Morgunblaðið - 30.03.2016, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.03.2016, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016 Saltkaup ehf | Cuxhavengata 1 | 220 Hafnarfjörður Sími: 560 4300 | www.saltkaup.is Salt - Umbúðir - Íbætiefni Tunnur Fötur Hnúta- pokar Bólu- plast Strekki- filmur Salt SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Skelfilegt ástand ríkir nú á Kaffi- stofu Samhjálpar í Borgartúni sem er orðin hálfgert félagsheimili úti- gangsmanna í Reykjavík. Á kaffi- stofuna geta utangarðsfólk og aðrir heimilislausir leitað og fengið sér að kostnaðarlausu morgunkaffi og heita máltíð í hádeginu. Eftir að Dagsetri fyrir heimilislausa á Eyj- arslóð út á Granda var lokað í ágúst síðastliðnum varð Kaffistofa Sam- hjálpar eitt af fáum afdrepum ut- angarðsmanna og þar halda þeir orðið til. Að sögn Varðar Levís Traustason- ar, framkvæmdastjóra Samhjálpar, er starfsfólkið óttaslegið og býst við hinu versta því þangað komi menn oft í slæmu ástandi. „Menn deyja áfengisdauða fyrir utan kaffistofuna, ætla að sprauta sig þar inni, það hafa brotist út slagsmál og verið morð- hótanir, einu sinni tók maður upp hníf og ætlaði að drepa þann næsta en sem betur fer beit hnífurinn illa,“ segir Vörður um ástandið. Engin aðstoð frá borginni Dagsetrið var rekið af Hjálpræðishernum og þangað gátu heimilislausir leitað yfir daginn, lagt sig, farið í sturtu og í hrein föt. Vörð- ur segir að Kaffistofa Samhjálpar sé fyrst og fremst til að gefa fólki mat og engin aðstaða sé þar til að sinna því sem Dagsetrið gerði. Vörður hefur farið þess á leit við Reykjavíkurborg að fundin verði lausn á þessum vanda en svörin sem hann fær er að það sé ráðningarbann og sparnaður. „Starfsfólkið gat ekki sinnt þessu svo borgin lét okkur fá tvo vakt- menn, svokallaða borgarverði, í haust. Þeir héldu uppi ákveðnum aga en um áramót voru þeir settir í annað hjá borginni og það mátti ekki ráða nýja. Við heyrum ekki að það sé lausn í sjónmáli.“ Vörður segir alltaf tölverðan hóp vera á götunni og hann verði ekki var við að það fari fækkandi í honum. Heimsóknir á Kaffistofuna séu nú yfir 200 á dag og núna um páskana hafi þær verið vel á þriðja hundrað á dag. „Sá hópur sem fer stækkandi á kaffistofunni eru hælisleitendur, þeim virðist vera vísað þangað á ókeypis mat.“ Eftir að Hjálpræðisherinn þurfti að loka Dagsetrinu á Eyjarslóð opn- aði hann súpueldhús í kastalanum við Kirkjustræti, það er opið alla virka daga frá kl. 12 til 14 fyrir ut- angarðsfólk og þá tekur við lista- smiðja til kl. 17. „Við byrjuðum með þetta starf í desember og það tók tíma fyrir fólk að fatta að það væri til staðar. Í byrjun komu kannski 2 til 3 á dag en núna eru þeir komnir yfir 20. Eins er með listasmiðjuna,“ segir Ingvi Skjaldarson, flokksforingi Hjálpræðishersins. Eins og staðan er núna verður þetta úrræði aðeins til 1. október þegar kastalinn verður afhentur nýjum eigendum undir hót- elrekstur. Ingvi segir að þau séu nú að líta í kringum sig eftir húsnæði til leigu í miðborginni sem gæti hentað undir þessa starfsemi fyrir ut- angarðsfólk. Ingvi segir heimilislausa sakna þjónustunnar í Dagsetrinu mikið, það hafi verið þeirra griðastaður yfir daginn. „Það er mitt mat að það þyrfti að koma eitthvað sambærilegt aftur en ég held að það þyrfti líka að gera miklu meira en að vera bara með skjól, einhver virkni þyrfti líka að vera í boði.“ Áfengisdauði, slagsmál og hótanir  Útigangsfólk notar Kaffistofu Samhjálpar sem húsaskjól yfir daginn  Menn í misjöfnu ástandi  Starfsfólk Samhjálpar óttaslegið  Heimilislausir sakna þjónustu Dagsetursins sem var lokað Morgunblaðið/Jakob Fannar Á útigangi Útigangsmenn safnast margir saman yfir daginn á Kaffistofu Samhjálpar í Borgartúni. Vörður Leví Traustason Ingvi Skjaldarson Sigþrúður Arnardóttir, fram- kvæmdastjóri þjónustumið- stöðvar Mið- borgar og Hlíða, er með málefni ut- angarðsfólks á sinni könnu. Hún segir Reykjavíkurborg vera með vettvangs- og ráðgjafateymi sem hittir utangarðsfólk þar sem það er hverju sinni og veiti einstaklingsmiðaða þjónustu. „Teymin veita stuðning þar sem hópurinn er staddur. Það er líka farið inn á heimili eða búsetuúr- ræði þar sem fólk þarf á aðstoð að halda. Teymið reynir að leið- beina þeim og koma inn aðstoð eins og hver og einn þarf. Við styðjum við þar sem viðkomandi er og athugum hvaða þjónustu hann þarf. Það er mismunandi hvar hver og einn er staddur í líf- inu.“ Sigþrúður segir að það þurfi fyrst og fremst að huga að hús- næðisúrræði fyrir þennan hóp. „Þeim mun betri húsnæð- isúrræði því meiri líkur á að við- komandi geti farið að vinna út frá sínum grundvelli og tekið skref til ábyrgðar.“ Þjónusta út frá þörfum REYKJAVÍKURBORG Sigþrúður Arnardóttir Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Margar deildir Landspítalans eru nú yfirfullar eftir mikið álag sem var á spítalanum í gær þegar leggja þurfti fjölda sjúklinga inn. „Það er okk- ar reynsla að eftir svona langar há- tíðir er mjög mik- il aðsókn til okkar og mikill inn- lagnaþungi,“ seg- ir Sigríður Gunn- arsdóttir, framkvæmda- stjóri hjúkrunar á Landspítalanum. Flensan er í rénun en fólk leggst inn með alls konar sjúkdóma. „Það er alltaf að fjölga í þeim hópi sem er með langvinna undirliggjandi sjúkdóma. Þessir einstaklingar þurfa reglulega á sjúkrahúsvist að halda,“ segir Sigríður. Mjög hátt nýtingarhlutfall hefur verið á legudeildum Landspítalans og í gærdag voru flestar legudeildir yfirfullar, hvort sem var á bráða-, öldrunar- eða endurhæfingardeild. Verið er að nýta rými sem eru ekki hönnuð sem legurými fyrir sjúk- linga. Vantar starfsfólk Sigríður segir að það sé líka orðin stór áskorun alla daga að vera með nægan mannafla til að sinna öllum þessum sjúklingum. „Þetta er sá árstími sem bætist minnst við af fólki. Það er ekki fyrr en það fer að vora sem koma inn nýir árgangar en það eru alltaf jafnt og þétt einhverjir að hætta. Það er skortur á hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, lífeindafræðingum og í fleiri starfsstéttum.“ Spurð hvort það vanti fleira starfsfólk nú en áður segir Sigríður að fjölgun úrræða til að bregðast við aukinni þjónustuþörf kalli á fleira starfsfólk. „Við höfum verið að reyna að opna fleiri deildir og legurými og þá eykst þörfin fyrir mannskap þannig að við finnum það alveg að það er erfitt að manna þessi nýju úrræði.“ Yfirfullar deildir á Landspítalanum  Innlagnaþungi eftir páskana  Erfitt að manna ný úrræði Morgunblaðið/Eggert Landspítalinn Mikið álag er á Landspítalanum sem endranær, en fjöldi fólks þurfti að leggjast veikur inn í gær eftir páskahátíðina. Sigríður Gunnarsdóttir Starfsmenn álvers Rio Tinto Alcan í Straumsvík byrja í dag að greiða atkvæði um miðlunartillögu sem ríkissáttasemjari lagði fram fyrir páska. Atkvæðagreiðslan er rafræn og mun hún standa yfir til kl. 16.00 þann 11. apríl næstkomandi. Nið- urstaðan mun því liggja fyrir um leið og atkvæðagreiðslunni lýkur. Um 350-360 starfsmenn álversins hafa atkvæðisrétt í kosningunni. Þeir tilheyra sex stéttarfélögum. Ríkisútvarpið greindi frá því í gær að samkvæmt miðlunartillög- unni ættu starfsmenn álversins að fá 490 þúsund króna eingreiðslu og 12,7% launahækkun frá 1. mars yrði tillagan samþykkt. Kjaradeilan í Straumsvík er orð- in langvinn en kjarasamningar starfsmanna runnu út í lok ársins 2014. gudni@mbl.is Kosið um miðlunartillögu í Straumsvík Morgunblaðið/Ómar Vinnudeila Niðurstaða atkvæðagreiðsl- unnar mun liggja fyrir 11. apríl nk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.