Morgunblaðið - 30.03.2016, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016
Ingibjörg Áskelsdóttir, forvörður
og safnfræðingur, fjallar um for-
vörslu og varðveislu listaverka á
fimmta stefnumótinu við safneign
Gerðarsafns í dag kl. 17. Ingibjörg
mun leiða gesti um listaverka-
geymslu Gerðarsafns og ræða varð-
veislu og forvörslu á mismunandi
gerðum verka og muna. Ingibjörg
er verkefnastjóri rannsókna og for-
vörslu á Borgarsögusafni Reykja-
víkur og sérhæfir sig í fyrirbyggj-
andi forvörslu auk forvörslu
pappírs og bóka. Hún starfaði áður
í Gerðarsafni og vann þar að
umönnun og frágangi verka í lista-
verkageymslu safnsins. Á efri hæð
safnsins stendur yfir sýningin Blint
stefnumót, þar sem má sjá óvænt
kynni verka úr safneign.
Fimmta stefnumót
Kvikmyndin Þrestir eftir Rúnar
Rúnarsson hlaut í síðustu viku aðal-
verðlaun alþjóðlegu kvikmyndahá-
tíðarinnar í Prag í Tékklandi og
hafði tvær helgar þar á undan hlot-
ið aðalverðlaun á alþjóðlegum kvik-
myndahátíðum, dómefndar-
verðlaunin í Mamers í Frakklandi
og aðalverðlaun Spirit of Fire í
borginni Khanty-Mansiysk í Síb-
eríu. Verðlaunin sem hún hlaut í
Prag eru þau sjöttu sem myndin
hlýtur á erlendum kvikmyndahátíð-
um á árinu og hefur myndin í heild
hlotið 16 alþjóðleg verðlaun frá því
hún var frumsýnd í september í
fyrra.
„Þetta er lyginni líkast, maður
veit eiginlega ekki hvað maður á að
segja lengur. Ég hef upp til hópa
verið ótrúlega heppinn með sam-
starfsfólk í gegnum tíðina og fólkið
á bak við Þresti er engin undan-
tekning. Listamenn og fagfólk með
hæfileika og bjartsýni að vopni.
Fólk sem getur skapað og flutt fjöll.
Íslensk kvikmyndagerð hefur náð
ótrúlegum árangri á undanförnum
árum og það er gaman að hafa
möguleika á að taka þátt í þessu
ævintýri,“ er haft eftir Rúnari í til-
kynningu.
Þrestir er önnur kvikmynd Rún-
ars í fullri lengd og fjallar um 16
ára pilt sem sendur er á æskustöðv-
arnar vestur á firði til að búa með
föður sínum sem hann hefur ekki
séð í ein sex ár.
Verðlaunamynd Úr Þröstum, kvikmynd Rúnars Rúnarssonar.
Þrestir hlutu aðalverðlaunin í Prag
AF ROKKI
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Það lá vel á honum, þegarhann loksins lét sjá sig, hálf-tíma á eftir áætlun. Það er
svo sem gömul saga og ný að stór-
stjörnur á borð við Chris Cornell
láti bíða aðeins eftir sér en heldur
var þetta þó löng bið fyrir sal eins
og Eldborg í Hörpu. Það verður að
segjast eins og er. En jæja.
Cornell var heimilislegur til
fara, í svartri peysu, gallabuxum
og skóm sem virkuðu tveimur og
hálfu númeri of stórir á hann.
Kappinn byrjaði á því að heilsa
allri fremstu röðinni með handa-
bandi, nema einum sem greip
vandræðalega í tómt. Ég hélt eitt
augnablik að hann ætlaði hrein-
lega að taka í spaðann á hverjum
einasta manni í salnum en það
gerðist sem betur fer ekki. Sal-
urinn var nefnilega orðinn býsna
óþreyjufullur enda menn komnir
til að hlusta en ekki heilsa. Þess ut-
an eru flestir aðdáendur Chris
Cornells líklega vaxnir upp úr því
að þurfa að snerta goðið. Best að
geyma þannig viðhafnarsiði fyrir
Kórinn í september.
Þetta voru fyrstu tónleikarnir
í Evróputúr Cornells vegna nýjustu
sólóplötu hans, Higher Truth, sem
kom út síðastliðið haust. Í túrnum
hyggst hann svala þorsta aðdáenda
sinna með kassagítarinn einan að
vopni – og auðvitað röddina. Að
vísu var maður að nafni Bryan Gib-
son Cornell til fulltingis í nokkrum
lögum og tók hin ýmsu hljóðfæri til
kostanna, einkum þó knéfiðluna.
Cornell tók snemma tvö lög af
Higher Truth, Before I Disappear
og Nearly Forgot My Broken
Heart, en síðan var merkilegt nokk
ekki meira af þeirri ágætu plötu að
frétta fyrr en í uppklappi. Fyrst
tók hann Josephine og tónleik-
unum lauk svo með innblásnum
flutningi á titillaginu.
Allt eru þetta fín rokklög, lág-
stemmd en haganlega smíðuð, eins
og höfundar er von og vísa. Mun-
urinn á þeim og eldra efninu sem
Cornell lék í Eldborg er hins vegar
sá að nýju lögin eru samin af
Cornelldi ’etta!
Ljósmynd/Mummi Lú
Vanur maður Chris Cornell var í fínu formi í Eldborg og tengdi af fagmennsku, kímni og hlýju við tónleikagesti.
manni sem kominn er á þægilegan
stað í lífinu og hefur enga brenn-
andi þörf fyrir að leita lengur. Sem
er auðvitað bara fínt þegar menn
eru komnir á sextugsaldurinn,
þannig lagað. En á móti kemur að
það vantar broddinn. Erindið.
Frá fyrri tíð fór mest fyrirSoundgarden-lögum og lík-
lega skók salurinn sér mest eftir
tilþrifamikinn flutning Cornells á
Black Hole Sun og Rusty Cage,
sem hann lék reyndar í útsetningu
átrúnaðargoðs síns Johnnys Cash.
Hnýtti því svo við að hann hefði á
dögunum músíserað með syni goð-
sagnarinnar, John Carter Cash. Og
fannst það greinilega ekki leiðin-
legt.
Audioslave-lögin, Doesn’t
Remind Me og Like a Stone, runnu
vel niður og eldast bara ljómandi
vel. Temple of the Dog-efnið þekki
ég ekki eins vel en einnig var vísað
í það tímabil á ferli Cornells.
Söngvarinn upplýsti salinn um
að hann ynni sér til gamans að
ábreiðuplötu um þessar mundir en
ábreiður voru furðu fyrirferðar-
miklar á dagskránni, The Times
They Are A-Changing eftir Bob
Dylan, Thank You með Led Zep-
pelin, Nothing Comperes 2 U eftir
Prince og lokalagið fyrir uppklapp
var sjálft Imagine með John Lenn-
on enda voðaverkin í Brussel rétt
afstaðin.
Cornell kom afar vel fyrir á
þessum tónleikum. Gaf sér góðan
tíma til að spjalla milli laga og léði
þannig dagskránni fyllingu. Gam-
an var að heyra hann lýsa tilurð
laga á borð við Bond-slagarann
You Know My Name og fyrrnefnt
Doesn’t Remind Me. Mest var þó
fagnað þegar hann tók sig til og
líkti Reykjavík við fæðingarborg
sína og vöggu „gruggsins“,
Seattle. Hann hefði áttað sig á
þessu þegar hann stóð við höfnina
fyrr um daginn. Eini munurinn
væri sá að það væri aðeins hlýrra í
Seattle.
Cornell sló líka á léttari
strengi og talaði til dæmis um að
siður væri að læra tvö til þrjú orð í
tungumáli þeirrar þjóðar sem leik-
ið væri fyrir hverju sinni. „En ég
verð að viðurkenna að ég lærði
ekki eitt einasta orð í íslensku!“
Dátt var hlegið.
Þegar allt er saman tekið voru
þetta prýðilegir tónleikar og enda
þótt gaman hefði verið að hafa
fleiri hljóðfæri á sviðinu hæfir
kassagítarinn hinni geggjuðu rödd
Chris Cornells ótrúlega vel. Allur
skalinn var undir, tónfræðilega og
tilfinningalega. Eigum við ekki
bara að segja að hann hafi neglt
’etta. Cornellt ’etta.
»Mest var þó fagnaðþegar hann tók sig
til og líkti Reykjavík við
fæðingarborg sína og
vöggu „gruggsins“,
Seattle.
Heyrðu umskiptin
Fáðu heyrnartæki til reynslu
Það er næstum því sama hvernig heyrnarskerðingu þú ert með
og hvernig lifi þú lifir, því ReSound heyrnartækin eru vel til þess
fallin að hjálpa þér við að skilja talmál, hafa framúrskarandi
hljómgæði og snjalla þráðlausa tengingu.
Apple, Apple merkið, iPhone, iPad og iPod touch eru
vörumerki Apple Inc, skráð í BNA og öðrum löndum.
App Store er þjónustumerki Apple Inc. Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Heyrnartæki eruniðurgreidd afSjúkratryggingum
Íslands
BATMAN V SUPERMAN 3D 6, 9(POWER)
MY BIG FAT GREEK WEDDING 2 5:50, 8, 10:10
KUNG FU PANDA 3 5:50 ÍSL.TAL
BROTHERS GRIMSBY 10
FYRIR FRAMAN ANNAÐ FÓLK 8
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
POWERSÝNING
KL. 21:00