Morgunblaðið - 04.03.2016, Síða 12

Morgunblaðið - 04.03.2016, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARS 2016 Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is 3. apríl 1976 lögðu sex menn úrFlugbjörgunarsveitinni íReykjavík í leiðangur þvertyfir hálendið, frá austri til vesturs, og er þetta fyrsta ferðin sem vitað er til að hafi verið farin þessa leið. Leiðangursmenn voru Rúnar Nordquist, Þorsteinn Guðbjörnsson, Arngrímur Hermansson, Hjalti Sig- urðsson, Jóhannes Ellert Guð- laugsson og Þór Ægisson. Nú hafa synir Arngríms, Hall- grímur Örn og Hermann, ásamt syni Jóhannesar, Eiríki Erni og Óskari Davíði Gústavssyni, ákveðið að end- urtaka ferðina, 40 árum seinna. Heiðra minningu afreksins Megintilgangurinn með upp- haflega leiðangrinum var að öðlast reynslu til að bjarga fólki á fjöllum. „Ef þeir gætu ekki bjargað sjálfum sér gætu þeir örugglega ekki bjargað öðrum líka. Þeir voru ungir og metn- aðarfullir meðlimir í Flugbjörg- unarsveitinni í Reykjavík sem vildu standa sig vel í starfi,“ segir Óskar, sem er einnig tengdur mönnum úr ferðinni 1976 þar sem Rúnar Nor- dquist var leiðbeinandi hans í Flug- björgunarsveitinni í Reykjavík. Auk þess er Óskar frændi Hallgríms og Hermanns. „Tilgangur ferðarinnar nú er að heiðra minningu þess afreks og svo er þetta náttúrlega líka til gamans gert.“ 400 km á tveimur vikum Undirbúningur leiðangursins hefur staðið yfir í langan tíma. „Hall- grímur sendi okkur póst fyrir þremur árum þar sem hann bað okkur um að taka frá páskana 2016. Það var að sjálfsögðu gert því við áttum von á einhverri ævintýramennsku,“ segir Óskar. Lagt verður í hann þann 18. mars og er leiðangurinn rúmir 300 km í loftlínu. Félagarnir munu ganga á skíðum yfir þrjá jökla landsins, Vatnajökul, Hofsjökul og Langjökul. „Gróflega áætlað munum við ganga 350-400 kílómetra og er stefnan sett á að klára ferðina á rúmum tveimur vikum,“ segir Óskar. Þeir verði þó að gera ráð fyrir að veðrið geti sett strik í reikninginn. „Það er allra veðra von, Feta í fótspor feðra sinna á hálendinu Ferðir um hálendi Íslands verða sífellt algengari, allan ársins hring, þó að sjaldgæfari séu þær að vetri til. Hópur fjallagarpa ætlar nú að endurtaka leið- angur sem fyrst var farinn árið 1976, þegar sex menn gengu á skíðum frá austri til vesturs yfir hálendi Íslands. Í hópnum eru meðal annars þrír synir mannanna sem framkvæmdu verkið fyrst. Leiðangurinn kalla þeir Yfir jöklana þrjá. Ljósmynd/Jóhannes Ellert Guðlaugsson Á fjöllum Feðgarnir Hermann og Arngrímur. Hermann mun nú feta í fót- spor föður síns sem fór í fyrsta leiðangurinn yfir jöklana þrjá árið 1976. Ljósmynd/Óskar Davíð Gústavsson Tjaldbúðir Frá fyrsta leiðangrinum árið 1976. Mikilvægt var að mynda snjóvarnargarð utan um tjöldin til að verjast veðri og vindum. Hin árlegu FÍT-verðlaun sem Félag íslenskra teiknara veitir verða af- hent næstkomandi miðvikudag, 9. mars. Verðlaunin eru veitt fyrir þau verk sem sköruðu fram úr á sviði grafískrar hönnunar og myndskreyt- ingar á liðnu ári. Í keppnina senda bæði auglýsingastofur og einyrkjar auk þess sem nemendur í grafískri hönnun senda inn í sérstakan nemendaflokk. Þess má geta að í ár var metfjöldi innsendinga, þeim fjölgaði um nær helming frá því í fyrra og því má ætla að sér- lega mikil gróska sé í grafískri hönnun um þessar mundir. Í ár er bryddað upp á þeirri nýjung að birta til- nefningar til verðlaunanna. Tilnefnt er í 17 flokkum og ná flokkarnir yfir helstu undirflokka grafískrar hönn- unar, skjágrafík, vefhönnun, prent- verk, auglýsingahönnun og mynd- skreytingar. Dóm- nefndina skipar breiður hópur fag- manna á sviði grafískrar hönn- unar. Tilkynnt verður um verðlaunahafa og viðurkenningar með viðhöfn í Tjarnarbíói og í kjölfarið verður opnuð vegleg sýn- ing á verðlaunaverkunum í Sjávarklasanum, Grandagarði 4. Viðburðurinn markar upphaf hönnunarhátíðarinnar Hönn- unarMars sem mun setja svip sinn á borgarlífið í Reykjavík dagana 10.- 13. mars. Þeir flokkar sem tilnefnt er í eru: Almennar myndskreytingar, auglýs- ingaherferðir, bókahönnun, firma- merki, gagnvirk miðlun og upplýs- ingahönnun, geisladiskar og plötur, hreyfigrafík, opinn flokkur, mark- póstur og kynningarefni, mynd- skreytingar fyrir auglýsingar og her- ferðir, mörkun, stakar auglýsingar fyrir prentmiðla, umbúðir og pakkn- ingar, umhverfisgrafík, vefsíður, veggspjöld og nemendaflokkur. Að auki var opið fyrir innsendingar í flokkana bókakápur og stakar aug- lýsingar fyrir vef, en fáar innsend- ingar bárust í þá flokka og þótti því ekki tilefni til að veita verðlaun í þeim að þessu sinni. Tilnefningar má sjá í heild sinni á vef mbl.is. Félag íslenskra teiknara tilnefnir til verðlauna í 17 flokkum Framúrskar- andi grafísk hönnun og mynd- skreytingar Verðlaunagripurinn Stefán Pétur Sólveigarson hannaði verðlaunagripinn, sem er vatnsskorinn út úr eik af fyrirtækinu Rafnar ehf. Ég er ekki kona einsömul oggeng með barn undirbelti. Ég er ólétt eftirsamstarfsmann, sem er reyndar einnig kærastinn minn, en hið fyrra hljómar skemmtilegar og höfum það því þannig. Svokallað Moggabarn, sem hljóm- ar eins og eitthvað sem einhverjir gætu óttast, er víst á leið í heiminn. Nú er ég frekar nýlega komin yfir þriggja mánaða markið, þegar óhætt telst að auglýsa ástandið, og hef síðan fengið ófáar fyrirspurnir um hvenær ég ætli að tilkynna þetta á Facebook. Þar sem ég er frekar illa innrætt að eðlisfari hef ég ákveðið að gera þessu fólki það ekki til geðs og sleppa því alfarið. Frekar tilkynni ég þetta í Morgunblaðinu eins og allt venjulegt fólk gerir. En raunverulega ástæðan fyrir því að tilkynning um þetta rataði ekki á samfélagsmiðla var kvíða- hnútur yfir framsetningunni. Ég var síðast ólétt fyrir níu árum og það var fyrir tíð Facebook. Þá var lífið miklu auðveldara og ég man ekki til þess að nokkur einasta krafa hafi verið gerð um sérstaka frétta- tilkynningu um efnið. Ég tel mig hafa séð flest allt sem er til á Internetinu og þar á meðal úrval af misgóðum óléttutilkynn- ingum. Sumar eru hefðbundnar með fallegri sónarmynd og aðrar eru frumlegar og sniðugar. Síðan eru einhverjar sem eru bara furðulegar og myndefnið er þá kannski þriggja mánaða gamalt já- kvætt þungunarpróf eða rifinn smokkur. Ef þessi tilkynningarskylda er viðurkennd þarf væntanlega einnig að tilkynna um kyn barnsins. Ekki skilur maður 800 nánustu vini sína og vandamenn eftir í lausu lofti. Þá er hægt að skera í köku, sem ýmist er með bleikri eða blárri fyllingu, eða mála óléttubumbuna í fyrrgreindum litum. (Já, ég hef séð báða kostina framkvæmda.) Síðan þarf að sýna árangurinn þegar bumban er orðin stór. Þá er farið í myndatöku, þar sem foreldrarnir eru berir að ofan, og faðirinn heldur blíðlega um bumbubúann. Að því loknu þarf að skella vængjum á barnið og setja það í fötu fyrir krúttlega ung- barnamyndatöku eftir fæðingu. Auð- vitað fer það líka beint á Facebook þar sem nokkur „like“ eru nauðsyn- legur þáttur þess að eignast barn. Allt framangreint hefur verið gert af fólki sem var líklega frekar eðli- legt áður en barnið kom undir. Með stækkandi bumbu virðist heilbrigt skynbragð á klisjur hins vegar dragast saman og hverfa að lokum algjörlega. Því fylgir nokkurt álag að vera óléttur og eignast barn. Því fylgir líka töluvert álag að fylgjast með öllu þessu á samfélags- miðlum. Það ríkir nefnilega þögult samkomulag um að bannað sé að gera grín að barnamyndum. En ég spyr hvar þetta endar. Samfélagsmiðlar hafa einungis verið til í nokkur ár. Myndir frá getnaði virðast að minnsta kosti næsta rökrétta skrefið. Þetta veldur kvíðnu fólki eins og mér töluverðum áhyggjum. Hér með tilkynnist þess vegna að ég ætla ekki að taka þátt í þessu þangað til óléttuþokan leiðir mig í aðrar ógöngur. » „Svokallað Mogga-barn, sem hljómar eins og eitthvað sem ein- hverjir gætu óttast, er víst á leið í heiminn“ Heimur Sunnu sunnasaem@mbl.is Aðalfundur Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík, föstudaginn 18. mars 2016 og hefst kl. 16:00. Á dagskrá fundarins verða: Stjórn Hampiðjunnar hf. 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. 2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr. hlutafélagalaga. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur ásamt ársreikningi félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, tveimur vikum fyrir aðalfund. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað. Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en 10 dögum fyrir aðalfund. Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það skriflega eða með rafrænum hætti og þannig að dagsetning komi fram.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.