskur, samt töff. Í alvöru.“ Hann fékk ekki góðar undirtektir. Útvarpsmaðurinn Sólmundur Hólm svaraði með þessum lín- um: „Held það sé ekki séns, Dóri minn. Og það hefur ekkert með þína persónu eða þitt cool að gera. Norskan drepur allt.“ AF NETINU

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.