Morgunblaðið - 04.03.2016, Blaðsíða 17
BAKSVIÐ
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Í ljósi innri átaka Pírata að undan-
förnu, þar sem hart virðist tekist á
um völd, er fróðlegt að rifja upp ein-
staka þætti í bók Margrétar
Tryggvadóttur, Útistöður, sem kom
út 2014. Margrét var þingmaður
Borgarahreyfingarinnar og svo
Hreyfingarinnar á árunum 2009 til
2013.
Samkvæmt lýsingum Margrétar
voru mikil átök í Borgarahreyfing-
unni sumarið 2009 á milli þinghóps
flokksins og stjórnar Borgarahreyf-
ingarinnar. Á bls. 82 stendur undir
fyrirsögninni Djúpstæður sam-
skiptavandi: „Það var ekki einleikið
hversu illa þinghópnum og stjórn
Borgarahreyfingarinnar gekk að tala
saman. Grunnvandinn lá auðvitað í
valdabaráttu en það hjálpaði ekki
þegar tortryggni, lítil þekking á
fundarsköpum, óskýrar boðleiðir og
skýlaus krafa um „gegnsæi“ bættust
við.“
Margrét lagði til í pósti til stjórnar
og þinghóps (sem í voru auk hennar
Birgitta Jónsdóttir, Þór Saari og Þrá-
inn Bertelsson - innskot blm.) að „við
myndum leita eftir aðstoð við sam-
skipti, fundarsköp og ekki síst
fundarritun…“
Birgitta og Þór til sálfræðings
Og síðar á sömu síðu segir: „Einnig
kom fram tillaga um að þeir sem
hefðu verið í hve dýpstum deilum
færu í ráðgjöf til að reyna að laga
þann vanda.
Úr varð að Þór og Birgitta fóru
ásamt hluta stjórnar og Gunnari Sig-
urðssyni til sálfræðings sem sérhæfði
sig í að laga brotin hjónabönd.“
Píratar leituðu einmitt til vinnu-
staðasálfræðings í lok síðasta mán-
aðar, til þess að „hjálpa okkur að
starfa saman þrátt fyrir ýmsan þann
ágreining sem viðgengst undir miklu
álagi og í fordæmalausri stöðu,“ eins
og Helgi Hrafn Gunnarsson, þing-
maður Pírata, orðaði það á þingi.
Á bls. 87 í bók Margrétar kemur
fram að sumarið 2009 hafi verið farið
að anda köldu á milli Birgittu Jóns-
dóttur og Þráins Bertelssonar. Hann
hafi rokið bálvondur af þingflokks-
fundi eftir að hafa sagt „Birgittu
stunda fasistastjórnun í þinghópn-
um“.
6. ágúst 2009 var m.a. haft eftir
Þráni í Fréttablaðinu: „Ég sé ekki
ástæðu til að skiptast á orðum við fólk
(Margréti, Birgittu og Þór - innskot
blm.) sem ekki er mark takandi á.“
Í bréfi sem Margrét skrifaði til
Katrínar Snæhólm 7. ágúst 2009 seg-
ir Margrét m.a.: „Ég hef miklar
áhyggjur af Þráni … Ég ræddi við
sálfræðimenntaðan mann í dag sem
er vel inni í málum hreyfingarinnar
og hann grunar að Þráinn sé með alz-
heimer á byrjunarstigi … Ég hafði
ekki leitt hugann að slíku þótt mér
fyndist þetta skýra margt.
Hvað finnst þér?“ (bls. 99)
Þráinn varð ævareiður þegar hann
frétti af innihaldi bréfsins og hótaði
að lögsækja Margréti „fyrir atvinnu-
róg og meiðyrði og neyta allra bragða
til að koma upp um illt innræti mitt“.
(bls. 100)
Margrét bað Þráin afsökunar bréf-
lega, því hann vildi ekki ræða við
hana, en í svarbréfi Þráins bendir
hann henni á að Bjarni Harðarson,
fyrrverandi þingmaður, hafi séð sóma
sinn í að segja af sér þingmennsku
eftir að tölvupóstur um samflokks-
mann hafi ratað víðar en ætlunin hafi
verið.
Orðrétt segir í bréfi Þráins: „Ég
hef gert stjórn Borgarahreyfingar-
innar grein fyrir því að annaðhvort
segi ég mig úr Borgarahreyfingunni
eða stjórnin reki þig úr Borgara-
hreyfingunni og geri kröfu um að þú
segir af þér þingmennsku. Enn-
fremur áskil ég mér allan rétt til að
lögsækja þig fyrir róginn fyrir dóm-
stólum …“ (bls. 103).
Þráinn sagði sig úr Borgarahreyf-
ingunni haustið 2009 þegar Alþingi
kom saman á nýjan leik og starfaði
sem „óháður þingmaður“ líkt og sagði
í úrsagnarbréfi hans, sem forseti Al-
þingis las upp við upphaf þings.
Eftir að Þráinn sagði sig úr Borg-
arahreyfingunni mynduðu þeir þrír
þingmenn sem eftir voru í flokknum
stjórnmálaflokk sem þeir nefndu
Hreyfinguna. Hreyfingin var form-
lega stofnuð 18. september 2009.
Allt reiðasta fólkið á Íslandi
Margrét segir um endalok Borg-
arahreyfingarinnar í bók sinni: „Eftir
á að hyggja var Borgarahreyfingin
dæmd til að springa í loft upp, til
stofnunar hennar var ekki vandað í
upphafi enda tíminn af skornum
skammti. Auk þess kom þar saman
allt reiðasta fólkið á Íslandi.“
Í nóvember 2013 hélt Hreyfingin
landsfund sinn í Árbæjarsafninu í
Reykjavík. Þar var Hreyfingin form-
lega lögð niður og Árbæjarsafninu
voru gefnir ýmsir munir sem tengd-
ust starfi Hreyfingarinnar, Borgara-
hreyfingarinnar og búsáhaldabylt-
ingunni, en það var einmitt upp úr
þeirri hreyfingu sem Borgarahreyf-
ingin varð til.
Útistöður ekki nýjar af nálinni
Margt í innri deilum Pírata að undanförnu sem minnir á átökin sem Margrét Tryggvadóttir lýsir í
bók sinni Útistöður um ágreininginn sem varð í Borgarahreyfingunni fljótlega eftir stofnun flokksins
Morgunblaðið/Ómar
Borgarahreyfingin Myndin er tekin vorið 2009 á meðan allt lék í lyndi hjá þeim fjórmenningum Þráni Bertelssyni,
Þór Saari, Margréti Tryggvadóttur og Birgittu Jónsdóttur, sem öll urðu þingmenn Borgarahreyfingarinnar þá.
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARS 2016
Bókmenntafélag jafnaðarmanna og
Alþýðuflokkurinn efna til hátíðar-
samkomu í Iðnó í Reykjavík laugar-
daginn 5. mars. Tilefnið er 100 ára
afmæli Alþýðuflokksins en flokkur-
inn og Alþýðusamband Íslands voru
stofnuð 12. mars 1916.
Á laugardag verður einnig opnuð í
Iðnó sýning á áróðursspjöldum sem
Wilhelm Beckmann gerði fyrir Al-
þýðuflokkinn. Þar verða einnig ljós-
rit af 19 listaverkum sem ýmsir lista-
menn gerðu fyrir Sunnudagsblað
Alþýðublaðsins á árunum 1934 til
1936.
Alþýðuflokkurinn var stofnaður
sem stjórnmálaafl verkalýðsfélag-
anna í landinu og tóku sjö verkalýðs-
félög í Reykjavík og Hafnarfirði þátt
í stofnun hans. Í framhaldinu voru
stofnuð félög jafnaðarmanna um
land allt og flokkurinn bauð fyrst
fram í kosningum árið 1916 og árið
1926 varð hann aðili að Alþjóðasam-
bandi jafnaðarmanna. Formlegu
starfi hans lauk þegar hann tók þátt í
stofnun Samfylkingarinnar en flokk-
urinn var þó aldrei lagður niður og
lifir enn.
Á hátíðarsamkomunni í Iðnó
laugardaginn 5. mars kl. 14 verður
fjallað um sögu flokksins, jafnaðar-
stefnuna og mikil áhrif flokksins til
hagsbóta fyrir íslenska alþýðu og á
þróun velferðarsamfélagsins.
Í framhaldi afmælishátíðarinnar
verða fluttir átta fyrirlestrar um Al-
þýðuflokkinn og jafnaðarstefnuna á
laugardögum í mars og apríl og síðan
í september og fram í október að bók
Guðjóns Friðrikssonar sagnfræð-
ings um 100 ára sögu Alþýðuflokks-
ins kemur út.
Þá munu jafnaðarmenn í „rauðu
bæjunum“ Hafnarfirði og á Ísafirði
efna til hátíðarfunda í september nk.
í tilefni af afmælinu.
Alþýðuflokkur
aldargamall
Afmælishátíð í Iðnó á laugardag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Iðnó Afmælishátíðin verður í Iðnó
við Reykjavíkurtjörn á laugardag.
Margrét segir í bók sinni (bls. 220) að þinghópurinn
hafi almennt boðið hinn vangann og aldrei svarað
fyrir sig þótt sífellt væri á þeim barið sumarið og
haustið 2009.
„Mín upplifun af þessum tíma er eins og ég
ímynda mér hvernig það sé að vera í ofbeldis-
sambandi,“ segir Margrét og er rétt að vísa í þess-
um efnum til sama orðalags og Helgi Hrafn Gunn-
arsson viðhafði fyrir skemmstu um ástandið hjá
Pírötum, og var í þeim efnum einkum að vísa til
Birgittu Jónsdóttur.
„Sífellt var gert lítið úr störfum okkar og persónum, við hædd og
spottuð og félagar okkar görguðu á okkur – bókstaflega. Það var að
verða lífsspursmál að koma sér út úr þessum aðstæðum. Og mér
fannst þurfa eitt spark til baka; að við þyrftum að útskýra okkar
sjónarmið, þótt það væri ekki nema einu sinni.“
Líkt og í ofbeldissambandi
VIÐ HÖFÐUM ALMENNT BOÐIÐ HINN VANGANN
Margrét
Tryggvadóttir
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Taktu
bílinn með
til Færeyja og Danmerkur 2016
Færeyjar
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 34.500
Danmörk
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 74.500
Bókaðu
núna!
Bókaðu
snemma til aðtryggja þér pláss.Þegar orðið fullt ísumar ferðir
í sumar.