Morgunblaðið - 04.03.2016, Side 21

Morgunblaðið - 04.03.2016, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARS 2016 Malasískir flugvélasérfræðingar sýndu í gær brak sem talið er að sé úr flugvél af gerðinni Boeing 777 en það fannst við strönd Mó- sambík. Miklar líkur eru taldar á því að brakið sé úr vél Malaysia Airlines MH370 sem hvarf skyndi- lega hinn 8. mars 2014. Var flug- vélin þá á leið frá Kúala Lúmpúr til Peking í Kína með alls 239 manns innanborðs. „Fyrir rannsakendur slysa er mjög erfitt að segja til um hvaðan þessi bútur kemur,“ hefur frétta- veita AFP eftir Joao de Abreu, for- seta flugmálastjórnar í Mósambík, er hann sýndi fjölmiðlafólki brakið. Að öllum líkindum er um að ræða um eins metra bút úr stéli flugvélar. Á annarri hlið bitans eru rituð aðvörunarorðin „No Step“ eða „stígið ekki“. Verður vélarbrakið nú sent sérfræðingum til rann- sóknar. Ferðalangur frá Seattle Sá sem brakið fann heitir Blaine Gibson og er hann, samkvæmt fréttastofu CNN, lögmaður frá borginni Seattle í Bandaríkjunum. Hefur hann verið á ferðalagi um Indlandshaf í um eitt ár í þeirri von að geta varpað ljósi á hið dul- arfulla hvarf MH370. „Ég hef verið mjög tengdur leit- inni að malasísku vélinni, bara vegna áhuga og í einkahópi – ekki í tilgangi gróða eða fjölmiðlunar,“ segir hann í viðtali við fréttamann sjónvarpsstöðvar CNN. Á eins árs minningarathöfn um flug MH370 hitti Gibson meðal annars ættingja og vini flugfarþeg- anna og segir hann það hafa veitt sér aukinn innblástur. Hefur hann síðan þá ferðast á milli staða og rætt við vitni og annað fólk sem kann að geta veitt upplýsingar um hvarfið. khj@mbl.is Sýndu brak sem tal- ið er að sé úr MH370  Bitinn er að öll- um líkindum úr stéli Boeing 777 AFP Bitinn Nærri tvö ár eru nú liðin frá því að vélin MH370 hvarf óvænt. Franskir lögreglumenn í óeirðabúningum fylgdust grannt með hópi flóttamanna sem í gær gekk framhjá þeim í Frumskóginum svonefnda, flóttamannabúðum sem finna má skammt frá borginni Calais í Frakklandi. Er nú unnið hörðum höndum að því að ryðja burt hluta búðanna með stórvirkum vinnuvélum. Hafa Bret- ar ákveðið að leggja samtals 80 milljónir evra til að koma í veg fyrir för flóttafólks yfir Ermarsundið. AFP Fjölmennur hópur flóttafólks freistar þess að komast yfir til Bretlands Vaktin staðin í franska frumskóginum Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins (ESB), var ómyrkur í máli er hann ræddi við fjölmiðlamenn þar sem hann var staddur á Grikklandi í tengslum við gríðarlegan straum flóttafólks þang- að undanfarna mánuði. „Hvaðan sem þið eruð – komið ekki til Evrópu,“ sagði Tusk og beindi orðum sínum að efnahagsleg- um flóttamönnum sem hafa í hyggju að ferðast með ólögmætum hætti til ríkja Evrópu og sækja þar um hæli. Hafði Tusk skömmu áður set- ið fund með Alex- is Tsipras, for- sætisráðherra Grikklands, þar sem flóttamanna- vandinn var til umræðu. „Trúið ekki smyglurunum. Ekki hætta lífi ykkar og fjármunum. Það er til einskis,“ sagði Tusk enn- fremur á fundi með blaðamönnum. Vandinn í Grikklandi er nú afar mikill og þá meðal annars vegna þess að landamæri Makedóníu eru kirfi- lega lokuð. Hafa lögreglumenn sem þar standa vaktina einungis hleypt örfáum flóttamönnum í gegn. Í Grikklandi eru nú um 30.000 flóttamenn og virðist ekkert lát vera á straumi fólks þangað. Telur Evr- ópusambandið minnst 12.000 þeirra lifa við afar slæmar aðstæður. khj@mbl.is „Komið ekki til Evrópu“  Forseti leiðtogaráðs ESB sendir farandfólki skýr skilaboð Donald Tusk Bandaríski leikarinn Richard Gere var í viðtali hjá breska ríkissjónvarp- inu (BBC) þar sem auðkýfingurinn Donald Trump og framboð hans til embættis forseta Bandaríkjanna var til umræðu. Leikarinn vandar Trump ekki kveðjurnar og segir framboð hans vera hreint út sagt „viðbjóðs- legt“ með öllu. „Þetta er auð- vitað viðbjóðs- legt. Það er erfitt að hugsa sér að einhver eins og hann, algerlega van- hæfur á öllum hugsanlegum sviðum, geti orðið forseti Bandaríkjanna,“ sagði Gere í samtali sínu við frétta- mann BBC og hélt áfram: „Ég tel ekki líkur á að þetta gerist – það væri hálfgerð martröð fyrir alla.“ Fátt virðist geta komið í veg fyrir áframhaldandi sigurgöngu Donalds Trumps í forkosningum Repúblik- anaflokksins og er hann nú kominn með 319 af þeim 1.237 fulltrúum sem þarf til að tryggja sér útnefningu flokksins. khj@mbl.is Framboð Trumps er „viðbjóðslegt“  Richard Gere blandar sér í slaginn AFP Trump Fátt virðist stöðva auðkýf- inginn í baráttunni um Hvíta húsið. Richard Gere þegar þú vilt kvarts stein á borðið Blettaábyrgð Viðhaldsfrítt yfirborð Slitsterkt Bakteríuvörn Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is By Cosentino Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is SnowMaster® 724 ZXR CE Power Curve® 1800 sá „rafmagnaði“  Vél: 212 cc Toro fjórgengis 7 hö  Eldsneytistankur: 2,2 l  Vinnslubreidd: 61 cm  Afkastageta á klst:68 tonn*  Gírar: Stiglaus 0-5,6 km áfram  Ljós: Nei  Startari:Handtrektur  Blásturslengd: 12 m* 200°  Þyngd: 53 kg Mótor: 15 amper, 230v  Eldsneytistankur: Á ekki við  Vinnslubreidd: 46 cm  Afkastageta á klst:19 tonn*  Gírar: Á ekki við  Startari:Á ekki við  Ljós: Nei  Blásturslengd: 7 m.* 180°  Þyngd: 11,3 kg.  Verð kr m. vsk 189.500 Verð kr m. vsk 59.900 Vnr: 38302 Vnr: 38710 RAFMAGNS! 10%AFSLÁTTURÁ RAFMAGNS-BLÁSARA Traustur kostur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.