Morgunblaðið - 04.03.2016, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 04.03.2016, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARS 2016 HÁTÍÐ Í IÐNÓ 5. MARS KL. 14 Alþýðuflokkurinn og Alþýðusamband Íslands verða 100 ára hinn 12. mars n.k. Bókmenntafélag jafnaðarmanna og Alþýðuflokkurinn minnast þessara tímamóta með hátíðarsamkomu í Iðnó og er hún öllum opin. Flutt verður fjölbreytt efni í tali og tónum; sögð saga flokks og verkalýðshreyfingar, rætt við fyrrverandi formenn, upplestur og ávörp og kunnir listamenn koma fram. „Glys, glamúr, glit, litríki, eleg- ans … og auðvitað frábær tónlist!“ segir á Facebook um glamúrgala- tónleika söngkonunnar Erlu Dóru Vogler og píanóleikarans Evu Þyri Hilmarsdóttur sem haldnir verða í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði í kvöld kl. 20. Erla og Eva munu flytja margvíslega slagara, lög úr heimsþekktum óperettum og söngleikjum sem ná inn í hjarta allra, sama á hvað tungumáli þau eru flutt, eins og því er lýst. „Smá væmið, smá sem allir þekkja, smá sexí, smá sorglegt, dálítið mikið ástfangið og dálítið mikið grín og skemmtilegheit bara,“ segir um efnisskrána. Aðgangseyrir er kr. 2.500 en kr. 2.000 fyrir heldri borgara. Léttar veitingar verða í boði. Erla Dóra og Eva Þyri halda glamúr- galatónleika Glamúr Erla Dóra og Eva Þyri. Á sjöunda þúsund manns sóttu Stockfish-kvikmyndahátíðina sem haldin var í febrúar í Bíó Paradís og jókst aðsókn milli ára, skv. til- kynningu. Yfir 40 erlendir gestir sóttu hátíðina og þá bæði úr al- þjóðlegu kvikmyndaumhverfi og blaðamenn. Sprettfiskinn 2016, stuttmyndaverðlaun hátíðarinnar, hlaut Like it’s up to you í leikstjórn og framleiðslu Brynhildar Þór- arinsdóttur. Nokkrar kvikmyndir Stockfish halda áfram í almennum sýningum í Bíó Paradís: Son of Saul sem hlaut Óskarsverðlaun í ár sem besta erlenda myndin og The Look of Silence sem tilnefnd var til Ósk- arsverðlauna. Einnig verða sýndar The Witch, The Blue Room, Ceme- tery of Splendour, The Assassin, The Other Side, Nahid, Letter to the King og Arabian Nights (Vol. 1-3). Aðsókn á Stock- fish jókst milli ára Óskarsmynd Stilla úr Son of Saul. Keramík og KvíKví nefnast tvær sýningar sem opnaðar verða á morgun kl. 15 í Listasafni Ár- nesinga í Hveragerði. Sú fyrrnefnda er sett upp í tilefni af 35 ára afmæli Leirlistafélags Íslands. Á henni má sjá verk eftir 47 núverandi fé- lagsmenn og er markmiðið að sýna fjölbreyti- leika fagsins. Sú síðarnefnda er margmiðlunarinnsetning eftir þýska myndlistarmann- inn Heike Baranowsky. „Þó þetta séu ólíkar sýn- ingar má samt segja að sam- nefnari þeirra sé vatn, á ein- hvern hátt,“ segir Inga Jónsdóttir, safnstjóri Lista- safns Árnesinga. Gjörning- urinn sem sjá megi í innsetn- ingunni hafi farið fram í og við Seljavallalaug og ekki sé hægt að vinna með leir án vatns. Fyrir Keramík hafi hún valið úr til- lögum verk sem tengdust vatni á einhvern hátt. „Leirlistasýningin er fjölbreytt, sýnir mikla fjöl- breytni. Þetta eru alls konar verk, þó innan ákveðins ramma,“ segir Inga. Verkin afmarkast við ker, skál eða vasa, þ.e. ílát sem geta borið vatn en þó með smá útúrdúrum og eru flest ný. Á sýningunni má sjá verk eftir reynslumikla frumkvöðla í sögu leirlistar á Íslandi sem og yngri hönnuði og listamenn. Inga segir að sjá megi aukna áherslu á hönnun og fjöldafram- leiðslu en þó sé alltaf borin virðing fyrir hand- verki og hugviti. Lokkandi kórsöngur Forsaga innsetningar Baranowsky er Íslands- ferð sem hún fór í árið 2012. „Hún var á leiðinni að Seljavallalaug og heyrði þá kórsöng frá laug- inni óma um dalinn. Í samhljómi við náttúruna varð þetta að töfrastund hjá henni og vinkonu hennar, Ursulu Rogg. Þær ákváðu að koma aft- ur til Íslands og vinna með þetta augnablik. Þær kynntust Gróu Hreinsdóttur kórstjóra, sem hef- ur stjórnað ýmsum sönghópum, og þær ákváðu að vinna saman. Gróa valdi tíu konur úr kórum sem hún hafði komið nálægt, konur sem eru flestar með tengsl við þetta svæði, búa á og í ná- grenni Hellu. Þær fóru svo saman í viku, kon- urnar tíu, Gróa og myndlistarkonurnar og þróuðu gjörning sem þær fluttu í og við Selja- vallalaug,“ segir Inga. Gjörningurinn hafi verið tekinn upp og Baranowsky svo unnið úr efninu fjögurra rása vídeó- og hljóðverk sem verður varpað á veggi í einum sala safnsins. Titill verks- ins og sýningarinnar, KvíKví, vísar í gömlu þjóð- vísuna „Móðir mín í kví kví“ sem var útgangs- punktur margra spuna sem voru undanfari gjörningsins. Innsetningin hefur áður verið sett upp í Berlín og hlaut þar góðar viðtökur, að sögn Ingu. Sýningarnar standa til og með 1. maí og er safnið opið fimmtudaga - sunnudaga kl. 12-18. Aðgangur er ókeypis. helgisnaer@mbl.is Vatn tengir ólíkar sýningar  Tvær sýningar verða opnaðar í Listasafni Árnesinga á morgun Kvennafjöld Stilla úr verkinu KvíKví sem tekið var upp í og við Seljavallalaug. Titill verksins og sýning- arinnar er sóttur í hina kunnu þjóðvísu Móðir mín í kví kví og tóku 10 kórkonur þátt í gerð verksins. Inga Jónsdóttir Sýningin Double Bind verður opn- uð á morgun í Nýlistasafninu og er hún samstarfsverkefni og samsýn- ing á verkum níu íslenskra og er- lendra listamanna. Við opnunina flytur myndlistarmaðurinn Styrm- ir Örn Guðmundsson verk sitt „Butterfly Blues“. Sýningin er samstarf Nýlistasafnsins við Ru- pert, center for art and Education, í Litháen og Listaháskólann í Ósló. Fyrsta sýningin var opnuð í Ru- pert í Vilníus í fyrra og fór þaðan til Pabradë og Visaginas í Litháen, Óslóar og nú er komið að Reykja- vík. „Double Bind er samsýning nýrra verkra sem hefur það að markmiði að endurvekja meðvit- und um pólitísk áhrif á sálfræði- meðferðir og persónulega bresti,“ segir í tilkynningu en á henni sýna Valentina Desideri & Denise Fer- reira da Silva, Morten Norbye Halvorsen, Styrmir Örn Guð- mundsson, Berglind Jóna Hlyns- dóttir, Juha Pekka Matias Laak- konen, Lina Lapelyte, Viktorija Rybakova og Augustas Serapinas. Sýningarstjórar eru Maya Tounta og Juste Jonutytë. Viðburðadagskrá tengd sýning- unni heldur áfram að opnun lok- inni í Mengi í kvöld. Þar mun lettneska hljómsveitin DORA halda tónleika og listakonan Lina Lapylite flytja verk sitt „Candy Shop“. Húsið verður opið frá og með 19:30 á laugardagskvöldinu og eru allir velkomnir. Double Bind opnuð í Nýló Ljósmynd/Evgenia Levin Konur Úr verki Linu Lapylite, LADIES, sem var frumflutt í Vilníus í fyrra. Lokaársnemar í myndlist við Listaháskóla Íslands opna samsýn- inguna No solo á morgun kl. 16 í Skaftfelli, myndlistarmiðstöð Aust- urlands á Seyðisfirði. Sýningar- stjórar eru Björn Roth og Kristján Steingrímur og sýnendur Árni Jónsson, Berglind Erna Tryggva- dóttir, Daníel Perez Eðvarðsson, Fritz Hendrik Berndsen, Harpa Finnsdóttir, Indriði Arnar Ingólfs- son, Katrín Helena Jónsdóttir, Kristín Helga Ríkharðsdóttir, Lís- bet Guðný Þórarinsdóttir, Melanie Ubaldo, Salvör Sólnes og Snædís Malmquist. Samrýmdir Nemarnir á kynningarmynd. Nemar opna sam- sýningu í Skaftfelli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.