Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Qupperneq 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Qupperneq 40
TÆKNI 40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2016 Vísindamenn við Cornell-háskólann hafa komist að því hvernig hægt er að vinna rökræður á netinu. Lykilatriði eru langar færslur og að nota feitletrun og skáletrun til undirstrikunar. Þras á internetinu Sú var tíðin að hægt var að fá allskyns afbragðsmagnara íannarri hverri hljómtækjabúð á landinu. Hljómtækinhurfu þó í skuggann af annarri afþreyingu, áhuginn dvínaði, búðunum fækkaði og mögnurunum líka. Í kjölfarið fylgdu daprir dagar þar sem varla var hægt að finna magnara eða almennilega græjur yfirleitt nema búið væri að troða öllu í hálfgerðan skókassa sem hægt væri að fela í stofunni. Heima- bíóbyltingin breytti þessu – skyndilega var enginn maður með mönnum nema hann sáldraði hátölurum af ýmsum stærðum í stofuna hjá sér og tengdi við vinnuþjark sem keyrt gat allt batt- eríið og gott betur. Flestir áttuðu sig þó snemma á því að það er býsna flókið að setja heimabíó upp heima í stofu, það er ekki nóg að tengja fimm hátalara og bassabox (5.1) og halda að allt sé klárt. Heimabíókerfið getur verið allt frá tveimur há- tölurum upp í tugi, Dolby Atmos-heimabíó- staðallinn styður til að mynda allt að 34, en gott dæmi er 9.1.2 sem þrír að framan, sex til hliðar, framan og aftan við sófann, eitt bassabox og svo tveir í loftið (í 9.1.2 geta líka komið tveir hátalarar sem vísa upp í stað lofthátalara). Þá er hljóðið orðið býsna nálægt því sem heyra má í bíói á góðum stað, en getur verið snúið að setja upp og mjög snúið að setja rétt upp. Það er þó leyst býsna vel, reyndar á einkar snjallan hátt, í Denon AVR-X2200W-heimabíómagnaranum. Japanska fyrirtækið Denon var haft í hávegum forðum og er enn, enda hefur það framleitt afbragðstæki í fjölda ára. Eig- endasaga fyrirtækisins er venju fremur fjölbreytt, en í upphafi aldarinnar runnu Marantz og Denon saman í eitt fyrirtæki, þó merkin séu enn sjálfstæð. Á síðustu árum hefur Denon lagt höfuðáherslu á hljómtæki fyrir sjónvarpsáhorf, Blu-ray-spilara og heimabíómagnara, og líka kynnt ýmis þráðlaus tæki, sjá til að mynda HEOS- hátalaralínuna. Denon AVR-X2200W er gott dæmi um græju sem ætluð er í sjónvarpsherbergi eins og sjá má á minni mynd- inni þar sem tengjaröðin neðst á magnaranum er fyrir sur- round-afbrigði. Eins eru á honum átta HDMI-tengi fyrir leikja- tölvur, Blu-ray- og DVD-spilara, skjái og svo framvegis. Þess má geta að HDMI-tengin átta styðja öll HDR-efni og 4K streymi. Eitt það skemmtilegasta við magnarann er að með honum fylgir hljóðnemi og standur fyrir hljóðnemann (úr pappa) sem notaður er til að stilla hljóminn eftir rýminu. Hljóðneminn er tengdur magnaranum með snúru og síðan stillt upp þar sem slímuseturnar verða við viðtækið og síðan keyrir magnarinn hljóðprufu til að stilla rásirnar eftir rýminu (og lætur vita ef eitthvað er ekki eins og það á að vera, til að mynda ef hátalari er ekki í réttum fasa, eins og ég varð vitni að við prófun). Denon notar Audyssey til að stilla hljóminn af og virkaði einkar vel. Eins og sjá má er líka Ethernet-tengi á bakinu sem sýnir að ekki er bara verið að horfa á tækin í stofunni. Þannig er magn- arinn nettengdur í bak og fyrir, hægt að nota Ethernet-snúru, en líka þráðlaust net og þá streyma efni í hann af Spotify eða Pandora, nú eða hlusta á netútvarpsstöðvar að vild. Uppsetning á þráðlausu neti er einföld og fljótleg og svo er líka hægt að sýsla með magnarann í símanum með því að nota app fyrir Android eða iOS. Heimabíó í nýjum hæðum Það er ekki flókið að setja upp heimabíó í sjálfu sér; tengja hátalarana við magnar- ann og magnarann við sjónvarpið eða spilarann. Ef maður vill að það hljómi al- mennilega vandast málið – þá þarf græju eins og Denon AVR-X2200W. ’ Denon AVR-X2200W-heimabíómagnarinn skilar ekki bara fínum hljómi sem 7.2 magnari með 95 W á rás, heldur hjálpar hann líka til við að sníða heimabíóið inni í rými og stillir hátalarana eft- ir því sem við á. Svo styður hann helstu heimabíó- hljómstaðla eins og Dolby Atmos og DTS:X. AVR-X2200W kostar 119.000 kr. í Heimilistækjum. Græjan Árni Matthíasson arnim@mbl.is Notendafjöldi á Twitter hefur staðið í stað síðustu mánuði, í fyrsta skipti síðan sam- skiptamiðlinum var hleypt af stað. Fjöldi þeirra sem eru virkir notendur og nota miðilinn að minnsta kosti mánaðarlega hafa verið 320 milljónir alveg frá því í októ- ber og veldur þetta stofnanda síðunnar áhyggjum, að miðillinn hafi toppað sig. Miklar væntingar hafa verið bundnar við Twitter og að hann næði útbreiðslu um all- an heim en síðasta ár fóru fjárfestar að efast, ekki síst þegar framkvæmdastjóri Twitter til fimm ára, Dick Costolo hætti síðasta sumar. Þannig hafa hlutabréf í fyrirtækinu lækk- að, og tóku dýfu núna um 10% eftir að stöðnuð notkun á miðlinum var kunn- gjörð. Ýmsir netspekúlantar hafa samkvæmt tæknihluta The Telegraph sagt að aðdrátt- arafl Twitter sé ekki nógu mikið og það þurfi að gera vettvanginn aðgengilegri fyrir nýja notendur og meira aðlaðandi. Stjórnendur Twitter virðast sammála þessu og hafa hug á að gera bragarbót á ýmsu. Síðastliðinn miðvikudag var tilkynnt að Twitter myndi kynna nýja útgáfu af aðal- viðmóti síðunnar þannig að það væru ekki einungis nýjustu póstar sem birtust efst á fréttaveitunni heldur gætu vinsælar færslur hangið þar uppi sem „helstu færslur“ líkt og á Facebook. Það væri líka skemmtilegra fyrir þá sem skrifuðu hnyttnar færslur að þær dyttu ekki niður í svartholtið strax. Þetta virðist þó vera að falla misjafnlega í kramið hjá notendum, sem margir hverjir telja það einmitt vera það sem Twitter hef- ur fram yfir Facebook; að taka púlsinn á því sem er að gerast mínútu frá mínútu en hanga ekki á gömlum færslum. NOTENDAFJÖLDINN STENDUR Í STAÐ Hægir á Twitter Ekki eru allir á eitt sáttir með nýtt notendaviðmót á Twitter þar sem eldri vinsælar færslur fá að hanga efst í fréttaveitunni líkt og stillingarnar eru á fréttaveitu Facebook. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.