Morgunblaðið - 04.03.2016, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARS 2016
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Kolibri trönur
í miklu úrvali, gæða-
vara á góðu verði
Ný sending af
Kolibri penslum
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
listavörum
Vorum aðtaka innfullan gám afSara&Almastrigum
WorkPlus
Strigar frá kr. 195
!
"#
"
$!%
$!
#
%$
#"
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%"!
%$
"!
"
"#
$#
#
#""
%"""
%
"!#!
"$"
$
$#
#
#
#"#%
"#!
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Meniga hefur verið tilnefnt til
evrópskra verðlauna í fjármálalausn-
um, „European Fintech Awards“.
Samkvæmt tilkynningu eru þessi
verðlaun veitt árlega fyrir bestu og
áhugaverðustu nýjungarnar í fjár-
málalausnum í Evrópu og er Meniga
tilnefnt í ár ásamt 285 öðrum evr-
ópskum fyrirtækjum. Verðlaunin
verða afhent í höfuðstöðvum hol-
lenska bankans ABN Amro í Amst-
erdam í apríl næstkomandi. Nú
stendur yfir seinni helmingur at-
kvæðagreiðslu vegna verðlaunanna
þar sem allir geta kosið það fyrirtæki
sem þeim finnst efnilegast og er
nánari upplýsingar um það að finna
á vefsíðu Meniga.
Meniga tilnefnt ásamt
285 öðrum fyrirtækjum
● Íbúðalánasjóður hefur undirritað
samning við Eignarhaldsfélag Seðla-
bankans, ESÍ, um kaup á sértryggðum
skuldabréfum með veði í húsnæðis-
lánum útgefnum af Arion banka. Sjóð-
urinn kaupir skuldabréf fyrir 13 millj-
arða en hann keypti í lok síðasta árs
sams konar skuldabréf fyrir 70 millj-
arða. Því er alls um að ræða 83 millj-
arða króna viðskipti milli sjóðsins og
ESÍ á nokkrum mánuðum.
Í tilkynningu um viðskiptin segir að
þau muni hafa jákvæð áhrif á rekstur
Íbúðalánasjóðs, en með kaupunum sé
lausafé sjóðsins, sem safnast hefur upp
vegna uppgreiðslna og leiðréttingar
húsnæðislána síðustu misseri, fjárfest í
verðtryggðum, vaxtaberandi eignum.
Þannig auki kaupin jöfnuð á milli eigna
og skulda Íbúðalánasjóðs, hvort sem lit-
ið er til fjárflæðis eða verðtrygginga-
jafnaðar
Íbúðalánasjóður kaupir sértryggð skuldabréf af ESÍ
Morgunblaðið/Sverrir
Fjárfest Íbúðalánasjóður leitar ávöxtunar.
STUTTAR FRÉTTIR ...
Felur það í sér aukinn hagnað upp á
47% fyrir þessi tólf félög. Þá nam
hagnaður Eikar, Reita og Símans,
sem skráð voru á markað í fyrra,
tæpum 15 milljörðum að auki.
Sé gert ráð fyrir að hagnaður
Haga haldist svipaður og á síðasta
ári nemur heildarhagnaður félag-
anna sextán á Aðallista Kauphallar-
innar um 70 milljörðum króna á
árinu 2015.
Hlutfallslega lægri arðgreiðslur
Af félögunum fimmtán sem skilað
hafa ársuppgjöri sínu hyggjast tólf
þeirra greiða arð til eigenda. Sé mið-
að við fyrirliggjandi tillögur stjórna
félaganna má gera ráð fyrir að aðal-
fundir þeirra muni samþykkja að
greiða tæpa 23,5 milljarða í arð. Þrjú
félög hyggjast ekki greiða arð til
hluthafa. Það eru Fjarskipti, Ný-
herji og Reginn.
Þau tólf félög sem skilað höfðu
ársuppgjöri á sama tíma í fyrra, og
skráð voru í kauphöll frá 2014 og
fyrr, hyggjast nú greiða tæpan 21,1
milljarð í arð til eigenda en í fyrra
námu arðgreiðslur þeirra til eigenda
19,3 milljörðum. Felur það í sér ríf-
lega 9% aukningu frá fyrra ári.
Samkvæmt arðgreiðslustefnu
Haga skal greiða að minnsta kosti
helming hagnaðar í arð til hluthafa,
svo áætla má að arðgreiðsla verði
ekki undir 1,9 milljörðum, miðað við
óbreyttan hagnað. Samkvæmt því
má áætla að félögin á Aðallista
Kauphallarinnar muni greiða um eða
yfir 25,5 milljarða króna til hluthafa í
formi arðs.
Rétt er að geta þess að fleiri leiðir
eru til þess að greiða út hagnað til
eigenda en með arðgreiðslum. Mörg
félög í Kauphöllinni hafa sett upp
endurkaupaáætlun þar sem stjórn er
veitt heimild til að kaupa hlutabréf
eigin félags sem eykur verðmæti
þeirra hlutabréfa sem eftir standa og
þar með eign hluthafanna.
Minna en hjá bönkunum
Hagnaður viðskiptabankanna
þriggja, Arion banka, Íslandsbanka
og Landsbankans, nam á nýliðnu ári
107 milljörðum króna. Því nemur
áætlaður hagnaður kauphallarfélag-
anna í kringum 65% af hagnaði
bankanna.
Ekki liggur fyrir á þessari stundu
hvort Íslandsbanki muni greiða arð
vegna síðasta árs en ekki er gerð til-
laga um það af hálfu Arion banka.
Stjórn Landsbankans leggur til að
greiddur verði út arður upp á 28,5
milljarða og því nemur arðgreiðsla
bankans hærri upphæð en saman-
lagðar arðgreiðslur kauphallarfélag-
anna.
Aukinn hagnaður í Kauphöll
Hagnaður félaga á Aðallista um 70 milljarðar samtals Eigendur fá væntanlega yfir 25 milljarða í arð
Hagnaður allra félaganna aðeins 65% af hagnaði viðskiptabankanna þriggja sem nam 107 milljörðum
Hagnaður og tillögur að arðgreiðslum fyrirtækja í kauphöllinni
Hagnaður
Arður
15.000
10.000
9.000
6.000
3.000
0
m
ill
jó
ni
rk
ró
na
Heimild: Ársreikningar
Ólík stærð félaganna
» Össur er verðmætasta fé-
lagið í Kauphöllinni og er það
metið á ríflega 200 milljarða
króna.
» Fast á hæla þess kemur
Icelandair með 187 milljarða.
» Þriðja stærsta félagið, Mar-
el, er metið á 178,8 milljarða.
» Olíufélagið N1 er metið á
20,8 milljarða króna.
» TM er metið á ríflega 17
milljarða króna.
» Smæsta félagið er Nýherji
en það er metið á 7,8 millj-
arða.
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fimmtán af sextán félögum í Kaup-
höll Íslands hafa birt uppgjör sín
fyrir liðið ár og nam hagnaður þeirra
samanlagt rúmum 66 milljörðum
króna. Mestum hagnaði skilaði Ice-
landair, rétt eins og í fyrra, og
reyndist hann 14,3 milljarðar króna.
Næstmestum hagnaði skilaði Marel
eða 8,1 milljarði. Þar á eftir kom
fasteignafélagið Reitir með 7,4 millj-
arða. Össur vermir að þessu sinni
fjórða sætið með 6,6 milljarða en í
fyrra skilaði stoðtækjaframleiðand-
inn næstmestum hagnaði af kaup-
hallarfyrirtækjum. Eina útgerðar-
félagið sem skráð er á markað, HB
Grandi, skilaði um 6,5 milljarða
króna hagnaði.
Hagar eru eina félagið í Kauphöll
sem ekki hefur skilað ársuppgjöri
sínu. Þar er rekstrarárið annað og
miðast upphaf þess við marsmánuð
hvert almanaksár. Hagnaður Haga á
fyrstu þremur ársfjórðungum yfir-
standandi rekstrarárs félagsins nam
rúmum 2,8 milljörðum króna og stóð
nokkurn veginn í stað miðað við
fyrra rekstrarár. Hagnaður Haga á
síðara ársfjórðungi síðasta rekstrar-
árs nam 990 milljónum og sé miðað
við þá niðurstöðu má áætla að hagn-
aður Haga á síðasta rekstrarári, sem
lauk nú um mánaðamótin, kunni að
hafa verið í kringum 3,8 milljarðar
króna.
Meiri hagnaður en í fyrra
Flest fyrirtækjanna skiluðu meiri
hagnaði á nýliðnu ári en árið 2014.
Össur er þó undantekning þar á en
þar dróst hagnaðurinn nokkuð sam-
an. Sé hagnaður þeirra tólf félaga,
utan Haga, sem skráð voru í kaup-
höllina árið 2014 borinn saman milli
ára kemur í ljós að hann fer úr rétt-
um 35 milljörðum í 51,4 milljarða.