Morgunblaðið - 30.03.2016, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Tyrkir hafaávalltskorið sig
úr í Atlantshafs-
bandalaginu. Um
leið hafa þeir ver-
ið mikilvægur
bandamaður í varnarbanda-
lagi lýðræðisríkja. Um þess-
ar mundir fara hins vegar
vaxandi efasemdir um að
Tyrkir eigi heima í NATO.
Í þeim efnum er bent á
ólýðræðislega stjórnarhætti
Receps Tayyps Erdogans,
forseta landsins, sem þolir
ekki gagnrýni. Hafa rúmlega
tvö þúsund manns verið sótt
til saka fyrir að „móðga“ for-
setann síðan hann tók við
embætti í ágúst 2014.
Ekki skiptir síður máli að
Erdogan þykir hafa unnið
gegn hagsmunum annarra
ríkja NATO í átökunum í
Sýrlandi. Bandaríkjamenn
hafa stutt við bakið á sveit-
um Kúrda gegn Ríki íslams.
Tyrknesk stjórnvöld hafa
hins vegar meiri áhyggjur af
uppgangi Kúrda vegna hins
fjölmenna minnihluta þeirra
í Tyrklandi.
Í Sýrlandi hafa Banda-
ríkjamenn stutt hreyfingu,
sem kallast Lýðræðislegi
einingarflokkurinn. Tyrkir
segja að sá flokkur sé bein-
tengdur Verkamannaflokki
Kúrdistans (PKK), sem ára-
tugum saman hefur verið í
uppreisn gegn tyrkneska
ríkinu.
Í þokkabót hefur því verið
haldið fram að á landamær-
um Tyrklands og Sýrland
hafi myndast umfangsmikill
svartur markaður og þar
hafi Tyrkir veitt hópum, sem
kenna sig við heilagt stríð,
stuðning og jafnvel hergögn.
Hefur Ríki íslams verið
nefnt í því sambandi.
Bandaríkjamenn og Tyrkir
hafa því stigið hvorir á ann-
ars tær í Sýrlandi og andar
köldu á milli ríkjanna.
Erdogan er væntanlegur til
Bandaríkjanna í vikunni til
að sitja leiðtogafund um
kjarnorkuöryggi. Samkvæmt
frétt í blaðinu Wall Street
Journal var beiðni Erdogans
um að hitta Barack Obama
Bandaríkjaforseta hafnað.
Ritskoðunartilburðir Er-
dogans hafa ekki einskorðast
við Tyrkland. Í gær var sagt
frá því að Tyrkir hefðu kall-
að þýska sendiherrann í
Ankara á teppið til að mót-
mæla því að myndband með
tveggja mínútna lagi þar
sem gert er grín að Erdogan
hafi verið sent út í þýska rík-
issjónvarpinu.
Var þess krafist
að myndbandið
yrði ekki sýnt
oftar og það yrði
þurrkað út. Í
texta lagsins
sagði eitthvað á þá leið að
blaðamaður sem ylli
Erdogan ergelsi sæti á
morgun í fangelsi.
Þýski sendiherrann hefur
áður verið kallaður fyrir og
hann er ekki eini sendiherr-
ann, sem undanfarið hefur
fengið að finna fyrir reiði
Erdogans. Á föstudag voru
vestrænir sendierindrekar
viðstaddir upphaf réttar-
halda gegn Can Dündar, rit-
stjóra blaðsins Cumhuryet,
og Erdem Gül, fréttastjóra
blaðsins í Ankara. Þeir eru
bornir þungum sökum, sagð-
ir hafa stundað njósnir,
ljóstrað upp um ríkisleynd-
armál, undirbúið valdrán og
aðstoðað við að byggja upp
hryðjuverkasamtök. Í
blaðinu var sagt frá vopna-
sendingum tyrknesku leyni-
þjónustunnar á laun til ísl-
amskra öfgamanna í
Sýrlandi.
Erlendu erindrekarnir
birtu athugasemdir um rétt-
arhöldin og myndir á fé-
lagsmiðlum og sendu tyrk-
nesk stjórnvöld sendiráðum
þeirra og ræðismanns-
skrifstofum áminningu.
Frakkar svöruðu í gær og
sögðu að erindrekar þeirra
ættu rétt á að fylgjast með
réttarhöldum yfir blaða-
mönnum, sem ákærðir væru
fyrir njósnir. „Frelsi til tján-
ingar og fjölmiðlunar, rétt-
urinn til að upplýsa og mögu-
leikinn á að setja fram
gagnrýnar skoðanir eru
grundvallarþættir lýðræðis-
legrar umræðu, sérstaklega í
aðildarríki að Evrópuráðinu
og umsækjanda um aðild að
Evrópusambandinu,“ sagði í
yfirlýsingu franska
utanríkisráðuneytsins.
Margt hefur breyst frá því
að Erdogan komst fyrst til
valda og vangaveltur voru
um það hvort Tyrkland yrði
fyrirmyndin að því hvernig
íslam, frelsi í viðskiptum og
lýðræðislegir stjórnarhættir
gætu þrifist hlið við hlið. Síð-
an hefur sigið á ógæfuhliðina
og Tyrkland einangrast frá
bandamönnum sínum. Enn
hefur aðildarríki ekki verið
rekið úr NATO og það sýnir
alvarleika málsins þegar
slíkar raddir heyrast að
Tyrkland eigi ekki heima í
bandalaginu.
Hvað er til bragðs
þegar hagsmunir
Tyrklands og NATO
fara ekki saman?}
Móðgunargjarn forseti
E
f byggingarkranar eru mæli-
kvarði á að eyjan sé að rísa, þá er
höfuðborgarsvæðið í það
minnsta komið töluvert upp fyrir
sjávarmál. Skeleggur kollegi
minn, og nágranni hér innanhúss, hefur reglu-
lega birt skúbbfréttir að undanförnu sem
tengjast byggingarframkvæmdum hérlendis.
Sjálfur fer ég ekki varhluta af framkvæmdum í
næsta nágrenni við dúfnakofann minn.
Á næstu lóð hefur verið mikið brambolt síð-
ustu árin. Langt er raunar síðan byggingarnar
sem þar stóðu voru rifnar. Faðir minn heitinn,
sem var byggingameistari, veitti því þá athygli
að byrjað var að rífa húsnæðið neðan frá. Hafði
hann aldrei orðið vitni að slíku á löngum ferli en
óvíst er hvort aðvörunarorð hans hafi náð í
gegn á þeim tímapunkti því hann kaus í ein-
hverju hugsunarleysi að ræða við mennina á íslensku.
Á reit þessum eiga að standa nokkrar byggingar. Af
teikningunum að dæma gæti orðið mjög mikilvægt að velja
lyftutónlistina af kostgæfni fyrir í það minnsta eina þeirra.
Þórunn gæti þurft að sveigja framhjá þeirri byggingu í að-
fluginu á nýju Bombardier-vélunum.
Þessar framkvæmdir vöktu talsverða athygli fjölmiðla
fyrir tveimur árum. Þá ríkti sannkallað Bagdad-ástand á
Grandanum þegar sprengingar dundu á nágrönnum í þrjá
mánuði eða svo. Hamagangurinn var slíkur að ég var orð-
inn dauðhræddur um að myndin af Davíð myndi hrynja af
veggnum í stofunni. Um þetta leyti var haft eftir ein-
hverjum SAS-manninum* að verktakarnir
beittu þó einungis fyrir sig 20% af þeim
sprengikrafti sem heimilaður væri við fram-
kvæmdir sem þessar. Ég leyfi mér að fullyrða
að með fullnýttri heimild hefði ég orðið fyrsti
Íslendingurinn til að fá ókeypis ferð til tungls-
ins. Hefði ég þá væntanlega ratað í annað
skiptið á ævinni í dálkinn eftirsóknarverða:
Hverjir voru hvar?
Hagnast má á fasteignaviðskiptum ef þann-
ig árar. Því kynntist félagi minn þegar hann
keypti óvenjulegt húsnæði í sveitarfélagi ekki
ýkja langt frá Reykjavík. Er hann smiður sem
og annar félagi minn sem fór að skoða húsa-
kynnin eftir að blekið var komið á pappíra.
Kaupandinn var hinn ánægðasti og lét þau um-
mæli falla að þetta hús myndi gera hann ríkan.
Var það fremur illa farið og minnti þar að auki
á skókassa í laginu. Sá sem ætlaði að rétta honum hjálp-
arhönd var því mjög efins um fjárfestinguna þegar hann
barði dýrðina augum. Því næst héldu þeir í bygginga-
vöruverslun í plássinu og gerðu stórinnkaup. Starfsmað-
urinn forvitnaðist um hvar þeir ætluðu að taka til hendinni
og kaupandinn nefndi heimilisfangið stoltur. Ekki hringdi
það neinum bjöllum hjá heimamanninum. Þegar kaupand-
inn stolti lýsti húsinu þá spurði starfsmaðurinn undrandi:
„Keyptirðu hjallinn?“ Eftir ófyrirséða atburðarás hagn-
aðist félagi minn reyndar vel þegar sveitarfélagið keypti af
honum hjallinn vegna skipulagsmála. kris@mbl.is
* SAS-maður = Sérfræðingur að sunnan.
Kristján
Jónsson
Pistill
„Keyptirðu hjallinn?“
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Æsispennandi áskor-endamóti í skák lauk íMoskvu á mánudag-inn, þegar fjórtánda
og síðasta umferð mótsins var tefld.
Svo heppilega vildi til að tveir efstu
menn mótsins, Rússinn Sergei Kar-
jakín og Bandaríkjamaðurinn Fabi-
ano Caruana mættust þar í nokkurs
konar úrslitaskák. Ljóst var fyrir
skákina að Caruana, sem hafði svart,
þurfti helst að vinna hana til þess að
ná sigri á mótinu, en Karjakín, sem
er einungis 26 ára gamall, hafði að
lokum betur. Hann mun því tefla um
heimsmeistaratitilinn við Norð-
manninn Magnus Carlsen, ríkjandi
heimsmeistara, í haust.
Helgi Ólafsson stórmeistari
segir að niðurstaða mótsins hafi ekki
komið sér á óvart. „Mér fannst Kar-
jakín vera mjög líklegur áður en
mótið byrjaði,“ segir Helgi og bætir
við að í gegnum tíðina hafi verið erf-
itt fyrir „útlendinga“ að sækja gull í
greipar Rússa þegar þeir tefla á
heimavelli.
Helgi segir að niðurstaða móts-
ins sé ef til vill mest svekkjandi fyrir
Bandaríkjamenn, sem hafi átt tvo
kandídata að þessu sinni, Caruana
og Nakamura, en úrslitaeinvígið
verður haldið í New York. „Það hefði
verið skemmtilegra fyrir þá að fá
heimamann í einvígið, en þeir hafa
ekki átt fulltrúa í heimsmeist-
araeinvígi, þegar titillinn hefur verið
óskiptur, frá árinu 1972.“
Glæsileg hróksfórn til sigurs
Úrslitaskákin þótti lipurlega
tefld á báða bóga, en Karjakín fórn-
aði hrók í skiptum fyrir mátssókn.
„Þetta var lipurlega gert hjá honum,
en staðan eftir byrjunina var í járn-
um,“ segir Helgi. Staðan hafi ekki
síst verið athyglisverð í ljósi þess að
Caruana varð helst að vinna skákina
með svörtu, eða ná jafntefli og
treysta á að Viswanathan Anand,
fyrrverandi heimsmeistari, næði að
vinna Svidler með svörtu. „Þetta var
sálfræðilega séð erfið staða fyrir Ca-
ruana, og spurning hvort hann hefði
teflt öðruvísi, farið rólegar, ef hon-
um hefði nægt jafntefli,“ segir Helgi.
Þess í stað hafi Caruana farið í frek-
ar hvasst afbrigði af Sikileyjarvörn,
sem hafi skilað honum ágætri stöðu.
Karjakín hafi hins vegar sjálfur
ákveðið að láta til skarar skríða og
þannig komið Caruana í opna
skjöldu.
Óvenjumikið af jafnteflum
Spurður um muninn á þeim
Carlsen og Karjakín segir Helgi að
afrekaskrá Carlsens sé öllu glæstari
en Karjakíns. „Hann vinnur eig-
inlega öll mót sem hann tekur þátt í,
þetta hefur verið ótrúleg sigurganga
hjá Carlsen,“ segir Helgi.
Carlsen sé jafnframt óútreikn-
anlegri en væntanlegur andstæð-
ingur hans, sem sagt óragur við að
kanna óhefðbundnar leiðir í tafl-
mennsku sinni. „Karjakín er
kannski öllu hefðbundnari skákmað-
ur, hann er til dæmis mjög sterkur í
kóngspeðsbyrjunum,“ segir Helgi.
Carlsen hefur almennt séð haft
yfirhöndina í innbyrðisviðureignum
þeirra, en þeir hafa mæst í 19 skák-
um áður. Carlsen hefur unnið þrjár,
Karjakín eina en 15 hafa endað
með jafntefli.
Einvígið hefur því alla burði
til þess að verða mjög spennandi
og með glæsilegri umgjörð. „Það er
vart hægt að hugsa sér skemmti-
legri stað til að heyja heimsmeist-
araeinvígi en New York,“ segir
Helgi og segir að eflaust
muni margir skák-
áhugamenn gera sér ferð
þangað í haust.
Stefnir í spennandi
heimsmeistaraeinvígi
AFP
Undrabörn Þeir Sergei Karjakín og Magnús Carlsen munu mætast í New
York í haust og keppa þar um heimsmeistaratitilinn í skák.
Sergey Karjakín fæddist í Úkra-
ínu 12. janúar 1990, en tók upp
rússneskt ríkisfang árið 2009.
Karjakín þótti vera undrabarn í
skák og hann varð yngsti stór-
meistari allra tíma árið 2002, þá
tólf ára og sjö mánaða gamall
upp á dag. Stendur það met enn.
Karjakín er jafnaldri Magnúsar
Carlsen, ríkjandi heimsmeistara,
og heyrðust snemma spádómar
um að þeir ættu eftir að mætast
í einvígi um heimsmeistaratit-
ilinn.
Einvígið verður háð dagana 11.
til 30. nóvember næst-
komandi í New York-
borg, og munu Karjakín
og Carlsen tefla 12
skákir. Verði enn jafnt
að þeim loknum verða
tefldar bráðabanaskákir
með styttri tíma-
mörkum þar til
annar verður
hlutskarp-
ari.
Yngsti stór-
meistarinn
SERGEI KARJAKÍN
Helgi Ólafsson