Morgunblaðið - 04.03.2016, Síða 44
FÖSTUDAGUR 4. MARS 64. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Maðurinn látinn
2. Íslenskt barn fær ekki að koma heim
3. Nafn mannsins sem lést
4. Fimm barnaníðingar hörmuleg…
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Þýski myndlistarmaðurinn Jo-
hannes Tassilo Walter og belgíski
tónlistarmaðurinn Nicolas Kunysz
snúa bökum saman í bókverka-
hljóðinnsetningu í menningarhúsinu
Mengi, Óðinsgötu 2, í dag kl. 18.
Kynnt verður til sögunnar nýtt bók-
verk Johannesar Tassilo Walter og
flutt hljóðinnsetning sem Nicolas
hefur gert af þessu tilefni. Bókverk
Johannesar er gefið út af útgáfufyr-
irtækinu Hamann von Mier sem sér-
hæfir sig í útgáfu myndlistarbóka.
Morgunblaðið/Júlíus
Bókverkahljóðinn-
setning í Mengi
Í tilefni af afmælisdegi listmál-
arans Ásgríms Jónssonar, sem
fæddist 4. mars árið 1876, verða
haldnir tónleikar á heimili lista-
mannsins og vinnustofu, Safni Ás-
gríms Jónssonar, Bergstaðastræti
74, í dag kl. 16. Á þeim mun dúettinn
Duo Harpverk, skipaður slagverks-
leikaranum Frank Aarnink og hörpu-
leikaranum Katie Buckley, frumflytja
tónverkið „Málverk“ eftir Harald
Vigni Sveinbjörnsson sem byggt er á
tónsmíðum Ásgríms Jónssonar.
Þessi útsetning á hluta tónsmíða
Ásgríms var sérstaklega samin fyrir
flytjendurna og til heiðurs listmál-
aranum, að því er fram kemur í til-
kynningu. Á dagskránni verður einn-
ig verk eftir færeyska tónskáldið
Andras Spang Olsen, „Medi’D-
IS’tation“. Rakel Pétursdóttir, deild-
arstjóri rannsókna og sér-
safna við Lista-
safn Íslands,
mun fjalla
um feril
listamanns-
ins og kynni
af tónlist.
Frumflytja verk á
afmælisdegi Ásgríms
Á laugardag Hæg sunnanátt og léttskýjað nyrðra og eystra, ann-
ars skýjað. Sunnan 8-13 og slydda eða snjókoma syðra og vestra
um kvöldið. Hiti 0-5 stig suðvestantil, en frost annars 1-8 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestlæg átt 3-8 m/s og víða él, einkum
norðvestanlands, en bjartviðri á Norðausturlandi. Frost 1 til 12 stig,
en kringum frostmark suðvestantil.
VEÐUR
Deildarmeistaratitillinn
blasir við Íslandsmeisturum
Hauka í Olís-deildinni en
þeir náðu í gærkvöld sex
stiga forskoti í toppsætinu
með sigri gegn Akureyri.
Bikarmeistarar Vals töpuðu
fyrir FH, ÍR heldur enn í von
um að tolla í deildinni eftir
öruggan sigur á Gróttu, ÍBV
lagði Fram og Víkingur
er endanlega fallinn
eftir tap á móti Aft-
ureldingu. »2-3
Haukar náðu sex
stiga forskoti
Kári Steinn Karlsson mun næst
hlaupa maraþon í Düsseldorf í Þýska-
landi hinn 26. apríl. Þá reynir hann
við lágmarkið fyrir Ólympíuleikana í
Ríó í ágúst en hann hljóp
maraþon í London árið
2012 og varð þá fyrsti
íslenski karlinn til að
keppa í maraþoni á Ól-
ympíuleikum. „Ég á að
vera fullfær um að ná
lágmarkinu en
maraþonið getur
verið snúið,“
segir Kári
Steinn. »4
Kári reynir við ólympíu-
lágmark í Düsseldorf
Tindastóll frestaði því að KR tryggði
sér deildarmeistaratitilinn í Dom-
ino’s deild karla í körfuknattleik í gær
en Stólarnir lögðu Íslandsmeist-
arana. ÍR hrósaði sigri á móti Snæ-
felli og þar með féllu bæði Höttur og
FSu. Stjarnan vann Hött og Keflavík
hafði betur á móti FSu. Þá burstuðu
Haukar lið Grindvíkinga í Röstinni í
Grindavík. »2-3
KR-ingar náðu ekki að
tryggja sér titilinn
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Guðmundur Harðarson hefur tengst
sundi afreksfólks í yfir 50 ár. Hann
var góður sundmaður sjálfur,
„þokkalegur á innanlandsmarkaði“,
eins og hann orðar það, og byrjaði
að kenna og þjálfa eftir að hann út-
skrifaðist úr Íþróttakennaraskól-
anum á Laugarvatni 1965. Hann
byrjaði að lýsa sundi í Sjónvarpinu
1986 og er enn að á þeim vettvangi,
lýsti síðast frá keppninni á nýaf-
stöðnum Reykjavíkurleikum. Auk
þess hefur hann verið í sundtækni-
nefnd Evrópska sundsambandsins
síðan 1998.
Fyrsta lýsing Guðmundar frá Ól-
ympíuleikum var frá leikunum í
Barcelona 1992. „Ég var í stúdíóinu
á Laugaveginum rétt eins og 1996
en hef síðan farið á leikana og lýst á
staðnum 2000, 2004, 2008 og 2012,“
rifjar hann upp. Bætir við að hann
hafi farið sem landsliðsþjálfari á Ól-
ympíuleikana 1972, 1976 og 1988.
Hann var landsliðsþjálfari 1969-
1980 og aftur 1986-1988, en þjálfaði
í millitíðinni í Danmörku.
„Það er alltaf jafngaman að lýsa
sundkeppni,“ segir Guðmundur.
„Þegar maður liggur yfir þessu í
marga daga og rifjar upp árangur
og fleira kemst maður í gírinn og
undirmeðvitundin opnast, en maður
þarf að finna klórlyktina til þess að
komast í stuð.“
Fræknir kappar
Guðmundur Gíslason, Eðvarð Þór
Eðvarðsson, sem náði meðal annars
áttunda sæti í 200 m baksundi á
heimsmeistaramótinu í Madrid 1986
og sjötta sæti í 100 m baksundi á
Evrópumótinu árið áður, Ragnheið-
ur Runólfsdóttir, sem varð í sjöunda
sæti í 100 m bringusundi á EM í
Aþenu 1991, og Örn Arnarson, sem
varð fyrsti Íslendingurinn til að
verða Evrópumeistari í sundi, í 200
m baksundi 1998, og varð í fjórða
sæti í greininni á Ólympíuleikunum
í Sydney 2000, hafa verið í forystu
íslensks sundfólks, hvert á sínum
tíma, en Ísland hefur aldrei átt eins
gott sundfólk á sama tíma og um
þessar mundir. Þar fara fremst
Eygló Ósk Gústafsdóttir, Íþrótta-
maður ársins 2015, Hrafnhildur
Lúthersdóttir og Anton Sveinn
McKee. „Við stöndum vel með
þessa þrjá sundmenn sem eiga
möguleika á að komast í úrslit á Ól-
ympíuleikunum í Ríó í sumar,“ segir
Guðmundur og vísar til árangurs
þeirra á HM á liðnu ári. „Toppurinn
er hærri og breiddin þar meiri en
áður,“ áréttar hann.
Það er meira en að segja það að
komast í úrslit á Ólympíuleikum og
verðlaunasæti eru gjarnan „frátek-
in“. „Það koma samt alltaf ein-
hverjir á óvart og vonandi verður
það okkar fólk í ár, en fyrir fjórum
árum komu þrjár 14 til 15 ára stúlk-
ur frá Litháen, Kína og Bandaríkj-
unum úr tómarúmi og urðu ólymp-
íumeistarar.“ Guðmundur áréttar
að þrátt fyrir ungan aldur hafi ís-
lenska afreksfólkið öðlast mikla
reynslu. „Þetta eru reynsluboltar en
það er of snemmt að tala um verð-
laun. Fyrst þarf að komast í 16
manna úrslit og takist það geta
menn farið að láta sig dreyma um
úrslitin og gangi það eftir má hugsa
um verðlaun.“
Skemmtilegt starf
Guðmundur segir skemmtilegast
að lýsa þegar sundfólkið stendur sig
vel og á möguleika á góðum árangri.
Þá þurfi að spekúlera, meta keppi-
nautana og spá í spilin. „Lýsingar
frá ÓL í Peking, þegar Michael
Phelps var að reyna að vinna átta
gull og bæta met Marks Spitz, eru
mjög eftirminnilegar, því ég var
þjálfari á ÓL 1972 og sá Mark vinna
gullin sjö,“ segir Guðmundur. „Þeg-
ar Örn var kominn í úrslit á Ólymp-
íuleikunum 2000 sagði ég að hann
ætti ekki möguleika á gulli eða
silfri, því Bandaríkjamaður og Ástr-
ali kepptu um gullið, en bronsið
væri annað mál. Það var gríðarleg
spenna og lýsingin ein sú eftir-
minnilegasta. Við Samúel Örn Erl-
ingsson vorum saman og þegar Örn
varð í fjórða sæti kom löng þögn.
Við vorum orðlausir og þeir sem
þekkja Samma vita að það þarf mik-
ið til þess að hann þagni.“
Orðlaus í beinni lýsingu
Guðmundur
Harðarson þarf
klórlyktina
ÓL 2004 Guðmundur þurfti að sitja í rúma tvo tíma í brennandi morgunsólinni í átta daga í 30° hita.