Morgunblaðið - 04.03.2016, Side 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARS 2016
✝ Jón ÞorbjörnEinarsson
fæddist á Vest-
urvallagötu 7 í
Reykjavík 30.
ágúst 1926. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 24. febr-
úar 2016.
Foreldrar hans
voru Einar Guð-
mundsson verka-
maður í Reykjavík, f. í Eyði-
sandvík í Sandvíkurhreppi 12.
nóvember 1893, d. 9. október
1984, og Guðbjörg Jónsdóttir
húsmóðir, f. á Eystri-Loftsstöð-
um í Gaulverjabæ 22. ágúst
1891, d. 18. janúar 1982. Systk-
ini Jóns Þorbjarnar: Guð-
mundur, f. 25. desember 1924,
Haraldur, f. 8. ágúst 1927, d. 13.
júní 2007, og Sigríður, f. 28. maí
1932. Þann 16. júní 1951 kvænt-
ist Jón Þorbjörn Gyðu Áskels-
dóttur frá Hrísey, f. 10.5. 1933,
d. 28.6. 2014. Þau eignuðust
fjögur börn. 1. Guðbjörg Jóns-
dóttir, f. 1950, d. 1951. 2. Guð-
mundur Jónsson, f. 1952. Eig-
inkona hans er Lilja Guðrún
Halldórsdóttir, f. 1954. Börn
þeirra eru Jón Halldór, f. 1971,
Helgi Valsson, f. 1991. Árið
1950 hófu Jón Þorbjörn og
Gyða búskap að Vesturvalla-
götu 7 í Reykjavík. Árið 1959
fluttu þau í nýbyggt hús sitt að
Selbrekku 6 í Kópavogi, þar
sem þau bjuggu allt til ársins
1985, þegar þau fluttu að
Laugateigi 7 í Reykjavík. Að
síðustu fluttu þau í íbúð sína að
Mánatúni 4 í Reykjavík árið
2002.
Jón Þorbjörn ólst upp á Vest-
urvallagötu 7 í vesturbæ
Reykjavíkur. Hann var í sveit á
Krossi í Austur-Landeyjum sem
unglingur, stundaði nám við
Miðbæjarskólann og Iðnskólann
í Reykjavík þar sem hann lærði
málaraiðn. Hann starfaði sem
málari og málarameistari
stærstan hluta starfsævinnar en
lauk starfsferlinum sem hús-
vörður í íþróttahúsi Hlíðaskóla í
Reykjavík, þar sem hann starf-
aði í um áratug. Áhugamál
Bjössa, eins og hann var jafnan
kallaður, og Gyðu voru garð-
rækt meðan þau bjuggu í Sel-
brekkunni, og ferðalög innan-
lands og utan. Hann var áhuga-
maður um ljósmyndun og
veiðar. Hann hafði mikinn
áhuga á íþróttum, sérstaklega
knattspyrnu en hann var KR-
ingur í gegn og liðið hans í
enska boltanum var Liverpool.
Útför Jóns Þorbjarnar fer
fram í Kópavogskirkju í dag, 4.
mars 2016, og hefst athöfnin kl.
13.
og Lilja, f. 1976.
Jón Halldór er
kvæntur Kolbrúnu
Eddu Gísladóttur,
f. 1978. Sonur
þeirra er Aron
Fannar. Dóttir Kol-
brúnar Eddu er
Hafdís Hera. Dæt-
ur Jóns Halldórs
eru Alexandra Dís,
sambýlismaður
hennar er Arnar
Imsland, og Bergrós Lilja. Lilja
er gift Haraldi Kolka Leifssyni,
f. 1976. Synir þeirra eru Leifur
Kolka og Guðmundur Kolka. 3.
Guðbjörg Jónsdóttir, f. 1954.
Dóttir hennar er Gyða Magn-
úsdóttir, f. 1976. Sambýlis-
maður hennar er Jan Arentoft.
Sonur þeirra er Teitur Magnús.
Faðir Gyðu er Magnús Magn-
ússon, f. 1952. 4. Sigríður Krist-
ín Jónsdóttir, f. 1962. Eiginmað-
ur hennar er Oddur
Hallgrímsson, f. 1960. Börn
þeirra eru: Matthea, f. 1983, gift
Halldóri Oddssyni, f. 1983. Börn
þeirra eru Skarphéðinn og Silfá
Helga. Hallgrímur, f. 1987, gift-
ur Ásdísi Ólafsdóttur, f. 1989,
og Guðbjörg, f. 1990. Sambýlis-
maður hennar er Þorsteinn
Elskulegur pabbi minn er
sofnaður svefninum langa. Hann
trúði á æðri mátt og hann trúði
því að hann myndi hitta mömmu
í eilífðinni. Það var gott að
kveðja hann. Hann var sáttur
við Guð og menn og hann var
saddur lífdaga.
Pabba var alltaf mikið í mun
að fólkið hans hefði það sem
allra best. Hann fylgdist með
ungum sem öldnum í fjölskyld-
unni og notaði allar mögulegar
leiðir til þess – hann fór í heim-
sóknir, hann tók upp símann,
hann ræddi daginn og veginn og
málefni líðandi stundar, fylgdist
vel með pólitíkinni og íþrótt-
unum og ræddi gengi sinna liða.
Sjálfur hélt hann með KR og
Liverpool en hann hélt líka með
þeim liðum sem barnabörnin og
barnabarnabörnin spiluðu með á
hverjum tíma. Hann missti helst
ekki af fréttatímum og las
fréttablöðin upp til agna, hann
hafði óskaplega gaman af því að
spjalla og skiptast á skoðunum.
Hann var skýr og vel með á nót-
unum alveg fram á síðasta dag.
Til að vera í sem bestum
tengslum við alla í fjölskyldunni,
líka barnabörnin sem flutt voru
út á land eða til útlanda, notaði
hann Facebook og Skype. Hann
var óhræddur að tileinka sér
nýjungar og nýtti barnabörnin
óspart til að leiðbeina sér og
uppfræða.
Nú þegar ég hef kvatt báða
foreldra mína með stuttu milli-
bili þá minnist ég æsku minnar
með mikilli hlýju. Ég þakka fyr-
ir ástina, gleðina og öryggið
sem ríkti og það veganesti sem
fylgdi mér út í lífið. Pabbi var af
gamla skólanum: Vinna er
dyggð, hann var samviskusam-
ur, duglegur og hann vann mik-
ið. Hann var fyrirvinna heimilis-
ins og mamma hugsaði um
heimilið og okkur krakkana.
Þannig var uppeldinu og heim-
ilislífinu háttað í þá daga.
Á dánarbeðinum var pabbi
samur við sig. Hann vildi að all-
ir hefðu það sem allra, allra
best, hann lagði okkur systk-
inunum lífsreglurnar og kvaddi
okkur fallega. Já, elsku pabbi,
„þetta er allt eins og það á að
vera“.
Hvíl í friði og takk fyrir allt
og allt.
Þín dóttir,
Sigríður (Sigga).
Hann afi minn er fallinn frá,
afi Bjössi eins og hann var alltaf
kallaður. Ég var svo heppinn að
búa fyrstu ár ævi minnar heima
hjá afa og ömmu í Selbrekk-
unni, meðan mamma og pabbi
voru að byggja sér hreiður í
Kjarrhólmanum. Ég var mikill
morgunhani í þá daga og oftar
en ekki var það svo að afi fór
með mér á fætur. Eitt af okkar
fyrstu morgunverkum var að fá
okkur lýsi af stút. Morgunmat-
urinn var oftar en ekki ristað
brauð með miklu smjöri og
marmelaði. Það var alltaf gam-
an að vera í kringum afa, hann
hafði alltaf skemmtilegar sögur
að segja af sjálfum sér þegar
hann var ungur. Sátum við tím-
unum saman þegar hann sagði
sögur og dreymdi mig um að ég
hefði líka verið til í gamla daga.
Einhvern tímann sagði hann
mér sögu af því þegar breski
herinn hafði hernumið Ísland,
þá var hann að leika sér með
loftriffil og á því augnabliki
flaug bresk sprengjuflugvél
fyrir ofan hann, ekki vantaði
kjarkinn í hann því hann miðaði
á flugvélina og skaut. Viti
menn, það byrjaði að rjúka úr
flugvélinni og afi hjóp skömm-
ustulegur eins og fætur toguðu
heim, ekki fylgdi sögunni hvort
vélin hrapaði eður ei.
Ég var mikill heimalningur
hjá afa og ömmu eftir að
mamma, pabbi og ég fluttum í
Kjarrhólmann. Alltaf var ég
boðinn og búinn að hjálpa afa
og ömmu með hvaðeina og
snemma byrjaði ég að slá garð-
inn í Selbrekkunni, ég hjálpaði
til við að mála húsið og svo man
ég eftir einni ferð sem við afi
fórum austur á Eyrarbakka til
að sækja stóla sem höfðu verið
í yfirdekkingu. Við ókum aust-
ur og sóttum sex stóla, ekki var
fyrir nútímaöryggi að fara í bíl-
um þá því ég sat einhvern veg-
inn innan um alla stólana í aft-
ursætinu.
Þær eru óteljandi minning-
arnar sem ég á með honum afa
mínum, en hann hefur alltaf
verið mér stoð og stytta í lífinu
og hef ég tekið hann sem mína
stóru fyrirmynd um hvernig
maður skal koma fram og hvað
er mikilvægast í lífinu. Sam-
band okkar hefur alltaf verið
náið í gegnum árin, þó að him-
inn og höf hafi aðskilið okkur
töluðum við alltaf saman í síma
og þegar afi tölvuvæddist töl-
uðum við oft saman á Skype.
Nú undir það síðasta þegar
hann var inni á spítalanum
ræddum við saman í síma og
var afi með allt á hreinu hvað
var að gerast í boltanum og
gegndi einu um hvort það væri
fótbolti eða handbolti innan-
lands eða á heimsvísu. Okkar
síðasta símtal var skömmu áð-
ur en hann fór inn á líknar-
deildina, þá fékk ég hann til að
reka upp stóra hlátursroku
þegar ég sagði honum frá því
að Aron Fannar vildi að ég
spyrði langafa hvernig Eiríkur
rauði hefði litið út, þeir voru
nefnilega báðir til í gamla
daga. Það var alltaf stutt í
húmorinn hjá afa og sé ég
hann enn þann dag í dag þegar
hann rekur upp eina af sínum
hlátursrokum svo sést niður í
vélinda á honum og hann slær
sér á læri.
Ég er þakklátur fyrir hann
afa minn og allt það sem við
áttum saman og kveð ég þig
með miklum söknuði. Ég veit
að þér líður vel núna, því þú
ert kominn til ömmu Gyðu eins
og þú varst orðinn tilbúinn til
fyrir all nokkru.
Ég bið algóðan Guð að
geyma þig.
Þinn vinur,
Jón Halldór.
Afi Bjössi hafði þétt hand-
tak, sérstaklega þegar hann
kvaddi og þakkaði fyrir sam-
veruna eftir góða heimsókn til
þeirra ömmu og afa. Þá tók
hann um þétt um hönd mína
með báðum sínum. Minningar
mínar um afa eru fyrst og
fremst frá þessum góðu sam-
verustundum þar sem við
borðuðum ís með súkkulaðis-
pæni, töluðum lengi, hlógum
mikið, sögðum sögur úr hvers-
deginum og gerðum góðlátlegt
grín að sjálfum okkur og
stundum öðrum líka. Afi var
skarpur og áhugasamur, bæði
um okkur afkomendur sína og
samtímann, og það var fátt
sem við gátum ekki rætt. Oft-
ast vorum við þó sammála og
ræddum um það sem okkur
þótti báðum skemmtilegt, allt
frá sundlaugum til stjórnmála.
Afi er mér áfram, sem hingað
til, góð fyrirmynd. Það er
þannig sem ég minnist afa
míns.
Matthea Oddsdóttir.
Það kemur margt upp í hug-
ann, nú þegar ég rifja upp
minningar um afa Bjössa. Við
höfum svo lengi rætt þjóð-
félagsmálin, íþróttir og bæði
gamla og nýja tíma.
Um tíu og tólf ára aldurinn
gisti ég stundum hjá afa og
ömmu Gyðu á Laugateignum.
Þar fékk ég að gista inni í stofu
og vaka eftir íþróttaviðburðum,
stórum boxbardögum og úr-
slitaleikjum í körfubolta. Og þó
ég næði ekki að vaka svo lengi
að ég sæi Tyson bíta Holyfield,
þá var það ekkert aðalatriði.
Við afi ræddum þetta allt og
horfðum bara daginn eftir,
ásamt sundferð, sem voru tíðar,
og pútti í Laugardalnum.
Eftir því sem ég varð eldri
urðu pólitík og samfélagsmálin
meðal sameiginlegra áhuga-
mála okkar afa, í bland við
sportið. Afi hafði skoðanir og
ræddi málin af yfirvegun og
samtíminn var settur í sam-
hengi við fyrri tíma. Þegar ég
var um 18 ára tók ég viðtal við
afa um uppvaxtarár hans.
Verkefnið var í tengslum við
söguáfanga sem ég tók í MH.
Afi sagði mér þá frá því þegar
hann vann sem unglingur sem
sendill, uppvaxtarárunum í
Vesturbænum og málaravinn-
unni. Í dag þykir mér afskap-
lega vænt um þetta skólaverk-
efni.
Afi var fljótur að tileinka sér
nýjustu tækni, hver sem hún
var á hverjum tíma: Sjónvörp,
farsímar, stafrænar myndavél-
ar, dvd-tæki, tölvur, Skype og
Facebook. Hann var með á nót-
unum og nýtti sér áhuga og
kunnáttu, bæði mína og ann-
arra yngri fjölskyldumeðlima,
til þess að fullnýta tækin og
uppfæra eftir því sem tækninni
fleygði fram.
Þegar ég hugsa til persónu-
einkenna afa þá kemur eitt orð
fyrst í hugann. Afi var húm-
oristi. Hann var ótrúlega
skemmtilegur, afskaplega
hnyttinn, sagði marga brandara
og hló oftar en ekki fyrstur
manna að eigin glensi. Hvernig
var annað hægt, brandararnir
voru stórfyndnir og hláturinn
bráðsmitandi.
Ég kveð afa Bjössa með
söknuði og hugsa hlýlega til
stundanna sem ég átti með
honum og ömmu Gyðu.
Hallgrímur Oddsson.
Nú minnist ég afa Bjössa
sem alltaf var svo hreinn og
beinn. Hann hugsaði sig vel um
áður en hann framkvæmdi og
sagði ekki endilega allt sem
hann hugsaði, en það sem hann
sagði hitti ávallt beint í mark.
Afi var svo ráðagóður, sá lausn-
ir í öllu og hlustaði gaumgæfi-
lega á mann tala um lífið og til-
veruna. Við afa var hægt að
ræða svo margt, hann sýndi því
áhuga sem maður tók sér fyrir
hendur og sagði manni sögur
frá því í gamla daga. Honum
fannst líka fátt skemmtilegra
en að tala um fótbolta og leit ég
mikið upp til afa míns, KR-
ingsins og Liverpool-aðdáand-
ans. Liverpool varð mitt lið því
afi hélt með því og síðar keypti
ég mér, ÍR-ingurinn sjálfur,
KR-búning. Það má segja að
KR-buxurnar hafi passað vel
við ÍR-treyjuna enda var afa
mikið í mun að vita hvernig lið-
inu mínu gengi, jafnvel þótt við
hefðum unnið KR.
Nú þegar ég hugsa til allra
góðu stundanna sem við afi átt-
um saman minnist ég þess hve
glaðlyndur hann var. Það var
alltaf svo bjart yfir afa, hann
var hnyttinn og fyndinn. Í
margmenni átti hann það til að
halla sér að næsta manni og
hvísla einhverju fyndnu í eyrað
á honum. Það var þá alltaf eitt-
hvað sem skildi eftir sig hlátra-
sköll og bros á vör.
En það er einmitt þannig
sem ég hugsa til afa á þessum
erfiðu tímum, með bros á vör
en á sama tíma með miklum
söknuði.
Elsku afi minn, ég held
áfram að líta upp til þín og til-
einka mér glaðlynt lífsviðhorf
þitt. Hvíldu í friði.
Þitt barnabarn,
Guðbjörg Oddsdóttir.
Mér hlotnaðist sú gæfa í líf-
inu að eiga ömmu Gyðu og afa
Bjössa þar til ég var komin fast
að fertugu. Amma kvaddi okkur
28. júní 2014 og afi fór að hitta
Gyðu sína, eins og hann sjálfur
orðaði það, 24. febrúar síðast-
liðinn.
Afi var með létta lund og var
yfirleitt stutt í brosið hans.
Hann hló einnig mest að eigin
bröndurum sem gerði það að
verkum að allir hlógu með. Afi
var heiðarlegur og reglusamur.
Eiginleikar sem ég hef reynt að
tileinka mér í lífinu. Hann var
af gamla skólanum og mátti
ekki vamm sitt vita.
Afi var mjög næmur maður
og berdreyminn. Það var oft
sem ég spurði afa hvort hann
hefði dreymt eitthvað sem var í
frásögur færandi. Eftir að
amma fór fékk ég iðulega
fregnir sem hlýjuðu mér um
hjartaræturnar. Einnig fór ég
með ófáa drauma til afa sem
hann réð.
Amma bjó yfir sannri ró og
þolinmæði. Hún hlustaði meira
en hún talaði og það sem hún
sagði voru hnitmiðaðir gullmol-
ar og oft á tíðum með gam-
ansömu ívafi. Eiginleiki hennar
til að hlusta og gefa góð og
hreinskilin ráð var aðdáunar-
verður. Ég á margar minningar
þar sem við amma erum að
spjalla við eldhúsborðið. Rétt-
ara sagt, ég talaði og amma
hlustaði. Hún heyrði það sem
ég var að segja og það kunni ég
vel að meta.
Ég fékk nafnið hennar ömmu
í skírnargjöf. Ég var Gyða litla
og amma var Gyða stóra, einnig
eftir að ég var orðin hærri en
amma. Á unglingsárunum ósk-
aði ég þess að heita einhverju
tískunafni en það tímabil leið
fljótt hjá og við tók væntum-
þykja til Gyðu-nafnsins. Amma
var hlý og sterk kona og ég er
stolt af að bera nafn hennar.
Bæði amma og afi bjuggu yf-
ir þeim dásamlega eiginleika að
vera til staðar í núinu. Þau
horfðu í augun á okkur og
hlustuðu áhugasöm. Meðal
minna dýrmætustu minninga er
þegar þau voru að segja frá
gömlum tímum. Afi sagði glað-
ur frá á meðan amma þurfti
meiri hvatningu en bæði mundu
þau ótrúlegustu smáatriði úr
fortíð sinni. Þau fylgdust einnig
vel með samtímanum í gegnum
fjölmiðla.Til dæmis gat ég flett
upp í afa eins og bestu alfræði-
orðabók. Þetta fannst mér
áhugavert, skemmtilegt og lær-
dómsríkt.
Nú er löngu og hamingju-
sömu lífi ömmu og afa lokið hér
á jörð og ég trúi því að þau hafi
hist á ný. Þau hafa hvort um
sig og saman kennt mér margt
um lífið og tilveruna. Ég er
þeim afar þakklát og þau munu
lifa áfram í hjarta mínu ásamt
öllum góðu minningunum. Guð
blessi ykkur,
Gyða litla.
Jón Þorbjörn
Einarsson
✝ Sigurður B.Þorbjörnsson
fæddist 9. maí
1927 í Svefneyjum.
Hann lést 28. jan-
úar 2016.
Sigurður var
sonur hjónanna
Þorbjörns Guð-
mundssonar og
Guðrúnar
Þorbjargar Krist-
jánsdóttur. Guðrún
lést eftir fæðingu Sigurðar 19.
október sama ár. Þorbjörn lést
1. desember sama ár úr
lungnabólgu. Sigurður átti einn
albróður, Albert, f. 23. maí
1925, d. 23. mars 1998, og sjö
hálfsystkini samfeðra sem öll
eru látin. Þeir bræður voru
teknir í fóstur til hjónanna
Þórólfs Jónssonar og Sigríðar
fyrsta barn þeirra og fékk hún
nafnið Steinunn, í höfuðið á
Þorsteini bróður Ástu sem
fórst í flugslysi í janúar 1951
með Glitfaxa. Þann 19. október
1951 gifta þau sig og 1952 flyt-
ur fjölskyldan til Eyja, 1953
fæðist Hrefna og ári seinna
Sigurþór, síðan Stefán 1957.
Fjölskyldan bjó lengst af á
Stóru löndum við Landagötu
11. Sigurður starfaði í Fiskiðj-
unni sem verkstjóri. Árið 1961
flytja þau aftur til Reykjavíkur
og er þá Guðríður, yngsta
barnið þeirra, fædd, 1960. Þau
kaupa sér hús í Skerjafirði,
Einarsnes 66. Hann vann alla
tíð sem badermaður í frysti-
húsum sem verkstjóri. Árið
1972 flytja þau að Laug-
arnesvegi 94, síðan Álftamýri
32 og svo Langholtsvegi 32.
Síðustu árin bjuggu þau á
hjúkrunarheimilinu Eirborgum
í Grafarvogi. Barnabörnin eru
14 samtals og barna-
barnabörnin eru 29.
Útför Sigurðar fór fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Valgeirsdóttur í
Fjarðarhorni í
Gufudalssveit og
ólst hann þar upp
ásamt þremur
dætrum þeirra og
Albert bróður sín-
um. Á unglings-
árum var hann tvö
sumur sem vinnu-
maður á Kinnar-
stöðum í sömu
sveit, 17 ára fékk
hann vinnu við að fylgja fólki
yfir Þorskafjarðarheiði og 19
ára fer hann til Reykjavíkur.
Hann leitaði fyrst á Eyrina áð-
ur en hann fékk vinnu við salt-
fiskverkun. Árið 1949 kynnist
Sigurður Ástu Stefánsdóttur,
fædd 1927, ættuð úr Vest-
mannaeyjum. Þau hófu búskap
á Nesvegi 33. Árið 1950 fæðist
Elsku pabbi minn, andlát þitt
var skyndilegt og orð fá ekki lýst
hversu mikil sorg og söknuður
býr í brjósti mér.
Ég hefði ekki getað fengið
betri föður en þig.
Degi eftir andlát þitt bakaði ég
pönnukökur, sem voru uppáhald-
ið þitt, og mér varð hugsað til þín.
Ég og Jóhanna tengdadóttir þín
vorum báðar duglegar að koma
með pönnukökur reglulega.
Þú lýstir miklu þakklæti í
hvert sinn. Hafðu engar áhyggj-
ur af mömmu, hún er í góðum
höndum og við hugsum vel um
hana.
Hvíldu í friði, elsku pabbi.
Þín dóttir,
Guðríður Sigurðardóttir.
Elsku Siggi afi, ég er ótrúlega
þakklát fyrir allar yndislegu
minningarnar sem munu ávallt
búa í brjósti mér. Allar sögurnar
sem þú sagðir mér, bæði um líf
þitt sem barn, hundinn Hrefnu
og mun fleiri sögur sem ég mun
aldrei gleyma. Það bjó svo mikil
jákvæð orka yfir þér og þú
kenndir mér að meta litlu hlutina.
Ég mun aldrei gleyma þér og ég
elska þig meira en orð fá lýst.
Hvíldu í friði, afi minn.
Alda Björk Guðmundsdóttir.
Sigurður B.
Þorbjörnsson