Morgunblaðið - 30.03.2016, Blaðsíða 15
NESBÆR
REYKJAVÍK
REYKJA
ÁSBRÚ
Fasteignir til sölu á Ásbrú
Spennandi fjárfestingartækifæri
Á innan við áratug hefur byggst upp á Ásbrú, fyrrum varnarsvæðinu við
Keflavíkurflugvöll, þróttmikið og litríkt samfélag með öfluga menntastofnun,
fjölda spennandi fyrirtækja, gróskumikla nýsköpun og blómstrandi mannlíf.
Hröð uppbygging í gagnaveraiðnaði og örþörugnarækt, ásamt nálægð við
Keflavíkurflugvöll gera Ásbrú að sönnu vaxtarsvæði til framtíðar.
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar | Sími 425 2100 | www.kadeco.is
Íslenska ríkið er eigandi fjölda fasteigna af öllum stærðum og gerðum á Ásbrú, Reykjanesbæ.
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, sem fer með umsjón og þróun svæðisins, óskar eftir tilboðum í allar fasteignir ríkisins eða stóran hluta þeirra.
Margar fasteignanna eru nú þegar í útleigu en allar eru þær til sölu. Eignirnar eru í aðskildum félögum og því er einnig mögulegt að kaupa einstök félög.
Tilboðum í allar fasteignirnar, eða hluta þeirra, þarf að fylgja lýsing á því hvernig tilboðsgjafar hyggjast nýta þær
og þróa svæðið í þágu atvinnulífs og samfélags. Farið verður yfir öll tilboð mánudaginn 11. apríl nk.
Allar fasteignir ríkisins í umsýslu Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar eru til sölu, þær eru eftirfarandi:
Aðaltröð • 2 • 4 Bogatröð • 1 • 10 • 10a • 17 • 31 • 33 Borgarbraut • 953 • 960-963 • 962 Breiðbraut • 643-647 • 643R • 668-669 • 668R • 670 • 671-679 • 671R • 672 •
674 • 675 Ferjutröð • 9 Flugvallarbraut • 710 • 732 • 749 • 740 • 752 • 770 • 771 • 773 • 778 • 790 • 937 • 941 Grænásbraut • 501 • 506 • 614 • 602R • 603-607 • 619 •
700 • 920 • 999 Heiðartröð • 517 Keilisbraut • 745 • 747-748 • 747R • 749 • 762 • 770-778 • 770R • 771 • 773 Lindarbraut • 636 • 639 Skógarbraut • 914 • 915 • 916R •
916-918 • 917 • 919 • 921 • 922 • 923 • 924 • 925 • 932 • 946 Suðurbraut • 758 Valhallarbraut • 738 • 743 • 744 • 763-764 • 763R
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
16
00
01
Við mat á tilboðum verður einkum horft til kaupverðs. Þó er áskilinn réttur til að meta hugmyndir bjóðenda um nýtingu og ráðstöfun eignanna,
s.s. áhrif á eftirspurn eftir öðrum eignum á svæðinu og almennt á nærsamfélagið. Ekki er um útboð á eignunum að ræða heldur sölu. Þróunarfélag
Keflavíkurflugvallar áskilur sér rétt til að taka því tilboði sem það telur hagstæðast, m.a. út frá ofangreindum þáttum, eða hafna þeim öllum.
Þú getur skoðað eignirnar nánar á kadeco.is.
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Stjórn Skógarmanna KFUM þykir
það tímaskekkja að helmingur fé-
lagsmanna KFUM og KFUK hafi
ekki möguleika til þess að bjóða
sig fram í trúnaðarstöður innan
flokksins, þ.e. stjórn Skógar-
manna.
Þetta segir í greinargerð með
lagabreytingatillögu sem lögð
verður fram á aðalfundi Skógar-
manna á morgun en félagið stend-
ur að sumarbúðum KFUM og
KFUK í Vatnaskógi.
Breytingarnar miða að því að
konum verði heimilt að lögum að
sitja í stjórn Skógarmanna sem
hingað til hefur eingöngu verið
skipuð karlmönnum. Núverandi
stjórn Skógarmanna stendur heils-
hugar að baki tillögunni og búist er
við því að hún verði samþykkt á
aðalfundi. Þetta segir Davíð Örn
Sveinbjörnsson, stjórnarmaður í
Skógarmönnum.
„Starfsemi Vatnaskógar er fjöl-
breyttari í dag en fyrr á tímum.
Við erum með starf allt árið sem
bæði stúlkur og strákar sækja
ásamt því að hjá okkur starfa bæði
konur og karlar,“ segir hann.
Þótt sumarbúðirnar séu enn
miðaðar að strákum þá sé jafnræði
á milli kynjanna í allri starfsemi og
eðlilegt að þeim konum sem vilja
bjóða fram krafta sína í stjórn
Skógarmanna sé gert það kleift.
Aðalfundir félagsins séu yfirleitt
vel sóttir en bæði konur og karlar
sem eru fullgildir meðlimir í
KFUM og KFUK á Íslandi geta
kosið.
Óbreytt ástand í Vindáshlíð
Í stjórn Vindáshlíðar, sem stend-
ur að sumarbúðum KFUM og
KFUK fyrir stúlkur, hafa eingöngu
konur rétt til stjórnarsetu sam-
kvæmt lögum félagsins. Engar
breytingar á því fyrirkomulagi hafa
verið lagðar til á aðalfundum fé-
lagsins til þessa.
Jessica Leigh Andrésdóttir,
stjórnarmaður í Vindáshlíð, segir
þó kominn tíma til breytinga. Það
sé þó andstaða við aðkomu karla
að starfi sumarbúðanna á meðal
foreldra sem hafi til að mynda
valdið því að körlum sé ekki heim-
ilt að vinna í sumarbúðunum sem
eingöngu stúlkur sækja.
Konur fái að sitja í stjórn
Skógarmanna KFUM
Lagabreytingar koma til atkvæða á aðalfundi félagsins
Morgunblaðið/hag
Vatnaskógur Skógarmenn vilja nú heimila konum að sitja í stjórn félagsins
sem stendur að sumarbúðunum. Greidd verða atkvæði um tillöguna.