Morgunblaðið - 04.03.2016, Page 2

Morgunblaðið - 04.03.2016, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARS 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Stefán Einar Stefánsson hef- ur verið ráðinn aðstoðar- fréttastjóri á viðskiptarit- stjórn Morg- unblaðsins. Stefán hefur starfað á Morgunblaðinu undanfarið ár en hann var formaður VR og Landssambands íslenskra versl- unarmanna á árunum 2011-2013. Auk þess hefur hann meðal annars sinnt kennslu við Háskól- ann í Reykjavík, Háskóla Íslands og Opna háskólann. Stefán er með meistaragráðu í viðskiptasið- fræði frá Háskóla Íslands og cand.theol.-próf frá sama skóla. Með ráðningu aðstoðarfrétta- stjóra hyggst Morgunblaðið leggja enn frekari áherslu á öfl- uga umfjöllun um viðskipti. Fréttastjóri viðskipta er Sig- urður Nordal. Ráðinn aðstoðar- fréttastjóri viðskipta Stefán Einar Stefánsson Maðurinn sem slas- aðist alvarlega í vinnuslysi í gömlu áburðarverk- smiðjunni í Gufu- nesi á fimmtudag í síðustu viku, þegar fiskikör féllu yfir hann, er látinn. Hann hét Jóhann Svanur Júlíusson, fæddur 20. ágúst 1987 og lætur eftir sig konu og rúm- lega eins árs dóttur. Jóhann Svanur hafði starfað í rúm sex ár hjá Íslenska gámafélaginu, sem hefur höfuðstöðvar sínar og margvíslega starfsemi í Gufunesi. Lést eftir vinnu- slys í Gufunesi Jóhann Svanur Júlíusson Undanfarið hefur staðið yfir mikið ættarmót og álfta- þing við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi. Þátttakendur á þinginu reyndust vera 32 við talningu. Hinn hraustlegi maki Svandísar varð bráðkvaddur í fyrrahaust. Fugla- áhugamenn bíða þess nú með öndina í hálsinum hvort Svandís velji sér nýjan maka á ættarþinginu eða hvort nýtt par taki völdin á Bakkatjörn þegar kemur að varp- tíma í vor. Hér er Svandís í forgrunni á ættarþinginu. Fuglaáhugamenn fylgjast spenntir með því hvað Svandís gerir Morgunblaðið/Ómar Ættarmót og álftaþing á Bakkatjörn Kristjan Stefanson, hæstaréttardómari í Winnipeg í Kanada, andaðist á Grase- spítalanum í Winnipeg þriðjudaginn 2. mars síðastliðinn. Kristjan eða Kris, eins og hann var gjarn- an nefndur, fæddist í Eriksdale í Manitoba 14. maí 1944 og var því á 72. aldursári. For- eldrar hans voru Ei- ríkur Stefánsson, þing- maður íhaldsmanna á kanadíska þinginu 1958 til 1968, og Sigrún Sigfúsdóttir (Stefanson, áður Sigurdson). Foreldrar Eiríks voru Kristján Stefánsson (f. 1873) frá Undirvegg í Kelduhverfi og Rann- veig Eiríksdóttir (f. 1877) frá Hræ- rekslæk í Hróarstungu í Norður- Múlasýslu. Foreldrar Sigrúnar voru Sigfús Sigurðsson (f. 1874) frá Klömbrum í Reykjadal og Sigurlaug Jónsdóttir Frímanns Sigurdson (f. 1878) frá Ási í Kelduhverfi. Eiríkur og Sigrún eignuðust fjóra syni, Dennis, sem lést 2010, Tom, Kris og Eric. Kris ólst upp á Gimli. Hann lauk laganámi við Manitoba-háskóla 1969, var saksóknari í Manitoba frá 1973-1993 og hæstaréttardómari (Court of Queen’s Bench) frá 1993. Bræðurnir Kris og Eric Stefanson, fyrr- verandi ráðherra í Manitoba, unnu að því að styrkja tengsl Mani- toba við Ísland frá 1984 og heimsóttu Ísland saman í þeim tilgangi yfir 40 sinnum. Kris var í móttökunefnd Íslend- ingadagsins á Gimli í um 40 ár og þar af sem formaður í nær þrjá áratugi. Sem slíkur tók hann á móti öllum sérstökum gest- um frá Íslandi, greiddi götu þeirra og hélt þeim og öðrum gestum sér- staka veislu í lok hátíðar á eigin kostnað. Fyrir tveimur árum heiðr- aði Íslendingadagsnefnd hann fyrir að hafa unnið manna mest í þágu vestur-íslenska samfélagsins í Mani- toba í tengslum við samskipti þess við Ísland og útnefndi hann heið- ursfélaga Íslendingadagsnefndar. Kris var ókvæntur og barnlaus. Haldið verður upp á líf Kris á Fairmont-hótelinu í Winnipeg kl. 17- 19 fimmtudaginn 10. mars 2016. Andlát Kristjan Stefanson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er auðvitað mikill sigur fyrir umbjóðendur mína. Dómurinn stað- festir endanlega þá meginreglu að það er óheimilt að skilja veiðirétt frá bújörð,“ segir Guðjón Ármannsson, lögmaður eigenda jarðarinnar Lambhaga í Rangárþingi ytra. Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Suðurlands um að óheimilt hafi verið að semja um að veiðiréttur í Eystri-Rangá fylgdi spildu sem seld var út úr jörðinni á árinu 1928. Fleiri dæmi eru um slíka samninga en ekki er vitað hversu víðtæk áhrif dómsins geta orðið. Keyptu spildu með veiðirétti Eigendur jarðarinnar Langanes- mela höfðuðu mál á hendur eigend- um bújarðarinnar Lambhaga til þess að fá viðurkennt að þau ættu veiði- rétt fyrir landi jarðar sinnar í Eystri-Rangá. Þegar þáverandi eig- Veiðiréttur ekki skilinn frá jörð  Kaupsamningur um landspildu með veiðirétti frá 1928 samrýmdist ekki lögum samkvæmt dómi Hæstaréttar  Eigendur bújarðar fengu ekki arð af Eystri-Rangá Morgunblaðið/Einar Falur Laxveiði Vænum fiski landað í Ármótahyl í Eystri-Rangá. andi Lambhaga seldi spilduna út úr jörðinni á árinu 1928 var tiltekið að „öll veiði á landspildunni, bæði til lands og vatns, fylgir með í kaup- unum“. Eigendur Langanesmela vísuðu einnig til þess að þau ættu jörð að straumvatni og ættu því veiðirétt samkvæmt þeirri fornu reglu í íslenskum lögum að eignar- haldi á landi fylgdi réttur til veiði. Núverandi eigendur Lambhaga mótmæltu kröfunni með vísan til þess að þágildandi löggjöf hefði lagt bann við að skilja veiðirétt frá land- areign og hefði orðalagið um veiði- rétt í kaupsamningi ekki getað haft gildi. Héraðsdómur taldi að veiði- réttarákvæðið í kaupsamningnum hefði ekki samrýmst þágildandi lög- um um takmörkun á aðskilnaði veiði- réttar við landareign og staðfesti Hæstiréttur þá niðurstöðu í gær. Hlunnfarnir um veiðiarð Ágreiningur um veiðiréttinn kom ekki upp fyrr en eftir að Eystri- Rangá varð að verðmætri laxveiðiá um síðustu aldamót. Guðjón Ár- mannsson, lögmaður eigenda Lamb- haga, vekur athygli á því að Veiði- félag Eystri-Rangár hafi á sínum tíma ákveðið að sniðganga sína eigin arðskrá. „Liggur fyrir að umbjóð- endur mínir voru hlunnfarnir um veiðiarð í samfellt 16 ár. Eigendur frístundalóðarinnar fengu hins veg- ar arð svo árum skipti þrátt fyrir að vera hvorki aðilar að veiðifélaginu né eiga rétt á arði samkvæmt arðskrá.“ Hann bætir við: „Þá liggur fyrir að veiðifélagið greiddi hluta málskostn- aðar eigenda frístundalóðarinnar. Fiskistofa hefur þegar úrskurðað að sú ákvörðun var ólögmæt.“ Ljóst er að sambærilegir samn- ingar um veiðirétt sem gerðir hafa verið fram til ársins 2006 hafa ekki gildi að þessu leyti. Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga, segir líklegt að þar sem svipaðir hlutir eru uppi hafi dómurinn fordæmisgildi. Sambandið hafi ekki yfirlit yfir það hversu víða það geti verið. Sveinn Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Landssambands sumarhúsaeig- enda, hafði áhyggjur af málinu þegar fjallað var um dóm hér- aðsdóms: „Þetta gæti haft það í för með sér að fólk sem hefur lóðir, sem teknar voru út úr lög- býlum á fyrrnefndu árabili, á leigu eða hefur keypt þær þurfi nú að semja við veiðiréttarhafa um heimild til veiða. Það er ein- kennileg staða fyrir fólk sem fram til þessa tíma hefur talið sig eiga réttinn [...]“ Óljós fjöldi eins mála FORDÆMISGILDI DÓMSINS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.