Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Page 37
14.2. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
hægt að setjast niður, fá sér góðan mat og
slappa af. Garðurinn er ekki síður skemmti-
legur þótt maður sé barnlaus og fullorðinn.
Loro Parque-dýragarðurinn á Puerto de
la Cruz á Teneríf er eitt mesta aðdráttarafl
staðarins. Sérstakt dálæti hafa gestir á górill-
unum sem eru ófeimnar við að sýna sig og
mörgæsirnar vekja líka mikla lukku. Í garð-
inum er einnig að finna afar falleg exótísk
blóm og tré sem sumum hverjum er
hægt að klifra í.
Í leiðinni er líka hægt að heim-
sækja vatnsrennibrautagarðinn
Siam Park sem nýtur mikilla
vinsælda.
Singapúrdýragarðurinn er
sá þriðji besti í heimi og þykir
guðdómlega fagur þar sem ferð
í gegnum hann er lýst eins og
safaríferð í villtum frumskógi.
Hægt er að eiga mikil samskipti við
dýrin og meðal annars borða morgun-
mat þar sem órangútanar sitja með þér til
borðs, eða hanga öllu heldur yfir manni. Dýra-
Hvað þarf skemmtilegur
dýragarður að hafa?
Fyrst og fremst fjölbreytt dýralíf og gott
pláss og atlæti fyrir dýr og fólk svo öllum líði
vel. Þeir eru óteljandi dýragarðarnir í heim-
inum en nokkrir skara fram úr. Tripadvisor
hefur safnað saman umsögnum notenda sinna
um dýragarða og þar tróna nokkrir á toppn-
um.
San Diego-dýragarðurinn í
Kaliforníu er í efsta sæti yf-
ir bestu dýragarða í
heiminum og með þeim
frægari. Dýragarð-
urinn er mjög stór en
afar vel skipulagður
og auðvelt að skipu-
leggja göngutúrinn
um garðinn út frá því
sem maður vill helst
skoða. Umhverfið er mjög
náttúrulegt og hægt að fá á til-
finninguna að maður gangi um
skóg þótt maður sé inni í miðri borg. Víða er
garðurinn er afar stór og hægt að eyða þess
vegna tveimur til þremur dögum í honum.
Þess má geta að af nærri 700 hlutum til að sjá
og gera í borginni er dýragarðurinn í 5. sæti
yfir þá alla.
Dýragarðurinn í Prag er eitt helsta að-
dráttarafl borgarinnar og ekki síður fallegur
að vetrarlagi. Búast má við því að vera sjö tíma
að fara í gegnum allan garðinn ef ferðalangar
vilja sjá meirihlutann en umhverfið er allt
mjög náttúrulegt og gangan því eins og að
vera úti í villtri náttúru. Garðurinn er fyrir ut-
an miðborgina en auðvelt er að komast þang-
að.
Dýragarðurinn Schönbrunn í Vín í Aust-
urríki er einn fágaðasti dýragarður heims, í
skrúðgarða- og blómahafsumhverfi.
Það þarf engan að undra að dýragarðurinn
skuli búa yfir klassískum sjarma því hann er
sá elsti í heimi og vel hægt að ímynda sér að
maður sé staddur á lystigöngu á 19. öld, í um-
hverfi Schönbrunn-hallargarðsins, en þó eru
dýrin sjálf á afar nútímalegu vistsvæði, stóru
og notalegu.
San Diego dýragarðurinn
er á efsta sæti yfir bestu
dýragarða í heiminum
samkvæmt Tripadvisor.
Stuð hjá höfrung-
unum á Tenerife.
Bestu dýra-
garðarnir
Það er ekkert foreldri með foreldrum
nema leiða börnin einhvern tímann
með sér í dýragarð. Notendur Trip-
advisor hafa skorið úr um hverjir eru
þeir bestu í heimi hér.
Tignarlegir flamengó-
fuglar í Vín.
Singapore dýragarðurinn er með ákaflega
skemmtilega órangúta.
Mörgæsir spóka sig um í dýragarðinum í Prag.
...með nútíma svalalokunumog sólstofum
Skútuvogur 10b, 104 Reykjavík
Sími 517 1417, glerogbrautir.is
Opið mánudaga-föstudaga frá 9-16
• Svalalokanir
• Glerveggir
• Gler
• Felliveggir
• Garðskálar
• Handrið
Við færumþér logn & blíðu