Morgunblaðið - 30.03.2016, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.03.2016, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016 Laugavegur 61 ︲ Kringlan ︲ Smáralind ︲ Sími 552 4910 PIPA R\TBW A • SÍA jonogoskar.is Fallegar fermingargjafir Bára í Icecold skartgripalínunni fæst í tveimur lengdum og fjórum litum, einnig með litlum demanti. Frá 6.900 kr. Sogavegi við Réttarholtsveg Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Vertu upplýstur! blattafram.is VANDINN LIGGUR OFT HJÁ OKKUR SJÁLFUM. SAMÞYKKIR ÞÚ KYNFERÐISOFBELDI? Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Síðar peysur kr. 9.800 Str. 42-56 Litir: svart, dökkblátt Laugavegi 63 • S: 551 4422 Skoðið laxdal.is og facebook.com/laxdal.is Fisléttar Dúnúlpur - margir litir Vattjakkar - kr. 19.900 Gallabuxnaúrval - verðlækkun Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Bombardier Q400 flugvél Flugfélags Íslands var snúið við um 20 mínútum eftir flugtak sl. mánudag og var henni lent aftur á Reykjavíkurflug- velli. Þetta var í þriðja sinn sem þessi nýja vél Flug- félags Íslands bil- aði síðan hún fór í fyrsta áætlunar- flugið fyrir félag- ið hinn 2. mars sl. Bilunin á mánudag varð í vökvakerfi vélar- innar, að sögn Árna Gunnars- sonar, fram- kvæmdastjóra Flugfélags Íslands. Hann sagði að í marsbyrjun hefði bilað rafall í hreyfli og um miðjan mars hefði verið um að ræða rangt stillta vængbarða. „Þetta hafa verið fleiri atvik en við gerðum ráð fyrir en það má auðvitað búast við þessu með þessa flugvél eins og aðrar flugvélar. Hvort sem þær eru nýjar eða gamlar,“ sagði Árni. Vélin var keypt notuð og á Flug- félag Íslands von á tveimur vélum af sömu gerð á næstu tveimur mánuð- um. Árni væntir þess að vél númer tvö verði komin í fulla notkun í apríl og sú þriðja um miðjan maí. Fyrsta vélin sem var keypt fór í gegnum umfangsmikið innleiðingar- ferli, ýmsu í henni var breytt, m.a. stjórntækjum og innréttingum. Hin- ar flugvélarnar tvær fara í gegnum sams konar innleiðingarferli, að sögn Árna. Flugvélin hefur komið vel út Varahlutir í vökvakerfið voru í gær á leið til landsins en Flugfélag Íslands er með samning við Luft- hansa um varahluti. Árni sagði að líkur væru á því að röskun yrði á inn- anlandsflugi seinni partinn í gær. Hann átti ekki von á því að bilunin hefði áhrif á flug næstu daga. Gera átti við flugvélina í gærkvöld og bjóst hann við því að viðgerð vélarinnar gengi hratt fyrir sig eftir að vara- hlutirnir kæmu til landsins. „Fyrir utan þessi atvik hefur flug- vélin komið mjög vel út. Bæði varð- andi flugtíma og eldsneytisneyslu,“ sagði Árni og bætti því við að reynsl- an af vélinni væri betri en menn hefðu áttu von á varðandi þessa tvo þætti. „Við horfum bara björtum augum á það þegar við erum komin fyrir vind með þetta, að við séum með góðar vélar í höndunum,“ sagði hann, spurður um framhaldið. Um 450 flugvélar af tegundinni Bombar- dier Q400 eru í rekstri víða um heim í dag. Til að mynda eru yfir 50 flug- vélar af tegundinni í rekstri hjá breska félaginu Flybe. Árni sagði að menn hefðu almennt mjög góða reynslu af vélunum og eru atvikin þrjú í mars nokkuð sem Flugfélag Íslands á ekki von á því að sjá til frambúðar. Gott útlit fyrir sumarið Árni sagði að sumarið líti vel út, bókunarstaðan væri góð, sérstak- lega í Grænlandsfluginu en einnig í innanlandsflugi. „Við erum að bæta við fimmta áfangastaðnum á Græn- landi og það er alltaf vöxtur í því að erlendir ferðamenn nýti sér innan- landsflugið,“ sagði Árni. Hlutdeild erlendra ferðamanna í innanlands- flugi milli Reykjavíkur og Akureyrar nam 18 prósentum í febrúar á þessu ári. Mikið vatn hefur því runnið til sjávar síðan fyrir fimm til tíu árum þegar hlutdeild erlendra ferða- manna í innanlandsflugi var nærri 5 prósentum. „Þetta hefur vaxið samhliða fjölg- un ferðamanna hingað til lands,“ sagði Árni. Heilt yfir síðasta ár var hlutdeild erlendra ferðamanna í inn- anlandsflugi um 15 prósent. Flugvélin hefur bilað þrisvar í mánuðinum  Bilun varð í vökvakerfi Bombardier Q400 Flugfélagsins Morgunblaðið/Árni Sæberg Bombardier Q400 Ný flugvél Flugfélags Íslands var keypt notuð til lands- ins. Hún er stærri, hraðfleygari og sparneytnari en Fokker 50 vélarnar. Árni Gunnarsson Bombardier » Flugfélag Íslands er að taka í notkun þrjár Bombardier Q400 flugvélar. Þær eru með 72-76 sæti. Vélarnar koma í stað Fokker 50-flugvéla. » Félagið hefur verið með tvær Bombardier Q200, 37 sæta vélar, sem reynst hafa vel. » Bombardier Q400 eru hrað- fleygari en Fokker 50 og spar- neytnari. „Við erum á lokasprettinum og stefnum að því að ljúka rannsókn- inni fljótlega, jafnvel í næstu viku,“ sagði Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suður- landi, við mbl.is í gær, spurður um gang rannsóknar á mansalsmáli í Vík í Mýrdal. Farbann yfir sakborn- ingi í málinu rennur út á föstudag- inn og að sögn Þorgríms á eftir að taka ákvörðun um hvort það verður framlengt. Maðurinn er grunaður um að hafa haldið fólki í vinnuþrælkun en hann er eigandi fyrirtækisins Vonta International. Málið komst upp þegar lög- regla fann tvær konur frá Srí Lanka í kjallara húss mannsins á Vík og hann var í kjölfarið handtekinn. Nú eru þó sex með stöðu brotaþola í málinu, konurnar tvær og fjórir útlendingar til viðbótar sem störfuðu hjá fyrirtækinu. Verð- ur málið sent til ákærusviðs þegar rannsókn lögreglu lýkur. Rannsókn á mansalinu í Vík á lokastigi Frá Vík í Mýrdal. —með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.