Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Blaðsíða 27
14.2. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Heimilisstíllinn einkennist mikið af hlutum meðsögu, úr áhugaverðum efnum og formum.Guðný segir heimilið jafnframt innblásið af
skandinavískri hönnun.
„Ef mér finnst eitthvað fallegt eða úr skemmtilegu
efni þá skiptir mig litlu máli hvaðan hluturinn kemur.
Svo finnst mér allt í lagi að þessir minni munir passi
kannski illa saman. Stærri mublur mynda fallega heild
en það er svo gaman að gæða heimilið lífi með litlum
skrautmunum,“ útskýrir Guðný, aðspurð hvað henni
þyki mikilvægast að huga að við innréttingu heimilisins.
Parið verslar mikið til heimilisins í Ilvu en einnig úr
Söstrene Grene og Ikea. „Svo er ég með eitthvað af
gömlum skólaverkefnum eða eldri munum sem ég hef
sankað að mér,“ bætir Guðný við.
Guðný fylgist vel með nýjustu straumum í innanhúss-
tískunni í gegnum vinnuna og sækir því innblástur mikið
í helstu tískustraumana. „Við fáum reglulega yfir árið
upplýsingar um hvað sé á döfinni hjá Ilvu í Danmörku en
einnig skoða ég mikið í gegnum Instagram eins og til
dæmis Bloomingville, Bröste, Hay og Northmodern.
Dett svo stundum inn í Pinterest af og til.“
Aðspurð hver sé eftirlætisstaður parsins á heimilinu
segir Guðný skrifborðshornið í miklu uppáhaldi. „Pabbi
fékk borðið í fermingargjöf árið 1969 og það er búið að
passa svo vel upp á það. Stóllinn er gamall eldhússtóll frá
foreldrum mínum sem ég gerði upp og málaði. Hund-
urinn okkar hefur nagað eina spýtuna í stólnum þegar
hann var hvolpur svo stóllinn varð „extra special“ þegar
ég sá það.“
Morgunblaðið/Eggert Heimilið er notalegt og er rauði liturinn frekar áberandi.
Skrifborðshornið er í miklu uppáhaldi. Myndirnar gerði Guðný sjálf.
Guðný og Kristján hafa komið sér vel
fyrir og vænta erfingja í byrjun mars.
Gæða heimilið lífi
með litlum
Guðný Pálsdóttir vöruhönnuður, sem starfar sem sölufulltrúi í Ilvu, og
Kristján Geirsson, nemi í tölvunarfræði og öryggisvörður hjá Securitas,
eiga litríkt og persónulegt heimili í Hlíðunum í Reykjavík.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
’
Ef mér finnst eitt-
hvað fallegt eða úr
skemmtilegu efni þá
skiptir mig litlu máli
hvaðan hluturinn kemur.
Parið segir gaman að gæða heimilið lífi með litlum skrautmunum.
NATUZZI EDITIONS
Einstakur leðursófi (B895).
Sófa: 245 x 100 x 88 cm
499.990 kr.
769.990 kr. 169.990 kr. 259.990 kr.
AU MAISON
Endurhannaðar 60 ára hand-
gerðar tyrkneskar mottur.
Stærð: 170 x 240 cm.
199.990 kr. 249.990 kr.
Stóll. Stærð: 97 x 100 x 88 cm