Morgunblaðið - 04.03.2016, Side 20

Morgunblaðið - 04.03.2016, Side 20
AFP Þýskaland Lögreglumenn standa vaktina í borginni München. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Lögreglan í Þýskalandi hefur hand- tekið 33 ára gamlan lækni sem grun- aður er um að hafa talið ungan karl- mann á að ganga til liðs við víga- samtök Ríkis íslams. Fréttaveita AFP greinir frá því að fórnarlambið, sem var 24 ára gamall karlmaður með ríkisfang í Þýska- landi, hafi glímt við þroskaskerð- ingu. Á læknirinn að hafa nýtt sér það og heilaþvegið manninn með því að sýna honum myndbönd af víga- mönnum hryðjuverkasamtaka Ríkis íslams og ofbeldisverkum þeirra. Flugmiði aðra leið á vígaslóðir Segir lögreglan lækninn því næst hafa keypt flugmiða aðra leið fyrir manninn til Sýrlands og Íraks. Þeg- ar til Íraks var komið sprengdi Þjóð- verjinn sig svo í loft upp á fjölmenn- um stað í borginni Baiji í norður- hluta landsins. Létust í tilræðinu minnst 12 íraskir hermenn. „Rann- sókn hefur nú leitt í ljós að sjálfsvígs- sprengjumaðurinn var skertur and- lega og áhrifagjarn og honum hafði því verið úthlutað hjálparmann- eskju,“ hefur AFP eftir saksóknara í málinu. „Hvort árásarmaðurinn var sérstaklega valinn vegna síns and- lega veikleika er óljóst.“ Er Þjóðverjinn einn af mörg þús- und Evrópubúum sem ferðast hafa til vígasvæða í Sýrlandi og Írak til að taka þar þátt í bardögum. Gekk heilaþveginn til hildar  Læknir handtekinn fyrir að telja mann á að ganga til liðs við Ríki íslams 20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARS 2016 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Ríkisfréttastofa Sýrlands (SANA) greindi í gær frá því að rafmagn hefði farið af öllu landinu. Gerðist það klukkan 11 að íslenskum tíma. „Rafmagn hefur farið af í öllum héruðum og eru viðgerðahópar nú að reyna að komast að því hvað or- sakar þetta óvænta rafmagnsleysi,“ hefur fréttaveita AFP eftir manni innan ráðuneytis orkumála í Sýr- landi, en samhliða þessu varð landið einnig að mestu án sambands við netþjónustur auk þess sem farsíma- samband lá að mestu niðri. Frá því að styrjöldin í Sýrlandi hófst í mars árið 2011 hafa ýmis svæði landsins þurft að glíma við rafmagnstruflanir vegna loftárása eða annars konar hernaðarátaka. Það er hins vegar ekki algengt að allt landið missi rafmagn samtímis. Skemmdir á raforkuverum Ráðherra orkumála Sýrlands seg- ir í viðtali við fréttamenn SANA að fimm af 13 helstu orkuverum lands- ins hafi skemmst að undanförnu vegna langvarandi hernaðarátaka. Metur ráðherrann tjón á raforku- verum og dreifikerfum þeirra tæpa fjóra milljarða Bandaríkjadali. Í gildi er nú vopnahlé milli stríð- andi fylkinga í Sýrlandi og segir erindreki Sameinuðu þjóðanna í málefnum landsins, Staffan de Mistura, sýnilegan árangur vera af því. „Ofbeldisverkum fer nú fækk- andi í landinu. Spyrjið bara sýr- lenskan almenning út í það,“ sagði Mistura á blaðamannafundi sem haldinn var í Genf. Bætti hann því þó við að vopnahléið væri afar „við- kvæmt“. Vegna þessa tímamótavopnahlés er unnt að koma hjálpargögnum og nauðsynjum til þeirra íbúa Sýrlands sem lifa við afar erfið skilyrði. Öll héruð Sýrlands urðu skyndilega án rafmagns  Fimm af 13 helstu orkuverum landsins eru skemmd eftir átök, segir ráðherra AFP Vopnaskak Raforkuverið við borgina Aleppo, sem hér sést í fjarska, er illa farið eftir langvarandi átök. Stjórnarhermenn hafa nú yfirhöndina þar. Stríðið í Sýrlandi » Allt landið missti rafmagn í gær auk þess sem þjónusta farsíma og nets lá niðri. » Tjón á raforkuverum og dreifikerfum er talið nálgast fjóra milljarða Bandaríkjadala. » Vegna vopnahlés er nú unnt að afhenda einhverjum íbúum landsins hjálpargögn og aðrar mikilvægar nauð- synjar. Stjórnvöld á Srí Lanka hafa ákveð- ið að undirrita svonefndan Ottawa- samning sem bannar að jarð- sprengjur séu framleiddar, geymd- ar, fluttar eða notaðar. Verður jarðsprengjubirgðum þar í landi því eytt á næstunni, en sjö ár eru nú liðin frá lokum borgarastríðsins. „Við ákváðum að undirrita Ott- awa-samninginn vegna þess að við höfum ekki í hyggju að fara í stríð,“ hefur fréttaveita AFP eftir Harsha de Silva, aðstoðarutanríkisráð- herra landsins. „Ákváðum við einn- ig að eyða birgðum okkar.“ Borgarastríðið á Srí Lanka stóð yfir í alls 37 ár og létust yfir 100.000 manns í átökunum. Frá lok- um stríðsins hefur verið unnið að því að fjarlægja jarðsprengjur af gömlum vígvöllum. khj@mbl.is SRÍ LANKA AFP Verðir Hermenn taka þátt í gleði í tengslum við þjóðhátíðardag landsins. Ottawa-samningur verður undirritaður Norska öryggis- lögreglan (PST) telur fulla ástæðu til að ætla að öfga- íslamistinn Ubaydullah Hussain hafi fengið minnst sjö Norðmenn til að ganga til liðs við Ríki íslams. Var gæsluvarðhald yfir honum því framlengt í dómshúsinu í Ósló. Hussain er þrítugur og var hann handtekinn í desember sl. og ákærður fyrir að safna nýliðum fyr- ir áðurnefnd samtök. khj@mbl.is NOREGUR Öfgamaður Ríkis ísl- ams áfram í haldi Ubaydullah Hussain Hersveitir Norður-Kóreu skutu í fyrrinótt á loft sex skammdrægum flugskeytum og höfnuðu þau í sjón- um úti fyrir ströndum landsins. Var þetta að líkindum gert til að undir- strika hernaðarmátt landsins, en fá- einum klukkustundum áður hafði ör- yggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkt harðorða ályktun varð- andi refsiaðgerðir gegn landinu. Skotflaugarnar flugu, samkvæmt upplýsingum frá varnarmálaráðu- neyti Suður-Kóreu, um 100 til 150 km vegalend áður en þær féllu í hafið austan við Norður-Kóreu. Sérfræð- ingar höfðu í gær enn ekki greint tegund þessara eldflauga. Ráðamenn í Pyongyang hafa að undanförnu verið iðnir við alls kyns prófanir á Punggye-ri-kjarnorkutil- raunasvæðinu í norðausturhluta landsins og meðal annars sprengt þar öfluga sprengju með sprengi- kraft innan við 10 kílótonn. Telja ráðamenn á Vesturlöndum þessar tilraunir lið í að þróa langdræga eld- flaug sem borið getur kjarnaodd. khj@mbl.is AFP Leiðtoginn Kim Jong-Un fylgdist á dögunum spenntur með prófunum á nýrri skotflaug Norður-Kóreumanna sem grandað getur skriðdrekum. Norður-Kórea skaut á loft sex eldflaugum  Féllu síðar í hafið austur af landinu B ra nd en b ur g Ekki laumupokast Breyting á endurvinnslustöðvum. Gerðu öllum auðveldara fyrir og komdumeð blandaða úrganginn í glærum poka Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa@sorpa.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.