Morgunblaðið - 04.03.2016, Side 41

Morgunblaðið - 04.03.2016, Side 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARS 2016 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þetta er búið að vera mjög spennandi og skemmtilegt verk- efni,“ segir Jón Sæmundur Auð- arson um sýninguna Skugga- Baldur sem frumsýnd verður á Ís- landi í Hafnarhúsinu, Listasafni Reykjavíkur, í kvöld kl. 20 og sýnd næstu fjóra daga áður en sýningin heldur aftur til Prag. Sýningin, sem fer fram á ensku, er unnin upp úr samnefndri skáld- sögu eftir Sjón. Handritið skrifuðu Kamila Polívková, sem jafnframt er leikstjóri uppfærslunnar, og Tereza Hofová, sem hérlendis kallar sig Tera Hof, sem leikur öll hlutverk sýningarinnar, en drama- túrg er Jan Horák. Sviðsmyndina hannar Antonín Šilar, búninga hannar Zuzana Formánková, um listræna stjórnun sjá Sindri Plo- der og Jón Sæmundur Auðarson, en sá síðarnefndi samdi einnig tónlist verksins í samvinnu við Ryan van Kriedt auk þess að vinna grafík og vídeóverk í sam- vinnu við Antonín Šilar. „Þetta er tékknesk-íslensk framleiðsla, en sýningin var upphaflega frumsýnd í leikhúsinu Studio Hrdinù í Prag 26. febrúar sl. við góðar viðtökur,“ segir Jón Sæmundur og bendir á að Sjón hafi verið viðstaddur frumsýninguna ytra og muni taka þátt í umræðum eftir sýningu þriðjudaginn 8. mars. Sýningin tekur um 70 mínútur í flutningi. Margt ekki sagt berum orðum Aðspurður segir Jón Sæmundur undirbúning verksins hafa hafist fyrir um ári. „Skáldsagan Skugga- Baldur er lögð til grundvallar að þessu alþjóðlega verkefni sem reynir að tengja saman hinar tvær ólíku menningarhefðir frá löndum þátttakenda; hina miðevrópsku, með sinni miklu og djúpstæðu leikhúshefð, og hina íslensku, með sinni sterku hefð sagnagerðar og goðsagna. Efniviður sögunnar, þar sem þrjár persónur hittast en eru sífellt að reyna að bægja sér hver undan annarri, er tilvalinn fyrir þessar tvær ólíku menningarhefðir og stendur fyrir andstæða heima og viðhorf til lífsins – Baldur, hinn djöfullegi prestur sem umbreytist í myrkraveruna Skugga-baldur, Abba, stúlka með Downs- heilkenni, og Friðrik, hinn evr- ópskmenntaði náttúrufræðingur,“ segir Jón Sæmundur og bendir á að hugmyndin að verkinu hafi kviknað hjá tékknesku leikkon- unni Teru Hof, sem hafi sl. fimm ár búið jöfnum höndum í Prag og Reykjavík. Sjálf lýsir Hof leik- verkinu sem stóru, fallegu ljóði um þögn og bið. Segist hún hafa heillast af bókinni og þurft að lesa hana nokkrum sinnum til að skilja allar tilvísarnir hennar, þemu og undirliggjandi leynimakkið til fullnustu. „Seinna áttaði ég mig á hversu íslensk hún er í raun, hversu mikið er falið og ekki sagt berum orðum.“ Mikill innblástur Sem lið í undirbúningnum voru vorið og sumarið 2015 haldnar fjórar vinnusmiðjur í Reykjavík þar sem þátttakendur voru ung- menni með Downs-heilkenni. Sam- kvæmt upplýsingum frá Kamillu Polívková gegndu smiðjurnar mik- ilvægu hlutverki í sköpunarferli verksins. „Ein aðalsögupersónan í bókinni og verkinu okkar er Abba, stúlka með Downs-heilkenni, og henni er mjög umhugað að fylgj- ast með íslenskri náttúru, sér- staklega fuglum. Þegar við ákváðum að kanna íslenska nátt- úru sáum við að það er freistandi að skoða hana út frá sjónarhorni þar sem klisjur á borð við hveri, álfa, hraun og norðurljós eru alls- ráðandi en við ákváðum að fara aðra leið og skoða náttúruna, mýt- ur og Íslendinga út frá öðru sjón- arhorni. Tíminn sem við eyddum með þessum ungmennum hefur veitt okkur mikinn innblástur,“ segir Polívková. Ný sýn á menninguna Kamila Polívková bendir á hversu mikill fengur það hafi verið fyrir sýninguna að fá Sindra Plo- der í hópinn. „Við hittum þennan frábæra unga listamann og kynnt- umst einnig yndislegri fjölskyldu hans sem styður hann í einu og öllu. Verk hans eru ómissandi hluti af sjónrænni hlið verksins. Þetta samstarf okkar og Sindra gæti veitt Íslendingum annars konar sýn á heim sinn og menn- ingu.“ „Spennandi verkefni“  Tékknesk-ís- lenska sýningin Skugga-Baldur frumsýnd í kvöld Morgunblaðið/Árni Sæberg Fallegt ljóð Tereza Hofová, sem kallar sig Tera Hof, Kamila Polívková og Jón Sæmundur Auðarson í Hafnarhús- inu, Listasafni Reykjavíkur. Hof lýsir leikverkinu Skugga-Baldri sem stóru, fallegu ljóði um þögn og bið. Aðstandendur tónlistarhátíðar- innar Secret Solstice tilkynntu í gær að 41 listamaður og hljómsveit hefðu bæst á lista flytjenda hátíð- arinnar í ár sem haldin verður í Laugardalnum 16.-19. júní. Ber þar hæst suðurafríska rapptvíeykið Die Antwoord, franska frum- kvöðulinn St. Germain og banda- rísku rappsveitina M.O.P. Hipp- hopplistamenn og -sveitir eru áberandi meðal þeirra sem bæst hafa í hópinn en í tilkynningu segir að á hátíðinni sé mikið lagt upp úr fjölbreytni. Fyrir utan þrjá fyrrnefnda bæt- ast á lista eftirfarandi: Zombies, Art Department, General Levy, Slow Magic, Hjaltalín, Infinity Ink, Stacey Pullen, Troyboi, Section Bo- yz, Paranoid London, Gísli Pálmi, Novelist, XXX Rottweiler, Robert Owens, Maher Daniel, Glacier Mafia, Ocean Wisdom, Reykjavík- urdætur, Jack Magnet, Nitin, Pro- blem Child, Big Swing Soundsys- tem, Lord Pusswhip & Svarti Laxness, Wølffe, KSF, Tanya & Marlon, Alexander Jarl, Fox Train Safari, Kristian Kjøller, Tusk, Geimfarar, Marteinn, ILO, Sonur Sæll, Brother Big, Rob Shields, Balcony Boyz og Will Mills. Tvíeyki Suður-afríska rapptvíeykið Die Antwoord kemur til Íslands í júní. 41 bætist við dagskrá Secret Solstice „Sviðsetning tékkneska leikhúss- ins Studio Hrdinù á Skugga-Baldri er leikverk sem alla sýninguna í gegn býður upp á hugmyndaríka skemmtun þar sem saman koma sígild sagnamennska og nýjustu aðferðir í frásagnartækni. Aðlög- unin er trú upphaflega textanum á sama tíma og hún leitar út fyrir hann og verður að sjálfstæðu verki sem teygir sig til okkar daga gegn- um leik, leikhúslausnir og djarfa notkun hljóðs og myndar,“ skrifaði Sjón í hugleiðingu að frumsýningu lokinni í Prag í liðinni viku. Sjón segir alla sem að uppfærsl- hljómsveitarfélagi hans Ryan úr Dad Skeletons mynda óvæntan hlekk milli andalækna og sund- urgerðarmanna gamla tímans og þess nýja. Og síðast en ekki síst, og hann er hin mikla uppgötvun verkefnisins, skal nefna myndlist- armanninn Sindra Ploder sem gef- ur öllu saman vigt með sterkum myndheimi sínum sem skapaður er án allra málamiðlana. Saman hafa þau skilað svo frábærri vinnu í túlkun sinni á skáldsögu minni að ég uppgötvaði nýja hluti í frá- sögn sem ég hélt mig þekkja til fulls.“ unni koma eiga hrós skilið. „Leikkonan Tereza Hofová um- myndast léttilega úr einni persónu í aðra, jafnt lík- amlega sem and- lega, um leið og hún heldur áhorfendum spenntum fyrir ör- lögum hverrar fyrir sig. Leikstjórinn Kamila Plívková heldur örugglega um alla þræðina, sagan er í skörpum fók- us jafnvel þegar ólíklegustu atburðir og staðir taka að birtast á sviðinu. Listamaðurinn Jón Sæmundur og Rithöfundurinn ánægður með útkomuna „UPPGÖTVAÐI NÝJA HLUTI Í FRÁSÖGN SEM ÉG HÉLT MIG ÞEKKJA TIL FULLS“ Sjón : Stórglæsilegt páskablað fylgirMorgunblaðinu föstudaginn 18.mars NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA: fyrir kl. 16 mánudaginn 14. mars. –– Meira fyrir lesendur SÉRBLAÐ BROTHERS GRIMSBY 6, 8, 10 TRIPLE 9 10 FYRIR FRAMAN ANNAÐ FÓLK 8 ZOOTROPOLIS 2D 3:40, 5 ÍSL.TAL ZOOTROPOLIS 2D 5:40 ENS.TAL DEADPOOL 8, 10:20 ALVIN OG ÍKORNARNIR 3:40 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar TILBOÐ KL 3:40 TILBOÐ KL 3:40 -T.V., Bíóvefurinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.