Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Blaðsíða 51
14.2. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
Unnur Sveinsdóttir og
Högni Páll Harðarson
á Stöðvarfirði.
BÓKSALA 3.-9. FEBRÚAR
Listinn er tekinn saman af Eymundsson.
1 Meira blóðJo Nesbø
2 Þrjár sekúndurRoslund og Hellström
3 Fimmta árstíðinMons Kallentoft
4 Tvöfalt glerHalldóra Thoroddsen
5 Íslenska litabókinGunnarsbörn
6 Létt og litríktNanna Rögnvaldardóttir
7 DauðaslóðinSara Blædel
8 Þýska húsiðArnaldur Indriðason
9 Stríðsárin 1938 - 1945Páll Baldvin Baldvinsson
10 Mamma klikk !Gunnar Helgason
1 Meira blóðJo Nesbø
2 Þrjár sekúndurRoslund og Hellström
3 Fimmta árstíðinMons Kallentoft
4 Tvöfalt glerHalldóra Thoroddsen
5 DauðaslóðinSara Blædel
6 Enginn venjulegurlesandi
Alan Bennett
7 Framúrskarandi vinkonaElena Ferrante
8 Spámennirnir íBotnleysufirði
Kim Leine
9 Konan í blokkinniJónína Leósdóttir
10 MýrinArnaldur Indriðason
Allar bækur
Íslenskar kiljur
UPPÁHALDS BÓKIN
Þegar sjöunda og síðasta Harry
Potter-bókin kom út sagði Joanne
Rowling ítrekað að bækurnar um
Harry yrðu ekki fleiri. Hún hefur
þó séð að sér því ný Harry Potter-
bók kemur út í sumar og er þegar
orðin metsölubók.
Bókin, sem heita mun Harry
Potter and the Cursed Child, bygg-
ist á samnefnu leikriti sem frum-
sýnt verður í Lundúnum 30. júní,
en bókina verður hægt að kaupa
einni mínútu eftir miðnætti að-
faranótt 1. júlí. Líklegt er að bóka-
verslanir víða um heim verði opn-
aðar um miðnætti á hverjum stað
til að selja bækurnar, eins og tíðk-
aðist með fyrri bækur um galdra-
strákinn, en eins og getið er er
hún þegar orðin metsölubók, situr
í efsta sæti Amazon vestan hafs og
austan og eins hjá Waterstones.
Hún veður aðeins föl í takmark-
aðan tíma að sögn útgefanda,
Söguþráðurinn er sá að Harry
Potter, fullorðinn þriggja barna
faðir, starfar í galdramálaráðu-
neytinu og glímir við fortíðina.
J.K. Rowling, eða bara Joanne Rowling, er ekki laus við Harry Potter.
Meiri Harry Potter
METSÖLUBÓK
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Cuero Mariposa
Hönnuðir: Bonet, Kurchan & Ferrari
Hannaður 1938
Leður verð 169.000,-
Íslenskt lambaskinn
verð 199.000,-
Síðustu dagar Só-
kratesar eftir Plat-
ón er verkið sem
breytti lífi mínu.
Bókstaflega allt
heillaði mig við
þennan texta sem
birti mynd af per-
sónu sem lifði óvenjulegu lífi í
Aþenuborg og var dæmd til dauða
árið 399 f.Kr. Platón skrifaði og
túlkaði málsvörn Sókratesar og
bækurnar Kríton og Faídon þar
sem fjallað var um rétt og rangt og
gott og vont og lífið og dauðann á
áhrifaríkan hátt. Þarna birtust mér
hugtök og siðfræði sem voru þegar
áhrifaríkir þættir í hugsun minni
án þess að ég hefði hugmynd um
það. Ég sannfærðist um að þetta sé
manni best af öllu „að iðka daglega
samræður um dyggðina og reyna
bæði sjálfan sig og aðra, og órann-
sakað líf sé einskis virði“. Síðar fór
ég í gegnum bókina orð fyrir orð
með samnemendum mínum undir
leiðsögn Þorsteins Gylfasonar
heimspekings. Þarna lærði ég
kennsluaðferðina sem felst í því að
lokka lærdóminn upp úr nemend-
um. Loks kenndi ég bókina í nokk-
ur ár í framhaldsskólum og vitna
enn í hana í eigin bókarskrifum. Só-
krates sagði eitthvað á þessa leið:
„Það eina sem ég veit er það að ég
veit ekki neitt.“
Morgunblaðið/Ómar
Gunnar
Hersveinn