Morgunblaðið - 04.03.2016, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARS 2016
Sýningin Myndir ársins verður opn-
uð í Perlunni í Öskjuhlíð í Reykjavík
klukkan 15 á laugardag en þar verða
til sýnis blaðaljósmyndir frá árinu
2015.
Við opnunina verða veitt verðlaun
til blaðaljósmyndara fyrir bestu
myndir ársins í 7 flokkum ásamt því
að valin verður mynd ársins 2015,
óháð flokkum.
Samhliða því verða hin árlegu
blaðamannaverðlaun einnig afhent.
Sýningin er opin öllum gjaldfrjálst
til 2. apríl og er hægt að skoða sýn-
inguna þegar Perlan er opin.
Blaðaljósmyndarafélag Íslands
stendur fyrir sýningunni en á sýn-
ingunni í ár eru 83 myndir frá árinu
2015 sem valdar voru af 7 manna
óháðri dómnefnd sem einnig valdi
vinningsmyndirnar.
Blaðaljósmyndarafélag Íslands
var stofnað árið 1976 og starfar inn-
an Blaðamannafélags Íslands. Sýn-
ingin Myndir ársins hefur verið
haldin árlega síðan 1995.
Morgunblaðið/Ómar
Sópað frá Héraðsdómi Reykjavíkur Þessi mynd Ómars Óskarssonar var
valin besta myndin í flokknum Daglegt líf á sýningunni á síðasta ári.
Blaðaljósmyndir
sýndar í Perlunni
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
GAMMA-Reykjavíkurskákmótið
hefst í Hörpu á þriðjudaginn en
mótið er eitt sterkasta opna skák-
mótið sem haldið er í heiminum ár
hvert. Um 250
manns taka þátt
í mótinu sem
hefur sjaldan
verið sterkara.
Meðal keppenda
eru fjórir svo-
kallaðir ofurst-
órmeistarar en
það eru þeir sem
hafa meira en
2.700 skákstig.
Um 30 stórmeistarar eru með. Af
250 keppendum koma um 165 að
utan en alls eru keppendur mótsins
frá 35 þjóðlöndum á aldursbilinu 9-
73 ára. „Hingað vilja allir koma,“
segir Gunnar Björnsson, forseti
Skáksambands Íslands. „Á hverju
ári hafa samband um 200 stór-
meistarar sem vilja koma og tefla.
Við getum ekki boðið öllum, það er
ekki hægt, þannig að við veljum úr.
Við höfum passað okkur að hafa
sterka skákmenn, sterkar skák-
konur, undrabörn og goðsagnir.“
Sterkar skákkonur
Mótið fer fram í Hörpu og er
enginn aðgangseyrir. „Þetta er
með sterkari mótum sem haldin
hafa verið. Allir íslensku stór-
meistararnir sem eru atvinnumenn
taka þátt í því en gömlu meist-
ararnir eru í hlutverki skákskýr-
enda.“
Sterkar skákkonur eru áberandi
í ár. Má þar nefna hina þýsku
Elizabetu Paetz, hina írönsku Söru
Khademalsharieh og Tönju Sach-
dev frá Indlandi. Þá koma nokkur
undrabörn eins og Fransesco Ram-
baldi frá Ítalíu, sem er aðeins 16
ára og einn yngsti stórmeistari
heims, hinn norski Aryan Tari,
sem er yngsti stórmeistari Norð-
urlanda, og bandaríska undrabarn-
ið Awonder Liang. Hann er aðeins
12 ára og er sá yngsti í skáksög-
unni sem hefur unnið stórmeistara
en það afrekaði hann níu ára.
Allir velkomnir í Hörpu
Íslenska heimavarnarliðið mætir
með Hannes Hlífar Stefánsson
fremstan í flokki en einnig eru þeir
Hjörvar Steinn Grétarsson og
Þröstur Þórhallsson með.
„Það verður mikið lagt í skák-
skýringarnar enda er þetta eitt
stærsta opna skákmót heims og þá
þarf að sinna alheiminum. Það
verður teflt hér í níu daga og það
verður hægt að fylgjast vel með á
netinu, á heimasíðu mótsins, og þar
verða beinar útsendingar. Það er
enginn aðgangseyrir og allir vel-
komnir.“
Morgunblaðið/Eggert
Harpa Þátttakendur koma frá 35 þjóðlöndum, fjórir eru ofurstórmeistarar og 30 eru stórmeistarar.
Með sterkari mótum
sem haldin hafa verið
Reykjavíkurskákmótið byrjar á þriðjudag Frítt inn
Gunnar
Björnsson
Áfengisinnflytjandi hefur kært
starfsemi Fríhafnarinnar til lögreglu
vegna brota gegn ákvæðum áfeng-
islaga. Telur lögmaður hans að eng-
inn hafi leyfi til smásölu áfengis
nema ÁTVR, heimildir til sölu áfeng-
is í tollfrjálsum verslunum hafi verið
felldar úr lögum á síðustu árum.
Lögmaður innflytjandans, Jónas
Fr. Jónsson hdl., segir að innflytj-
andinn hafi verið að kanna hvaða
heimildir væru til sölu á áfengi í smá-
sölu utan verslana ÁTVR. Fátt hafi
verið um svör í kerfinu og hann hafi í
framhaldinu leitað til sín. Jónas seg-
ist hafa komist að þeirri niðurstöðu
að ÁTVR hafi eitt heimild til sölu
áfengis í smásölu.
Í kærubréfi til lögreglustjórans á
Suðurnesjum er vakin athygli á því
að Fríhöfnin selji áfengi í verslun
sinni þrátt fyrir að í áfengislögum sé
skýrlega mælt fyrir um einkaleyfi
ÁTVR til smásölu áfengis. Engin
undantekning sé þar á.
Mistök eða ákvörðun
Bendir Jónas á að í eldri áfengis-
lögum, sem giltu til ársins 1998, hafi
verið heimild til sölu áfengis í toll-
frjálsum verslunum. Hún hafi verið
felld brott við setningu núgildandi
áfengislaga. Hann vekur sömuleiðis
athygli á því að í eldri tollalögum hafi
verið heimild fyrir fjármálaráðherra
til að leyfa sölu áfengis í verslunum
með tollfrjálsar vörur. Hún hafi fall-
ið brott þegar núverandi tollalög
tóku gildi árið 2006.
„Annaðhvort voru þetta mistök
hjá löggjafanum eða ákvörðun um að
taka út þessi sérstöku ákvæði. Eftir
stendur að það er aðeins einn aðili
sem hefur heimild til að selja áfengi í
smásölu. Afdráttarlaust ákvæði er
um það í sérlögum og lagaheimild
verður ekki búin til með útgáfu
reglugerðar,“ segir Jónas í samtali.
Kæran var lögð fram í ágúst. Ólaf-
ur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri
á Suðurnesjum, segir að rannsóknin
hafi tafist vegna anna við önnur mál
en sé nú komin í fullan gang.
helgi@mbl.is
Kærir áfengis-
sölu Fríhafnar
Telur heimildir fallnar úr gildi
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Keflavíkurflugvöllur Áfengi er
vinsælt við innkaup í Fríhöfninni.
Hætta er á því að kattafló á höfuð-
borgarsvæðinu sé farin að breiðast
út. Eru eigendur hunda og katta
hvattir til árvekni, í tilkynningu frá
Matvælastofnun.
Kattafló greindist fyrst fyrir
tæpum mánuði og var strax gripið
til aðgerða. Er nú staðfest að fló
var á ketti í miðborginni í Reykja-
vík. Er ætlað að flóin hafi verið á
kettinum í talsverðan tíma. Því
munu dýralæknar og starfsfólk
tilraunastöðvarinnar á Keldum
fylgjast með framvindunni.
Í frétt frá Matvælastofnun segir
að ef dýr klóri sér, sleiki eða bíti
meira en venjulega geti verið hætta
á ferð. Því sé heillaráð að setja hvítt
klæði undir dýrið, kemba því og
fylgjast með hvort flær falli af.
„Það er líklegt að flóin sé að
breiðast út. Samt er ekki mikið
hægt að gera. Við munum þó skoða
dýrin sérlega vel þegar eigendur
koma með þau á stofu,“ sagði Guð-
björg Þorvarðardóttir hjá Dýra-
læknastofu Dagfinns við Morg-
unblaðið. sbs@mbl.is
Kattaflóin hugsanlega að breiðast út