Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2016
FJÖLSKYLDAN Samtökin ’78 standa fyrir fjölskyldumorgnisunnudaginn 14. febrúar milli kl. 11 og 13.
Bækur og leikföng á staðnum.
Fjölskyldumorgunn
REYK JAV ÍK AKUREYR I
KristaDesign.is
ÍS
L
E
N
S
K
T
H
AN
DVERK
O
G
H
Ö
N
N
U
N
G
J
A
FAVARA OG SKA
RT
GR
IP
IR
strandgata 9 s: 588 0101Laugavegur 40 s: 588 0100
Veljum Íslenska Hönnun og Framleiðslu
www.systurogmakar.is
Fatnaður, Gjafavara og
Skart frá Volcano
og Krista Design.
Sjón er sögu ríkari !
Fleiri en eitt af hverjum níubörnum í Englandi hefur ekkistigið fæti í garð, skóg, strönd
eða annað náttúrulegt umhverfi í að
minnsta kosti tólf mánuði, sam-
kvæmt nýrri tveggja ára könnun
sem styrkt var af ríkisstjórninni.
Börn frá fátækari fjölskyldum og
frá svörtum og asískum fjölskyldum
eða öðrum minnihlutahópum eru
töluvert ólíklegri en hvít börn og
börn frá ríkari fjölskyldum til að
heimsækja græn svæði í borgum eða
náttúrusvæði utan þeirra.
Aðeins 56% barna sextán ára og
yngri úr fyrri hópnum heimsækir
grænt svæði að minnsta kosti einu
sinni á viku miðað við 74% úr seinni
hópnum.
„Það er skortur á fyrirmyndum,“
sagði útvarpsmaðurinn, rithöfund-
urinn og fuglaskoðarinn David
Lindo í samtali við Guardian um
þessar niðurstöður. Hann er sjálfur
svartur og hefur tekið eftir einhverri
aukningu á svörtum fuglaáhuga-
mönnum en segir þá fjölgun hafa
verið minni en hún ætti að hafa ver-
ið. „Í fjölmiðlum er náttúran sýnd
sem áhugamál hvíta fólksins.“
Eins og gefur að skilja hefur bú-
seta líka áhrif en börn í norðaust-
urhluta Englands höfðu besta að-
gengið að náttúrunni en 78% barna
þar heimsækir græn svæði einu
sinni í viku miðað við 62% í London.
Áhugi foreldra hefur líka mikið að
segja um hvort börn leiki sér úti í
náttúrunni. Á heimilum þar sem for-
eldrar hafa mikinn áhuga á nátt-
úrunni og sækja í þannig umhverfi
fylgdu 82% barna í fótspor foreldra
sinna. Á heimilum þar sem foreldrar
fara sjaldan eða aldrei út í náttúruna
var sambærileg tala 39% hjá börn-
unum.
„Vandamálið er ótti, pláss, tæknin
og tími og þau eru mismunandi eftir
því hvar þú ert í landinu,“ sagði Na-
talie Johnson hjá góðgerðarsamtök-
unum Wild Network. „Úti á landi
getur vandamálið verið hraðbrautir
á meðan sumir krakkar í stórborg-
um þurfa að horfast í augu við
gengjatengd vandamál.“
Hún segir að vandmálið sé líka til
staðar hjá miðstéttinni í úthverfun-
um og að foreldrar þurfi að gera sér
grein fyrir því að frjáls útileikur í
náttúrunni sé alveg eins mikilvegur
og frönskukennslan og ballett-
tímarnir.
Útileikur
mikilvægur
Foreldrar eru mikilvægar fyrirmyndir barna sinna hvað útiveru varðar rétt eins og annað. Samvera út er líka mikilvæg.
Getty Images/iStockphoto
Meira en 10% barna í Englandi hafa ekki leikið sér
úti í náttúrulegu umhverfi í heilt ár samkvæmt
nýrri þarlendri könnun.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Útgáfutónleikar í tilefni af
útgáfu bókarinnar og
geisladisksins Vísnagull –
Vísur og þulur fyrir börn í
fangi verða haldnir á Kex
hosteli sunnudaginn 14.
febrúar klukkan 13. Dag-
skráin er hluti af heimilislegum
sunnudögum, sem Kexið býður
barnafjölskyldum upp á.
Þarna ætti engum að leiðast því
yngstu börnin geta tekið þátt með
hjálp foreldra sinna, á sínum for-
sendum.
VÍSNAGULL Á KEX HOSTELI
Frá tónleikum á vegum Tónagulls í fyrra.
Tónleikar fyrir yngstu
börnin með foreldrum
Vísnagull inniheld-
ur 30 skemmtilegar
þulur og söngva fyrir
minnstu börnin, sígild-
ar perlur úr íslenskum
þjóðararfi. Bókin er
prýdd litríkum mál-
verkum eftir listakonuna
Mæju og tónlistin er unnin af Pétri
Ben. Dr. Helga Rut Guðmunds-
dóttir ritstýrði verkinu en hún er
jafnframt stofnandi Tónagulls,
sem eru námskeið fyrir ung börn
og foreldra þeirra.
Börn í dag eru mikið fyrir framan skjái af ýmsu
tagi og leika sér minna úti en foreldrar þeirra
gerðu. Hlutverk foreldra er að fara út með börnin
og byrja snemma. Lítil börn eru mjög áhugasöm
um umhverfi sitt og finnst gaman að skoða hluti og
verða skítug.
Foreldrar ættu að leyfa börnum sínum að klifra í
trjám. Breskar kannanir hafa leitt í ljós að um
helmingi þarlendra barna sé bannað að klifra í
trjám en tölfræði sýnir að þrisvar sinnum fleiri
börn enda á sjúkrahúsi eftir að hafa dottið fram úr
rúminu en úr trjám.
Byggið kofa saman úr trjágreinum. Það kennir
samvinnu, eflir ímyndunaraflið og sjálfstraust. Úti í
náttúrunni má síðan líka nota tímann til að safna
laufblöðum og skoða skordýr.
Leiðir til að fá börn út í náttúruna
Svona tréhús geta foreldrar og börn byggt saman úti í
náttúrunni úr trjágreinum sem falla til.